Morgunblaðið - 02.10.1987, Page 38

Morgunblaðið - 02.10.1987, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 Minning: Gunnar Bjarnason fv. skólastjóri Fæddur 12. febrúar 1901 Dáinn 24. september 1987 Árið 1945 þegar sjómannaskóla- húsið var tekið í notkun og Vélskóli íslands flutti þangað hóf Gunnar Bjamason kennslu við skólann og skólastjóri varð hann tíu árum seinna, árið 1955, þegar Marinus E. Jessen, fyrsti skólastjóri skólans, lét af störfum. Gunnar lét af störf- um við skólann 1971 fyrir aldurs sakir. Undirritaður hóf kennslu við Vélskólann árið 1955 þegar Gunnar varð skólastjóri og starfaði mjög náið með Gunnari að málefnum skólans. Gunnar Bjamason hafði mikil áhrif á vélstjóramenntunina í landinu, í fyrsta lagi vegna þess að hann var mikill áhugamaður og hamhleypa til vinnu, svo og hitt að fyrir dyrum stóðu miklar breytingar á vélstjóranámi og öllu framhalds- námi í landinu. Unnið hafði verið að sameiningu vélstjóranámsins undir einn hatt en Fiskifélag íslands hafði hluta af því, hin svo kölluðu mótomámskeið. Iðnfræðslan, þar á meðal jám- smíðanámið, var í endurskoðun en Vélskólinn var um hríð aðeins fram- haldsskóli jámiðnaðarmanna. Með árunum dró mjög úr aðsókn að skólanum enda var hún algjörlega háð því hve margir lærlingar voru við riám í jámsmíði og útskrifuðust. Árið 1966 vom sett ný lög um vélstjóranám sem Gunnar Bjama- son átti mikinn þátt í að móta en með lögum þessum og undir stjóm Gunnars óx skólinn og dafnaði ótrú- lega ört. Vélskólinn var lengstum vanbúinn tækjum til verklegrar kennslu en Gunnar fékk því til leið- ar komið að vélasalurinn var stækkaður og keyptar nýjar vélar og einnig var hafíst handa við ný- byggingu til þess að unnt væri að taka við fleiri nemendum vegna aukinnar aðsóknar að skólanum. Saga Vélskólans og starfsferill Gunnars Bjamasonar eru tvinnuð saman en hvað um manninn sjálf- an? Eins og fram hefur komið er aðdáunarverður dugnaður Gunnars að koma málefnum skólans í fram- kvæmd sem eru á dagskrá á hverjum tíma. Nemendur hans segja að hann hafí verið mjög góð- ur kennari og sá nemandi sem ekki gæti lært hjá Gunnari Bjamasyni gæti alls ekkert lært. Margs er að minnast í sambandi við Gunnar Bjamason sem skóla- stjóra og yfírmanns. Það var ákaflega gaman að vinna með hon- um og láta hrífast af eldlegum áhuga hans sem stundum var að okkar dómi heldur mikill. Það bætti úr skák að Gunnar var mikill húmoristi, hafði gaman af félagsskap og var mikill gleði- og samkvæmismaður og er við brugðið hans snjöllu og hnitmiðuðu tæki- færisræðum á mannamótum. Gunnar hafði létta lund og leikara- hæfíleika enda stundaði hann leikstörf um tíma hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Gunnar hafði marg- sinnum lýst því yfír að hann hefði haft mikla gleði og ánægju af því að vera kennari enda var hann mjög vinsæll og koniu hæfíleikar hans þar ótvírætt í ljós. Hann kapp- kostaði að sníða skólann eftir íslenskum aðstæðum og veita nem- endum eins hagnýta menntun og frekast var kostur svo að þeir væru vel í stakk búnir að takast á við störf í atvinnulífínu. Gunnar Bjamason hefur háft mörg áhuga- mál um dagana, meðal annars starfað mikið í Oddfellowreglunni og Stangveiðifélagi Reykjavíkur, í skólamálum og tæknimálum heftir hann komið víða við utan Vélskól- ans svo sem við stofnun Tækniskóla íslands; saltfískþurrkun, hann hannaði hús til slíks, frystihús og kælitækni, skrifaði m.a. kennslubók um kælitækni, svartolíubrennslu í skipum, tók saman og þýddi bækur í því sambandi. Við fyrrverandi samstarfsmenn Gunnars Bjamasonar minnust hans sem góðs félaga og þökkum liðnar samverustundir sem varpa yl og ljóma á liðna ævi hins lífsglaða og góða drengs, við kveðjum hann með þakklátum huga og sendum að- standendum hans hlýjar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Gunnars Bjamasonar. Andrés Guðjónsson Gunnar Bjamason fyrrverandi skólastjóri Vélskóla íslands er lát- inn. Hann lést að Hrafnistu í Hafnarfirði aðfaranótt föstudagsins 25._ sept. sl. á 87. aldursári. Ég kynntist Gunnari fyrst haust- ið 1966 er ég innritaðist í Vélskóla Islands. Þetta var fyrsta skólaárið sem skólinn starfaði eftir nýsettum lög- um sem gerbreyttu öllu skólahald- inu og höfðu í för. með sér að nú var hægt að hefja nám við skólann án þess að hafa áður lokið sveins- prófí í viðurkenndri málmiðnaðar- grein. Breytingunni fylgdi einnig að hluti af iðnnáminu var flutt inní skólann, sem stytti bæði bóklega hlutann í Iðnskólanum og verklega hlutann í vélsmiðju. Vélskóli íslands var því fyrsti skólinn á íslandi sem bauð upp á ígildi verknáms til stytt- ingar á verknámstíma. Helsti hvatamaður þessa var Gunnar Bjamason, hann sá að ríkjandi fyrirkomulag hentaði ekki nútímanum, því var breytinga