Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 49 Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér. Vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrimur Pétursson) Við Hannes og þeir sem eftir eru af frændfólkinu í Tjamó sendum þér Sævar minn, bömum og öðm frændaliði dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur og styrki. Sigríður G. Johnson Ragnheiður Eygló Eyjólfsdóttir er látin. Þar gekk drengur góður, vinur, eiginkona og móðir. Fari hún vel; Orlögin höguðu því svo að ég kynntist Eygló, eins og hún var jafnan kölluð, á vordögum 1975. Fyrstu fundir gáfu til kynna að þama færi kona hnarreist, stolt og ákveðin og var hún fljót að vinna virðingu hins unga sveins. Hún reyndist seintekin en þó ávallt vin- gjamleg. Fljótlega komu í ljós hlý- hugur og velvilji sem frekar lýsti sér í verkum en orðum og mátti skilja að jarðvegur var góður fyrir frekari kynni. Vinskapurinn óx síðan og dafnaði, sérstaklega á grunni sameiginlegra áhugamála eins og fagurfræðilegri hlið ljós- myndunar, ferðalögum eða al- mennri þjóðfélagsumræðu. Eygló var listamaður og bar sér- staklega gott skynbragð á alla fag- urfræði sem fór saman við mikla handlagni. Ber heimili hennar góð- an vott um þetta og auk hluta eins og ljósmynda, útsaums og málaðra mynda vom og eru til vitnis hvers- dagslegri hlutir. Má þar telja jóla- skraut, fatnað sem hún saumaði og ekki síst matseld og framreiðsla matar. Því það var ekki aðeins að maturinn væri bragðgóður heldur var hann svo listilega fram borinn að unun var á að horfa. Þessa lista- mannshæfileika bar Eygló ekki á torg og hvarflaði það sennilega ekki að henni að hún hefði þá, því hún hafði í frammi harða sjálfs- gagnrýni og var sjaldan fullkom- lega ánægð með það sem hún hafði gert. Þessi mál ræddi hún við fáa að nokkru ráði, en ég varð ungur þess skóla aðnjótandi og met það mikils. Af þessum kynnum mátti ég ráða að þar fór kona sem ekki kastaði höndunum til neins, hvorlci f efnislegu, andlegu né mannlegu tilliti. Eygló átti við erfiðan sjúkdóm að stríða frá bamæsku, og hamlaði hann meðal anriars því að hún gæti stundað söng sem hún hafði mikið yndi af. En í veikindum þess- um kom fram ósérhlífni hennar og harður vilji. Hún tók móð og más- andi þátt í fjallgöngum og öðru því sem á dagskrá var, jafnvel af meira kappi en sumir þeir er fullri lieilsu áttu að fagna. Utivist og ferðalög voru henni ávallt mikið áhugamál og liafði hún yndi af náttúmnni. Á kveðjustund sem þessari hvarflar hugurinn aftur til liðinna tíma og er þai- margs að minnast. Ferðalög um Mið-Evrópu, jólahald á íslandi eða sameiginlegar stundir f garðinum sem hún hirti og rækt- aði af natni. í hugskoti stendur mynd heilsteyptrar, ákveðinnar og kærleiksríkrar konu. Minningamar geymast, þær getur enginn tekið, að þeim skal búið og lærdómur dreginn af í sem víðtækustum skiln- ingi. Að lokum vil ég votta eigin- manni, Jóhannesi Sævari, bömum og bamabömum, svo og systkinum Eyglóar innilegustu samúð mína. 0 Þórður Melgason Leiðréttíng Minningargrein birtist hér f blað- inu í gær um Þorstein ívarsson er var undirrituð af: Guðmundi, Ingi- mundi, Haraldi, Stefáni og Sigur- steini. Næst síðasta málsgreinin í þessari grein féll út, en hún er svo- hljóðandi: Aðstæður hafa allar breyst eftir lát Steina. Missir svona góðs vinar og félaga er óbætanleg- ur, og ferðimar verða aldrei eins. Söknuður okkar er sár. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum við vinnslu þessara kveðjuorða. Minning: Haraldur Breið- fjörð Þorsteinsson Hann afí er dáinn. Þetta voru fréttirnar sem við fengum þegar við vöknuðum að morgni föstudags- ins 5. febrúar. Hann sem lagði af stað í hjartaaðgerð til London fullur bjartsýni um að allt gengi vel og hann næði fullum bata. Afi, Haraldur Breiðfjörð Þor- steinsson, fæddist 29. júní 1923 á Lýsuhóli í Staðarsveit. Móðir hans var Ásgerður Ágústa Ágústsdóttir og faðir hans Þorsteinn Jónasson, bóndi á Kóngsbakka í Helgafells- sveit. Afí ólst upp hjá móður sinni og fósturföður, Jónasi Guðmunds- syni, en þau bjuggu allan sinn bú- skap í Lýsudal í Staðarsveit. Arið 1947, þann 25. október, giftist afí ömmu okkar, Vilborgu Guðrúnu Gísladóttur frá Gmndar- fírði og bjuggu þau fyrstu búskap- arár sín í Grundarfírði en fluttu til Reykjavíkur 1950 og bjuggu þau lengst af á Tunguvegi 60. Þau eign- uðust 7 böm sem öll eru nú upp- komin. Bamabömin eru nú orðin 15. Afí hefur starfað hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur frá því í árs- byijun 1955, fyrst sem vagnstjóri og síðustu árin sem vaktformaður. Árið 1979, þann 2. júní, lést amma okkar skyndilega og