Morgunblaðið - 11.02.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR H. FEBRÚAR 1988
*
Ast er...
... að vera ánægð
með það sem maður
sér.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights rasarved
© 1987 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkaffinu
Hefði ég ekki þig til að
tala við væri ég genginn
af göflunum ...
HÖGNI HREKKVtSI
Draumarnir
geta hjálp-
að okkur
Of stórar pakkningar
Til Velvakanda
Roskin frænka mín bað mig að
vekja athygli á því að roskin hjón
og þeir sem búa einir eigi í erfiðleik-
um með innkaup því að pakkningar
séu oft svo stórar. Hún nefndi sem
dæmi að gott væri að geta keypt
undanrennu og súrmjólk í minni
pakkningum en einum lítra. Yfir-
leitt er hægt að kaupa sundurskor-
in brauð, þ.e. hálf brauð, en ekki
ef um kúmenbrauð er að ræða.
Frænka mín hefur hvergi getað
fengið keypt hálft kúmenbrauð.
Heilt kúmenbrauð er of stór
skammtur fyrir hana í einu, og hún
hefur ekki frystikistu til umráða.
Og hún spyr einnig hvort nokkur
von sé til að á markaðinn komi
sýrð undanrenna.
Frænka
Kæri Velvakandi
Mig langar til að segja nokkur
orð um drauma. Ég lít á drauma
okkar fyrst og fremst sem dulbúin
skilaboð til okkar. Undirmeðvitund
okkar, sem er miklu framsýnni og
ég vil segja gáfaðri en dagvitund
okkar, notar þessa aðferð til þess
að vara okkur við því sem hún
telur óæskilegt fyrir okkur. Að
sjálfsögðu getur ýmislegt blandast
inn í drauma okkar sem næmi
fyrir einu og öðru. Góðir draumar
eru allir þeir draumar sem geta
hjálpað okkur á einn eða annan
hátt.
Þess vegna vil ég mótmæla því
að gerðar séu eins konar grýlur
úr þeim mannanöfnum sem drey-
mandanum þykir hörð undir tönn
eins og mér þótti bera á í annars
góðri minningabók sem út kom
fyrir jólin. Verum þakklát fyrir
leiðbeiningamar í draumum okk-
ar. Sköpum okkur ekki grýlunöfn.
I.S.
Svar við fyrirspurn
um hárvandamál
Til Velvakanda.
í Velvakanda 6. febrúar er leið
er spurt hvort aðferð sé til sem fær
hárið til að vaxa betur. Ekki kemur
fram hvort spurt er vegna líflauss
hárs, blettaskalla, hárloss, hægvax-
andi hárs eða einhvers annars hár-
vandamáls. Hver svo sem ástæðan
er fyrir spumingunni þykir mér ljúft
að benda á hárþjónustu Heilsulín-
unnar, Laugavegi 28. Hjá Heilsulín-
unni er orkuflæði líkamans jafnað
með vægum rafstraumi á hendur,
háls og höfuð. Síðan eru örvefir
byggðir upp með rafmagnsnuddi á
höfuðið. Að lokum er hársekkjunum
gefin orka með köldum leysergeisl-
um. Þetta er algjörlega sársauka-
laust en gefur þess í stað þægilega
slökun.
Meðferðartíminn hjá Heilsulín-
unni er frá u.þ.b. þremur korterum
upp r" tæpan _ klukkutíma. Hann
kostar 890 kr. Arangur kemur strax
í ljós eftir annan til þriðja tíma.
Ný hár byija að myndast þar sem
skalli var og vaxa með þreföldum
hraða. Þar sem hár eru fyrir vex
það einnig hraðar, jafnframt því
sem það verður glansmeira, þéttara
og líflegra. Algengt er að grá hár
fái upprunalegan lit, jafnvel þó ein-
hveijir áratugir séu frá því að það
gránaði. Flasa og exem hverfa.
