Morgunblaðið - 21.02.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.02.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988 Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra flytur ávarp á sambandsstjórnarfundi LI. Morgunbiaflið/EinarFaiur Iðnaðarráðherra á sambandsstjómarfundi Landssambands iðnaðarmanna: Hagsmunum iðnaðaríns má .ekki tefla í tvísýnu með að- gerðum fyrir aðrar greinar Æskulýðssamband kirkjunnar í Rvíkur- prófastsdæmi stofnað Sambandsstjórn Landssam- bands iðnaðarmanna hélt fund á laugardaginn, en í stjórninni sitja 40 fulltrúar. Á fundinum hélt Friðrik Sophus- son erindi þar sem hann ijallaði Um j stöðuna í efnahagsmálum og þær aðgerðir sem ríkisstjómin hefði gripið til á stuttum valdatíma sínum. Friðrik sagð að það hefði á sínum tíma skapað talsverða erfið- leika að ekki var unnt að mynda tveggja flokka stjóm og benti á að hingað til hefði aldrei tekist að halda saman þriggja flokka stjóm í heilt kjörtímabil. í sambandi við aðgerðir ríkis- stjómarinnar sagði Friðrik að hún hefði sem kunnugt er að mestu beitt sér í aðgerðum í fjármálum. Það hefði verið lögð höfuðáhersla á að setja hallalaus tjárlög jafn- framt því sem víðtækar breytingar yrðu gerðar á tekjuöflunarkerfí ríkissjóðs. Fólust þær m.a. í veru- legum breytingum á lögum um vömgjald og tollskrá en í öllum umræðunum um matarskattinn hefðu þær breytingar fallið í skugg- ann. Sagðist iðnaðarráðherra telja að þessar breytingar hefðu verið nauðsynlegar m.a. vegna breytinga sem orðið hefðu á þeim markaðs- svæðum sem næst okkur em. ís- lendingar gætu alls ekki horft fram- hjá því sem væri að gerast í ná- grannalöndum okkar og við yrðum hvort sem okkur lfkaði betur eða verr að laga okkur að þessum . breyttu aðstæðum. Ella gætum við staðið frammi fyrir því síðar meir að atvinnulíf hér á landi væri byggt upp í skjóli vemdar sem við vissum af fenginni reynslu að ekki getur gengið. Að undanfömu hefur talsvert verið ijallað um hvort heimila ætti erlendum aðilum að fjárfesta hér á landi í atvinnurekstri hvers konar og hefur sitt sýnst hverjum í þeim efnum. Iðnaðarráðherra sagðist ekki sjá að það væri á nokkum hátt siðlausara eða óhagkvæmara að erlendir aðilar tækju áhættu af fjárfestingum hér á landi en að tek- gpn væm erlend lán. Iðnaðarráðherra vék nokkuð að þeim efíiahagsaðgerðum sem ríkis- stjómin myndi hugsanlega grípa til á næstunni. Hann sagðist hafa orð- ið fyrir nokkmm vonbrigðum með það hvemig sumir hefðu talað út og suður um þær efnahagsaðgerðir æm stjómin stæði frammi fyrir að • gera. Það væri Ijóst að eftir mikið góðæri að undanfömu væri nú far- ið að halla undan fæti, sem m.a. lýsti sér f vanda útflutningsatvinnu- veganna. Og þrátt fyrir aukningu kaupmáttar, sem ekki ætti sér hlið- stæðu í nágrannalöndum okkar, væm gerðar svipaðar kaupkröfur í kjarasamningum og á áttunda ára- tugnum þegar verðbólgan var sem mest. M.a. af þessum ástæðum sagði Friðrik að útilokað væri að hans mati að grípa til efnahagsað- gerða fyrr en komin væri einhver mynd af því á hvaða nótum kjara- samningar yrðu. Lagði Friðrik sér- staka