Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 20

Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 UST OG UFSSKOÐUN SIGlRfíAR NORDAL Siguröur Nordal List og lífsskoðun er annar flokkurinn í ritum Sigurðar Nordal. Er þar saman komið í þremur bindum allt hið helzta, sem hann lét eftir sig af skáldskap og ritum um heimspeki og lífsskoðun. Fornar ástir, Líf og dauði, Einlyndi og marglyndi og leikritið Uppstigning eru meðal hinna mörgu kunnu verka, sem safnað hefur verið saman í þennan flokk. Auk þess eru í honum Qöldi ritgerða og endurminningaþátta, en hluti efnisins hefur ekki verið prentaður áður. Kafliúr Sigurður Nordal - Aldarminning Brandr af brandi brenn, unz brunninn er, funi kveykiz af funa. Sigurður Nordal var eldhugi, brandur, sem brann af brandi, hvað bjartast og glaðast, funi, sem kveikti nýjan funa. Við þessa líkingu mættu íslendingar staldra með vamaðar- og eggjunar- orð Sigurðar Nordal í huga. Einmitt nú á þessum viðsjárverðu tímum er brýnni þörf en nokkru sinni að slá skjald- borg um tunguna og hlúa að þjóðlegum fræðum, hlaða nýja og nýja kesti, sem um ókomna tíð geti tekið funanum frá hinum björtustu bröndum, svo að eldar íslenzkrar menningar megi loga um aldur. Sigurður Nordal var um langt skeið pró- fessor í íslenzkum fræðum við Háskóla Islands og fræðari og leiðbeinandi þjóðarinn- ar allrar um hinn íslenzka menningararf. Enginn hefur kennt þjóðinni betur að meta hátindana í íslenzkum bókmenntum, allt frá Völuspá og Snorra til skálda 19. og 20. aldar. Kennsla og ritskýringar Sigurðar Nordal kalla fram í huga mér, nemanda hans, vísur úr þýðingu hans á kvæði Gu- stafs Fröding um hið horfna sagnaland Atlantis, sem faðir minn kenndi mér ungum: Báturinn ber okkur hægan burtu frá annanna þysmiklu strönd; draumanna blánanch blæja breiðist um voga og lönd. Legg mér að vanga vangann og horfum bæði yfir borðstokksins rönd. Það sem hér undir þú eygir, eru ekki steinar og klettar og sker, — líttu á þær háreistu hallir, hver þar af annarri ber! Atlantis sagna, óðar og drauma, heimurinn sokkni er hér. Sólarlag Einni unni eg meyjunni, meðan það var. Nú er sú ástin aska og útbrunnið skar. Nú er sú ástin aska, sem áður vermdi lund eins og júnísðl í heiði um hádegisstund. Sól varstu og þíðvindi þungbúnu geði, ylur minn, ljós mitt, líf mitt og gleði. Svo hættirðu að vinna á hretskýjunum svörtu. Svona fer þeim öllum, sólunum mínum björtu. Svona fer þeim öllum, þótt í suðri hafi þær völd. Dagurinn þeirra á sér áður en varir kvöld. Þú hvarfst mér í norðri, það húmar að kveldi. Á morgun fer önnur úr suðri um sál mína eldi. Óravegir i Láfið leiddi mig inn í höll sína og sýndi mér níu konungsdætur, hverja annarri feg- urri. Allar syndir jarðarinnar og unaðssemd- ir paradísar leiftruðu á þúsund vegu í augum þeirra. Og lífið sagði: Kjóstu! Hvernig ætti eg að kjósa? Eg kýs þær allar. Kjóstu eina! Varpaðu mér heldur í myrkrastofu og lofaðu mér að dreyma um þær allar. Síðan er eg landflótta og förumaður á leiðum jarðarinnar, en ek í purpura og gull- reið um óravegu draumanna. 2 Mér hefur verið sagt frá emi, sem var- menni veiddi í dýraboga. Hann skar af honum báða fæturna og lét hann síðan fljúga. I fyrstu varð öminn lausninni feginn. Meðan hann sat fastur í boganum, hafði hann kviðið áþján eða bana. Aldrei fyrr hafði hann unnað frelsinu eins og nú. Hann flaug og flaug hvíldarlaust. Vængjum hans jókst sífellt þróttur, hann lærði að grípa bráð sína í loftinu og rífa hana sundur með nefinu. Hann flýgur og flýgur. Það er enginn blettur á jörðinni, hvorki tindar né dalir, jöklar né frumskógar, sem hann hefur ekki rennt augunum yfír. Hann flýgur hærra en aðrir emir, og vængir hans kunna ekki að þreytast. En hann getur hvergi fótað sig, hvergi leitað hvíldar, á sjó eða landi. Hann hefur ekki setzt árum saman. Og það getur orðið langt að lifa svo. Jafnvel öm getur orðið leiður á að fljuga. Maki hans hefur vitjað hans í himinbláman- um og reynt að lokka hann með sér. En hún þreyttist á að fljúga með honum og hvarf aftur. Seinna hefur hann séð hana sitja á eggjum annars arnar í hengitó í hamrabjörgum. Eg hef hlustað á eintal hans, Gyðingsins gangandi í loftsins ríki. Það var á hljóðri haustnótt, og hann sveif hægt og lágt yfir skóginum. Hann getur ekki sungið, en hann á hlakkandi siguróp hins volduga og kvein hins hrausta. Hann miklast yfír valdi sínu og víðsýni, hann tryllist af gleði yfír frelsi sínu og árdeg- isroðanum á jöklunum. Hann þrjózkast við aðdráttarafli jarðarinnar og fyrirlítur þá, sem kúra í hreiðrum á greinum og í mosa- tóm. En er ekki eitt hreiður, sem þú átt, stærra en jörðin öll, sem enginn getur eignazt? Eg er eins og konungur hundrað hersveita, sem enginn ann. Bijóst mitt frýst í sólarhitanum, af því það á ekkert til að verma. (úr ,,Hel“) Leikmaður stígur í stólinn Alltaf síðan eg fór að vita til mín, hefur það verið mér undrunarefni að vera til. Mér hefur fundizt það dásamlegt ævintýri, að þessi hnefafylli af mold og ösku skuli hafa vaknað til lífs, farið að hugsa og fínna til, hryggjast og gleðjast, vaxa og þroskast. Mig hefur langað til þess að láta mér verða sem mest úr þessu ævintýri, hvort sem það yrði langt eða skammt. En lífíð hefur líka verið mér vandamál. Eg á ekki við það, að eg hef álpazt áfram eins og gengur og gerist, barizt fyrir dag- legri afkomu, unnið störf mín með misjöfn- um árangri, átt mínar ofætlanir og vonbrigði, gert mínar skyssur, beðið mínar sorgir og ýmiss konar ósigra. En eg á við hitt, að hvemig sem lífsbaráttan hefði lánazt, þó að eg hefði orðið auðugur, voldug- ur eða frægur, unnið einhver stórvirki og öll ytri kjör leikið mér í lyndi, hefði mér

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.