Morgunblaðið - 21.02.1988, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.02.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988 33 Götumar í gömlu miðborginni em víða ekki nema 2 m breiðar. Þar er þó búið og víða leynast lúxusbúðir. Bílastæði hafa verið gerð undir gömlu borginni. Það er gaman að gægjast inn i húsagarðana í gömlu borginni, þar sem viða leynast skrautlegar hallir frá 17. og 18. öld með þeirra tíma skreytingum í steini og járni. í Alsír yfír á ströndina á móti og settust að sem næst fyrri heim- kynnum sínum. Þessi öra fólksfjölg- un hefur vitanlega valdið miklu umróti og erfíðleikum, sem þarf að mæta. „Við erum að gera upp gömlu borgina og gera hana lífvænlega, um leið og við byggjum þá nýju í beinum tengslum við hana“, útskýr- ir Dugrand.„Þetta er borg í örari vexti en nokkur önnur borg í Frakklandi og það er einmitt grösk- an og vöxturinn sem hafa gert okkur fært að ráðast í svona stór verkefni. An fjölgunar engin stækk- un. En þrátt fyrir þessa fjölgun var hér enginn iðnaður, nema IBM, sem hefur hér stærsta iðnfyrirtæki sitt í Evrópu. Því er atvinnuleysi nokk- urt, þótt þessi borg hafí skapað 6000 atvinnutækifæri á undanföm- um 3 árum eða fleiri atvinnutæki- færi á skömmum tíma en nokkur önnur frönsk borg. Það nægir þó ekki, því fólk heldur áfram að streyma hingað, iðulega þannig að annað hjónanna hefur tryggt sér vinnu en hitt er atvinnulaust, enda dregur hið milda loftslag hér við Miðjarðarhafíð að. Við þurfum lengri aðlögunartíma. Það eru þó ekki gömlu iðngreinamar sem við einblínum á, heldur leggjum við alla áhersluna á nýiðnaðinn og erum komnir vel af stað. Við erum að koma upp þrenns konar iðngrein- um, sem eiga við nútímann. Nýiðnaður fyrir framtíðina Þama á M.Dugrand í fyrsta lagi við rannsóknir og tækni í sambandi við læknis- og lyfjafræði. En í Mont- pellier er einn elsti læknaskóli í heimi sem starfað hefur samfellt frá 12. öld og þar starfa nú fjöl- margir prófessorar, frægir fýrir rannsóknir sínar og þar eru stað- settar fjölmargar rannsóknastofn- anir fyrir einstaka sjúkdóma eða sérhæfðar læknisfræðilegar rann- sóknir. Norðvestan við borgina hefur verið lagt 150 ha land undir hverfí, sem nefnist Parc Euromedi- cine, og er ætlað að draga að hvers kyns lyfjaframleiðslu. Einkanlega eru fyrirtækin sem þama setjast að í sambandi við læknisfræði- og líffræðideildir háskólans og stóm háskólasjúkrahúsin. Fyrirtækin 60, sem þegar era þar, veita 3000 manns vinnu. Arkitekt þessa hverf- is er Claude Vasconi. Á árinu 1988 eiga að verða komnar þarna allar nauðsynlegustu þjónustustofnanir fyrir hverfið. í öðra lagi stefna yfírvöld í Mont- pellier á gagna- og upplýsingatækni og era markvisst að búa örtölvu- tækninni, róbótaiðnaði og öllu slíku aðstöðu. Það er lykillinn að framtíð- inni, segir Dugrand:„Við höfum síðan. 1984 efnt til sýninga á slíkri tækni hér við vaxandi vinsældir. Hér mætum við þessari ögrun 21. NÝ ENDURSKOÐUNARSKRIFSTOFA Bretland: ÞREP H r ENDURSKOÐUN BCKHALD - RÁÐGJÖF SKIPMOt-Tl 506 - 10S REVKJAVIK SIMI 680077 ÞORSTEINN RAGNARSSON, REYNIR RAGNARSS0N . PÉTUR 6UD6JARTSS0N ALBERT L. ALBERTSSON RANNVEIG VÍGLUNDSDÓTTIR POSTBOX 231 212 GARÐABÆR ICELAND. Barnshafandi konur Barnsburðarbelti og bómullarnærbuxur fyrirliggjandi í öllum stærðum. Útsölustaðir: Holtsapótek Amaró, Akureyri Lísa, Keflavík Borgarapótek Póstverslun, upplýsingar s: 91 -51957 Enginn fékkst til að gerast þjónn Breta- drottningar Lundúnum, Reuter. BRESK blöð greindu frá þvf í vikunni að starfsmannastjóri Elfsabetar Bretadrottningar ætti í vandræðum með að finna þjón- ustufólk. Verst gengi að finna þjón, sem þyrfti helst að vera rúmlega tvítugur, vel til fara, hundavinur, og vera viljugnr að hneigja sig og beygja þegar það ætti við. Auglýst var eftir slfkum þjóni í vinnumiðlun í Kings Lynn, nærri einu af sveitasetram drottningar- innar, en enginn þeirra 150 atvinnu- lausu manna á aldrinum 19 til 24 ára, sem eru á skrá hjá miðluninni, fékkst til að sækja um starfíð. Launin sem í boði era þykja þó betri en gengur og gerist fyrir slík störf í Bretlandi, um 5.500 pund (360.000 ísl. krónur) á ári, frítt fæði, húsnæði og vinnuföt. „Ég gæti misst úr súpuskál yfír höfuðið á einhverjum, og ég er ákafiega lítið gefínn fyrir að fægja gler- muni. Ég held ég láti þetta því eiga sig,“ sagði 21 árs gamall atvinnu- leysingi við fréttamenn. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Hressingardvöl í 5 daga - frá sunnudegi til föstudags. Hálft fæði innifalið. HOTEl ÖDK. HVERAGERÐI Ivjánari upplýsingar í síma 99-4700. Velkomin á Hótel Örk. Verö aöeins Tilbod óskast í Cadillac Eldorado Biarritz árgerð ’79 og Ford Bronco Ranger XLT (tjónabifreið), árgerð ’79, ásamt öðrum bifreiðum, er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 23. febrúar kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. Sala varnarliðseigna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.