Morgunblaðið - 21.02.1988, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
-41
Taiwan, Kuomintang, en yngra
fólkið, bæði í flokknum og
óflokksbundnir létu óspart
ánægju sína í ljós. Óhætt er að
segja, að enn séu ýmsir hinna eldri
vantrúaðir á að Lee verði sá leið-
togi sem þeir kysu, en fijálslynd-
ari öfl í flokknum hafa verið
eindregið fylgjandi honum, þar
sem honum þykir treystandi til
að fylgja eftir umbóta og breyt-
ingastefnu Chiangs. En augljóst
er að hann mun ekki hafa áhrif
á borð við hann og Lee Huan, sem
nú er aðalritari KMT hefur oft
verið sagður sá maður sem einna
valdamestur væri að Chiang frá- ' ;
töldum og margir spá þvi, að svo
verði áfram, þótt Lee .Teng sé
orðinn forseti.
Það eru almennt skiptar skoð-
anir um, hvort valdabarátta muni
bijótast út, en hún myndi þá
standa milli þeirra tveggja sem
þegar hafa verið nefndir og sá
þriðji er Yu Kuo-hwa, forsætisráð-
herra og Huang Shao-ku, háaldr-
aður maður en mjög áhrifamikill
og virtur miðstjómarfulltrúi KMT.
Þó er ekki sennilegt að til tíðinda
dragi á næstunni. Öllum er ljóst,
að Chiang vildi að Lee yrði eftir-
maður sinn og menn gera sér
grein fyrir að þeir mánuðir sem «
nú fara í hönd gætu orðið afdri-
faríkir í neikvæðustu merkingu,
ef forystumenn koma sér ekki
saman. En flokksþing KMT verð-
ur í júlí og þá gætu línur farið
að skýrast varðandi raunvemleg-
an leiðtoga eyjarinnar.
Lee Teng hefur fram að þessu
ekki látið að ráði að sér kveða,
en alkunna er að hann studdi
Chiang eindregið í að hrinda af
stað þeim umbótum í lýðræðisátt
sem vom ákveðnar á sfðasta ,
sumri. Stjómmálafréttamenn
segja að Lee sé maður fastur fyr-
ir og góður skipuleggjandi. Hann
sé málafylgjumaður, vel heima í
öllu því sem máli skiptir og líklegt
að menn hafi vanmetið hann,
vegna þess að hann sóttist ekki
að vera í sviðsljósinu meðan hann
var varaforseti. Vegna veikinda
Chiangs tók hann þó við ýmsum
skyldustörfum forsetans og þótti
farast það vel úr hendi.
Lee er kvæntur og á tvær dæt-
ur. Hann er gjörvulegur, að sögn,
óvenju hávaxinn af Kínveija að
vera. Hann hefur skrifað allmarg-
ar bækur um hagfræði, land-
búnaðarmál og fleira sem tengist 4 .
menntun hans. Hann er vinnu-
samur dugnaðarforkur og þótti
það koma einkar vel í Ijós meðan
hann var borgarstjóri Taipei.
Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir
Svipmynd á sunnudegi/LEE TENG-HUI
Lee Teng-hui,nýr
forseti Taiwan
FÆSTIR fréttaskýrendur telja að Lee Teng-hui sem tók við forsetaembættinu á
Taiwan við fráfall Chiang Ching-kuo muni verða sá valdamaður á eynni sem
fyrirrennarnir tveir, feðgarnir Chiang Kai-shek og Chiang Ching-kuo, sem lézt
13.janúar sl. Skipan hans var vitaskuld nokkurn veginn sjálfgefin, þar eð hann hafði
gegnt starfi varaforseta frá 1984. Einn aukaplús er sömuleiðis, að hann er fæddur
á Taiwan og innfæddur eyjarskeggi hefur aldrei gegnt svo hárri stöðu. Það er ekki
lítilvægt, þegar haft er í huga, að nú eru um 80% íbúanna fæddir þar og þéir hverfa
óðfluga af sjónarsviðinu mennirnir sem flýðu með Chiang Kai-shek til Taiwan 1948
eftir að hafa beðið ósigur fyrir heijum kommúnista á meginlandinu. Lee
Japanir hersátu
Taiwan á uppvaxtar-
árum Lees
Það leikur varla vafi á því, að
Lee heldur áfram þeim umbótum
í lýðræðisátt sem Chiang Ching-
kuo hóf fyrir alvöru á síðasta
sumri. Þá var aflétt herlögum,
sem höfðu verið í gildi í 38 ár og
ákveðið var að flokkar fengju
meira athafnafrelsi, prentfrelsi
var rýmkað til muna og það sem
hafði hvað mest tilfinningaleg
áhrif; ákveðið var að leyfa Taiw-
önum sem ættu ættingja á
meginlandinu að heimsækja þá.
