Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 60
P$kmkýwi\
Þar vex sem vel er sáð!
fMwgtuifrlfifcife
FIMMTUDAGUR 14. JANUAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Fjarlægjuin frek-
ar verksmiðj-
una en byggðina
- segir Davíð Oddsson borgarsljóri
um Aburðarverksmiðjuna
„VIÐ fjarlægjum frekar verk-
smiðjuna en byggðina," sagði
Davíð Oddsson borgarstjóri, þeg-
ar niðurstöður skýrslu starfs-
hóps um vandamál vegna
ammoníakgeymis Áburðarverk-
smiðju ríkisins i Gufunesi voru
boraar undir hann.
„Ef þessi skýrsla er rétt eins og
hún er sett upp og að öll byggð sé
í hættu vegna þessarar gömlu verk-
rsmið[ju þá er enginn vafí í mínum
huga,“ sagði Davíð. „Fyrstu tíu ár
mín í borgarstjóm voru menn sífellt
að tala um sprengihættu sem staf-
aði af verksmiðjunni en nú eru
menn famir að tala um hættu af
ammoníaki, en þama er víst ennþá
einhver sprengihætta. Ég held að
dagar þessarar verksmiðju á þessu
svæði séu brátt taldir ef aðstæður
eru eins og þeim er lýst í skýrsl-
unni. Það er alveg óþolandi fyrir
höfuðborgarsvæðið að hafa þama
verksmiðrju sem er lýst með þessum
hætti af sérfræðingum. Þó hægt
sé að minnka áhættuna þá er ekki
hægt að búa við hana. Þá verður
fyrst og fremst að hugsa um að
fjarlægja hana enda skilst mér
reyndar að hún sé gömul og úrelt
miðað við nútíma framleiðsluað-
ferðir og haldi auk þess uppi
vöruverði í landinu og kosti sitt.“
Sjá fréttir á bls. 24 og á þing-
síðu, bls. 35.
' >
Talsvert af loðnu-
mjöli selt til Alsír
Morgunblaðið/RAX
Vetrarvertíð undirhúin
Það var kalsalegt um að litast í norðangarranum við Reykjavíkurhöfn í gær. Sjómenn og iðnaðar-
menn gerðu bátana klára fyrir nýhafna vetrarvertíð.
SALA á loðnumjöli héðan gengur
þokkalega að sögn seljenda. Fyr-
irtækið T.P. & Co. hefur nýlega
gert samning um sölu á 16.000
lestum af mjöli til Alsír, en þar-
lendir hafa til þess nær einskorð-
að mjölkaup sín við Suður-
Ameríku. Þá standa vonir til að
samningar náist um sölu á
nokkru meira af mjöli til Póllands
á næstunni. Mikið af mjöli hefur
farið þangað undanfarin ár.
Markaðsverð á mjöli er nú nálægt
19.500 krónum fyrir lestina.
Tryggvi Pétursson, framkvæmda-
stjóri T.P. & Co., sagði í samtali við
'Morgunblaðið að Alsírbúar borguðu
Ufsaskot
í wVillta
vestrinu“
Gríndavik.
AFLI Grindavíkurbáta fyrstu
daga nýbyrjaðrar vetrarver-
tíðar var í tregara lagi enda
veðrátta óblíð.
Tólf bátar eru bytjaðir á net-
um og var Hópsnes GK aflahæst
eftir tvo róðra með 39,5 tonn.
Aflinn var nær eingöngu ufsi
og fékkst í „Villta vestrinu“ en
svo nefnist veiðisvæðið í Könt-
unum 50 mílur vestur af
Reykjanesi. Næstur var Kópur
GK með 31 tonn í þremur róðr-
um og Hafberg GK með 26 tonn.
Hafbergið var mestmegnis með
þorsk en Kópur og Hafberg eru
með netin á Reykjanesgrunninu.
Sjö bátar róa með línu og var
afli þeirra í tregara lagi fyrstu
vikuna. Aflahæst voru Sigrún
GK með 10 tonn og Sigurþór
GK með 9 tonn í þremur róðrum
hvor. Verðið á þorski er hátt á
fískmarkaði Suðumesja þessa
dagana eða um 47 krónur með-
alverð en meðalverð á ufsa er
25,30 krónur.
