Morgunblaðið - 21.02.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.02.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988 Don Giovanni slær í gegn __________________Tónlist_______________________ Jón Ásgeirsson Söngvarar DonGiovanni ............. Kristinn Sigmundsson Leporeilo ............... Bergþór Pálsson Donna Anna .............. Ólöf Kolbrún Harðardóttir Donna Elvira ............ Elin Ósk Óskarsdóttir Zerlina ............... Sigríður Gröndal Don Ottavio ........... Gunnar Guðbjörnsson Masetto og Höfuðsmaður '. Viðar Gunnarsson Kór og hljómsveit íslensku óperunnar Stjórnandi .............. Anthony Hose Leikstjóri ............ Þórhildur Þorleifsdóttir Leikmynd og búningar .. Una Collins Það er ekki í lítið ráðist að færa upp Don Giovanni eftir Mozart, því trúlega er verkið, sönglega séð, meðal erfiðustu óperuverka tón- bókmenntanna. Mozart og textahöf- undurinn Da Ponte sögðu verkið vera „gleðileik" og æ síðan hafa menn deilt um gerð verksins og hvemig það skuli flokkað. Eins og óperan var uppfærð í Gamla bíó sl. föstudagskvöld hefur forskrift Moz- arts verið látin halda sér, þar sem blandað er saman gamansemi er einkennir „buffa“ óperur og tilfinn- , ingaátökum, sem ekki gerast áhrifa- meiri í sorgarleikjum. Niðúrlag óperannar hefur frá upphafi verið eins konar „anti- klimax" en þessum leikrænt vand- ræðalega eftirmála hefur á síðari áram oft verið sleppt, því leiknum er lokið, þegar örlög herra Jóhanns era ráðin. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri velur verkinu að enda á þessum eftirmála en fullgerir við gamansemina með því að láta Don Giovanni rísa upp frá helju við niður- lagshljóma verksins, liklega til að leggja áherslu á að enn sé að finna á meðal vor menn eins og herra Jóhann, en samt sem áður, að allt hafí þetta þó verið i gamni gert, eins og vera ber í „opera buffa“. Leikstjóm Þórhildar er mjög góð, svo og leikmynd og búningar Unu Collins, sem allt fellur svo saman í eina skemmtilega mynd i samvirku samstarfi þeirra er undirbjuggu og æfðu verkið til uppsetningar. Hlut- verk kórsins i þessu meistaraverki Mozarts er frekar lítið en það sem hann lagði til sýningarinnar var vel gert. Hljómsveitin var ágæt en sá sem stjómaði og hélt uppi spenn- unni í verkinu með miklum glæsi- brag var hljómsveitarstjórinn Anth- ony Hose. Það sem einkenndi uppfærsluna alla var öryggi svo að þessi erfiða ópera varð leikandi létt og skemmti- leg áheymar. Þrátt fyrir að mörgum sé tamt að gera samanburð á minnsta óperahúsi í heimi og ópera- húsum stórborganna, er heldur ekki Viðar Gunnarsson, Elín Ósk Óskarsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Gunnar Guð- björnsson. rétt að afsaka illa gerða hluti með því að benda á lélega aðstöðu. En hvað á þá að segja þegar vel tekst til, hvað þá við frábæram árangri. Ópera er margslungið fyrirbæri og byggir á samvirku átaki fjölda aðila og fyrir undirritaðan var þessi upp- færsla áhrifamikil upplifun. Allir söngvaramir stóðu sig með prýði. Ólöf Kolbrún Harðardóttir (Donna Anna) og Eitn Ósk Óskars- dóttir (Donna Elvira) sungu sín erf- iðu hlutverk mjög vel og þrátt fyrir nokkuð hljómlitla rödd vann Sigríð- ur