Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö. Verðlag og aðhald Mikil samkeppni í matvöru- verzlun og verðlagskann- anir Verðlagsstofnunar, sem reglulega eru birtar í blöðum, hafa eflt verðskyn neytenda. A tímum óðaverðbólgu hugsaði fólk lítið um verð. Á síðari árum hefur verðbólgan minnkað mjög, og athygli neytenda bein- ist meira að verði vöru og þjónustu. Þetta er jákvætt. Aðhald almennings er bezta verðlagseftirlitið. Það er kannski að koma í ljós þessa dagana. Við höfum lengi búið við höft og óðaverðbólgu og hefur það mótað hugsunarhátt kaup- manna og innflytjenda og verðskyn almennings. Nú eygj- um við bjartari tíð. En meðan við erum að aðlagast meira frelsi en áður verður að ríkja trúnaður milli þeirra sem vör- una selja og hinna sem kaupa. Á þ,^í er misbrestur. Enn er strangt aðhald með verðkönn- unum sem birtast í fjölmiðlum mikilvægur vegvísir fyrir neyt- endur. Það útaf fyrir sig er íhugunarefni fyrir kaupmenn, ekki sízt þá sem fara illa út úr slíkum könnunum. Það er mjög útbreidd skoðun, að þegar nýja krónan var tekin upp, hafi seljendur vöru og þjónustu not- að tækifærið og hækkað veru- lega verð á ýmsum smávörum og ódýrum vörum. Neytendur' hafí tæpast tekið eftir þessu, vegna þess að þeir voru svo óvanir lágum tölum og fannst allt ódýrt í upphafí. Smátt og smátt hafí þó margir vaknað upp við vondan draum. Til þessa tíma má ef til vill rekja méiri tortryggni í garð seljenda vöru og þjónustu en áður. Barátta kaupmanna og innflytjenda fyr- ir fijálsri álagningu naut víðtæks stuðnings í landinu. Eftir að álagning var gefín fijáls að langmestu leyti er hins vegar ekki ólíklegt, að neytend- ur hafí haft efasemdir um, að kaupmenn, innflytjendur og þjónustuaðilar stæðu undir þeirri ábyrgð, sem á þá var lögð. Þessa dagana er mikið rætt um verð á vörum. Ástæðan er sú, að miklar verðbreytingar verða í verzlunum í upphafí hins nýja árs, vegna breytinga á söluskatti og tollalækkana. í málflutningi sínum fyrir áramót gaf ríkisstjórnin ákveðin fyrir- heit. Eftir áramót virðist sem ráðherrunum hafí ekki verið fullkomlega ljóst, hvemig þess- ar verðbreytingar kæmu út í framkvæmd. Dæmi um það eru deilur um verð á vissum kjöt- vörum. Það er auðvitað afar óheppilegt fyrir ríkisstjómina, ef og þegar í ljós kemur, að hún hefur ekki haft nægilega nákvæma vitneskju um raun- veruleg áhrif þeirra lagabreyt- inga, sem stjómin barðist fyrir af svo miklum krafti í desem- ber. Spyija má, hvort ríkis- stjómin hafí farið of hratt af stað með þessar breytingar og ekki gefíð sér nægilegan tíma til að kanna ofan í kjölinn raun- veruleg áhrif þeirra. Það er nauðsynlegt fyrir ríkisstjómina að koma álitamál- um í þessum efnum á hreint þegar í stað, þannig að ekki líði margir dagar án þess að öllum sé ljóst, að hveiju ríkis- stjómin stefndi í skattlagningu og niðurgreiðslum á matvörum. Þegar deilt hefur verið um ve^ð á innfluttum vömm á liðn- um ámm hefur það verið sterkasta vöm innflytjenda, að meginhluti vömverðs væm toll- ar og gjöld til ríkisins. Nú verður mikil breyting á þessu vegna lækkunar á tollum og vömgjaldi. Innflytjendur geta ekki með sama hætti og áður borið fyrir sig gjöld til hins opinbera. Þeir standa nú frammi fyrir því, að verðskyn neytenda er mun sterkara og það aðhald, sem þeim verður veitt af almenningsálitinu, mjög öflugt. Almenningur mun ekki sætta sig við að verðlækkun vegna lækkunar á tollum og öðmm opinbemm gjöldum komist ekki að fullu