Morgunblaðið - 11.02.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988
Mót fyrir skák-
meistara fram-
tíðarinnar
IBM Á íslandi gengst fyrir skák-
móti barna og unglinga, 16 ára
og yngri, í næsta mánuði og er
reiknað með að á annað hundrað
keppendur frá öllu landinu taki
þátt í mótinu. Fyrstu verðlaun í
efsta aldursflokknum er 30 þús-
und króna fararstyrkur á skák-
mót erlendis.
Skákmótið er haldið í samstarfí
við Skáksamband íslands og Taflfé-
lag Reykjavíkur, sem sjá um skrán-
ingu þátttakenda dagana 2.-9. mars,
en mótið sjálft fer fram dagana 11.
til 13. mars. Keppt verður í þremur
aldursflokkum: 9 ára og yngri, 10
til 12 ára og 13 til 16 ára, og þátt-
taka er öllum opin. Alls verða veitt
sex verðlaun í hveijum aldursfíokki.
Jóhann Hjartarson var viðstaddur
blaðamannafund þar sem mótið var
kynnt í gær og var honum afhent
ferðatölva frá IBM að gjöf. Einnig
voru viðstaddir nokkrir ungir og upp-
rennandi skákmeistarar og ræddi
blaðið stuttlega við þann yngsta,
Amar Gunnarsson.
Hann er aðeins 9 ára gamall en
sagðist hafa lært mannganginn þeg-
ar hann var sex ára. Hann ætlar að
að taka þátt í IBM-unglingamótinu
og sagðist vera orðinn vanur að tefla
á mótum. Hann hefði til dæmis tekið
þátt I Skákþingi Reykjavíkur og
Skákþingi íslands, og væri nú kom-
inn með 1265 skákstig. Amar sagð-
ist æfa skák ijóra daga vikunnar og
mæta í hverri viku hjá Taflfélagi
Reykjavíkur. Áhugamálin eru fót-
bolti og handbolti, fyrir utan skák-
ina, og framtíðaráætlanimar em á
hreinu: Amar ætlar að verða stór-
meistari í skák og helst eins góður
og Jóhann Hjartarson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhann Hjartarson ásamt hópi ungra skákmeistara sem eflaust dreymir um að ná jafnlangt og Jóhana
einhverntima í framtíðinni. Fyrir miðri mynd er Araar Gunnarsson.
VEÐUR
Heimild: Veðurstola lalanda
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
ÍDAGkl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 11.2.08
YFIRLIT f gnr: Gert er róö fyrir stormi ó norðurdjúpi. Yfir N-
Grænlandi er 1010 mb hæð en hægfara 976 mb lægð skammt
suðaustur af Jan Mayen. Milli Hvarfs á S-Grænlandi og N-Skot-
lands er lægðardrag sem hreyfist lítið. Kalt verður ófram.
SPÁ: í dag veröur norðanótt ó landinu og frost um allt land. Víða
snjókoma eðaól noröanlands en bjart veöur syðra.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg norðvestan eða breytileg ótt. Sums
staðar él við ströndina en bjart veöur inn til landsins. Frost ó bilinu
5—18 stig.
HORFUR A LAUGARDAG: Hvöss norðaustanátt með óljum um
norðan- og austanvert landið en þurrt suðvestanlands. Frost 2—10
stig.
j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V H
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CO Mistur
-|- Skafrenningur
Þrumuveður
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
{ \ Heiðskírt * vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
Í/”'Í} Léttskýjað / / / / / / / Rigning
Hálfskýjað / / / * / *
/ * / * Slydda / * /
Alskýjað * * # * * * * Snjókoma * * *
VBÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyrl Reykjavfk hltl +9 +8 veður anjókoma iéttakýjað
Bergen 7 skýjað
Helsinkl 1 snjókoma
JanMayen +0 enjókoma
Kaupmanneh. 4 rlgnlng
Nartaaraauaq +12 skýjsð
Nuuk +7 snjókoma
Osló 3 rlgnlng
Stokkhólmur 3 snjóól
Þórahöfn 0
Algarve 14 lóttskýjað
Amaterdam 8 alakýjað
Aþena vantar
Barcalona 16 lóttskýjað
Bertln 6 skýjað
Chlcago +10 snjókoma
Feneyjar vantar
Frankfurt 6 alakýjað
Qlasgow 6 úrk. ígr.