Gröndal (Zerlina) á og náði í aríunni til Masetto að gera þessa ístöðulausu sveitastúlku að innilegri og elskulegri persónu. Viðar Gunnarsson fer með tvö hlutverk, höfuðsmanninn og Mas- etto og syngur og leikur bæði hlut- verkin vel. Þeir sem slógu í gegn vora Gunnar Guðbjömsson (Don Ottavio), Bergþór Pálsson (Lepor- ello) og Kristinn Sigmundsson (Don Giovanni). Gunnar er rétt rúmlega tvitugur Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson. Bergþór Pálsson og Kristinn Sigmundsson. og á margt eftir að læra en er þeg- ar orðinn nokkuð slyngur söngvari og auk þess fæddur með „gull- barka". Elergþór Pálsson sló í gegn með frábæram leik og söng og vora sum atriðin, þar sem hann og Krist- inn Sigmundsson áttust við, hreint frábær. Kristinn er glæsilegur og áhrifamikill ! hlutverki Don Gio- vanni og vinnur þessi stórkostlegi söngvari hér mikinn listasigur. Undirritaður vill ekki nota orð, eins og kraftaverk eða undur, um það að hægt sé að færa upp eins glæsilega sýningu og uppfærslan á Don Giovanni er, heldur leggja áherslu á að við íslendingar eigum hóp af góðum og einnig efnilegum söngvuram, sem era til alls vísir. íslenska óperan hefur snúið sögunni svo við, að það sem var næsta óhugsandi fyrir nokkram áram, er ekki lengur aðeins mögulegt heldur hefur það verið gert með glæsibrag. íslendingar flykkjast til okkar - segja spænskir ferðamálafrömuðir Ferðaskrifstofan Útsýn gengst fyrir ferðamarkaði & Broadway { dag, sunnudag. Af því tilefni eru komnir hingað til lands nokkrir erlendir fulltrúar ferðaskrifstofa og hótela til að kynna það sem þeir hafa upp á að bjóða. Fulltrúamir koma frá Portúgal og Kýpur en flestir þeirra koma frá Spáni, þangað sem leiðir þúsunda sól- þyrstra íslendinga hafa iegið svo áratugum skiptir. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við fjóra ferðamálafrömuði frá Suður- Spáni, þá José Moreno fjármálastjóra, Benal Beach og Minerva Jupiter, Jaques de Paep, aðstoðarsölustjóra Timor-hótelkeðjunnar, Miguel Rodriguez, framkvæmdastjóra Castillo Santa Clara og Jose M. SalHana de la Calle, framkvæmdaatjóra Suður-Spánardeildar ferðaskrifstofunnar Marsans Intemational sem er umboðsaðili Út- sýnar á Spáni. Þeir vora fyrst spurðir hver væri ástæðan fyrir dvöl þeirra hér? „Mik- il aukning ferðamanna frá íslandi hefur verið á síðustu tveimur áram og við komum hingað í þeirri von að við getum aukið þann straum enn frekar,“ sagði de Paep. „Við komum til að sýna íslendingum hvað við höfúm upp á að bjóða, því ef við gætum þess ekki að kynna okkur, þá verðum við undir á mark- aðnum. Stórir hópar íslendinga koma til Spánar ár hvert, það er þvi ekki nema sanngjamt að við komum hingað að minnsta kosti einu sinni á ári. Síðustu fjögur ár hefur alltaf einhver frá okkur farið til íslands. Svona ferðir gefa okkur betri skilning á viðskiptavinum okk- ar og við munum eiga auðveldar með að uppfylla kröfur þeirra." Saldana segist vera kominn til að kynna Spán; „segja fólki hvað þar sé að finna ef það hefur ekki komið þangað og þeim sem hafa komið ætlum við að kynna þær breytingar sem eiga sér stað. Þá á ég við skemmtanir, framfarir og betram- bætur á götum, ströndinni og bygg- ingum. Árið 1987 komu líklega um 50%-60% fleiri ferðamenn til Spánar en árið þar á undan og við vonumst til þess að þessi aukning haldi áfram þó hún verði ekki í alveg sama mæli og árið á undan.