Morgunblaðið - 11.02.1988, Side 23
____________________MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988
Valkostur í líf-
eyrissparnaði
eftír Val
Blomsterberg
Tilefni þessarar greinar er hin
mikla umræða um stöðu lífeyrssjóð-
anna í landinu, en þó sérstaklega
grein Sigurðar P. Guðnasonar í
Morgunblaðinu þann 9. febrúar
síðastliðinn. Þar varpar hann fram
þeirri hugmynd að mynda sérstakan
skylduspamað í stað lífeyrissjóða
og tryggja þannig væntanlegum
lífeyrisþegum örugga ávöxtun á
lífeyrisspamaði sínum, enda muni
misvitrir pólitíkusar ekki fá að vera
með puttana í þessari framtíðarsýn
landsmanna.
Hugmynd Sigurðar er reyndar
ekki alveg ný af nálinni, en engu
að síður góð og gild, ekki síst vegna
hólfaskiptingarinnar sem á sér stað
í fjármagnskerfí okkar þar sem
húsnæðiskerfíð er sett i eitt hólfíð,
lífeyriskerfíð í annað, bankar í það
þriðja o.s.frv. Síðan er fjármagn
flutt á milli hólfa eftir pólitískum
geðþótta hveiju sinni og menn vita
aldrei á hveiju þeir eiga næst von.
Það hefur oft verið á það bent, eink-
um af aðilum hins frjálsa peninga-
markaðar, að það beri að fella niður
þessa hólfaskiptingu sem til staðar
er á peningamarkaðnum og tryggja
þannig eðlilegt flæði milli spamaðar
og fjárfestingar. Því beri að láta
þennan markað stýrast af markaðs-
lögmálinu eins og annan fijálsan
markað og aðstoða frekar beint þá
sem á því þurfa að halda. Með þessu
móti er komist hjá því að vera sífellt
að byggja upp einhver skammtíma-
kerfí sem jafnan eru spmngin og
kolfallin um sig sjálf. Og hver
skyldi svo borga brúsann þegar upp
er staðið?
Hvað varðar tillöguna um að
menn leggi inn á sinn sérreikning,
þá er það valkostur sem hefur ver-
ið til ‘staðar um árabil, en því miður
aðeins fáir hafa getað nýtt sér, en
það er Frjálsi lífeyrissjóðurinn.
Hann er séreignarsjóður og viður-
kenndur af fjármálaráðuneytinu
sem lífeyrissjóður og ávaxtar inn-
eign sjóðsfélaga í traustum og arð-
bæmm verðbréfum sem tryggir
þeim góða afkomu þegar þeir láta
af störfum, einkum vegna þess
hversu margföldunaráhrif svo hárra
vaxta em sterk á svo löngum tíma
eins og Sigurður benti réttilega á
með töflu sinni. Fijálsi lífeyrissjóð-
urinn hefur því miður aðeins verið
opinn þeim sem ekki hafa verið lög-
bundnir í aðra lífeyrissjóði, þá aðal-
lega atvinnurekendur, og þeim sem
hafa viljað greiða umfram það sem
þeim ber að greiða í sinn lögbundna
sjóð, til þess að tryggja sér hærri
lífeyri. Hins vegar gleymir Sigurður
að minnast á þá staðreynd að stór
hluti hefðbundinna lífeyrisgreiðslna
fer í tryggingar og velji menn aðrar
leiðir þurfa þeir að tiyggja sig sér-
staklega fyrir þeim áföllum sem
þeir kunna að verða fyrir meðan
þeir em að byggja upp spamað sinri.
Það er ekkert óeðlilegt við það
að menn séu orðnir uggandi um
afkomu sína þegar þeir láta af störf-
um og hafa loks tíma til að njóta
lífsins, þegar þeir horfa upp á það
að það fé, sem þeir em búnir að
leggja skilvíslega af hendi alla ævi,
„Það er því kominn tími
til að þeim, sem gert
er að leggja í lífeyris-
sparnað, sé fundin var-
anleg lausn sem ekki
er hægt að hrifsa svo
glatt af þeim með nýj-
um ráðherrum.“
er orðið sáralítils virði m.a. vegna
pólitísks hringlandaháttar. Og þó
svo að þeim verði lofað einhveiju
nýju og betra hólfí í hinu miðstýrða
fjármagnskerfi, hafa þeir enga
tfyggingu fyrir því að ekki verði
látið flæða úr því yfír í eitthvert
annað hólf í framtíðinni. Það er því
kominn tími til að þeim, sem gert
er að leggja í lífeyrissparnað, sé
fundin varanleg lausn sem ekki er
hægt að hrifsa svo glatt af þeim
með nýjum ráðhermm.
Það væri til bóta að launþegar
hefðu frjálsara val um leiðir til að
tryggja sér góðan lífeyri þegar þeir
23
Valur Blomsterberg
láta af störfum. Þar til slík upp-
stokkun hefur átt sér stað þurfa
menn að tryggja sér sjálfír nógu
góða afkomu.
Höfundur er markaðsfræðingw
lyi Fjárfestingarfélagi ísiands og
ráðgjafi lyá Frjálsa lífeyrissjóðn-
um.
Fagmenn í trésmíði og tréiðnaði
þekkja góðan efnivið og hjá
Timburlandi eigum við ávallt
fyrirliggjandi ofnþurrkaðan
harðvið af flestum tegundum í
hæsta gæðaflokki.
Timburland er ungt fyrirtæki sem
byggir á gömlum merg, sérhæft
í innflutningi á kjörviði, spóni
og límtrésplötum úr ýmsum
viðartegundum.
Gagnger þekking á söluvöru
okkar skilar sér milliliðalaust til
viðskiptavina.
111 ofgreiðslu slrax:
Abakkí Hnota
Askur Ösp
Beyki - Ijóst og rautt Ramín
Eik - Ijós og rauð Oregon fura
Mahóní Tekk
Dl flMlH Smiöjuvegi 11 í húsi Efnissölunnar.
■ MaW10wM Símar 46699 og 45400.
vm EIGIIM flLLTAF VIII
J