þörf. Breytingin átti sér sína andmælend- ur sem töldu að með henni væri vegið að Vélskólanum og vélstjóra- stéttinni, en Gunnar var trúr sinni sannfæringu og barðist til sigurs. I dag hygg ég að þær gagnrýnis- raddir sem þá vom uppi séu flestar þagnaðar. Á meðan ég stundaði nám við Vélskóla íslands var hafin þar kennsla í sjálfvirkni, bæði á raf- einda og loftstýrisviði. Gunnar barðist hart fyrir því að kennslu- tæki til þessarar kennslu væm keypt til landsins, en það vom margar hindranir enda sjálfvirkni þá að hefjast um borð í íslenskum skipum. Kennslutækin komu þótt eitthvað hafí vantað af þeim opinbera leyfum sem tilskilin vom. í dag efast eng- inn um mikilvægi þessarar kennslu fyrir vélstjóra. Þegar litið er til baka koma í hugann fjölmargar minningar um framsýni og dugnað Gunnars. Hann var fijór og hugmyndaríkur frum- kvöðull, sem fór ekki troðnar slóðir, ef aðrar vom vitrænni að hans mati. Það eina sem skipti máli var markmiðið og árangurinn, úrtölu- menn heltust því fljótt úr lestinni. Gunnar var mikill humoristi og hvar sem hann fór var hann hrókur alls fagnaðar. Fyrir rúmu ári hitti ég hann í flugstöðinni í Keflavík. Eftir að við höfðum heilsast spurði ég hann hvert förinni væri heitið. Hann kvaðst á leið til Gautaborgar að hitta vini og kunningja. Ég spurði þá hvort hann væri einn á ferð. Hann kvað svo vera, en lét þess jafnframt getið að sínir nán- ustu væm nú ekki alltof hrifnir af þessu uppátæki. „Telja mig alltof roskinn til slíkrar farar og því gæti ég bara valdið þessum ágætu vinum mínum vandræðum, jafnvel veikst í ferðinni og þá væri vesen að koma mér sjúkum heim til íslands". „Ja sagði Gunnar, þetta er nú svo sem gott og blessað, en þetta blessaða fólk gleymir því bara að það getur líka veikst". Nú er rödd Gunnars hljóðnuð, bæði sú sem talaði fyrir framföram og framgangi mála og eins hin sem vakti bros og gleði hjá öllum sem hana heyrðu, beggja er saknað. Við leiðarlok þökkum við honum framsýnina og dugnaðinn og vonum að á nýju tilvemstigi hljóti hann verkefni við hæfi. Aðstandendum votta ég dýpstu samúð. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands. t Frændi minn, SIGURÐUR VALUR ÞORVALDSSON bifvélavirki, áðurtil heimilis á Laugarnesvegi 56, er látinn. Erna Helgadóttir. t Litla dóttir okkar, RAGNHILDUR, lést á gjörgæsludeild Landspítalans að morgni 1. október. Guðrún Helga Össurardóttir, Brynjólfur Steingrímsson. t Eiginmaður minn, RAGNAR PÁLSSON, Viöigrund 1, Sauðárkróki, lést í Landspítalanum 29. september. Anna Pála Guðmundsdóttir. t Bróðir okkar og mágur, JÓEL SIGURÐSSON frá Lágu-Kotey, Meðallandi, lést á heimili sínu í Danmörku 28. september. Ágústa Sigurðardóttir Bogeskov, Sigurður Sigurðsson, Vilborg Árnadóttir, Margrét Egilsdóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir. t Eiginkona mín, GUNNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Borgarheiði 13, Hveragerði, er lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 24. september veröur jarðsungin laugardaginn 3. október kl. 14.00 frá Landakirkju, Vestmannaeyj- um. Fyrir mína hönd, barna okkar og annarra vandamanna, Björgvin Pálsson. t Bróðir okkar. ÞÓRIR ÞORKELSSON, Smáratúni 14, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 3. október kl. 13.30. Systkinin. t Faðir okkar, SIGURGEIR JÓNSSON bifvólavirki, Bræðraborgarstfg 13, sem lést 25. september verður jarösunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 8. ágúst kl. 13.30. Magnús, Baldur og Gunnlaugur Sigurgeirssynir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS VILHELMSSON, Hamragerði 7, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 5. október kl. 13.30. Jarösett verður að Svalbarði. Kristín Hólmgrímsdóttir, Margrét H. Magnúsdóttir, Gunnar Blöndal, Arndís H. Magnúsdóttir, Ingólfur Bragason, Þórey B. Magnúsdóttir, Magnús Þ. Haraldsson, Gisli H. Magnússon, Ásta Sverrisdóttir og barnabörn. t Tengdafaðir minn og afi okkar, FRIÐRIK JÓNSSON, fyrrv. vörubílstjóri, Ásvallagötu 24, Reykjavik, lést þriöjudaginn 29. september. Útförin fer fram frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 2. október kl. 15.00. Steinn Steinsson, Þorsteinn Steinsson, Finna Birna Steinsson, Friðrik Steinsson, Þorkell Steinsson. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BJARNI ÖSSURARSON, Norðurtúni 2, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 3. október kl. 14.00. Ólöf Pálsdóttir, Gestur A. Bjarnason, Sigríður G. Birgisdóttir, Páll V. Bjarnason, Sigríður Harðardóttir og barnabörn. t Eiginkona min, JAKOBÍNA HELGA JAKOBSDÓTTIR, Austurgötu 6, Stykkishólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 3. október kl. 13.00. Gestur Sólbjartsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.