Morgunblaðið - 13.12.1987, Page 1
128 SÍÐUR B/C
Bretland:
SAS heimiluð
kaup á BCal
London. Reuter.
BREZKA flugmálastjómin
(CAA) heimilaði fyrir sitt leyti
kaup skandinavíska flugfélags-
ins SAS á hluta í brezka flugfé-
laginu BCal. Flugfélagið British
Airways (BA) hreyfði strax mót-
mælum og krafðist þess að BCal
yrði svipt flugleyfum.
SAS bauð 110 milljónir punda,
eða 7,4 milljarða íslenzkra króna,
fyrir 26,14% hlut í BCal, en BA
hækkaði á dögunum tilboð sitt í allt
félagið úr 119 milljónum punda í
200 milljónir, eða 13,4 milljarða
króna.
Stjóm BCal hefur ráðlagt hluthöf-
um í félaginu að ganga að tilboði
SAS og fögnuðu þeir ákvörðun CAA
í gær. Fyrir skömmu sagðist ríkis-
stjórnin ekki myndu hindra kaup
SAS á hlut í BCal. Má segja að
framtíð fyrirtækisins sé í höndum
stærsta hluthafans, Investors In Ind-
ustry (31), sem á 41% hlutabréfa.
British Airways krafðist þess í
gær að BCal yrði svipt flugleyfum
því að óbreyttu væri vérið að leyfa
útlendingum að ráðskast með flug-
leyfi brezkra flugfélaga. Hótaði BA
að krefjast opinnar vitnaleiðslu um
ákvörðun CAA.
Verði af kaupum SAS mun tilvera
BCal tryggð um ókomna framtíð.
Gangi eigendur að tilboði BA rennur
það saman við það félag og hverfur
því af sjónarsviðinu, flugi verður
hætt á mörgum leiðum þess og um
2.000 starfsmenn BCal missa at-
vinnuna.
Morgunblaðið/Bjami
Bráðum koma blessuð jólin
Margir hlakka til jólanna, en engir bíða þeirra þó með jafn mikilli eftirvæntingu og bömin. Mynd þessi er tekin á Grænu-
borg, einu dagheimila Reykjavíkur, og þar vom bömin önnum kafín við jólaundirbúninginn.
Reuter
Rainbow Warrior, skipi Greenpeace-samtakanna, var sökkt í gær.
Rainbow Warrior á
leið í hina votu gröf
Wellington. Reuter.
RAINBOW Warrior, skipi Green-
peace-samtakanna, var sökkt
með athöfn við norðurodda
Nýja-Sjálands í gær, en það gekk
ekki þrautalaust, því Bandaríkja-
maður, sem vildi að ryðkláfurinn
yrði gerður að fljótandi safni,
hlekkjaði sig við skipið og tafðist
því athöfnin.
Michael Sherry, sem hlekkjaði
sig við skipið, sagði að það bryti
gegn lögmálum Greenpeace, að
sökkva Rainbow Warrior. Á endan-
um gafst hann upp og Maori-prest-
ar stýrðu kveðjuathöfn, sem um 200
manns fylgdust með.
Franskir leyniþjónustumenn
sökktu Rainbow Warrior í höfn á
Nýja-Sjálandi 10. júlí ®Í985. Einn
úr áhöfn skipsins beið bana. Phil
Goff, ferðamálaráðherra Nýja-Sjá-
lands, sagði í gær að skipið hefði
laskast um of til þess að viðgerð
hefði borgað sig og það hefði bæði
verið fyrir neðan virðingu skipsins
og tilfinningaleysi að selja það til
niðurrifs í brotajárn.
Bandarískar þyrlur
bjarga skipveijum
íranir ráðast á olíuskip frá Kýpur:
Dubai, Vínarborg. Reuter.
BANDARÍSK herþyrla bjargaði í gær skipveijum á risaoliuskipi frá
Kýpur sem kviknaði í uiidan strönd Dubai eftir árás írana í gær-
morgun. Þyrla frá bandarisku sjónvarpsstöðinni CBS bjargaði einnig
9 mönnum af skipinu sem heitir Pivot og er 232 þúsund lestir. Að
sögn björgunarmanna voru skipveijar samankomnir öðru megin í
skipinu því logandi eldar komu í veg fyrir að þeir næðu að varpa
út björgunarbátum.
Ráðherrar 13 olíuframleiðslu-
ríkja ræddu saman langt fram á
aðfaranótt laugardags um leiðir til
að ná samkomulagi um olíuverð og
framleiðslukvóta næsta árs. Að
sögn fulltrúa á fundinum í Vín hafn-
ar meirihluti OPEC-ríkja enn sem
fyrr kröfu írana um hækkun olíu-
verðs úr 18 dölum á tunnuna í 20.
Ágreiningurinn getur valdið því að
OPEC missi tök sín á olíuverði í
heiminum. Búist er við að fundinum
ljúki nú um helgina.
íranir hótuðu fyrr í vikunni að
virða framleiðslukvóta að vettugi
og tvöfalda olíuframleiðslu sína ef
olíuverð yrði ekki hækkað. Forseti
OPEC, Rilwanu Lukman, olíumála-
ráðherra Nígeríu, hefur lagt fram
málamiðlunartillögu um 18,5 dali á
tunnuna. En lykilríki innan samtak-
anna eins og Kúwait og Saudi-
Arabía eru ósveigjanleg hvað
óbreytt olíuverð varðar, vegna
„bágrar stöðu á mörkuðunum".
Persáflóastríðið endurspeglast í
deilunum á OPEC-fundinum í Vín.
írakar krefjast þess að þeir fái að
framleiða jafn mikið af olíu og íran-
ar. íranir hafna þessu algerlega og
segjast ekki taka þátt í neinum
samningum sem gæfu Irökum jafn-
an rétt til framleiðslu og Iran.
írakar hafa undanfarið framleitt
langt umfram kvóta sinn og verið
einangraðir í samtökunum. Þetta
virðist nú vera að snúast við. írakar
hafa gefið í skyn að þeir séu reiðu-
búnir að halda sig við framleiðslu-
kvóta, ef til vill til að vinna sér
bandamenn í Persaflóastríðinu. ír-
anir á hinn bóginn eru með kröfum
sínum um verðhækkun komnir í
stöðu svarta sauðarins innan OPEC.
Kosningar í Belgíu:
Stjórninni
spáð falli
Brtissel, Reuter.
I DAG er gengið til þingkosninga
í Belgíu. Skoðanakannanir benda
til að hægri stjórn Wilfrieds
Martens, sú sjöunda á átta árum,
missi þingmeirihluta sinn.
Ekki verður kosningin sjálf held-
ur auðveld fyrir hinn almenna
borgara. Kjörseðillinn er á stærð
við stórt dagblað. Tuttugu flokkar
bjóða fram og kosningareglur eru
gífurlega flóknar. „Það er eins gott
að vera viss áður en maður heldur
á kjörstað. Annars á maður á hættu
að vera allan morguninn í kjörklef-
anurn," sagði einn kjósenda.