til skila. Þeir, sem ámm saman hafa barizt fyrir fijálsræði í viðskipt- um og frelsi í álagningu, í trausti þess að aðilar viðskipt- alífsins kunni með það frelsi að fara, hljóta að gera enn meiri kröfur en aðrir til þess að verzlunin í landinu standi við sitt að þessu leyti. Vel má vera, að þessar miklu kerfís- breytingar leiði til meiri breyt- inga í viðskiptalífínu en við sjáum fyrir nú. Á undanfömum áratugum hefur orðið bylting í smásöluverzlun og þá fyrst og fremst matvömverzlun. Verð- samkeppni hefur verið mjög mikil í þeirri grein. Sú verðsam- keppni þarf einnig að verða í öðmm greinum. Hún er þar til staðar en mismunandi mikil. En að lokum em það verkin, sem tala. Það er verðið á vör- unni eða þjónustunni, sem skiptir máli. Umfang-smikið kynbótaverkefni í Kollafirði: Morgunblaðið/Bjami Jónas Jónasson og dr. Vigfús Jóhannsson fiskifræðingar við ker í nýja seiðahúsinu í Kollafirði, en ker af þessari gerð hýsa hvern systkinahóp i miklu kynbótaverkefni sem hafið er. Getur ráðið úrslit- um um hagnað eða tap af hafbeit UMFANGSMIKIL tilraun með kynbætur á hafbeitarlaxi er hafm í Laxeldisstöð ríkisins i Kollafirði. Tilraunin gengur út á að kanna hvað mikill vaxtarmunur er á milli laxa i sjónum en það er undir- staða skipulegra kynbóta á sérstökum hafbeitarstofni. Þetta er umfangsmesta tilraunaverkefni í fiskeldi hér á landi og hafa feng- ist styrkir til þess frá norrænum sjóðum. í Kollafjarðarstöðinni er einnig unnið að aukinni hagkvæmni í hafbeit með tilraunum á öðrum sviðum. Framkvæmd kynbótaverkefnis- ins er í höndum starfshóps sem skipaður er fulltrúum frá Veiði- málastofnun, Kollafjarðarstöðinni og Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins. Jónas Jónasson fiskifræðingur er umsjónarmaður verkefnisins og aðrir í verkefnisstjórn eru Ámi ís- aksson veiðimálastjóri, sem er verkefnisstjóri, dr. Vigfús Jóhanns- son fiskifræðingur hjá Veiðimála- stofnun og dr. Stefán Aðalsteinsson deildarstjóri á Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Eftirfarandi upplýsingar komu fram í samtali við Jónas og Vigfús: Notaðir fiskar af þremur stofnum Kynbótaverkefnið er framhald svokallaðra Qölskyldutilrauna sem hófust í Kollafjarðarstöðinni árið 1986 og styrkt var af Rannsóknar- áði ríkisins. Þá voru gerðar tilraunir með 17 fjölskyldur og verður þeim seiðum sleppt næsta vor. Sú tilraun var fyrst og fremst hugsuð til að ná tökum á aðferðunum en er ekki nógu umfangsmikil til að hægt sé að notast við hana við kynbætur. Komið hefur í Ijós að þær aðferðir sem notaðar voru við þessa undir- búningsathugun ganga upp og því var stærra verkefni sett í gang vetur. Við stóra kynbótaverkefnið eru notaðir þrír stofnar, úr Kollafirði, Laxá í Aðaldal og Stóru Laxá. Hver hængur er látinn frjóvga hrogn úr þremur hrygnum. Síðan er afkvæmum undan hverri hrygnu haldið sér í keri þar til búið er að merkja þau. Gert er ráð fyrir að fjölskyldumar verði alls 150—200. Vorið 1989 verður seiðunum sleppt í hafbeit og niðurstöður fást síðan þegar laxamir skila sér til baka árin 1990 og 1991. Aðrir hópar verða settir af stað næsta haust og sleppt vorið 1990 og heildamiður- stöður ættu að liggja fyrir haustið 1991. Niðurstöður eru þó að skila sér allan seiðatímann, því þá fást mikilvægar upplýsingar varðandi seiðaeldið sem meðal annars ræður miklu um það hvort viðkomandi laxastofn verður talinn heppilegur sem eldisstofn eða ekki. Kollafjarð- arstöðin hefur látið byggja sérstakt