var það erfíður tími fyrir afa, en þá voru tvö yngstu bömin enn í foreldrahús- um. Afí og amma voru mjög samrýnd og ferðuðust þau mikið um landið og eftir að bömin þeirra stofnuðu sín eigin heimili var farið í hóp- ferðir saman og tók þá afi myndir af öllum hópnum og átti hann gott myndasafn frá þessum ferðalögum. Nokkrum dögum áður en hann lagði af stað í síðustu ferðina hitt- umst við hjá afa og skoðuðum þess- ar myndir. Afí var alltaf hress og kátur og var mjög gestkvæmt á heimili hans og ömmu og alltaf var hann tilbúinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Afí og amma höfðu ánægju af því að vera úti í náttúrunni og ræktuðu þau í mörg ár kartöflur í Skammadal þar sem þau komu sér upp litlu húsi ásamt vinum sínum og hélt afí því áfram eftir að amma dó. Þar var oft glatt á hjalla þegar öll fjölskyldan var saman komin. Síðustu árin stundaði afí svo hestamennsku ásamt bræðrum sínum á æskuslóðum þeirra systk- ina í Lýsudal. Á vetuma höfðu þeir aðstöðu fyrir hestana í Hafnarfirði og var gaman að fara með honum þangað. Við hugsum til hans með söknuði nú þegar hann er horfinn héðan og biðjum góðan Guð að varðveita afa okkar og ömmu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Barnabörn t Hjartkær eiginkona mín, VALGERÐUR PÉTURSDÓTTIR, Vallargötu 18, Keflavík, andaðist í Sjúkrahúsinu í Keflavík 9. febrúar sl. Fyrir hönd aðstandenda, Bragi Halldórsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, .IÓN GUÐNI ÁRNASON Eiúsasmiðameistari, Bugðulæk 7, Reykjavík, lést í öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10b, 6. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Karólína Þorsteinsdóttir, Arnfríður Á. Guðnadóttir, Guðrún K. Guðnadóttir, Hjörtur Sigurjónsson, Jóna Guönadóttir, Þórir Jónsson, Halldór Guðnason og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN ENGIMAR JÓNSSON, múrari, frá Hafnarhólmi, Hátúni 4, verður jarðsunginn föstudaginn 12. febrúar kl. 13.30 frá Bústaða- kirkju. Helga Reynir Hólm Jónsson, Sigrún Hólm Jónsdóttir, Haukur Frans Jónsson, Jón Ingimar Jónsson, Stefán Jónsson, Jónsson, Anna Stefánsdóttir, Benedikt Arason, Henný Guðsteinsdóttir, Theódóra Marinusdóttir og barnabörn. . t Móðir okkar, ELÍSABET KRISTÓFERSDÓTTIR frá Neðri-Hól, lést í Sjúkrahúsi Akraness 5. febrúar sl. Jarðarförin verður gerð frá Borgarneskirkju föstudaginn 12. febrú- ar kl. 14.00. Sætafe.rð verður frá Umferðarmiðstöðinnl sama dag kl. 11.30. Börnin. t Konan mín, JÓNFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Patreksfirði, Öldugötu 27, Hafnarfirði, er lést 5. þ.m. verður jarðsungin frá Kapellunni við Hafnarfjarðar- kirkjugarð föstudaginn 12. febrúar kl. 13.30. Innilegar þakkir til' lækna og starfsfólks Sólvangs fyrir góða umönnun. Konráð Júlíusson. t Útför móður okkar, fósturmóður, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR frá Hofsstöðum, verður gerð frá Fáskrúðarbakkakirkju laugardaginn 13. febrúar kl. 14.00. Ferð veröur frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.00. Þórdís Eggertsdóttir. Sigmundur Guðmundsson, Kjartan Eggertsson, Soffía Guðjónsdóttir, íngibjörg Eggertsdóttir, Gisli Gíslason, Áslaug Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir okkar, MARGRÉT KRISTJÁNSDÓTTIR, Drápuhlið 43, Reykjavík, er lést á Sólvangi, Hafnarfirði, aðfaranótt 8. febrúar verður jarð- sett í nýju kapellunni föstudaginn 12. febrúar kl. 10.30. Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Guðlaug Kristjánsdóttir, Björn Kristjánsson. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, GUÐMUNDUR JÓSEFSSON fyrrv. húsvörður Hallveigarstöðum, Hátúni 4, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. febrúar kl. 1B.00. Þeir sem vildu minnast hins látna eru beðnir að láta Sjálfsbjörgu, félag fatlaðra, eða Hjartavernd njóta þess. Kristfn Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Óskar Þ. Sigurðsson, Þóra Björgvinsdóttir, Jón Haraldsson og barnabörn. t innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður. og ömmu, HELGU SIGURÐARDÓTTUR. Sólveig og Sigurður Blöndal, Helgi, Guðmundur og Dagný Blöndal. t Þakka innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðar- för föður míns, EYJÓLFS S. ÞORVALDSSONAR fyrrverandi skipstjóra, Fornhaga 23. Guðmunda Eyjólfsdóttir. t Þökkum sýnda samúð og vináttu við fráfall og útför eiginmanns míns, mágs og fósturföður, HÁLFDÁNAR H. ÞORGEIRSSONAR bifvélavirkjameistara, Sléttahrauni 27, Hafnarfirði, Einara G. Björnsdóttir, Benedikt Björnsson, Elin Benediktsdóttir, Björn Benediktsson, Guðbjörg Benediktsdóttir, Björn H. Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.