Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTÚDAGUR 11. DESEMBER 1987
Á besta aldri
Morgunblaðið/Sverrir
I g-amla sófanum á Hótel Borg. Frá vinstri: Ólafur Þórðarson, Ágúst Atiason og Helgi Pétursson.
Ríó ræktar þjóðlega tóninn
Á ÞJÓÐLEGU nótunum heitir
ný hljómplata með Ríó triói þar
sem þeir félagar Helgi Péturson,
Ólafur Þórðarson og Ágúst Atla-
son syngja ýmis gamalkunn lög
í nýjum útsetningum Gunnars
Þórðarsonar. Morgunblaðið hitti
þá Ríó-félaga í spjalli á Hótel
Borg og spurði þá um nýju plöt-
una.
„Okkur fínnst það þjóðþrifamál
að koma þessum kunnu lögum á
plötu, sérstaklega með tillit til
bama, því þótt platan sé ef til vill
fremur fyrir fullorðið fólk þá hefur
það sýnt sig á viðtökunum að unga
fólkið vill læra lögin og textana
þótt þau séu í hefðbundnum stíl,“
sagði Helgi og Ólafur bætti því við
að einn vinur hans hefði haft á
orði að ung dóttir hans væri farin
að syngja Hafíð bláa hafíð fullum
rómi.
„Við erum rétt komnir inn fyrir
opið á gullnámu í sambandi við
gömlu lögin," sagði Helgi, „það
þarf að leggja miklu meiri áherslu
á alvörulög og texta,“ og Ólafur
bætti við: „Ef þessi gömlu lög heyr-
ast á annað borð, þá er það af og
til á Rás 1 í Ríkisútvarpinu, en
annars ekki. Þó lifa þessi lög góðu
lífi meðal fólksins í landinu, þau eru
Forstjóri ráðinn að
Þróunarsjóði
Vestur-Norðurlanda
STJÓRN Þróunarsjóðs Vestur-
Norðurlanda, sem skipuð er
mönnum frá Norðurlöndunum
fimm ásamt Færeyjum og Græn-
landi, hefur ráðið Steinar B.
Jakobsson forstjóra sjóðsins, en
tilgangur hans er að styrlya þró-
un atvinnulífs og norræna
samvinnu á Grænlandi, í Færeyj-
um og á íslandi. Aðsetur sjóðsins
verður i Reykjavík með fulltrú-
um í Þórshöfn, Færeyjum og
Nuuk, Grænlandi.
Steinar er fæddur í Reykjavík
1935. Hann lauk dipl. ing.-prófi í
rafeindaverkfræði frá Karlsruhe,
Vestur-Þýzkalandi árið 1962 og
hefur auk þess stundað framhalds-
nám í rafeindatækni í Bandaríkjun-
um og viðskiptafræði í Danmörku.
Steinar B. Jakobsson
Saga af yrðlingi
BÓKAFORLAG Odds Björnsson-
ar hefur gefið út bókina Urðar-
búinn eftir Jón Gísla Högnason.
I kynningu útgefanda segir m.a.
um efni bökarinnar: „Stína á Ástöð-
um var orðin 11 ára. Sumarstarf
hennar var að sitja yfir ám föður
síns fram til dala og hafði hún
hvolpinn sinn, Kátínu, með sér. I
hjásetunni verður Stína vör við grá-
an yrðling, sem henni tekst smám
saman að hæna að sér, og er lýsing
höfundar á samskiptum Stinu og
yrðlingsins einkar hugljúf."
Myndskreyting er eftir Hans
Kristansen frá Hveragerði. Prentun
og bókband annaðist Prentverk
Odds Bjömssonar hf.
