Morgunblaðið - 21.02.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
23
Tannlæknadeild o g
fjöldatakmarkanir
Greinargerð frá
tannlæknadeild
Háskóla íslands
Árið 1972 varð tannlæknadeild
sjálfstæð deild innan Háskóla ís-
lands en var áður hluti af lækna-
deild.
Aðgangur að tannlæknadeild
hefur ávallt verið jtakmarkaður. í
regiugerð Háskóla íslands frá 1973
var svohljóðandi ákvæði:
Af þeim stúdentum, sem innrit-
ast í tannlæknadeild og standast
1. árs próf, skulu jafnan 6 þeir efstu
á ári hveiju öðlast rétt til áfram-
haldandi setu i deildinni. Séu 2 eða
fleiri með sömu einkunn og gera
þarf upp á milli þeirra um rétt til
áframhalds gildir stúdentsprófsein-
kunn.
Á fundi háskólaráðs 28. október
1976 var kjörin 7 manna nefnd til
þess að endurskoða og samræma
innbyrðis reglugerð fyrir Háskóla
íslands. Tillögur regiugerðamefnd-
ar Háskóla Islands um fjöldatak-
markanir í tannlæknadeild voru
svohljóðandi:
Nú er fyöldi stúdenta, sem stenst
1. árs próf meiri en svo að veita
megi þeim öllum viðunandi fram-
haldskennslu við aðstæður á hveij-
um tíma, og getur háskólaráð þá
eftir tillögu tannlæknadeildar tak-
markað fjölda þeirra, sem halda
áfram námi. Réttur stúdenta til
framhaldsnáms skal miðaður við
árangur 1. árs prófa. Ákvörðun
háskólaráðs skal tilkynna fyrir upp-
haf þess háskólaárs, sem prófin eru
haldin. Séu tveir eða fleiri með sömu
einkunn á 1. árs prófi og gera þarf
upp á milli þeirra um rétt til frek-
ara náms, gildir hæsta stúdents-
prófseinkunnin. Stúdentar, sem öðl-
ast ekki rétt til þess að halda áfram
námi, mega endurtaka öll prófin
næsta ár eða láta fyrri próf gilda
og keppa þá við nýja stúdenta á
jafnréttisgrundveUi.
í breytingartillögum tannlækna-
deildar frá 23. nóvember 1978 er
lagt til að standist fleiri stúdentar
fyrsta árs próf enn tannlæknadeild
getur veitt viðunandi kennslu við
aðstæður hvetju sinni, geti deildar-
fundur takmarkað Qölda þeirra,
sem halda áfram námi.
Réttur stúdenta til náms miðist
við árangur þeirra á fyrsta árs
prófi. Séu tveir eða fleiri stúdentar
með sömu einkunn úr því prófi og
gera þarf upp á milli þeirra um
rétt til frekara náms, skal hlut-
kesti ráða.
í athugasemdum með breyting-
artillögum tannlæknadeildar kemur
fram að deildin teiur deildarfund
sinn hæfastan, til þess að takmarka
þann Qölda stúdenta, er heldur
áfram námi eftir samkeppnispróf
fyrsta árs.
Stungið var upp á að hlutkesti
skeri úr um heimild til áframhald-
andi náms á öðru ári fái tveir eða
fleiri stúdentar sömu einkunn á
samkeppnisprófi. Á þessum tíma
hafði fjölgað mjög þeim skólum sem
öðlast höfðu rétt til að útskrifa stúd-
enta. Stúdentsprófseinkunnir voru
ekki lengur taldar sambærilegar og
því ekki, að mati tannlæknadeildar,
nothæfar til að ráða úrslitum við
val stúdenta á annað ár.
í gildandi reglugerð fyrir Há-
skóla íslands með áorðnum breyt-
ingum segir svo í 108. grein:
Nú er flöldi stúdenta, sem stenst
1. árspróf, meiri en svo að veita
megi þeim öllum viðunandi fram-
haldskennslu við aðstæður á hveij-
um tima, og getur háskólaráð þá
eftir rökstuddri tillögu tannlækna-
deildar takmarkað fjölda þeirra,
sem halda áfram námi. Réttur stúd-
enta til framhaldsnáms skal miðað-
ur við árangur janúarprófa fyrsta
árs. Ákvörðun háskólaráðs skal til-
kynna fyrir upphaf þess háskóla-
árs, sem prófin eru haldin. Séu tveir
eða fleiri með sömu einkunn á 1.