— Kr.Ben.
Samningar snúast um hve
mikla verðbólgu menn vilja
- segir forsætisráðherra um álitsgerð VSI um efnahagshorfur á árinu 1988
„Það er alveg kristaltært að valið stendur um það hvort menn
vilja nýtt verðbólgutímabil eða hvort víðtæk samstaða næst um það
að ná niður verðbólgu, en ég tel ekkert annað ásættanlegt. Þegar
þjóðartekjuraar dragast saman, eins og horfur eru á, þá auka menn
ekki kaupmátt, það er gömul saga. Spurningin snýst því einungis
um þetta. Við þurfum að reyna að veija það háa kaupmáttarstig,
sem við búum við í dag, á þann veg að verðbólga geti farið minnk-
andi og kjarasamningamir munu auðvitað fyrst og fremst snúast
um það hversu mikla verðbólgu menn vilja,“ sagði Þorsteinn Páls-
son, forsætisráðherra, er Morgunblaðið inntj hann eftir viðhorfí
hans til álitsgerðar Vinnuveitendasambands íslands um efnahags-
horfur á árinu 1988.
í niðurlagsorðum álitsgerðarinn-
r segir: „Niðurstöður þessara
hugleiðinga fela það í sér að minni
kaupmáttur sé óhjákvæmileg af-
leiðing þeirrar efnahagsþróunar,
sem lýst er í þessari álitsgerð. Hvort
það gerist í skjóli mikillar verðbólgu
eða með skipulögðum og skynsam-
legum hætti ræðst af afstöðu
stjómvalda og þeirra, sem semja
um kaup og kjör. Verði niðurstaðan
sú, að verðbólgan ráði framvindu
efnahags- og kjaramála mun það í
senn rýra kósti launþega og fyrir-
tækja umfram það, sem óhjákvæmi-
legt er.“
„Það er ekki nýtt að menn leiki
sér að tölum fyrir kjarasamninga,
jen auðvitað eru ýmsar blikur á
lofti, til dæmis í sambandi við út-
flutninginn og gagnvart Banda-
ríkjadollar. Það er líka ljóst að
kaupmáttur sumra stétta hefur
aukist verulega á árinu, en annarra
ekki neitt og það þarf að jafna,“
sagði Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastóri Dagsbrúnar, aðspurð-
ur um spá VSÍ. „Þetta er auðvitað
eins og hvert annað reiknings-
dæmi, sem hefur sínar forsendur.
Menn geta haft mismunandi skoð-
anir á forsendunum og ég er ekki
svona svartsýnn," sagði Þröstur.
Sjá nánar bls. 34 og 35.
mjög gott verð fyrir mjölið, um
20.000 krónur fyrir lestina. Hins
vegar virtist verð vera að síga lítið
eitt um þessar mundir. Salan til
Álsír væri mjög góð viðbót við mjöl-
markaði okkar, en til þessa hefðu
Suður-Ameríkuríkin verið einráð á
Alsírmarkaðnum. Eitthvað hefði
komið upp á í þeim viðskiptum og
því hefði okkur gefíst tækifærið.
Mjölið ætti að afhenda á næstu
þremur mánuðum, en það svaraði
til um 100.000 lesta upp úr sjó.
Haraldur Haraldsson hjá Andra
hf. telur markaðsverð verá nálægt
19.500 krónum fyrir hveija lest, en
hann hefur undanfarin ár selt 20.000
til 25.000 lestir til Póllands árlega.
Mjölsala fer fram með ýmsum
hætti. Sumir stærstu framleiðend-
umir selja sjálfír beint að hluta til
eða eru þátttakendur í samningum,
sem útflytjendur gera og aðrir selja
aðeins gegnum útflytjendur. Hvað
varðar söluna til Póllands og Alsír
koma margir framleiðendur inn í
dæmið enda um meira magn að
ræða en einstakir framleiðendur
ráða við.