Morgunblaðið - 24.11.1987, Side 52
P&Ó/SIA
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987
ÍtH260WGH>GH
ÓrKUBITI
Markmið
nýrrar
byggðastefnu
eftir Guðjón Ingva
Stefánsson
Reyndur sveitarstjómarmaður af
Vesturlandi kom á skrifstofu mína
fyrir nokkru og sagði að loknum
erindrekstri og spjalli um gæzku
skaparans varðandi veðurfarið: „Ég
sá í blaði, að þú ert að fara á ráð-
stefnu á Selfoss." Ég jánkaði því
og bað hann að tjá mér skoðun sína
á því, hvemig við ættum að leysa
byggðavandann.
„Segðu þeim, að við viljum halda
okkar réttmæta aflahlut af fram-
leiðslunni og síðan viljum við fá að
vera í friði. Forsjárstefna ríkisvalds-
ins er okkar mesti óvinur," var
svarið.
Ai þessu veganesti og ýmsum
öðram hræringum í þjóðfélagsum-
ræðunni upp á síðkastið má ráða,
að í vaxandi mæli sé umræða um
byggðamálin í landinu að taka á
sig mynd sjálfstæðisbaráttu, svo
einkennilegt sem það kann nú að
virðast við fyrstu sýn.
En slík viðhorf eru ekki aðeins
hér á landi. í erindi, sem prófessor
Leif Grahm flutti á ráðstefnunni,
kom greinilega fram, að raunveru-
leg valddreifíng og efling frum-
kvæðis í héraði em lykilaðgerðir í
byggðastefnu nágrannalandanna.
Þeir hafa fyrir löngu lært það í
Noregi og í Svíþjóð, að skýrslugerð
í Osló og Stokkhólmi leysir ekki
vandann í norðurhéruðunum.
Áður en við setjum fram mark-
mið nýrrar byggðastefnu þurfum
við að skilgreina verkefnið. Það er
allt annars eðlis hér á landi en
víðast hvar annars staðar, þar sem
breytingar á atvinnuháttum hafa
alls ekki dregið úr mikilvægi at-
vinnulífsins í dreifbýlinu fyrir
þjóðarheildina hér líkt og gerzt hef-
ur í öðmm löndum. Vemleg
byggðaröskun hér á landi getur því
verið hættuleg fyrir þjóðarbúið í
heild.
Meginvandinn núna er tekju-
skiptingin í þjóðfélaginu og þjón-
ustudreifíngin. Aðalástæða hins
fyrmefnda er röng gengisskráning
og hins síðamefnda miðstýring frá
höfuðborgarsvæðinu á flestum
þáttum þjóðlífsins. Ríkisvaldið á
sökina í báðum tilfellum.
í mesta góðæri, sem yfír þetta
land hefur gengið, er þjóðarbúið enn
rekið með viðskiptahalla, og stönd-
um við þó ekki í stórræðum í
framkvæmdum. Af því dreg ég þá
ályktun, að ekki sé allt með felldu
í gmndvelli utanríkisviðskipta.
Röng gengisskráning flytur gífur-
legt fjármagn til í landinu, frá
útflutningsframleiðslugreinum
landsbyggðarinnar til neyzlu þjón-
ustusamfélagsins, sem að stærstum
hluta er á höfuðborgarsvæðinu.
Dreifing valds
ogþjónustu
Langstærstu atvinnuveitendur
höfuðborgarsvæðisins em þjónustu-
stofnanir hins opinbera. Sú atvinnu-
grein hefur vaxið risaskrefum á
síðustu áratugum. Til jafnvægis
verðum við að flytja þjónustuna út
á land, ef við ætlum að auka fjöl-
breytni atvinnulífsins þar. Þegar
upplýst er, að starfsmenn Byggða-
stofnunar geta ekki hugsað sér að
flytjast til Akureyrar, þá er óraun-
hæft að ætla, að flutningur annarra
stofnana í heilu lagi takist.
Hugmyndir um útibú hafa verið
til umræðu, og margir hafa trú á
þeirri lausn. Þótt hún geti á sumum
sviðum átt við vil ég þó leyfa mér
að vara við henni sem allsheijar-
lausn. Höfuðból í Reykjavík og
hjáleigur í öðmm kjördæmum leiðir
hugann að reynslu sögunnar. Þegar
harðnað hefur á dalnum hafa hjá-
leigumar alltaf verið skomar niður
fyrst.
Fyrir rúmum fjömtíu ámm skrif-
aði Hjálmar Vilhjálmsson, fv.
ráðuneytisstjóri, m.a.: „Ef raun-
vemlegur vilji er fyrir því hjá
ríkisstjóm og Alþingi að dreifa valdi
að einhveiju leyti til byggðarlag-
anna er nauðsynlegt að lögfesta
stjómvald, sem er þess umkomið
að fara með það vald, sem þannig
færist úr höndum stjómvalda í höf-
uðborginni." •
Þá eins og nú töluðu margir um
þriðja stjómsýslustigið. En nú eins
og þá em fleiri leiðir mögulegar.
Efling sveitarfélaganna og flutn-
ingur verkefna og tekjustofna til
þeirra er mikilvægasta næsta skref-
ið í þá átt að efla vald og þjónustu-
möguleika í dreifbýlinu.
Heitur matur þegar heim er komið#
Þaö er óþarfi aö búa viö kalt snarl allan daginn.
Moulinex örbylgjuofninn tryggir öllum úr fjölskyldunni
heitan bita þegar heim er komið.
Notkun Moulinex örbylgjuofnanna er auðveld og
einföld - allt að því barnaleikur.
_ Njóttu góðrar máltíðar með Moulinex.
Upphaf góðrar máltíðar
__