árs prófi og gera þarf upp á milli
þeirra um rétt til frekara náms,
skal hlutkesti ráða. Stúdent hefur
staðist hinn fræðilega hluta 1. árs
prófa hljóti hann meðaleinkunnina
5.
Reglugerðarákvæði þetta var í
meginatriðum samþykkt á fundi í
háskólaráði 29. mars 1979 með 10
atkkvæðum gegn einu, atkvæði for-
seta tannlæknadeildar. í bókun,
sem tveir fulltrúar stúdenta í há-
skólaráði óskuðu eftir, kemur fram
að þeir telja notkun stúdentsprófs
óréttláta og notkun hlutkestis
skárri aðferð ef gera þarf upp á
milli manna um rétt til áframhald-
andi náms í tannlæknadeild. Jafn-
framt lýstu þeir sig andvíga beit-
ingu flöldatakmarkana innan há-
skólans, en töldu sér skylt að stuðla
að því að framkvæmd þeirra yrði
ætíð með sem skástum hætti fyrir
stúdenta.
Á fundi í háskólaráði 26. mars
1987 var samþykkt að heildarfjöldi
nemenda sem heimilað verður
áframhaldandi nám í tanniækna-
deild á vormisseri 1988 verði 7 alls.
Níu 1. árs nemendur stóðust jan-
úarpróf 1988. Af þeim voru þrír
með sömu meðaleinkunn og þurfti
því að raða þeim í 6., 7. og 8. sæti.
Samkvæmt ofangreindu reglugerð-
arákvæði bar að varpa hiutkesti um
röðina. Til að forðast tafir var það
gert sama dag og endanleg úrslit
janúarprófa iágu fyrir, enda
kennsla á voimisseri þegar hafin.
Samkvæmt úrskurði lögskýringa-
nefndar Háskóia íslands frá 18.
febrúar sl. hefur tannlæknadeild í
einu og öllu farið eftir reglugerð
Háskóla íslands og ákvörðun há-
skólaráðs frá 26. mars 1987 í með-
ferð þessa máls.
Þrátt fyrir ýtailega umflöllun,
bæði í tannlæknadeild og (háskóla-
„Er augljóst að einung-
is með því að heimila
ekki fleiri en 7 nemend-
um áframhaldandi nám
að samkeppnisprófi
loknu getur tannlækna-
deild, við óbreyttar að-
stæður, veitt íslenskum
tannlæknanemum þá
umf angsmiklu verk-
legu þjálfun sem kraf-
ist er á góðum tann-
læknaskólum.“
ráði, við síðustu endurskoðun á
þessu reglugerðarákvæði fannst þó
ekki betri aðferð en hlutkesti til
þess að gera upp á milli manna
með sömu meðaleinkunn. Komið
hefur fram gagnrýni og efasemdir
um ágæti þessarar aðferðar í fjöl-
miðlum. Ljóst er að fjölmargir geta
ekki sætt sig við að hlutkesti sé
notað þegar ákvarða þarf rétt stúd-
enta til framhaldsnáms séu tveir
eða fleiri með sömu meðaleinkunn
að loknu samkeppnisprófi. Því
hyggst tannlæknadeild taka reglu-
gerðarákvæði um framkvæmd
fjöldatakmarkana til tafarlausrar
endurskoðunar.
Fjöldi tannlæknastóla takmarkar
fyrst og fremst fjölda þeirra nema
sem tannlæknadeild treystir sér til
að veita viðunandi menntun. Við
hönnun á núverandi húsnæði og í
upphaflegum áætlunum um tækja-
kost tannlæknadeildar var gert ráð
fyrir 8 nemendum á ári. Gert var
ráð fyrir 26 tannlæknastólum á
tannlækningastofu og 4 stólum fyr-
ir erfiða sjúklinga og minniháttar
skurðaðgerðir. Þar að auki var gert
ráð fyrir tveim skurðstofum. Þegar
kom að þvf að kaupa tæki til deild-
arinnar tóku stjómvöld þá ákvörðun
að fresta kaupum á 9 tannlækna-
stólum. Tannlæknastólar deildar-
innar eru því 21 auk tveggja skurð-
stofa. Kennt er í tannlækningastofu
5 daga vikunnar, 6 tíma á dag eða
frá kl. 9—12 og 14—17. Þar sem
fyrirlestrar em ætíð frá kl. 8—9 og
13—14 og nauðsynlegt er að þrífa
tannlækningastofuna bæði um
miðjan daginn og að kvöldi að
vinnudegi loknum, þá er tannlækn-
ingastofan fullnýtt.
