Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
9
Eigendur
Spariskírteina
Ríkisjóðs
athugið!
mmea
Einingabréf Kaupþings hafa
nú þegar sannað ótvírætt gildi
sitt og stöðugleika sem arðbær
íjárfesting. Viðbendum eigend-
um Spariskírteina Ríkissjóðs á
að við tökum spariskírteini
sem greiðslu fyrir önnur
verðbréf. Með því að fjárfesta í
Einingabréfum trýggirðu þér
hámarksávöxtun, lágmarks-
áhættu og að auki er féð ætíð
laust til útborgunar.
Einingabréf Kaupbings hf.
eru öryggissióður binn og
binna um ókomin ár.
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 7. JANÚAR 1988
Einingabréf 1
Einingabréf 2
Einingabréf 3
2.567,-
1.498,-
1.290,-
Lífeyrisbréf
1.290,-
SS 85'1
SÍS 85-1
Lind hf. 86-1
Kópav.
11.425,-
19.382,-
10.918,-
11.068,-
KAUPÞINGHF
Húsi verslunarinnar ■ sími 68 69 88
:
-
Hvað vill
flokkurinn?
Ólafur Gfslason, blaða-
maður á Þjóðviljanuni,
ritar grein í blaðið sl.
föstudag, sem ber yfir-
skriftina; ísland úr
NATO, herinn burt, —
hvað svo? Þessi spuming
er ekki ný i herbúðum
Alþýðubandalagsmanna.
Fyrir allmörgum árum
benti einn úr þeirra hópi,
Svanur Kristjánsson, á
þá einföldu staðreynd, að
veikasti hlekkurinn i ut-
anríkisstefnu Alþýðu-
bandalagsins vœri sá, að
flokkurinn gœti ekki
svarað þeirri spumingu,
hveraig hann ætlaði að
tryggja öryggi íslensku
þjóðarinnar, ef stefna
hans næði fram að
ganga. Svavar Gestsson
segir i Þjóðviljaviðtali á
dögunum, að i stað vam-
arliðsins og aðildarinnar
að NATO sé „þörf hrir
nýtt öryggiskerfi". Olaf-
ur Gislason spyr i
framhaldi af þessu, í
hveiju þetta nýja örygg-
iskerfi eigi að vera
fólgið.
f grein Ólafs Gíslason-
ar er ekki að finna nein
svör við þessari spum-
ingu frekar en hjá
Svavari Gestssyni. Á hinn
bóginn segir Ólafur, að
Alþýðubandalagið haldi
fram mótsagnakenndri
stefnu, þegar gefið sé til
kynna, eins og Svavar
gerði, að vilji sé til að
styrkja Vestur-Evrópu
en samt sé ætlunin að
standa utan Evrópu-
bandalagsins og NATO.
í sömu andrá segir Ólaf-
ur svo, að hann sé ekki
að . halda því fram að
Alþýðubandalagið eigi að
vera í þessum bandalög-
um.
Það væri sannarlega
æskilegt, að Alþýðu-
bandalagsmenn hefðu
þrek til að gera annað
en spyija spuminga um
utanríkisstefnu íslands.
lil
Deilur í
Alþýðubandalagi
í Alþýðubandalaginu eru nú uppi deilur um
utanríkismál. Svavar Gestsson, fyrrum form-
aður, kom þeim af stað í samtali við Þjóðvilj-
ann milli jóla og nýars. Hafa ummæli hans
þá áður verið gerð að umtalsefni í Stakstein-
um og var þeirri spurningu þá varpað fram,
hvort Svavar væri tekinn til við að ræða ut-
anríkismál í alþjóðlegu samhengi en Ólafur
Ragnar Grímsson, arftaki Svavars í formanns-
stólnum, liti nú á þau úr fyrirhugaðri stjórn-
stöð á Keflavíkurflugvelli og með hliðsjón af
flugvélagerðum varnarliðsins. í Staksteinum
í dag er litið á umræður um samtalið við
Svavar í Þjóðviljanum.
svarar
Bima Þóröardóttir,
sem til skamms tíma var
heLsti forsprakki trotskíj-
ista og heimsbyltingar-
innar í Fylkingunni en
situr nú í framkvæmda-
stjóm Alþýðubandalags-
ins, svarar Ólafi
Gíslasyni í Þjóðviljanum
á þriðjudaginn. Hún
leggur að jöfnu aðild ís-
lands að NATO og
vamarsamninginn við
Bandaríkin og bmrás
Varsjárbandalagsríkj-
anna í Tékkóslóvakiu
Bima
1968 og telur að brott-
hvarf hemámsliðsins frá
Tékkóslóvakiu sé sam-
bærilegt við brottför
vamarliðsins héðan. Það
er von, að alþýðubanda-
lagsmenn komist ekki
langt í umræðum um
þessi mál í sínum röðum,
þegar röksemdimir em
þessar. (Að visu vill Svav-
ar Gestsson kanna, hvort
ekki eigi að endumýja
tengsl Alþýðubandalags-
ins við kommúnistaflokk-
ana í Austur-Evrópu,
sem vom slitin eftir inn-
rásina - í Tékkóslóvakiu
1968. Kunna þau Svavar
og Bima að vera sam-
mála um það.)
1 stuttu máli hafnar
Bima umræðum um ut-
anríkismál á þeim for-
sendum, sem Svavar
Gestsson og Ólafur Gísla-
son reifuðu. Hún telur
vanda Alþýðubandalags-
ins vera þann, að skort
hafi „einarða og undan-
bragðalausa baráttu
gegn herstöðvunum og
Nató“. Og hún segir enn-
fremur: „Alþýðubanda-
lagið hefur ekki sinnt
herstöðva- og Nató-and-
stöðu sem skyldi og
sýpur nú af þvi seyðið
þegar óskir berast um
að gera uppgjöfina að
samþykktri stefnu."
Með hvom skyldi Ólaf-
ur Ragnar standa? Birau
eða Svavari?
And-styggileg
villa
Oddur Ólafsson, að-
stoðarritstjóri Tímans,
vekur máls á þvi í blaði
sinu í gær, að i Stakstein-
um á þriðjudag birtist
and-styggileg villa. f
fljótræði varð höfundi á
sú skyssa að íslenska
ekki samtenginguna
„og“ úr ensku, þannig að
orðið „and“ stendur á
milli nafna á þeim tveim-
ur forsætisráðhermm
Breta, sem hafa verið
þaulsætnastir. Telur
Oddur þetta kannski
merki um það, að höf-
undur Staksteina sé um
of enskuskotinn i hugs-
un, en segir þó að hér
sé „augljóslega um
pennaglöp að ræða“.
Þrátt fyrir þær hindran-
ir, sem reistar hafa verið
innan veggja á Morgun-
blaðinu, til að koma í veg
fyrir að fljótfæmi eins
og sú, sem hér er rædd,
birtist ekki lesendum,
gerðist það þó í þetta sinn
hér í dálkinum og em
lesendur hans beðnir vel-
virðingar á því.
^BRowninG
veggjatennisvörur
ISPORTUF)
EIOISTORGI
TÖLVUPRENTARAR
ÖRBVLG)U0FN6R
néföLASP'LARAR
Antik
Rýmingarsala
Allt á að seljast.
Húsgögn, speglar, lampar,
málverk, postulín,
kristall, nýr sængur-
fatnaður, gjafavörur.
Antikmunir,
Grettisgötu 16, sími 24544.
Opið frá kl. 12-18 virka daga.
Laugardaga frá kl. 12-16.