Þar sem hárvandamál eru nokk-
uð algeng en viðkvæmt mál, sér-
staklega hjá börnum og konum,
þykir mér rétt að láta símanúmer
Heilsulínunnar fylgja með, ef ósvar-
aðar spumingar hafa kviknað. Sími
Heilsulínunnar er 11275.
Jens Guðmundsson
Yíkverji skrifar
Fyrir skömmu rakti Víkveiji frá-
sögn kunningja síns, sem hafði
fengið skemmda flík úr hreinsun.
Eftir miklar málalengingar, fyrir-
höfn og tímatap fékkst flíkin bætt
með samkomulagi viðkomandi
verzlunar og efnalaugar.
Litlu síðar kom fram í frétt í
Morgunblaðinu, að kvörtunum til
Neytendasamtakanna vegna fatn-
aðar og vefnaðarvöru hefði fjölgað
mjög. Þar var um að ræða dæmi
hliðstæð því, sem Víkveiji rakti í
dálki sínum, en einnig var um að
ræða, að_ hlutimir hefðu eyðilagzt
í þvotti. I þessari frétt hvatti tals-
maður Neytendasamtakanna fólk
til þess að fara fram á skriflega
yfirlýsingu frá seljanda, ef vörunni
fylgdi hvorki efnislýsing né lýsing
á meðferð við þvott eða hreinsun.
Hefði kunningi Víkveija, sem frá
var sagt, haft slíkt plagg í höndun-
um, hefði það væntanlega sparað
honum þá miklu fyrirhöfn, sem
hann hafði af því að ná fram rétti
sínum.
xxx
Og meira um fatnað. Víkurfrétt-
ir segja svo frá í „molum“
sínum undir fyrirsögninni: „Glas-
gow — timburmenn":
„Nokkuð ljóst er, að afleiðingar
af tíðum Glasgow-ferðum eru ekki
bara sjokk, þegar greiðslukorta-
reikningamir komu inn um bréfal-
úguna. Þessi mikli gróði, sem hús-
mæður og aðrir héldu sig sjá, hvarf
við fyrstu sýn, ef marka má fréttir
frá kaupmönnum hér á Suðumesj-
um og víðar. Nú streyma til þeirra
Glasgow-farar með „of lítinn leður-
jakka", „of stórar buxur“ eða hrein-
lega föt, sem enginn vildi, þegar
heim var komið — og vilja fá versl-
animar til að selja fyrir sig vaming-
inn eða kaupa hann og þá auðvitað
á Glasgow-prís! Verslanir héma
hafa að vonum ekki tekið þessum
tilboðum fegins hendi heldur af-
þakkað þessi „góðu“ boð og glott
út í annað."
xxx
Víkveiji fylgist spenntur með
spumingaþætti rikissjónvarps-
Liðsmenn bresku pönksveitar-
innar SSS virðast lausir við al-
gengasta hárvandamálið, það er
skalla.
ins: „Hvað heldurðu?", sem er á
dagskrá á sunnudagskvöldum.
Þessir þættir eru einstaklega
fjörugir og á stjómandinn Ómar
Ragnarsson sinn þátt í því, að
ógleymdum dómara og stigaverði,
en mótleikarar þeirra í hópi hagyrð-
inga og keppenda leggja þeim líka
mjög gott lið. Ýmsar uppákomur í
hita og hraða leiksins eru hreint
óborganleg skemmtan.
í síðasta þætti leiddu saman
hesta sína keppendur úr Reykjavík
og Hafnarfirði. Þar kom, að Hafn-
firðingar gerðu athugasemd við
eina spumingu, sem Reykvíkingar
svöruðu. Sögðu Hafnfírðingar
spuminguna ranga, en umsjónar-
menn brugðu við hart og sögðu það
ekki skipta máli, því svar Reyk-
víkinga hefði verið rétt!
Það deilir náttúrlega enginn við
slíka dómara! Og þótt þættimir
hafí verið skemmtilegir til þessa þá
hlýtur keppnin að verða ennþá
meira spennandi þegar þáttakendur
þurfa fyrst að átta sig á þessu
tvíræða eðli spuminganna. En hvað
skyldu hagyrðingamir segja um
þetta?