Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
10. tbl. 76. árg.__________________________________FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Pressens Bild
Glæsilegur sigur á Júgóslövum
íslendingar sigruðu heims- og ólympíumeistara I mæta þeir Dönum. Páll Ólafsson skoraði þijú
Júgóslava 23:20 í öðrum leik heimsbikarkeppn- mörk í gærkvöldi — hér stekkur hann inn i teig-
innar í Sviþjóð í gærkvöldi. íslendingar eiga því inn og skorar eitt þeirra. Sjá nánar um mótið á
möguleika á að sigra í riðlinum, en i kvöld | bls. 58 og 59.
*
Israel:
Fjórir Palestínu-
menn fluttir brott
Rafah á Gaza-svæðinu. Reuter.
ÍSRAELAR fluttu fjóra Pal-
estínumenn til Líbanon í gær.
Brottflutningurinn fór fram á
sama tima og Marrack Goulding
aðstoðarframkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna fékk að fara
inní Rafah-flóttamannabúðirnar.
Órólegt var i flóttamannabúðum
viða á herteknu svæðunum i
gær. Talið er að tveir menn hafi
einuðu þjóðanna er litið á þessa
tímasetningu sem vísvitandi ögrun.
Tilkynnt var í gær að Goulding
hefði framlengt dvöl sinni, en ekki
var getið um hvenær hann héldi
heimleiðis.
Til mótmæla kom víða á herteknu
svæðunum í gær. Talið er að tveir
hafi látið lífið í átökum milli ísra-
elskra hermanna og mótmælenda í
flóttamannabúðum á Gaza-svæðinu
og Vesturbakkanum í gær. Her-
menn skutu tíu ára dreng í
Jabalya-búðunum á Gaza-svæðinu
og fullorðinn maður var særður
lífshættulega í Kalandia-búðunum.
Alls hafa 37 manns látist í óeirðun-
urn á herteknu svæðunum sem nú
hafa staðið í fímm vikur.
Verð á olíu hækk-
ar á mörkuðum
Lundúnum, Reuter.
VERÐ Á hráolíu hækkaði á al-
þjóðamörkuðum í gær eftir
lækkunina sem varð fyrr í vik-
unni þegar fréttist að Saudi-
Arabía og Kuwait hefðu boðið
olíu á lægra verði en ákveðið
hafði verið af OPEC-ríkjunum.
Norðursjávarolía var seld á
16,45 dollara tunnan í gær, en
verð á tunnu fór niður í 15,65
dollara á þriðjudaginn. Vantar nú
lítið á að verð á hráolíu sé hið
sama og það var þegar fréttir af
að Saudi-Arabar veittu viðskipta-
vinum í Bandaríkjunum afslátt og
að Kuwait hafi boðið Japönum
tunnuna á lægra verði en sam-
komulag OPEC-ríkja gerir ráð
fyrir.
Ástæða afturbatans í hráolíu-
verðinu er talin vera yfírlýsing
Rilwanu Lukman, olíumálaráð-
herra Nígeríu og framkværrida-
stjóra OPEC, á þriðjudag þess efnis
að olíuframleiðsla OPEC-ríkjanna
hefði reynst 2 milljón tunnum
minni á dag en áætlað var í desem-
ber.
Sjónvarpsvið-
tali við Ryzh-
kov aflýst
Stokkhólmi. Reuter.
SOVÉSKI forsætísráðherrann,
Níkolaj Ryzhkov, sem er i opin-
berri heimsókn í Svíþjóð, hættí við
að koma fram i viðtalsþættí i
sænska sjónvarpinu í gær.
Ryzkov átti að koma fram í vinsæl-
um viðtalsþætti á TV2, sem er önnur
af sænsku ríkissjónvarpsstöðvunum.
Á þriðjudag sýndi sjónvarpsstöðin
þátt sem flallaði um þá ógn sem
Svíum hefur staðið af Rússlandi allt
frá því á sextándu öld. Eftir sýningu
þáttarins var tilkynnt að Ryzhkov
myndi ekki mæta.
Sjá fréttír af heimsókn
Ryzhkovs á bls. 26-27.
Reuter
Reagan tekurá móti Takeshita
Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Noboru Takeshita, for-
sætísráðherra Japans, hittust í Hvita húsinu i gær, en Takeshita er
i opinberri heimsókn vestra. Reagan kenndi lasleika f gær, en kom
til fundanns með japanska forsætísráðherranum hress i bragði.
Eftir fundinn, sem stóð i tvær klukkustundir, sagði Takeshita að
hann hefði verið árangursríkur og að þeir hefðu náð samkomulagi
um að vinna að þvi að draga úr óhagstæðum viðskiptahalla Banda-
ríkjanna.
Sjá einnig: „Samþykkt að stórefla ... “ á bls. 28—29.
Fundur hvalveiðiþjóða í Reykjavík:
Danir óánægðir með þátttöku
Grænlendinga og Færeyinga
DANSKA stjórnin hefur ákveðið, að fulltrúi hennar muni ekki taka
þátt í fundi hvalveiðiþjóða f Reykjavík 21. og 22. janúar fyrir hönd
Grænlendinga og Færeyinga. Henrik Fischer, sem fer með hvalveiði-
mál í Grænlandsdeild forsætísráðuneytísins, skýrði frá þessu í gær
en hann er einnig i forsvari fyrir dönsku sendinefndina á fundum
Alþjóðahvalveiðiráðsins. Kemur þetta fram i frétt frá N. J. Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins i Kaupmannahöfn.
fallið í átökum milli fsraelskra
hermanna og Palestínumanna.
ísraelar, sem hafa sætt harðri
gagnrýni Sameinuðu þjóðanna
vegna ástandsins á herteknu svæð-
unum og vegna áforma um að reka
níu Palestínumenn úr landi fyrir að
hvetja til óeirða, fluttu fjóra þeirra
í herþyrlu til Suður-Líbanon á svæði
þar sem ísraelski herinn heldur
uppi lögum og lofum. Rauði kross-
inn, Jórdanir og PLO hafa fordæmt
brottflutning mannanna.
Sjónarvottar segja að mennimir
Qórir hafi komið til búða suður-
líbanska hersins, sem studdur er
af ísraelum, í Maij Zhour í Beeka-
dal þremur klukkustundum eftir að
herþyrla ísraela skildi þá eftir við
landamæri ísraels.
Á sama tíma og brottflutningur
mannanna íjögurra fór fram var
Marrack Goulding aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna
leyft að fara inn í Rafah-flótta-
mannabúðimar. Goulding var
meinaður aðgangur að búðunum á
þriðjudag. Að sögn talsmanna Sam-
Þessi ákvörðun var tekin vegna
þess, að Grænlendingar, sem í
fyrstu sögðust ekki ætla að taka
þátt í fundinum í Reykjavík, hafa
nú afráðið að senda 'Jiangað tvo
áheymarfulltrúa, einn fri lands-
stjóminni og annan frá samtökum
fiski- og veiðimanna. Henrik Fisc-
her sagði í viðtali við grænlenska
útvarpið, að áheymarfulltrúi gæti
hvorki tekið þátt í umræðum né
hugsanlegum samþykktum og því
litu dönsk stjómvöld svo á, að
grænlenska landsstjómin ætti ekki
opinbera aðild að Reykjavíkurfund-
inum.
Fischer sagði ennfremur, að
Danir — eins og Grænlendingar í
byijun — teldu það geta haft alvar-
legar afleiðingar fyrir hvalveiðar
Grænlendinga og Færeyinga að
taka opinberlega þátt í fundi með
Norðmönnum, Suður-Kóreumönn-
um, Japönum og Sovétmönnum,
þjóðum, sem hefðu stutt hvalveiðar
Islendinga í vísindaskyni á fundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins í Bour-
nemouth í fyrra.
Helgi Ágústsson, fulltrúi í ut-
anríkisráðuneytinu, sagði í viðtali
við Morgunblaðið, að hann vissi
ekki annað en að Atli Dam lögmað-
ur yrði á Reykjavíkurfundinum,
sem á að §alla um skynsamlega
nýtingu og vemdun sjávarspen-
dýra, sem opinber fulltrúi færeysku
landsstjómarinnar en hins végar
hefðu Grænlendingar tekið fram,
að þeir ætluðu að senda áheymar-
fulltrúa. Sagði Helgi það rétt vera,
að Grænlendingar gætu af þeim
sökum ekki tekið þátt í almennum
umræðum og atkvæðagreiðslum en
ekkert væri hins vegar í veginum
fyrir því, að þeir kynntu niðurstöðu
hvalatalningar við Grænland eins
og þeir hefðu boðað.