Yngri kynslóðin er
ekki jafn áfjáð að
heimsækja meginlandið
þorpi á Norður Taiwan. Hann ólst
upp undir hemámi Japana og
þótt foreldrar hans væru efnalitlir
ákváðu þeir að setja drenginn til
mennta. Fáir Taiwanar gátu
stundað framhaldsnám á þeim
árum og hann var einn þriggja
Kínveija í bekknum, þegar hann
var í menntaskóla. Vegna góðs
námsárangurs fékk hann síðan
inngöngu í hinn Keisaralega há-
skóla í Kyoto í Japan. Að heims-
styrjöldinni síðari lokinni sneri
hann heim til Taiwan og lauk
námi í landbúnaðarhagfræði og
fékkst við kennslu í greininni í
nokkur ár. Því næst hélt hann til
Bandaríkjanna til frekara náms
og lauk doktorsprófí við Comell-
háskólann.
Skipan hans í
varaforsetaembætti fékk
blendnar viðtökur
Næstu ár gegndi hann ýmsum
sérfræðings og ráðgjafarstörfum
einkum hvað varðaði uppbygg-
ingu og almennar nýjungar í
landbúnaði á Taiwan. En stjóm-
málaferill hans hófst 1957, en þá
varð hann borgarstjóri Taipei.
Hann þótti atorkusamur í starfí
borgarstjóra og skörungur hinn
mesti. Hann beitti sér fyrir alls
konar breytingum á heilsugæzlu
og í húsnæðismálum, svo að
minnzt sé aðeins á tvennt. Chiang
skipaði hann síðan varaforseta
1984, eins og áður kom fram.
Sú skipan fékk blendnar við-
tökur hjá ýmsum öldruðum fylgis-
mönnum stjómarflokksins á
Að vísu hafði fjöldi manns farið
til Kína í áranna rás. Eins og ein-
hver orðaði það við mig, þegar
ég var á Taiwan í fyrrasumar og
stjómvöld vom að byija að opna
lýðræðisdymar, var það opinbert
lejmdarmál á Taiwan, að fólk fór
til Kína og hefur gert svo ámm
skiptir. Venjulega var farið um
Tókfó, en efnaminni fengu stjóm-
völd f Hong Kong til að hleypa
sér áfram. Eftir að Kínaferðir
vom svo opinberlega leyfðar hafa
undirtektimar verið miklar og
góðar og tugþúsundir sækja nú
um slíkt leyfí í viku hverri. Eink-
um er það eldra fólk, unga
kynslóðin telur sig hafa þær ræt-
ur á Taiwan, að hún er ekki haldin
sömu þörfinni fyrir að „fara
heim“, eins og meginlandið er enn
í augum margra hinna eldri.
Nýi forsetinn Lee Teng-hui er
fæddur þann 15.janúar 1923 f litlu
Chiang og Lee. Myndin var tekin eftir að Lee hafði verið skipaður varaforseti.
Flísabúdin kynnir
marmaraflísar.
Verdlækkun
Allar staðfestar pantanir á föstu verði.
Opið virka daga kl. 9.00-18.00, opið laugardaginn 27. febrúar
og sunnudaginn 28. febrúar kl. 10.00-16.00.
Flísabúðin
Kársnesbraut 106, sími46044.