Morgunblaðið - 13.12.1987, Page 41

Morgunblaðið - 13.12.1987, Page 41
og er þeim til hagsbóta og varðar atvinnuöryggi þeirra, eru hans verk fyrst og fremst, enda naut stéttin forystu hans í áratugi. Ég mun þó ekki rekja störf hans hér. Það munu aðrir mér færari gera. Bergsteinn hafði næmt auga fyr- ir þörfum sinnar stéttar og afkomu bifreiðastjóranna. Hann horfði upp á marga hætta störfum vegna ald- urs eða heilsubrests án þess að hafa neinn eftirlaunarétt. Hann beitti sér því fyrir stofnun Lífeyris- sjóðs leigubifreiðastjóra. Það starf kostaði baráttu áður en sigur vannst. Vissulega naut hann þar hjálpar margra góðra manna, en forystan var fyrst og fremst hans, enda var hann óþreytandi í baráttu sinni fyrir lífeyrissjóðnum eins og öðrum málum sem hann bar fyrir bijósti. Bergsteinn naut þeirra hæfíleika í störfum sínum og málefnabaráttu, hvað hann flutti mál sitt af mikilli einurð og festu og þannig að á hann var hlustað og tekið mark á orðum hans, enda lét hann alla menn njóta sannmælis. Þótt hann væri rökfastur og fylgdi málum sínum fast eftir, var prúðmannleg framkoma hans háttur, enda átti hann traust og virðingu allra ráða- manna þjóðarinnar, sem hann þurfti að sækja til varðandi málefni stétt- arinnar á langri starfsævi í forystu stéttarfélags. Bergsteinn Guðjónsson var ekki einn þeirra manna sem vann störf sín með því hugarfari að alheimta daglaun að kveldi. Störf hans voru fyrst og fremst unnin af hugsjón og hjá slíkum mönnum er gleðin yfír unnum sigrum oftast bestu launin. Stjóm Lífeyrissjóðs leigubifreiða- stjóra minnist Bergsteins Guðjóns- sonar með virðingu og þakkar honum störf brautryðjandans. Þórir Guðmundsson Enn er einn af brautryðjendum horfínn. Bergsteinn Guðjónsson bílstjóri var fæddur í Bakkagerði á Stokkseyri, sonur Guðjóns Pálsson- ar og Vilborgar Margrétar Magnús- dóttur. Ellefu ára fluttist hann með foreldrum sínum til Reykjavíkur og hóf síðar starf við vegavinnu. Tvítugur eða þegar aldur leyfði MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987 41 gerðist hann bflstjóri hjá Bifreiða- stöð Reykjavíkur. Fyrst starfaði hann sem bílstjóri en vegna hæfíleika hans og áhuga fólu félagar hans honum fljótt hin margvíslegustu trúnaðarstörf fyrir stéttina. Bergsteinn vann m.a. að stofnun Bifreiðastjórafélagsins Hreyfíls er stofnað var 6. október 1934 og sem síðar varð Bifreiða- stjórafélagið Frami. Bergsteinn var einn af stofnend- um félagsins og einn ötulasti starfskraftur þess. í upphafi fólks- flutninga í Reykjavík var hér fjöldi bifreiðastöðva, stórra og smárra, en skipulag losaralegt. Bifreiða- stöðvar liðu undir lok og nýjar voru settar á stofn. Bifreiðastjórar voru ýmist sjálfseignamenn eða launþeg- ar. Með stofnun Bifreiðastjórafé- lagsins Hreyfils tekur að komast . meiri regla á útgerð leigubifreiða í Reykjavík og menn tók að dreyma um samvinnu á einni stórri stöð. Bergsteinn, sem þá var á Bifreiða- stöð Reykjavíkur, var mjög áhuga- samur um þessa hugmynd og hratt henni í framkvæmd ásamt öðrum þegar Samvinnufélagið Hreyfill, sameignarfélag bílstjóranna, var stofnað 11. nóvember 1943. Berg- steinn Guðjónsson var strax kjörinn formaður samvinnufélagsins og var næstu fjögur árin bæði formaður og framkvæmdastjóri þess. í stjórn stéttarfélagsins sem fyrst hét Hreyfill en síðar Frami var Bergsteinn fyrst kosinn 1940 og varaformaður 1941—1942. For- maður var hann 1943—1944 og 1946, varaformaður 1950 og 1951 enn formaður og var það til ársins 1973. Bergsteinn var jafnframt starfsmaður félagsins. Þá vann Bergsteinn Guðjónsson að stofnun BILS, Bandalagi leigubifreiðastjóra á íslandi. Bergsteinn var snyrtilegur dugn- aðarforkur, greindur vel og