“ Þeir lýstu allir yfir vilja til að auka straum (slenskra ferðamanna enn frekar og þá ! samvinnu við Útsýn, sem er eini íslenski aðilinn sem skiptir við þá. „Ég þekkti vel til Útsýnar áður en við hófiim sam- starfið. Fyrirtækið er vel þekkt meðal þeirra sem starfa að ferða- málum á Spáni,“ segir Moreno og de Paep bætir því við að samstarfið við Útsýn hafi verið n\jög ánægju- legt og engin þörf sé á að Qölga íslenskum viðskiptaaðilum að svo stöddu. íslenskir ferðamenn eru um 10% til 20% gesta á hótelunum, 10% á Benal Beach, 20% á Santa Clara og 15% á Timor, „Útsýnarfarþegar Miguel Rodriguez HorgunbUðið/Árai Sœbcrg Hópurinn frá Suður-Spáni samankominn ásamt fulltrúum Útsýnar; f.v.: José Moreno, Carlos Mej- ias, Miguel Rodriguez, Florinda Ponsetti, José M. Saldana, Ingólfur Guðbrandsson, Jaques de Paep og Andri Ingólfsson. Jose Moreno José M. Saldana Jaques de Paep vora fyrstu gestir hótelsins og hafa ekki yfirgefíð okkur síðan. Þeir era nú um 15% gesta á sumrin sem er mjög hátt hlutfall miðað við smæð þjóðarinnar," segir de Paep. Hvemig ætla þeir að auka ferða- mannastrauminn? „Við teljum að ein besta leiðin til að höfða til ferða- manna sé að hafa mjög flölbreytta fþrótta- og útivistardagskrá. Ferða- menn era mjög mikilvægir fyrir efnahag okkar svo þetta skiptir miklu," segir Moreno. Hvað hafa þeir um íslenska ferða- menn að segja? „Ég þarf ekki að fara til íslands til að komast að þvf að íslendingar era vingjamlegir. Og ég held að Islendingum falli Ifka vel við Spánverja," segir Moreno og Rodriguez tekur undir það, „Islend- ingar hafa gist hjá okkur frá byij- un. Þeir era mjög þægilegir gestir, ekki 8Íkvartandi og það fer lítið fyr- ir þeirn." Saldana segir fslenska ferðamenn n\jög sérstaka. Þeir nýti sér vel þá þjónustu sem bjóðist á Spáni. „Við teljum þá því góða fjár- festingu, alls ólfka Bretunum sem flykkjast til okkar á ári hveiju.“ Fjöldi íslendinga hefur gist hótel- in sem þeir félagar kynna, flest öll frá opnun og þau era þeim þvf að góðu kunn. En er ekki kominn tfmi til að snúa straumnum við? „Við eram nýbyijaðir að kynna fsland á Spáni og höfum verið með íslandsferðir en þær hafa ekki geng- ið sem skyldi. Við ætlum okkur að halda áfram og munum kynna ís- land í tengslum við önnur Norður- lönd, eða þá Skotland. Ástæðumar fyrir því að illa geng- ur að selja Spánveijum íslands- ferðir era fyrst og fremst tvær; hversu dýrar þær era og hversu lítið menn vita um ísland. Við verðum að gera átak í að kynna það. Veðr- ið er engin hindran þvf hingað koma menn til að sjá ósnortna náttúra, njóta hreina loftsins og vatnsins, kynnast einhveiju nýju,“ segir Sald- ana frá Marsans en ferðaskrifstofan er sú elsta á Spáni, var stofnuð árið 1914 og hefur átt samstarf við Útsýn f rúm 20 ár. Þeir félagar munu svara fyrir- spumum ferðaþyrstra íslendinga á ferðamarkaðnum á Broadway og þar geta menn kynnt sér enn frekar það sem er f boði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.