Hamborg 3 slydda
Laa Palmaa 13 súld
London 7 léttskýjað
Loa Angelea 16 helðakfrt
Lúxamborg 1 skúr
Madrfd 10 léttskýjað
Malaga 18 Uttskýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Montreal +12 snjðkoma
NewYork +1 hoiðskfrt
Parft 8 skýjað
Róm 18 hilfskýjað
Vín 9 alskýjað
Washlngton +1 hélfskýjað
Winnlpeg +30 helðskfrt
Valoncia 16 léttskýjað
Björn Sveinbjörns-
son hæstaréttar-
dómari látinn
Björa Sveinbjörasson, fyrrver-
andi hæstaréttardómari, lést í
gær, 10. febrúar, á 69. aldursári.
Bjöm fæddist að Heggstöðum í
Borgarfirði 1. september árið 1919.
Hann lauk prófí frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið 1939 og frá
lagadeild Háskóla íslands árið
1945. Á námsárunum var hann
formaður Félágs ftjálslyndra stúd-
enta frá 1940-1941 og formaður
Orators 1943-1944. Að loknu lög-
fræðiprófi varð hann fulltrúi sýslu-
mannsins í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og var sýslumaður þar og
bæjarfógeti í Hafnarfirði frá 1956-
1966. Arið 1966 stofnaði hann
ásamt fleirum lögmannsskrifstofu
í Reylqavík og rak hana uns hann
var skipaður hæstaréttardómari
árið 1973. Hann lét af því embætti
í árslok 1985. Þá sat hann um tíma
á Alþingi haustið 1971 sem vara-
þingmaður Reykjaneskjördæmis og
var í stjóm Lögmannafélags íslands
1971-1973.
Björa Sveinbjörasson
Eftirlifandi eiginkona Bjöms er
Rósa Loftsdóttir.
Vöruskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um
rúma 2 milljarða
Vöruskiptajöfnuður íslend-
inga var óhagstæður um rúma
2,2 miHjarða króna á siðasta ári.
Verðmæti vöruútflutnings jókst
um 14% á föstu gengi frá árinu
áður, en verðmæti innflutnings
jókst mun meira, eða um 29% á
föstu gengi.
Fluttar voru út vörur fyrir 53,1
milljarð króna árið 1987 en verð-
mæti innflutnings var 55,3 milljarð-
ar króna. Sjávarafurðir voru 76%
af vöruútflutningnum og hafði verð-
mæti þeirra aukist um 12% frá ár-
inu áður, en hlutdeild áls var 10%
af heildinni 1987 og hafði verð-
mæti þess aukist um 19% milli ára.
Verðmæti kÍBÍljámB reyndist 6%
meira en árið áður og verðmæti
annarrar útfluttrar vöru 22% meira
en 1986.
Verðmæti innfluttra skipa og
flugvéla nam um 3.350 milljónum
króna, sem er miklum mun meira
en árið áður. Innflutningur á rekstr-
arvöru til álframleiðslu varð 14%
meiri 1987 en árið áður. Verðmæti
innfluttrar olíu varð svipað á föstu
gengi og árið áður á föstu gengi
vegna verðlækkunar á olíu á heims-
markaði. Ánnar innflutningur jókst
um 31% á fóstu gengi frá árinu
1986 til 1987.
Vöruskiptajöfnuðurinn árið 1986
var hagstæður um rúma 4 milljarða
króna.
INNLENT