Sé kennt f 25 vikur á ári hefur
deildin til umráða 15.750 stóltíma
á ári. Með stóltfma er átt við fjölda
klukkustunda sem nemandi fær til
verklegra æfinga á tannlækninga-
stofu. Stefnt er að því að þrír ár-
gangar séu að jafnaði á lækninga-
stofu samtímis og em þá 5.250
stóltímar til ráðstöfunar fyrir hvem
árgang. Fjöldi nemenda í árgangi
hefur því bein áhrif á fjölda stóltíma
sem hver nemi fær. Miðað við að
teknir séu árlega 7 nemendur inn
í deildina fær hver nemi 750
stóltfma á ári eða 2.250 klukku-
stunda þjálfun í tannlækningum
fyrir lokapróf. Ef hins vegar 8 nem-
um er heimilað að halda áfram
námi að samkeppnisprófi loknu, fær
hver þeirra 13% færri klst. til verk-
legrar þjálfunar á tannlækninga-
stofu deildarinnar. Samsvarandi
skerðing kennslustunda ef 9. eða
10. neminn bættist við næmi 22%
og 30%.
Kennsluárið 1986—87 vom 26
nemendur á tannlækningastofu, 5
némendum fleiri enn tannlækna-
deild telur æskilegt, og vom því til
umráða u.þ.b. 600 stóltímar á nema
það ár eða að öllu óbreyttu 1.800
stóltímar alls í klínísku námi. Sam-
kvæmt nýjustu töluro sem tann-
læknadeild hefur frá tannlækna-
skólanum í Ósló er heildarstóltíminn
á hvem nema þar 2.246, í Kaup-
mannahöfn 2.615 og í Bandaríkjun-
um nálægt 2.300. Klínfsk kennsla
var þvf umtalsvert minni kennslu-
árið 1986—87 í tannlæknadeild
Háskóla íslands en í áðumefndum
skólum.
í ræðu sinni á háskólahátfð í júní
1986 sagði háskólarektor, Sig-
mundur Guðbjamason, að f mennta-
stefnu Háskólans skuli lögð áhersla
á að veita breiða og góða undir-
stöðumenntun í þeim fræðigreinum,
sem kenndar em við Háskóla ís-
lands og veita þekkingu og þjálfun
sambærilega við kröfur erlendra
háskóla. Slík ummæli hljóta að vera
stefnumarkandi fyrir deildir Há-
skólans.
Allt frá þvf tannlæknadeild hlaut
sjálfstæði hefur markvisst verið
unnið að því að menntun tann-
lækna, sem útskrifast frá tann-
læknadeild Háskóla íslands, sé
sambærileg við þær menntunar-
kröfur sem gerðar em á hinum
Norðurlöndunum. Þeim áfanga er
enn ekki náð. Hvað eftir annað
hefur háskólaráð heimilað fleiri
nemendum en tannlæknadeild
mælti með áframhaldandi nám að
loknu samkeppnisprófi. Slíkar
ákvarðanir gera ekki aðeins að tor-
velda og seinka viðleitni tannlækna-
deildar til að endurskipuleggja nám-
ið, heldur leiða til lakari menntunar.
Af því sem á undan er sagt er
augljóst að einungis með því að
heimila ekki fleiri en 7 nemendum
áframhaldandi nám að samkeppnis-
prófi loknu getur tannlæknadeild,
við óbreyttar aðstæður, veitt
fslenskum tannlæknanemum þá
umfangsmiklu verklegu þjálfun sem
krafist er á góðum tannlæknaskól-
um. Ástæðan fyrir fjöldatakmörk-
unum f tannlæknadeild er sú við-
leitni deildarinnar að veita ekki lak-
ari verklega þjálfun en krafist er á
góðum erlendum menntastofnun-
um, s.s. á Norðurlöndunum. Sú við-
leitni er f fullu samræmi við
menntastefnu Háskólans.