seiðaeldishús með sérhönnuðum kemm fyrir seiðin fyrir þessa til- raun. Frágangi hússins er að ljúka og verða seiðin flutt þangað í febrú- armánuði. Endurheimturnar eru að aukast Með þessari tilraun er verið að kanna hvort munur sé á milli af- kvæmahópa í endurheimtum og stærð úr sjó. Ef munur er á vexti á hafbeitarlaxi í sjó er hægt að ákvarða að hve miklu leyti erfðir stjóma því. Ef erfðamunur er mik- ill á milli fjölskylduhópa er grund- völlur fyrir kynbótum. Kynbætur á laxi eru vel þekktar í Noregi og þar hafa þær aukið vaxtarhraða um 3—4% á ári. Ekki er annars að vænta en sami vaxtar- auki náist hér í hafbeitarlaxi. Ef niðurstöðumar verða þær sem von- ast er eftir verður hafin kynbóta- áætlun, þar sem laxar úr þeim hópum sem bestur árangur næst með verða settir á og notaðir til undaneldis. Er þá miðað við útkomu á seiðastigi, endurheimtur og stærð laxanna. Endurheimtur úr hafbeit hafa verið að aukast á undanfömum áram og era nú rúmlega 7% að meðaltali. Með skipulegri vinnu ætti ekki að vera vandamál að ná þeim upp í 10% að meðaltali og getur það ráðið úrslitum um hvort hægt er að reka hafbeit með hagn- aði. Auk kynbótatilraunarinnar er einnig í smáum stíl gerð tilraun með blöndun stofna vegna um- ræðna sem verið hafa um erfða- mengun. Nákvæmlega verður rannsakað hvernig atgervi fiskanna breytist við þessa blöndun, til dæm- is ratvísi þeirra. Öll umræðan hefur einkennst af því að lítið er vitað um þessi mál, ekki einu sinni hvað erfðamengun í raun og veru er. Ef hafbeit er stýrt í ákveðinn farveg er lítið að óttast fyrir náttúrulega stofna, það er að segja ef skynsem- in er látin ráða, til dæmis við val á hafbeitarstöðum. Framar öllu öðra verður að leggja megináherslu á rannsóknir á þessum þáttum því það er eina leiðin til þess að unnt sé að stjórna þessum málum af ein- hverri skynsemi. Kollafjarðarstoðin leggur til að- stöðu til tilraunaverkefnisins. Hún kostar byggingu nýja seiðahússins og útitjarna, og er kostnaðurinn við uppbygginguna áætlaður 15—16 milljónir kr. Kostnaður við tilraun- ina er áætlaður 5—6 milljónir kr. á ári og er búið að fjármagna hann að hluta með styrkjum frá Norræna iðnþróunarsjóðnum og norrænu ráðherranefndinni. Göngnseiðin smækkuð Hjá Veiðimálastofnun og í Kolla- fjarðarstöðinni er unnið að ýmsum öðram verkefnum sem miða að því að auka hagkvæmni hafbeitar. Stjómandi þessara tilraunaverk- efna er dr. Vigfús Jóhannsson fiskifræðingur. Gönguseiði hafa hingað til aðallega verið alin upp í 40 g stærð, en í Kollafjarðarstöð- inni era gönguseiðin höfð 20—25 gramma. Með því móti sparast veralegir peningar í rekstri seiða- stöðvarinnar og betri nýting fæst á tiltækt eldisrými. Þessi minni seiði era einnig meðfærilegri að öllu leyti. Með þessu móti ætti einnig að vera hægt að auka endurheimtur og er þá tekið mið af því sem vitað er um hegðun laxaseiða við náttúru- legar aðstæður. Á síðasta ári var sleppt um 950 þúsund seiðum í hafbeit hér á landi. Áætlað er að í ár verði sleppt um 2 milljónum seiða. Miðað við fram- leiðslugetu seiðastöðvanna (15 milljón seiði), stöðu útflutningsmála og þróun matfiskeldis hér innan- lands má búast við að eftir 2—3 ár verði fyöídi slepptra gönguseiða frá hafbeitarstöðvunum kominn upp í 4—8 miiljónir seiða á ári. Þessi mikla aukning í fjölda slepptra seiða leiðir til þess að mun meiri áherslu þarf að leggja á rann- sóknir á hegðun laxaseiða eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.