áherslu á að þær aðgerðir sem gripið yrði til mættu ekki vera sér- tækar, t.d. eingöngu fyrir sjávarút- veg og fískvinnslu. Með því yrði mikil hætta á að hagsmunum ein- stakra greina, t.d. iðnaðar yrði raskað. Það væm ekki ný sannindi að miklar sveiflur í undirstöðugrein á borð við sjávarútveg kæmu óhjá- kvæmilega niður á öðmm atvinnu- greinum. Kvaðst iðnaðarráðherra í þv$ sambandi taka undir það, að athugaður yrði rækilega sá mögu- leiki að koma hér á veiðileyfasölu til útgerðar, sem myndi draga vem- Iega úr þessum sveiflum. Þyrfti þá að sjálfsögðu að grípa til hliðarráð- stafana til þess að koma í veg fyrir að sú breyting hefði íþyngjandi áhrif á sjávarútveg. Á fundinum svaraði Friðrik fyrir- spumum fundarmanna. M.a. var hann spurður um skert framlög til Iðntæknistofnunar. Svaraði hann þvf til að hann hefði á sínum tfma tekið alvarlega þann ásetning ríkis- stjómarinnar að skila hallalausum fjárlögum en svo virtist sem önnur fagráðuneyti, eins og t.d. land- búnaðarráðuneytið, hefðu ekki gert það. Skýringin lægi trúlega að hluta til í því hversu landbúnaðurinn ætti marga fylgismenn á þingi í skjóli þess hvemig núverandi kjördæma- skipan væri háttað. Viðurkenndi Friðrik að Iðntæknistofnun hefði farið verr út úr fjárlögum enjefni hefðu staðið til en nú væri unnið að því að reyna að bæta úr því. í þessu sambandi gat iðnaðarráð- herra þess að aðrar atvinnugreinar en iðnaður tækju engan þátt í kostnaði við rekstur sinna rann- sóknastofnana og nefndi Hafrann- sóknastofnun sem dæmi. Sagðist hann telja það f góðu lagi að iðnað- urinn borgaði fyrir sínar stofnanir að einhveiju leyti svo framarlega sem aðrar atvinnugreinar gerðu slíkt hið sama. Taldi Friðrik mikil- vægt að koma á viðræðum milli atvinnugreinanna um þessi mál. BOÐAÐ var til stofnfundar Æskulýðssambands kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmi mið- vikudaginn 17. febrúar. Fundurinn var haldinn í safnað- arheimili Bústaðakirkju og bauð dómprófastur, séra Ólafur Skúla- son, fundarmenn velkomna og lýsti mikilli ánægju sinni yfír því, sem í vændum var. En séra Solveig Lára Guðmundsdóttir hafði orð fyrir und- irbúningsnefndinni og lýsti aðdrag- anda stofnunár sambandsins og væntingum af starfí þess. Hefur hópur forystumanna komið saman reglulega til fundar um æskulýðs- mál og stutt við starfíð og varðað nýjar leiðir. Á stofnfundinum voru mættir prestar, fulltrúar sóknamefnda og ungt fólk úr æskulýðsfélögum, en þau eru hú fímm starfandi í söfnuð- um prófastsdæmisins. Rfkti mikill einhugur um stofnunina og bjart- sýni um framtíð. Lög voru sam- þykkt, þar sem fram kemur, að til- gangur sambandsins á að vera að styðja og efla æskulýðsstarf safn- aðanna í prófastsdæminu og vera vettvangur bama og unglinga til samfélags og fræðslu. Þessum markmiðum hyggst æskulýðssam- bandið ná með leiðtoganámskeið- um, æslulýðsmótum og rekstri sum- arbúða. En sumarbúðir hafa verið reknar á vegum prófastsdæmisins undanfarin sumur í heimavistar- skólanum að Laugagerði á Snæ- fellsnesi. Eftir að búið var að ganga frá ÁFORMAÐ er að stofna for- eldrafélag vegna