arfurinn, en það er áhyggjuefni að
þau eru á undanhaldi. Við höfum
reynt að færa þau í nútímabúning,
eins mildilega og hægt er. Ailar
laglínur eru hárréttar og lögð er
áhersla á skýran og góðan texta-
framburð. Það hefur mjög verið
vandað til þessarar plötu, bæði und-
irbúnings og upptöku og gej-ð
plötuumslagsins, þar sem eru út-
skýringar á ensku og þýsku auk
íslensku.“
Þeir félagar undirstrikuðu að á
þeim væri engan bilbug að fínna
og þeir væru nú að spá í dagskrá
í einu af veitingahúsum borgarinn-
ar. „Það er klárt að við gerum
eitthvað,“ sagði Ágúst, „við viljum
leggja okkar af mörkum til þess
að kveikja áhuga meðal ungs fólks
á íslenskri tónlist sem nú er á und-
anhaldi, en það fer ekkert á miili
mála að krakkamir vilja syngja
gömlu lögin ef þau fá tækifæri til
þess.“ í laginu Oxar við ána syngja
9 böm þeirra félaga með þeim og
tveir kunningjar þeirra.
„Það þarf að bregðast við í þess-
um efnum,“ sagði Helgi, „það hefur
minnkað að að sé sungið með börn-
unum, þeim eru ekki kenndar vísur
og nú eru það aðeins einstaka gaml-
ir menn sem kunna að yrkja vel.
Upp með fjörið í sígilda, íslenska
stílnum, hann bregst ekki.
- á.j.
Bók um breytingaskeiðið
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér bókina Á besta aldri
sem Jóhanna Sveinsdóttir ritar í
samvinnu við Þuríði Pálsdóttur.
I bókinni er fjallað um breytinga-
skeið kvenna og karla. í umsögn
útgefanda segir að í bókinni sé
rætt um helstu fylgikvilla sem
og alvarlegri einkenni eins og
beinþynningu. Þá er i bókinni
sérstakur kafli um hormónagjaf-
ir og gildi þeirra og loks er
umfjöllun um líkamsrækt mið-
aldra kvenna og holla fæðu svo
og baráttuna við þunglyndið.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Á síðustu árum hefur sú þögn sem
áður ríkti um breytingaskeiðið verið
rofín enda er það óumflýjanlegt og
engri konu óviðkomandi. Ætla má
að um 80—90% kvenna þekki ein-
hver einkenni þess og óþægindi af
eigin raun. Hér á landi hefur Þuríð-
ur Pálsdóttir brotið ísinn með
fyrirlestrahaldi sínu um vandamál
breytingaskeiðsins og hvemig
brugðist skuli við þeim, enda er nú
almennt viðurkennt að gamlai'
kreddur viðvíkjandi tíðahvörfum
séu að mestu leyti rangar og fyrir
æ fleiri konur getur þetta æviskeið
orðið upphaf að ánægjulegu og
þroskandi tímabili.“
Bókin er byggð á reynslu fjölda
■»
erv fifh - Itxiv* ioi Um i Þrf
kvenna sem segja sögu sína í við-
tölum. Þá er stuðst við þekkingu
kvenlækna og annarra sérfræðinga
og hafa þeir Víglundur Þorsteinsson
kvensjúkdómalæknir og Ingólfur
Sveinsson geðlæknir lagt höfund-
unum lið við gerð bókarinnar.
Á besta aldri er 230 bls. AUK
hf. Jóna S. Þorleifsdóttir hannaði
kápu. Prentsmiðjan Oddi hf. prent-
aði.
Bók um Kristin Vig-
fússon staðarsmið
ÚT ER komin bókin Kristinn
Vigfússon staðarsmiður sem
Guðmundur Kristinsson hefur
skráð eftir föður sínum.
í frétt frá útgáfunni segir m.a.:
„Kristinn var mikill atorku og hag-
leiksmaður og lagði víða hönd á
plóginn í uppbyggingu á þessari
öld. Hann var smiður og sjómaður,
réri 17 vertíðir fíá Þorlákshöfn og
Eyrarbakka á unga aldri, þar af
13 sem formaður og víða byggði
hann hús og önnur mannvirki á
Suðurlandi, m.a. fyrstu húsin í
Hveragerði. Mjólkurbúið og Funda-
húsið og hann var mikilvirkasti
húsasmiður á Selfossi i 30 ár. Bók-
inni er skipt : 10 kafía ng er 256
bls. að sta rð. mymLskreytt og henni
fylgir nafnaskrá 630 manna sem
koma við sögu.“
Bókin er gefin út af Árnesútgáf-
unni og er prentuð í Prentsmiðju
Suðurlands.
