Morgunblaðið - 13.12.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
Andrés lndriðason þarf vart að kynna
fyrir íslenskum börnum og unglingum. Hann
hefur á undanförnum árum unnið sér sess
sem einn afkastamesti og vandvirkastí
unglingabókahöfundur hér á landi. Bækur
hans hafa verið með afbrigðum vinsælar og
nægir þar að nefna Fjórtán bráðum
fimmtán, Töff týpa á föstu, Með stjömur í
augum og svo bækurnar um Jón Agnar
Pétursson, Bara staelar! og Enga stæla!. Nú
koma út tvær nýjar bækur eftir Andrés
Indriðason.
Stjömustælar
er þriðja bók Andrésar um Eyjapeyjann
eldhressa, Jón Agnar Pétursson, sjálfstætt
framhald af hínum tveimur. Nú hyggst Jón
Agnar spreyta sig á leiklistinni. Hann fær
hlutverk í kvikmyndinni Hjartagosanum en
margt fer öðruvísi en ætlað er. Björninn er
ekki unninn þó að Barði kvikmyndaleikstjóri
haldi því fram að hann sé fæddur leikari. Þó
fer gamanið fyrst að kárna þegar í Ijós
kemur að hann á ekkí að leika hetju f anda
Sylvester Stallone heldur ástarhlutverk á
móti þessarí stelpu frá Akureyrí. Fyrirsjáan-
legt er að það verða ekki góð tíðíndi fyrir
Ragnhildi. hína einu sönnu. En úr öllum
flækjum má greiða með kænsku og smástæl-
um. . . Stjömustælar er 196 bls.
Verð: 1.375,-
I5ð
Málogmenning Ea
Danslaga-
keppni á
Hótel Borg
ÁKVEÐIÐ hefur verið að endur-
taka danslagakeppnina í tengsl-
um við gömludansana á Hótel
Borg. Svipuð keppni var haldin
í fyrra og bárust þá um 120 lög.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú
bestu lögin og eru 1. verðlaun 60
þúsund krónur, 2. verðlaun 30 þús-
und krónur og 3. verðlaun 10
þúsund krónur. Stjómandi er Jón
Sigurðsson og mun hann ásamt
hljómsveit sinni sjá um framkvæmd
keppninnar.
Keppnin hefst 7. febrúar og verð-
ur á sunnudögum fram til 27. mars
en þá verða úrslit kynnt. Skilafrest-
ur laga er til 15. janúar og er
nauðsynlegt að höfundar skili lög-
um fyrir þann tíma.
(Úr fréttatilkynningu.)
Jólatón-
leikar í
Grindavík
ÁRLEGIR jólatónleikar Tónlist-
arskóla Grindavíkur verða
haldnir í Grindavíkurkirkju
mánudaginn 14. desember kl.
20.00.
Nemendur skólans koma þar
fram og leika á píanó og blásturs-
hljóðfæri.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
flö PIOMEER
HUÓMTÆKI
wT Herra -og
f dömuhanzkar
i gjafaumbúöum
TroÖfullbúð
afnýjum vörum
J ‘SKóbiKkðUi
ioi jKbjýdviL
Uz