Morgunblaðið - 11.02.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988
7
Fengur á Grænhöfðaeyjum:
Erfiðleikar vegna
deilna heimamanna
Veiðar eru þó hafnar og aðstoðin
gengur samkvæmt áætlun
FENGUR, skip Þróunarsam-
vinnustofnunar Islands, er nú við
veiðar frá Grænhöfðaeyjum.
Skipið kom þangað i byrjun árs-
ins og mættu útgerð þess þá
nokkrir erfiðleikar vegna stirðra
innbyrðis samskipta þeirra, sem
útgerð, fiskvinnslu og markaðs-
setningu stjórna á staðnum. Þess-
ir erfiðleikar eru nú að mestu
yfirstaðnir og þróunaraðstoðin
mun áfram ganga samkvæmt
áætlun að sögn Bjöms Dagbjarts-
sonar, stjómanda stofnunarinn-
ar.
Fyrirtækið, sem Þróunarsam-
vinnustofnunin hefur haft mest
samskipti við á Grænhöfðaeyjum,
er orðið að tveimur. Annað sér um
útgerð, hitt um fiskvinnslu og mark-
aðsmál og virtust samskipti þeirra
á milli stirð. Fiskvinnslu- og mark-
aðshlutinn virtist telja sig ekkert
hafa með útgerðina'að gera, hann
ætti aðeins að sjá um aflann og
hafa af honum tekjur. Útgerðar-
hlutinn ætti hins vegar að sjá um
útgerðina og bera kostnað því fylgj-
andi. Um þessi verkaskipti náðist
ekki samkomulag.
Bjöm Dagbjartsson sagði að þessi
staða hefði komið nokkuð flatt upp
á menn. Þeir hefðu talið sig vera
að skipta við stjómvöld eyjanna,
sem tælqu á sig ýmsan kostnað og
hefðu á móti tekjur af sölu aflans.
Málið væri að mestu leyst, en hlut-
imir væm þó enn þyngri í vöfum,
en þeir hefðu verið.
Þá gat Bjöm þess, að í síðustu
viku hefði Olafur Karvel Pálsson,
fiskiffæðingur, verið á eyjunum til
að leggja gmnn að sýnatöku og ein-
földum rannsóknum á staðnum.
Axel Bjömsson, jarðeðlisfræðingur,
væri síðan á fömm suður eftir til
frumathugana, meðal annars í því
skyni að kanna hvort heitt vatn
væri finnanlegt með bomnum. Þá
færi Öm Traustason suður í vor til
að kenna heimamönnum að nota
dragnót við veiðar á bátum sínum.
Með Feng á Grænhöfðaeyjum em
nú fjórir íslendingar og er Stefán
Þórarinsson verkefnisstjóri. Skip-
stjóri er Sigurður Hreiðarsson, stýri-
maður Jóhann Gunnarsson og vél-
stjóri Jóhann Pálsson. í marz fer
síðan Hrafn Heimisson suður til
afleysinga.
Mal Jons Kristmssonar:
Aðilar skili áliti um
sættir fyrir 15. mars
Mannréttindanef nd Evrópu
hefur farið þess á leit að fulltrú-
ar íslenska ríkisins og Jóns Krist-
inssonar frá Akureyri skili áliti
sinu fyrir 15. mars, um það hvort
mögulegt verði að koma á sáttum
í málinu.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu þann 14. október síðastlið-
inn ákvað nefndin að mál Jóns Krist-
inssonar skyldi tekið til efnismeð-
Engey seldi í
Bremerhaven
TOGARINN Engey RE seldi á
miðvikudag afla sinn í Bremer-
haven. Verð fyrir aflann var við-
unandi.
Engey seldi alls 184 tonn, mest
karfa. Heildarverð var 11,9 milljón-
ir króna, meðalverð 64,88. 20 tonn
af þessu voru dæmd ónýt og fóm
í gúanó. Ástæða þess var sú að ís,
sem notaður var um borð, reyndist
ekki nægilega vel og rann of mikið.
Séu þessu 20 tonn dregin frá söl-
unni er meðalverðið 73,18.
ferðar. Jón kærði til nefndarinnar
þá tilhögun mála á íslandi, að sami
maður gæti farið með rannsókn
máls og dæmt í því, eins og raunin
er með sýslumenn. Nefndin taldi
sakarefnið alvarlegt, en ekki var um
endanlega afgreiðslu að ræða.
Næsta skref í málinu var að leita
sátta og hefur mannréttindanefndin
nú farið þess á leit að aðilar skili
áliti sínu þar um fyrir 15. mars.
Takist sættir ekki fer málið fyrir
ráðherranefnd og loks fyrir Mann-
réttindadómstól Evrópu,
Eiríkur Tómasson, sem fer með
málið fyrir hönd Jóns, sagði í gær
að fullur vilji væri meðal aðila að
koma á sáttum og hefðu aðilar rætt
málið sín á milli. „Ég tel sættir ráð-
ast af væntanlegu frumvarpi um
aðskilnað dómsvalds og fram-
kvæmdavalds," sagði hann. „Nefnd,
sem dómsmálaráðherra skipaði til
að Qalla um þann aðskilnað, hefur
ekki skilað áliti enn.“
í Morgunblaðinu í síðustu viku
var haft eftir dómsmálaráðherrra,
Jóni Sigurðssyni, að álits nefndar-
innar væri að vænta um miðjan fe-
brúar.
Leðurj akkar, stakar buxur, skyrtur
og rúllukragabolir
Tilvalið £yrir ferminguim -
Verö staögr. 1.035.000
með ryðvörn. Átta óra ryðvarnarábyrgð
ÚTBORGUN: 25% EFTIRSTÖÐVAR: 18-36 MÁN.
Allar gerðir til afgreiðslu strax. Sýningarbílar í Volvosal.
Opið í Volvosal mán.-fðs. 9-18 laugardaga 10-16