Morgunblaðið - 13.12.1987, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
UST OG UFSSKOÐUN
SIGlRfíAR NORDAL
Siguröur Nordal
List og lífsskoðun er annar
flokkurinn í ritum Sigurðar Nordal.
Er þar saman komið í þremur
bindum allt hið helzta, sem hann lét
eftir sig af skáldskap og ritum um
heimspeki og lífsskoðun.
Fornar ástir, Líf og dauði, Einlyndi
og marglyndi og leikritið
Uppstigning eru meðal hinna mörgu
kunnu verka, sem safnað hefur verið
saman í þennan flokk.
Auk þess eru í honum Qöldi ritgerða
og endurminningaþátta, en hluti
efnisins hefur ekki verið prentaður
áður.
Kafliúr
Sigurður Nordal
- Aldarminning
Brandr af brandi
brenn, unz brunninn er,
funi kveykiz af funa.
Sigurður Nordal var eldhugi,
brandur, sem brann af
brandi, hvað bjartast og
glaðast, funi, sem kveikti
nýjan funa. Við þessa líkingu
mættu íslendingar staldra
með vamaðar- og eggjunar-
orð Sigurðar Nordal í huga.
Einmitt nú á þessum viðsjárverðu tímum
er brýnni þörf en nokkru sinni að slá skjald-
borg um tunguna og hlúa að þjóðlegum
fræðum, hlaða nýja og nýja kesti, sem um
ókomna tíð geti tekið funanum frá hinum
björtustu bröndum, svo að eldar íslenzkrar
menningar megi loga um aldur.
Sigurður Nordal var um langt skeið pró-
fessor í íslenzkum fræðum við Háskóla
Islands og fræðari og leiðbeinandi þjóðarinn-
ar allrar um hinn íslenzka menningararf.
Enginn hefur kennt þjóðinni betur að meta
hátindana í íslenzkum bókmenntum, allt frá
Völuspá og Snorra til skálda 19. og 20.
aldar. Kennsla og ritskýringar Sigurðar
Nordal kalla fram í huga mér, nemanda
hans, vísur úr þýðingu hans á kvæði Gu-
stafs Fröding um hið horfna sagnaland
Atlantis, sem faðir minn kenndi mér ungum:
Báturinn ber okkur hægan
burtu frá annanna þysmiklu strönd;
draumanna blánanch blæja
breiðist um voga og lönd.
Legg mér að vanga
vangann og horfum
bæði yfir borðstokksins rönd.
Það sem hér undir þú eygir,
eru ekki steinar og klettar og sker,
— líttu á þær háreistu hallir,
hver þar af annarri ber!
Atlantis sagna,
óðar og drauma,
heimurinn sokkni er hér.
Sólarlag
Einni unni eg meyjunni,
meðan það var.
Nú er sú ástin aska
og útbrunnið skar.
Nú er sú ástin aska,
sem áður vermdi lund
eins og júnísðl í heiði
um hádegisstund.
Sól varstu og þíðvindi
þungbúnu geði,
ylur minn, ljós mitt,
líf mitt og gleði.
Svo hættirðu að vinna
á hretskýjunum svörtu.
Svona fer þeim öllum,
sólunum mínum björtu.
Svona fer þeim öllum,
þótt í suðri hafi þær völd.
Dagurinn þeirra á sér
áður en varir kvöld.
Þú hvarfst mér í norðri,
það húmar að kveldi.
Á morgun fer önnur úr suðri
um sál mína eldi.
Óravegir
i
Láfið leiddi mig inn í höll sína og sýndi
mér níu konungsdætur, hverja annarri feg-
urri. Allar syndir jarðarinnar og unaðssemd-
ir paradísar leiftruðu á þúsund vegu í augum
þeirra.
Og lífið sagði: Kjóstu!
Hvernig ætti eg að kjósa? Eg kýs þær
allar.
Kjóstu eina!
Varpaðu mér heldur í myrkrastofu og
lofaðu mér að dreyma um þær allar.
Síðan er eg landflótta og förumaður á
leiðum jarðarinnar, en ek í purpura og gull-
reið um óravegu draumanna.
2
Mér hefur verið sagt frá emi, sem var-
menni veiddi í dýraboga. Hann skar af
honum báða fæturna og lét hann síðan
fljúga.
I fyrstu varð öminn lausninni feginn.
Meðan hann sat fastur í boganum, hafði
hann kviðið áþján eða bana. Aldrei fyrr
hafði hann unnað frelsinu eins og nú. Hann
flaug og flaug hvíldarlaust. Vængjum hans
jókst sífellt þróttur, hann lærði að grípa
bráð sína í loftinu og rífa hana sundur með
nefinu.
Hann flýgur og flýgur. Það er enginn
blettur á jörðinni, hvorki tindar né dalir,
jöklar né frumskógar, sem hann hefur ekki
rennt augunum yfír. Hann flýgur hærra en
aðrir emir, og vængir hans kunna ekki að
þreytast. En hann getur hvergi fótað sig,
hvergi leitað hvíldar, á sjó eða landi. Hann
hefur ekki setzt árum saman.
Og það getur orðið langt að lifa svo.
Jafnvel öm getur orðið leiður á að fljuga.
Maki hans hefur vitjað hans í himinbláman-
um og reynt að lokka hann með sér. En
hún þreyttist á að fljúga með honum og
hvarf aftur. Seinna hefur hann séð hana
sitja á eggjum annars arnar í hengitó í
hamrabjörgum.
Eg hef hlustað á eintal hans, Gyðingsins
gangandi í loftsins ríki. Það var á hljóðri
haustnótt, og hann sveif hægt og lágt yfir
skóginum. Hann getur ekki sungið, en hann
á hlakkandi siguróp hins volduga og kvein
hins hrausta.
Hann miklast yfír valdi sínu og víðsýni,
hann tryllist af gleði yfír frelsi sínu og árdeg-
isroðanum á jöklunum. Hann þrjózkast við
aðdráttarafli jarðarinnar og fyrirlítur þá,
sem kúra í hreiðrum á greinum og í mosa-
tóm.
En er ekki eitt hreiður, sem þú átt,
stærra en jörðin öll, sem enginn getur
eignazt? Eg er eins og konungur hundrað
hersveita, sem enginn ann. Bijóst mitt frýst
í sólarhitanum, af því það á ekkert til að
verma.
(úr ,,Hel“)
Leikmaður stígur
í stólinn
Alltaf síðan eg fór að vita til mín, hefur
það verið mér undrunarefni að vera til. Mér
hefur fundizt það dásamlegt ævintýri, að
þessi hnefafylli af mold og ösku skuli hafa
vaknað til lífs, farið að hugsa og fínna til,
hryggjast og gleðjast, vaxa og þroskast.
Mig hefur langað til þess að láta mér verða
sem mest úr þessu ævintýri, hvort sem það
yrði langt eða skammt.
En lífíð hefur líka verið mér vandamál.
Eg á ekki við það, að eg hef álpazt áfram
eins og gengur og gerist, barizt fyrir dag-
legri afkomu, unnið störf mín með misjöfn-
um árangri, átt mínar ofætlanir og
vonbrigði, gert mínar skyssur, beðið mínar
sorgir og ýmiss konar ósigra. En eg á við
hitt, að hvemig sem lífsbaráttan hefði
lánazt, þó að eg hefði orðið auðugur, voldug-
ur eða frægur, unnið einhver stórvirki og
öll ytri kjör leikið mér í lyndi, hefði mér