Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 28
28 C
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987
St|örnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri þáttur. Ég er fædd í
Reylq'avík 1.7. 1960 kl. 0.20
og vildi gjaman vita eitthvað
um merkið mitt og hvaða
starf myndi henta mér best.
Með fyrirfram þökk og bestu
kveðju. Krabbi.
Svar:
Þú hefur Sól, Venus og Merk-
úr i Krabba, Tungl í Meyju,
Mars í Nauti, Vatnsbera
Rísandi og Júpíter í Bog-
manni á Miðhimni.
Ekki dœmigerö
Þegar kort þitt er skoðað í
heild sinni má segja að þú
sért ekki dæmigerður Krabbi.
Ástæðan er sú að Júpíter er
sterkur í korti þínu, er bæði
á Miðhimni í Bogmanni og í
spennuafstöðu við Tungl.
Það táknar að þú ert eirðar-
laus og leitandi og þarft
sífellt að víkka sjóndeildar-
hring þinn. Þú ættir því að
hafa áhuga á ferðalögum og
ekki vera jafn íhaldssöm og
eins mikið fyrir að binda þig
og hinn dæmigerði Krabbi.
Tilfmningarík
Þrátt fyrir framantalið ertu
Krabbi og þarft ákveðið ör-
yggi, ert tilfínijingarík og
hlédræg í grunneðli þínu.
Einhvers konar málamiðiun
á milli öryggis og þess að
ferðast á vel við þig.
Erlend viðskipti
Þar sem Tunglið er í Meyjar-
merkinu í 8. húsi gætu t.d.
verslunar- og viðskiptastörf
átt ágætlega við, ekki síst
_> ef þau tengjast erlendum
löndum.
Sjálfsagi
Það sem einna helst gæti háð
þér er Satúmus í mótstöðu
við Venus/Sól. Það táknar
að þú hefur tilhneigingu til
að bæla sjálfa þig og ástartil-
finningar þínar niður. Hætt
er við að þú hafir minnimátt-
arkennd sem stafar af of
mikiili kröfuhörku. Þú ættir
því að læra að treysta meira
á sjálfa þig og gæta þess að
opna þig og hleypa öðmm
að þér. Satúmus táknar einn-
ig að þú hefur sterka ábyrgð-
arkennd.
Opin framkoma
Þegar á heildina er litið má
segja að þú sért í grunneðli
þínu frekar dempuð og innst
inni feimin og varkár hvað
varðar ást og vináttu. Aðrir
þættir snúa hins vegar út á
við. Rísandi Vatnsberi táknar
að þú reynir að vera yfírveg-
uð og jákvæð í framkomu og
sýnir ekki hverjum sem er
þinn innri mann. Júpíter á
Miðhimni og Tungl táknar
síðan að þú átt til að vera
hress, létt og jákvæð dags
daglega, sérstaklega út á við.
Það má því segja að ytri
^ framkoma þín gefí til kynna
léttleika en að innri persónu-
leiki þinn sé þungur og
alvörugefínn.
Frelsi og ábyrgö
Sterkur Júpíter og Satúmus,
eins og þeir birtast í korti
þínu, táknar að líf þitt mun
að mörgu leyti einkennast af
togstreitu milli ábyrgðar-
kenndar og frelsisþarfar. Til
að leysa þann hnút er t.d.
æskilegt að þú skapir þér
örugga afkomu, eigir gott
heimili og starfír t.d. hjá
traustu fyrirtæki. Þessi störf
verða hins vegar að vera fjöl-
breytileg og hreyfanleg og
einnig er æskilegt að daglegt
líf þitt gefí kost á ferðalög-
um. Þó kortið gefi einnig til
kynna listræna og andlega
hæfileika tel ég að hið hag-
nýta og örugga verði að sitja
- í fyrirrúmi.
GARPUR
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
SMÁFÓLK
Heyrðirðu þetta, Magga?
TÍ4E TEACHER 5AIP I
UJA5 60IN6 TO BE THE
"MAV QUEEN"!
Kennarinn sagði að ég
ætti að verða „Maídrottn-
ing“!
N0, 5HE 5AIP IF VOU
IMPROVE VOUR GRAPE5,
YOU MAV 6ET TO
. BE QUEEN..
Nei, .hann sagði að ef þú
bættir einkunnir þínar
kynnirðu að verða drottn-
ing...
Ég vissi að það var ein-
hvers staðar „ef“ í þessu.
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Núorðið er algengt að spiluð
séu tölvugefín spil í keppnum. í
því er mikill akkur. Menn þurfa
ekki eins oft að skella skuldinni
af eigin mistökum á makker —
það má alltaf bölsótast út í tölvu-
skrattann fyrir að dreifa spilun-
um svona asnalega. Oft er það
„ólegan" sem skrifuð er á reikn-
ing tölvunnar, en það má líka
snúa rökunum við. „Eða hvemig
átti mér að detta í hug að tölvan
færi að raða upp einu vinnings-
stöðunni," eins og ónefndur
sagnhafi orðaði það, eftir að
hafa klúðrað fjórum spöðum í
sveitakeppni hjá Bridsfélagi
Reykjavíkur nýlega:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ Á105
VG9
♦ Á432
♦ 7643
Vestur
ÍK10753 li
♦ KD10
♦ K985
Suður
♦ KDG9872
♦ 86
♦ 6
♦ ÁG2-
Suður opnaði á fjórum spöð-
um í fyrstu hendi og fékk að
sitja þar í friði. Vestur kom út
með tígulkóng sem sagnhafí
drap á ás og spilaði hjarta. Vest-
ur stakk upp hjartaás og spilaði
laufdrottningu. Þar með var úti-
lokað annað en gefa tvo slagi á
lauf.
Sagnhafí þurfti enga hjálp frá
vöminni til að vinna spilið. Hann
átti að trompa tígul í öðmm slag
og nota svo innkomumar á ás
og tíu í trompi til að stinga tvo
tígla i viðbót. Eftir þá hreingem-
ingu er óhætt að spila sig út á
hjarta. Vömin reynir að bijóta
upp laufið strax, en suður drep-
ur drottningu austurs með ás
og spilar aftur hjarta. Best er
að austur eigi slaginn og spili
lauftíunni. En hann fær að eiga
þann slag og verður þá að spila
hjarta eða tígli út í tvöfalda
eyðu.
Það hefði verið erfítt að koma
þessu klúðri yfír á makker.
Austur
♦ 43
VÁD42
♦ G9875
♦ D10
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á bandaríska meistaramótinu í
ár kom þessi staða upp í einni af
úrslitaskákum mótsins. Banda-
ríkjameistarinn árið 1986, Yasser
Seirawan, hafði hvítt en Joel
Benjamin hafði svart og átti leik.
Hvítur hefði átt að sætta sig
við að tapa peði.
40. - Dxg3+, 41. Khl - Hb2
og hvítur gafst upp, því hann er
óveijandi mát. Nick deFirmian frá
Kalifomíu og Joel Benjamin frá
New York urðu jafnir og efstir á
mótinu og verða að tefla einvígi
um titilinn.