Morgunblaðið - 11.02.1988, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 11.02.1988, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 -I Vítamínæði í Bretlandi: Of mikið af því góða? ALGJÖRT heilsuæði hefur gripið um sig i Bretlandi, eftir að fram kom í rannsóknarskýrslu, að vítamín gætu aukið greind bama. I jpknar hafa varað við hugsanlegum hættum í þessu sambandi. Vítamín- og næringarefnapillur hafa selst upp í mörgum lyflaversl- unum og stórmörkuðum, frá því að skýrslan birtist fyrir tæpum tveimur vikum. Kaupmenn hafa rokið til og keypt birgðir af þess- ari vöru frá Evrópu og Banda- ríkjunum til að fullnægja eftir- spuminni. Læknar hafa varað almenning við og benda á, að jafnvel þótt ein vitamínpilla á dag auki á greind bama, hafi tíu pillur á dag ekki hlutfallslega sömu áhrif. Of stórir skammtar af vítamíni geti haft eit- urverkanir í för með sér. Skýrsluna, sem birtist í breska læknatímaritinu Lancet, gerðu dr. David Benton, sem kennir sálfræði við Swansea-háskóla, og Gwilym Roberts, raungreinakennari við framhaldsskóla í Wrexham í Wales. Þijátíu bömum voru gefnar vítamínpillur í átta mánuði; öðmm þijátíu bömum voru gefnar óvirkar „vítamínpillur", og þriðji hópurinn, jafnfjölmennur, svokallaður sam- anburðarhópur, fékk engar pillur. Samkvæmt Lancet-skýrslunni jókst greindarvísitala vítamínþeg- anna um níu stig að jafnaði miðað við bömin í hinum hópunum. „Áður en við hófum þessa rann- sókn, hefði ég aldrei látið mér detta í hug, að þessi niðurstaða fengist," sagði dr. Benton í viðtali við Inter- national Herald Tríbune. Rannsóknin hefur fengið mat- vælaiðnaðinum ærið umhugsunar- efni. Sumir næringarfræðingar segja, að hún hafi verið óvísinda- lega unnin og draga í efa, að sál- fræðingur hafi átt erindi inn á þennan vettvang. Þeir bæta við, að allsendis sé ósannað, að sum þeirra efna, sem bömunum voru gefin, hafi nokkurt gildi. í næsta tölublaði Lancet birtist bréf frá næringarfræðingum, sem starfa við Lundúnaháskóla, og fara þeir hörðum orðum um rannsókn- arskýrsluna. Aðrir sérfræðingar segja hins vegar, að þeim virðist, sem skýrsl- an hafi verið sómasamlega unnin og endurspegli staðhæfingar lækna frá því á eftirstríðsárunum, þegar matarskortur sagði til sín í Bret- landi. „Böm, sem fá ekki staðgóðan og heilsusamlegan mat, hafa gagn af því að taka vítamín aukalega," sagði dr. Alan Stewart, fréttafull- trúi Samtaka breskra næringar- fræðinga. „Mörg böm vaxa upp við draslfæði, gjörsamlega snautt að efnum sem mikilvæg eru fyrir þroska þeirra og einbeitingu." Dr. Stewart bætti við, að nær- ingarástandið í Bretlandi hefði versnað mikið, frá því að íhalds- stjómin skar niður fjárveitingar til skólamötuneyta fyrr á þessum ára- tug. Hann sagði, að tilraunin í Wales hefði verið „vel unnin og leiddi í Ijós, að í sumum hlutum Bretlands em böm, sem fá ekki nóg að borða til að geta haft fullt gagn af námi sínu“. Dr. Benton hefur haldið fast við sinn keip þrátt fyrir Qandsamleg viðbrögð sumra vísindamanna. Robert Woodward, lyflafræðing- urinn sem útbjó næringarforskrift- ina í tilrauninni í Wales, sagði, að mörg bresk böm þyrftu á aukanær- ingarefnaskömmtum að halda, „þar sem maturinn, sem þau borða, er svo nöturlegur". ^5 LUNDUR VEITINGASALUR , Matseðill dagana 11 .-20. febrúar. Fiskréttir dagsins:................. Kr. 690,- kr. 750,- Skýjasamloka.......................... kr. 360,- Marineruð lambasneið með kryddsmjöri og hrísgrjónum............ kr. 870,- Lambalærissneið með bearnaisesósu.•.. kr. 890,- Glóðarsteikt nautakótiletta með barbequesósu........................ kr. 950,- Piparsteik með piparsósu og kartöflum. kr. 1050,- Nautasteikmeðsveppumoglauk 150 gr... kr. 900,- Nautasteikmeðsveppumoglauk250gr..... kr. 1100,- Sirloinsteik; Nautafilet með fiturönd. kr. 970,- Grísakótilettur með sveppasósu og kartöflum........................ kr. 880,- Súpa er innifalin í ofangreindu verði. Hádegisverður er framreiddur frá kl. 12.00-14.30. Kvöldverður er framreiddur frá kl. 18.00-21.00. . feSíLj Hótel við Sigtún. s. 689000 Fágætfiðla fundin Faéætri Stradivariusar-fiðlu var stolið i New mes Fox, næst æðsti yfirmaður alríkislögregl- York-borg í fyrrahaust og enda þótt hún hafi unnar (FBI), Francis gripinn. Fiðlan var smíðuð verið vel tryggð varð enginn ánægðari en eig- árið 1667 og var tryggingarverðmæti hennar andinn, Jacques Francis (t.v.), þegar hún kom í 220 þúsund dollarar, eða jafnvirði 8,1 milljónar leitimar í Tókýó á dögunum. Hér afhendir Ja- íslenzkra króna. Forkosningar í Bandaríkjunum: Bush reynir að ná sér á strik í New Hampshire Manchester í New Hampshire, Reuter. GEORGE Bush, varaforseti Bandarikjanna, reynir nú að ná sér á strik í New Hampshire eftir að hafa orðið fyrir tals- verðu áfalli í forkosningunum i Iowa. Á sama hátt vinnur Mic- hael Dukakis að því hörðum höndum að tryggja sér þar fyrsta sætið meðal demókrata. Forkosningar fara fram í New Hampshire næstkomandi þriðjudag, hinn 16. þessa mán- aðar, en þær eru hinar fyrstu sem eru öUum stuðningsmönn- um flokkanna opnar. Hefð er fyrir þvi að opnar forkosningar í New Hampshire séu hinar fyrstu í röðinni og hafa þær tíl þessa verið stefnumarkandi í kapphlaupinu eftir tilnefningu forsetaframbjóðenda flokk- Reuter George Bush á blaðamannaf undi þar sem hann sagðist hvergi bang- inn þrátt fyrir áfaUið í Iowa. anna. Bush varð í þriðja sæti í for- kosningum repúblikana í Iowa á mánudag og sagði hann við kom- Danmörk: una til New Hampshire á þriðju- dag, að hann hygðist snúa vöm í sókn, enda skildist sér af stuðn- ingsmönnum sínum í ríkinu að Jörgensen í frið- arferð til Israels Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Alþjóðasamband jafnaðarmanna hefur ákveðið að senda nefnd manna i nokkurs konar friðarferð til ísraels og verður Anker Jörgensen, fyrr- am forsætisráðherra, meðal þátttakenda i henni. í janúarlok sendi Jörgensen bréf til Shimons Peres, utanríkisráðherra og formanns ísraelska Verkamanna- Elokksins, og skýrði honum frá áhyggj- nm sínum og annarra af ástandinu á Vesturbakkanum og á Gaza. Skoraði Jöigensen jafnframt á Alþjóðasam- band jafnaðarmanna að láta til sín taka og reyna að hafa áhrif á bróður- flokkinn í ísrael. í viðtali við danska útvarpið kvaðst Jörgensen ekki lengur geta horft upp á Israela drepa fólk fyrir framan sjónvarpsvélamar. Willy Brandt, forseti Alþjóðasambandsins, hefur nú lagt til, að nefnd manna verði send til viðræðna við ísraelska verkamannaflokksmenn og verði þá Jöigensen með í för. Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis- ráðherra Danmerkur, lýsti áhyggjum dönsku stjómarinnar af ástandinu í ísrael á utanríkisráðherrafundi EB- rílq'anna í Bonn í fyrradag. Danir hafa ávallt talið sig til vina Israela og þess vegna hörmum við það, sem þar er að gerast. Það veldur okkur vonbrigðum, að ísraelsstjóm skuli engu skeyta um gagnrýnina, jafnvel þótt hún komi frá vinum hennar," sagði Ellemann-Jensen. hann hefði talsvert forskot á aðra frambjóðendur. Dukakis, sem sótti talsvert á í Iowa, er sigurviss í New Hamps- hire ekki síst vegna þess að hann er ríkisstjóri í Massachusetts, næsta ríki við. Allir frambjóðendur flokkanna keppast nú við að afla sér vin- sælda í New Hampshire öfugt við það sem gerðist í Iowa, en þar höfðu þeir Alexander Haig og Al- bert Gore ekki einu sinni fyrir þátttöku. Albert Gore er þó enn sem komið er í Miðvesturríkjunum, enda telur hann sig ekki eiga mikla möguleika á sigri í New Hamps- hire. Hins vegar treystir hann á það að njóta góðs af forkosningun- um 8. mars, en þann dag verður kosið í 20 ríkjum í einu. Flest þeirra heyra til Suðurríkjanna, en þar á Gore mestan stuðning vísan. Aðrir frambjóðendur þora þó ekki að taka slíka áhættu, minnug- ir þess að frá 1952 hefur enginn náð kjöri sem forseti án þess að bera sigur úr býtum í forkosning- unum í New Hampshire. ERLEIMT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.