Á sfðasta fundi sfnum breytti
háskólaráð fyrri ákvörðun sinni frá
26. mars sl. og heimilaði 8 nemum
í stað 7 áframhaldandi nám við
tannlæknadeild án þess að forsend-
ur fyrri ákvörðunar hafi í raun
breyst.
Vill Háskólinn breyta mennta-
stefnu sinni og slá af kröfum um
að veita menntun sambærilega við
kröfur erlendra háskóla?
Vill íslenska þjóðin að Háskóii
íslands útskrifi tannlækna með
minni verklega þjálfun að baki en
gerist meðal nálægra þjóða?
SKRIFSTOFA NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDARINNARl
óskar eftír að ráða
RÁÐUniAUTÁ SI/XDf
UMHVERFISVERIUDAR
Comn/nn q »/L « éIAwm% n
oamvinna tnussyoma
Norðurlanda ferfram á
vettvangl Norrænu ráð-
horranefndarinnar. Ssm-
vinnan snertiraitfhstsvið
samféiagsJns.Skr1fstofa
annast baaði undirbúning
ogframkmmdþsina
verkefnasomráðhsna-
asaénsifn mfkrtXlíit
nammn ímsur arsioou ul
Skrifstofan skiptist í fimm
sérdeildir, fjárhags- og
stjórnsýsludeild, upplýs-
ingadeild og skrifstofu
framkvæmdastjóra.
Staða ráðunautar á sviði um-
hverfisverndar losnar í haust
og er þvi auglýst eftir eftir-
manni hans.
Helstu verkefnin varða starf
það sem unnið er á vegum
skrifstofunnarvegna Norrænu
ráðherranefndarinnarog Nor-
rænu embættismannanefnd-
arinnarum umhverfisverndun.
Níu vinnuhópar starfa á vegum
embættismannanefndarinnar
en á næstu árum veröur lögð
megináhersla á mengunar-
varnir andrúmsloftsins og haf-
svæða, eftirlit við meðferð efna
og nýja tækni sem dregið
gæti úrmengun. Ráðunautur-
inn mun starfa með hópum
þessum bæöi aö undirbúningi
og framkvæmd verkefna auk
þess sem hann mun eiga sam-
starf við aðrar stofnanir á Norð-
urlöndum sem starfa á þessu
sviöi.
Ráðunauturinn kann einnig að
koma til með að vinna að öðr-
um verkefnum en hér hafa
verið nefnd.
KRAFIST ER:
- Viöeigandi menntunar og
starfsreynslu.
- Víötækrar reynslu afstjórn-
unarstörfum innan einka- eða
ríkisgeirans.
Við matá umsóknum verður
að auki lögð áhersla á að við-
komandi hafi starfað að um-
hverfisvemd annaðhvort í sinu
heimelandi eða á vettvangi
norrænnar samvinnu.
Viðkomandi þarfað geta starf-
að sjálfstætt og vera sam-
staifsfús.
Æskilegterað viökomandi
þekki til norrænnar samvinnu
og þeirra stofnana sem hafa
framkvæmd hennar með
höndum.
Góð laun eru i boði og starfs-
aðstaða erhin ákjósanlegasta.
Starfinu fylgja ferðalög innan
Norðurlanda. Ráðning ertil
fjögurraára. Ríkisstarfsmenn
eiga réttá leyfi frá núverandi
starfi. Skrifstofa Ráðherranenf-
darinnareri Kaupmannahöfn
og verður viðkomandi veitt
aðstoð við að útvega húsnæði.
Á vettvangi norrænnar sam-
vinnu erjafnrétti kynjanna í
heióri haft og eru þvi konur
jafnt sem karlar hvattar til að
sækja um stöðu þessa.
NANARI UPPLYSINGAR:
veita Risto Tiendari deildarstjóri og Kirsten Morten-
sen ráðunautur.
Mette Vestergaard og Harald Lossius veita upplýs-
ingar um kaup og kjör. Síminn í Kaupmannahöfn er:
01-11 47 11.
Umsóknarfrestur rannur út 14. mars 1988.
Skriflegar umsóknir skal senda:
NORDISK MINISTERRAD
Stor* Strsndsstrmds 18,
DK-1266 Köbsnhavn K
Danmark.