Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988 41 Morgunblaðið/Ingiberg J. Hannesson in eru talin frá vinstri: sitjandi 2. Setja fræðslumarkmið á grund- velli niðurstaðna úr framangreind- um könnunum. 3. Gera stutt- eða langtímaáætlan- ir um fræðslustarf. 4. Skipuleggja námskeið í héraði (bæjarfélagi) fyrir leiðbeinendur á A- og þjálfara á B-stigi sé þess kostur, sem og félagsmálanámskeið í samráði við sérsamböndin. 5. Útvega aðstöðu fyrir slík nám- skeið og ákvarða tímasetningu í samráði við viðkomandi sérsam- band. 6. Halda skrá yfír þá er námskeið- in sækja og stuðla að því að kunnátta þeirra nýtist. 7. Stuðla að því að efnilegir þjálfar- ar og félagsleiðtogar geti aukið kunnáttu sína, eftir því sem þeim er trúað fyrir vandasamari verkefn- um. 8. Halda góðum tengslum við fræðslunefndir sérsambanda ann- ars vegar og íþróttafélögin hins vegar. Við skulum til glöggvunar nefna hér eitt dæmi um góða samvinnu héraðssambanda/bandalaga og sér- sambanda á vettvangi leiðbeinenda og þjálfaranámskeiða: Á árunum 1985 og 1986 fór kennari sem þá var í hálfu starfí hjá Ftjálsíþrótta- sambandi íslands kerfisbundið kringum allt landið með leiðbein- endanámskeið á A-stigi, alls 15, sem haldin voru í samvinnu við héraðssambönd og íþróttabandalög. Fámenn héraðssambönd stóðu oft tvö og jafnvel 3 saman að einu námskeiði. Staðarmenn sáu um all- an undirbúning, eins og lýst er í punktum hér að framan en FRÍ um námsefni og kennslu. Fleiri dæmi um gott fræðslustarf mætti nefna en það yrði of langt mál. Hinu verður ekki neitað að æskilegt væri að fá fleiri sér- og héraðssam- bönd með í fræðslustarfíð. Við þurfum á öllum okkar kröftum að halda til að fá ungviðið inn í íþrótta- hreyfínguna, taka vel á móti því og halda.því við efnið. íþróttaiðkun er skv. könnunum talin einhver besta forvömin gegn vímuefnum, hún eykur líkamlegt og andlegt heilbrigði auk félagsþroska. Hér er þvi mikið verk að vinna og til þess þurfum við hæft starfsfólk, góða aðstöðu og meira fjármagn. Þáttur íþróttafélaga í fræðslustarfinu Félagsstjóm og/eða stjómir félags- deilda gætu skipað fræðslustjóra og/eða fræðslunefnd sem hefði eft- irfarandi hlutverk: 1. Fylgjast með hvað gerist í fræðslumálum íþróttahreyfíngar- innar. 2. Fylgjast með því hvaða fræðsla stendur til boða. 3. Fylgjast með því hver þörf er. fyrir fræðslu innanfélags og þá hvers kyns fræðslu. ' 4. Taka á móti boðum/tilkynning- um um námskeið og fræðslufundi og koma þeim til réttra aðila innan félagsins. 5. Hafa gott samband við fræðslunefnd/fræðslustjóra héraðs- sambandsins, íþróttabandalags og í sumum tilvikum sérsambands. 6. Vera ráðunautur félags- eða deildarstjóra um fræðslumál. 7. Hafa samband við alla leiðtoga '°g þjálfara félagsins. 8. Standa fyrir fræðslustarfsemi innan félagsins. 9. Sjá um að tilkynna þátttakend- ur á hin ýmsu námskeið og fræðslu- fundi sem í boði eru hveiju sinni. 10. Hafa umsjón með undirbúningi undir starf í æfíngabúðum. Það er afar brýnt að öll fræðsla sem íþróttasambandið og sér- og hér- aðssamböndin láta í té skili sér til félaganna þar sem megnið af hinu raunverulega íþrótta- og félags- starfi fer fram. íþróttafélögin sjá sérsamböndunum stöðugt fyrir nýj- um landsliðsmönnum jafnframt sem þau viðhalda breidd í hverri íþrótta- grein. Þau ala íþróttaæskuna upp og taka virkan þátt í kappmótum. Þetta krefst mikils starfs hæfra leiðtoga og þjálfara. Það er því mikilvægt að gott samstarf um fræðslumál skapist milli framan- greindra aðila. Æskilegt er að hluti af fræðslu- starfínu fari fram innan vébanda íþróttafélaganna á stuttum fræðslunámskeiðum eða í umræðu- hópum þar sem ákveðnir þættir félagsstarfsins eru teknir til með- ferðar. í þessu skyni er nauðsynlegt að hvert félag hafi fræðslunefnd/ fræðslustjóra sem er í góðu sambandi við fræðslunefndir sér- og héraðssambanda og fylgist grannt með því hvað félögunum stendur til boða á fræðslusviðinu. Þá er það afar brýnt að íþróttafé- lögin taki upp þá stefnu að ráða ekki aðra til þjálfarastarfa en þá er sótt hafa námskeið er hæfa því stigi sem þjálfað er á. Lokaorð Sá er þetta ritar hefur starfað að fræðslumálum íþróttahreyfíngar- innar á fjórða tug ára. Reynslan hefur sýnt að hér gildir hið fom- kveðna: „Veldur hver á heldur.“ Þegar gróskukippur verður í fræðslustarfí hjá einhverju sérsam- bandinu er það segin saga að þvf hefur tekist að fá áhugasama menn til að annast um sín fræðslumál — eldsálir — með hinn eina sanna neista. Minna dugir ekki. Sem betur fer höfum við átt margt slíkt fólk í íþróttahreyfíngunni og eigum enn. Nei, það er ekki' skipulag eða samræming sem eru okkar versti þröskuldur heldur er það líklega fremur skortur á áhuga, dugnaði, skilningi og í sumum tilvikum pen- ingaleysi sem er mesti Þrándur í okkar Götu. Við heitum á alla þá aðila sem get- ið er hér að framan að hyggja að sínum fræðslumálum og koma þeim í viðunandi horf, hafí það ekki þeg- ar verið gert. Slíkt mundi efla alla íþróttahreyfínguna og skila marg- földum arði. F.h. Fræðslunefndar ÍSÍ, Karl Guðmundsson Þessi börn í skólaseli Laugaskóla í Dalasýslu gengust fyrir hluta- veltu á Skriðulandi til ágóða fyrir byggingu íþróttahúss á Laugum. Agóðinn varð kr. 2.230 og afhentu þau peningana á full- veldisfagnaði skólans i hinu nýja iþróttahúsi 1. desember sl. Börn- við borðið Kristín Björk Jóns- dóttir Þverfelli og Sólrún Helga Ingibergsdóttir Hvoli og stand- andi Berglind Ásmundsdóttir Miklagarði, Kristín Eva Jóns- dóttir Tjaldanesi og Þorkell Andrésson Ásum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.