Kristinn staðarsmiður.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík:
Lýsir yfir andstöðu við
vinnubrögð Ríkisútvarpsins
Jón Gísli Högnason
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða á fundi stjórnar
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík sem haldinn var 4.
desember sl.
Stjóm Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík lýsir yfir
andstöðu sinni við þau vinnubrögð
forráðamanna Ríkisútvarpsins að
leggja stein í götu Stöðvar 2, með
því að segja henni upp leigu á að-
stöðu Ríkisútvarpsins sem hún hefur
nú þegar og neita einkastöðinni um
slíka aðstöðu í öðrum landshlutum.
Ríkisútvarpið er þjóðareign — útvarp
allra landsmanna — og hefur því
aðrar og rpeiri skyldur en einkarekn-
ar stöðvar. Er skylduáskrift að
Ríkisútvarpinu m.a. studd þeim rök-
um. Því er ljóst að Ríkisútvarpið
getur ekki leyft sér að bregðast við
þeirri eðlilegu og sjálfsögðu sam-
keppni, sem Sjálfstæðisflokkurinn
átti stærstan þátt i að koma á, með
slíkum vinnubrögðum. Auk þess
stuðla forráðamenn Ríkisútvarpsins
með þessu háttemi sínu að því að
tækjabúnaður í eigu þjóðarinnar
stendur vannýttur. Er þessi ákvörð-
un Ríkisútvarpsins ennfremur í
andstiiðu við áður auglýsta stefnu
þess um að veita nýjum útvarps-
stöðvurr aðstoð gegn gjaldi. Heil-
brigð samkeppni er og á að vera
fólgin í því að leggja sjálfan sig fram
en ekki í því að skemma fyrir öðr-
um. Stjóm Fulltrúaráðsins skorar
því á forráðamenn Ríkisútvarpsins
að endurskoða afstöðu sína og ein-
beita sér fremur að því að bæta efni
ríkisútvarpsins og bregðast með
þeim hætt: við samkeppni um hylli
neytenda. Til þess var leikurinn
gerður.
Greinargerð:
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur Ríkisútvarjjið sagt Stöð 2
upp leigu á aðstöðu Ríkisútvarpsins
á Víðinesi og jafnframt neitað Stöð
2 um slíka aðstöðu í öðrum lands-
hlutum. Þetta er gert með óeðlilega
skömmum fyrirvara á versta
árstíma. Þetta hljóta að teljast vafa-
söm vinnubrögð sérstakiega í Ijósi
þess að í ársbyijun 1986 auglýsti
Ríkisútvarpið í öllum fjölmiðlum að
það væri á grundvelli 16. gr. útvarp-
slaga reiðubúið til þess að aðstoða
þá sem hygðust setja á stofn út-
varpsstöðvar. I auglýsingunni segir
orðrétfc „I dreifikerfi Ríkisútvaips-
ins, sem nær um land allt, felast
nokkrir nýtingarmöguleikar sem
gætu komið öðrum aðilum að gagni.
Ríkisútvarpið vill hér með vekja at-
hygli a þessu ákvæði útvarpslag-
anna, og er eftir því sem aðstæður
leyfa, reiðubúið að fylgja eftir, þegar
í Ijós kemur hver áhugi er á sam-
starfí og hveijar þarfir annarra eru
fyrir leiguafnot af útsendingabúnaði
Ríkisútvarpsins. Tekið skal fram, að
þetta á aðeins við um útsendingu
efnis en ekki dagskrárgerð."
Það er því ljóst að síðustu ákvarð-
anir Ríkisútvarpsins ganga algjör-
lega gegn þessu. Ríkisútvarpið hefur
einhliða ákveðið leigugjald fyrir að-
stöðu þá, sem um ræðir, svo hin
skyndilega kúvending nú á ekki
rætur sínar að rékja til of lágs leigu-
verðs. Það er því Ijóst að mati
stjómar Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna að þessi ákvörðun er ekki
samboðin Ríkisútvarpinu og gengur
gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins.