Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988 27 Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands: Helmut Kohl vill fara í heimsókn til Póllands Reuter Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, og Hans-Dietrich Genscher, utanrík- isráðherra Vestur-Þýskalands. Þeir og þrír Samstöðumenn aðrir hittust að máli í bústað vestur-þýska sendiherrans í Varsjá. Varsjá. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari yestur- Þýskalands, vonast til að geta farið í opinbera heimsókn til Pól- lands síðar á árinu og lagt um leið grunninn að stórbættum sam- skiptum ríkjanna. Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands, skýrði frá þessu í gær en þá lauk fjögurra daga heimsókn hans i Póllandi. Genscher sagði á fundi með frétta- mönnum í Varsjá, að hann hefði boðið pólskum starfsbróður sínum, Marian Orzechowski, til Vestur- Þýskalands á fyrra misseri þessa árs og yrði þá ferð Kohls undirbúin. Þá sagði hann, að Wojciech Jaruzelski, leiðtogi Pólveija, hefði lagt til, að Richard Weizsácker, forseti Vestur- Þýskalands, kæmi til Póllands en vestur-þýskur þjóðhöfðingi hefur ekki komið þangað fyrr. Fjögurra daga heimsókn Gens- chers í Póllandi lauk í gær með viðræðum hans og Jaruzelskis og stóðu þær í tvær stundir. Sagði Genscher að þeim loknum, að unnið yrði áfram að nánara samstarfi ríkjanna í ýmsum málum, ekki síst efnahagsmálum. í fyrradag hitti Genscher Lech Walesa að máli í bústað vestur-þýska sendiherrans í Varsjá og einnig þrjá samhetja hans, þá Brónislaw Gere- mek, Tadeusz Mazowiecki og Janusz Onyszkiewicz. í yfirlýsingu, sem Samstöðumennimir létu frá sér fara í gær, sagði, að umbætur í pólskum efnahagsmálum væru undir því komnar, að yfirvöldin öðluðust traust almennings í landinu. Þá sagði, að mjög miklu skipti fyrir Pólveija, að Vesturlönd réttu þeim hjálparhönd en aðstoðina ætti þó að binda þeim skilyrðum, að mannréttindi yrðu auk- in og almenningi leyft að taka meiri þátt í opinberu lífi. Forystu Bandaríkj- anna á alþjóða- vettvangi ógnað - segir almenningur í Bandaríkjunum Washington, Reuter. Bandaríkjamcnn eru ekki miklir alþóðahyggjumenn og aðhyllast fremur einangrunarstefnu. En gera sér grein fyrir að land sitt hefur stóru hlutverki að gegna í alþjóðamálum. Þetta kemur fram í rannsókn á vegum óháðrar stofn- unar sem nefnist Roosevelt mið- stöðin fyrir stjórnmálarannsóknir. Rannsóknin fór þannig fram að 110 manns úr öllum þjóðfélagshópum tóku þátt í umræðum í sjö borgum og bæjum víðsvegar um Bandaríkin. Allir höfðu þeir greitt atkvæði í þing- og forsetakosningum árin 1984 og 1986. Mörgum bandarískum borgurum finnst sem harðsnúnir andstæðingar og vanmáttug vinaríki veiki stöðu Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi. Því hljóti að koma að því að tímabil forystu Bandaríkjanna í heiminum taki enda. í umræðuhópnum í Chicago voru §jö af tíu þátttakendum þeirrar skoðunar að „mikilvægur hluti heimsins hatar Bandaríkin". Stjórninni í Moskvu annt um heimsfriðinn gagnvart hemaðaríhlutun Banda- ríkjanna á svæðum eins og í Miðaust- urlöndum og í þróunarríkjum. Þó sagði kona í Chicago að hún hefði hoppað af kæti er hún heyrði um árás Bandaríkjamanna á Líbýu: „Ég var svo glöð vegna þess að loksins höfðum við hefnt okkar á einhveijum sem hafði smánað okkur". Vilja skýra stefnu í alþjóðamálum Þegar fólk var spurt um hvers konar forseta það vildi í næstu kosn- ingum voru menn á einu máli um að hann ætti ekki að íþyngja almenningi með of nákvæmum útlistunum í ein- stökum málum heldur færa breiðan og auðskiljanlegan boðskap. Vissu- lega ættu frambjóðendur í forseta- kosningum að sína þekkingu sína á viðkvæmum málum en ekki á kostnað heildarstefnunnar sem þyrfti umfram allt að vera skýrt mörkuð. Spánn: MILT FYRIR BARNIÐ ÞVOTTADUFT Milt fyrir barnið er mjög milt þvotta- duft sem er sérstaklega ætl- að til þvotta á barnafatnaði og á fatnaði annarra sem eru með viðkvæma húð. Þvottaduftið skilur ekki eftir nein ertandi efni í tauinu vegna þess að það inniheld- ur engin ilmefni né Ijósvirk bleikiefni. Viðkvæm húð og þvottaduftið Milt fyrir barn- ið eiga svo sannarlega sam- leið. A Ronnsóknarstota FRIGG msm ■,ÆBL Flestir Bandaríkjamenn eru þeirrar skoðunar samkvæmt rannsókninni að stjómvöldum í Moskvu sé jafn umhugað um heimsfriðinn og stjóm- inni í Washington. Aftur á móti óttast menn að önnur ríki muni komast yfir kjamorkuvopn og beita þeim. Christopher Makins forstöðumaður Roosevelt miðstöðvarinnar sagði að sú skoðun sem oft heyrðist erlendis og meðal menntamanna í Banda- ríkjunum að Bandaríkjamenn væru illa að sér um alþjóðamál ætti ekki við rök að styðjast. Hins vegar hefði rannsóknin leitt í ljós að Bandaríkja- menn viðurkenndu að þekking þeirra á einstökum málum mætti vera meiri. „Bandaríkin em svo víðfeðm og í viss- um skilnigi fjarri hringiðu heimsmála að skiljanlega rekst maður á mismun- andi áhersluatriði," sagði Makins. Rannsóknin staðfesti þær niður- stöður skoðanakannana að almenn- ingur væri á móti því að bandarískt herlið yrði sent á vettvang í Mið- Ameríku. Flestir eru tortryggnir Klerkur fyrir rétti vegna skotgleði Orense á Spáni, Reuter. RÉTTARHÖLD hófust á mánudag yfir spænskum presti sem sakaður er um að hafa skotið sóknarbarn sitt í fótinn við jarðarför. Eladio Blanco, þorpsprestur á norðvestur-Spáni, var einnig ákærður fyrir að hafa átt 10 byssur án leyfís sem fundust í íbúð hans við húsleit. Blanco missti stjórn á skapi sínu við jarðarfor í kirkju sinni í mars á síðasta ári, en þá skaut klerkurinn einn syrgjendanna í fótinn eftir að þeir höfðu rifist um hvort hann ætti að fylgja kistunni til grafar eður ei. Vetjendur prestsins segja að hann hafi þjáðst af geðveilu þegar þessi atburður átti sér stað. ■Söfii ■ K jbamið m SÁPÖCjURDIM Lyngév 1 Garðabæ. simi 651822 Pakki I Pakki III Blizzardskíði Blizzardskíði 70-90 cm •kr. 2.580,- i30-150cm ..kr. 3.760,- Geze Look skíðabindingar... .kr. 1.580,- skíðabindingar... ..kr. 1.820,- Blizzard Blizzard skíðastafir .kr. 420,- skíðastafir ..kr. 420,- Nordica Nordica skíðaskór •kr. 2.270,- skíðaskór ..kr. 2.580,- kr. 6.850,- |cr. 8.630,- Pakkill PakkilV Blizzardskíði Blizzardskíði 100-120 ..kr. 2.930,- 160-175 ...kr. 4.270,- Geze Look skíðabindingar... ..kr. 1.580,- skíðabindingar.. ...kr. 1.820,- Blizzard Blizzard skíðastafir ..kr. 420,- skíðastafir ...kr. 470,- Nordica Nordica skíðaskór ..kr. 2.270,- skíðaskór ...kr. 3.600,- kr. 7.200,- kr. 10.160,- FULLORÐINSSKIÐAPAKKAR Pakki I Pakki II f. byrjendur f. dömur Blizzard skíði Blizzard Vice 160-185 cm ....kr. 4.550,- 160-185 cm ....kr. 6.100,- Look Look skíðabindingar. ....kr. 1.950,- skíðabindingar. ....kr. 1.950,- Blizzard Blizzard skíðastafir ...,kr. 890,- skíðastafir ....kr. 890,- Nordica Nordica skíðaskór ....kr. 3.810,- skíðaskór ....kr. 3.810,- kr. 10.900,- kr. 12.450,- Pakki III f. herra Blizzard Aluflex 170-195..............kr. 6.100,- Look skíðabindingar...................kr. 1.950,- Blizzard skíðastafir..................kr. 890,- Nordica skíðaskór.....................kr. 3.810,- kr. 12.450,- Póstsendum um allt land. ÚTILÍF Glæsibae, sími 82922.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.