djarfur í sókn og harður í vöm. Hann vann félagi og félögum sínum vel og drengilega og spurði ekki um laun að kveldi. Við sem unnum með og þekktum Bergstein Guðjónsson þökkum fyrir að hafa kynnst góðum dreng og dugmiklum brautryðj- anda. Ættingjum vottum við einlæga samúð við fráfall þessa mæta manns. Nokkrir starfsfélagar „AÐ SÝNA SIG OG SJÁ AÐRA“ / myrkri og misjöfnum veðrum vetrarmánaðanna er góður Ijósabúnaður mikilvægt öryggistæki. Fullkominn Ijósabúnaður tryggir ökumanni gott útsýni og eykurþanng öryggi hans og annarra vegfarenda. Mörgum bíleigendum þykireinnig til bóta að Ijóskerin prýði úfiit bílsins. RING aukaljóskerin skila þessu tvíþætta hlutverki vel. Þau eru með sterkum halogen perum sem lýsa betur en hefðbundnar glóþráðaperur. RING aukaljóskerin fást i mörgum stærðum og gerðum, bæði með gulu og hvltu gleri og leiðbeiningará íslensku tryggja auðvelda ásetningu. Þeirbílaeigendur, sem kjósa öryggi samfara góðu útliti, ættu að koma við á næstu bensínstöö Skeljungs og kynna sér nánar kosti RING aukatjóskeranna. <5yft.nytinii**ii; Erík Nerlöe SVÖRTCl AUGUN skuqgsjA SVÖRTU AUGUN TÍNA Erik Nerlöe Eva Steen GÓÐI HIRÐIRINN Else-Marie Nohr Hin svörtu augu unga sígaun- ans vöktu þrá hennar eftir freisi — frelsi sem hún hafði lítið kynnst áður. Og ljúfir tónar fiðlu hans ollu því, að hún ákvað að flýja burtu með honum. En vissi hún hvert hún var að flýja? Nei, hún var of ung og reynslulítil til að vita það. Hún skildi ekki að blind ást hennar leiddi hana aðeins út í ófyrirsjáanlegar hættur. Hún er ung og fögur og hefur kynnst manni sem hún elskar. Framtíðin blasir við þeim, en örlögin verða til þess að skilja þau. Hún sér sig nauðbeygða til að hverfa úr lífi hans. Með fegurð sinni og miklum hæfileikum sínum á listskautum nær hún langt, en þegar best gengur upp- götvast að hún er haldin banvænum sjúkdómi. Einmitt þá kemur maðurinn sem hún elskar aftur inn í líf hennar. Hún hvarf og ekkert fréttist af henni. Loks var hún talin af og álitin dáin. Dag einn birtist hún í sendiráði í Thailandi, aðframkomin og þungt haldin af hitasótt, og mundi ekki hvað hún hét. Með góðri Iæknishjálp nær hún sér íljótt, og nokkru seinna er hún á leið heim. Hún er full af lífs- þrótti og hlakkar til að sjá aftur manninn, sem hún elskar og hún hafði gifst stuttu áður en hún varð fyrir áfall- inu. En fjögur ár eru langur tími, og maður hennar hafði fyrir löngu talið hana af. SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OITVERS STEINS SE ANGELA Theresa Charles Angela Smith sækir um læknisstarf í bænum Whey- stone. Þar ætlar hún einnig að reyna að jafna sig eftir slys, sem-hún lenti í, í hreinu sveitalofti og kyrrlátu um- hverfi. Hún fær starfið, en henni er vantreyst sem lækni og litin hornauga sem persóna í fyrstu. En smátt og smátt vinnur hún traust og álit fólks. Angela missti mann sinn og dóttur í bílslysi og líf hennar hefur verið tómlegt síðan slysið varð. En er hún kynnist Mikael Traymond, ró- legum og yfirveguðum lækni, vakna tilfinningar hennar á - ný. ÁST OG HAMINGJA Barbara Cartland Aðeins tvær persónur bjargast í land, þegar skipið brotnar í klettunum við strönd Ferrara, ævintýramaðurinn Sir Harvey Drake og hin fagra Paolina Mansfield. Þau voru bæði á leið til Feneyja og faðir Paolinu fórst með skipinu. Sir Harvey Drake stingur upp á því við hana, að hún ferðist með honum sem systir hans áfram til Feneyja. Þar segist hann auðveldlega munu geta fundið ríkan eiginmann handa henni — og um leið ætlar hann að tryggja sína eigin framtíð. Paolina fellst á | hugmyndina, og framundan I er ævintýralegt og viðburða- ríkt ferðalag. t~-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.