barna með þroskavandamál. Stundum em þessi böm kölluð misþroska eða „gloppótt", þar sem ekki er búið að fslenska það erlenda hugtak (MBD), sem liggur til gmndvallar greiningunni. Þessi böm eiga það langflest sameigin- legt að þurfa aðstoð talkennara, iðjuþjálfa eða stuðningsfóstm í leik- skóla. Síðar, þegar bömin koma í skóla, þarfnast þau ýmiss konar stuðningskennslu. lögum og ræða framtíðina var gengið til stjómarkosninga og hlutu þessir kosningu í stjómina. Ur hópi ungmenna vom kjömir Sigurður Grétar Sigurðsson og Ólafur Ragn- ar Ólafsson, en úr hópi hinna eldri, Unnur Halldórsdóttir, sem var fyrsta safnaðarsystir íslenzku kirkj- unnar, séra Gylfí Jónsson og Ragn- heiður Sverrisdóttir, djákni, og var hún kjörin formaður Æskulýðssam- bands kirkjunnar í Reykjavíkur- prófastsdæmi. Eftir lokaorð dómprófasts var sezt að veizluborði og virtist engum liggja á, enda nóg að ræða um og bjartsýni góð ríkti. (Fréttatilkynniiig) Fleiri farþeg- ar til landsins í JANÚAR komu 11.426 far- þegar til landsins með skip- um og flugvélum og er það fjölgun um tæp 14% frá því á sama tíma í fyrra. Af þessum Qölda vora 6.570 íslendingar og 4.856 útlendingar og var svipuð ijölgun í báðum hópum. Skipt eftir þjóðemi komu flestir erlendu farþeganna frá Bandaríkjunum, eða 1.640, frá Danmörku komu 922 farþegar, frá Svíþjóð 635, frá Bretlandi 345 og frá Noregi 305. Þessi undirbúningsfundur verður haldinn á Hótel Sögu, B-sal, þriðju- daginn 23. febrúar kl. 20.30. Gestir fundarins verða meðal annarra þeir Sveinn Már Gunnars- son og Stefán Hreiðarsson bama- læknir, sérkennslufulltrúi mennta- málaráðuneytisins, iðju- og þroska- þjálfar og margir aðrir. Munu þess- ir aðilar leiða umræður og svara spumingum. Ailir áhugamenn um þessi mál em hjartanlega velkomnir. (Fréttatilkymung) Málað á neglur HERMANN Österby, rakarameistari á Rakarastofunni Klapparstíg hefur Morgunblaðið/Sverrir Þau eru ekki mörg, hárin I penslinum sem Hermann notar tO að mála á neglur. tekið upp þá þjónustu að mála á neglur. Hermann hefur sótt nokkur myndlist- amámskeið en segir hugmyndina að nagla- skreytingunum hafa vaknað þegar Rakara- stofan hóf að flytja inn nýja tegund gervi- naglna skömmu fyrir jól. „Þegar við byijuð- um með neglumar datt mér í hug að skreyta þær. Ég kynnti mér hvemig það værl gert og komst að því að yfírleitt em límdir á alls kyns gullþræðir og örsmáar perlur og steinar. Það fannst mér ekki nógu persónu- legt óg reyndi því að mála á þær með akrýl- litum. Hermann segir þetta óneitanlega hafa verið erfitt í fyrstu en skemmtilegt. Hann er um 10 til 15 mínútur að mála hveija nögl en hann málar einnig á „venjulegar" neglur. „Allt milli himins og jarðar," sagði hann aðspurður hvað hann málaði og á sýnishomum sem hann hafði meðferðis gat að líta landslagsmyndir,' sólarlagsmyndir og teikningar af mönnum og dýmm. Hvemig litist mönnum nú á að ganga með mynd af heimahögunum á nöglinni? Rakarameistarinn og tómstundamálarinn Hermann Österby. Börn með þroskavandamál: Aform um stofn- un foreldrafélags
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.