Morgunblaðið - 21.02.1988, Síða 54

Morgunblaðið - 21.02.1988, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna —- atvinna Bókari Fyrirtæki á sviði innflutnings vill ráða mann- eskju til bókhaldsstarfa, toll- og verðútreikn- inga sem fyrst. Við leitum að manneskju með þekkingu og reynslu á þessu sviði. Góð enskukunnátta nauðsynleg. Æskilegur aldur 30-40 ára. í boði er sjálfstætt starf hjá traustu fyrir- tæki, góð laun og góð starfsaðstaða. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu okkar. Heimsmynd Okkur vantar hörkugóðan auglýsingastjóra strax. Fín vinnuaðstaða á ritstjórnarskrifstof- um í hjarta borgarinnar. Topplaun í boði. Viðkomandi þarf að hafa einhverja reynslu, fágaða framkomu og söluhæfileika. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 24. febrúar merktar: „Heimsmynd - 6178“. Ritari StarísM iðlunin Afleysinga- og ráðningaþjónusta Ármúla 19 ■ 108 Reykjavík ■ 0 689877 Staðgengill fjármálastjóra Samvinnuferðir-Landsýn hf. óskar að ráða kraftmikinn og ákveðinn starfsmann í fjár- máladeild fyrirtækisins. Starfið felur m.a. í sér daglega fjármálastjórn, þátttöku í tölvu- væðingu, áætlanagerð og eftirlit með rekstri. Um er að ræða nýja stöðu vegna skipulags- breytinga. Leitað er að starfskrafti með víðtæka starfs- reynslu í viðskiptalífinu eða viðskiptafræð- ingi. Tilvalið tækifæri til að kynnst fjölbreytt- um rekstri í samstarfi við kappsamt og fjör- ugt starfsfólk í vaxandi fyrirtæki. Umsóknir sendist á auglýsingadeild Mbl. merktar: „SL - 88“ fyrir 29. febrúar. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727 Þroskaþjálfar Við þjálfunarstofnunina Lækjarási eru eftir- farandi stöður lausar til umsóknar. Umsókn- arfrestur er til 5. mars nk. 1. Staða deildaþroskaþjálfa á væntanlegri dagvistardeild fyrir eldri við Blesugróf. Full staða. Verksvið: Umönnun, meðferð og verkstjórn 8 einstaklinga á aldrinum 47-63 ára. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálf- stætt, hafa góða skipulagshæfileika og vera tilbúinn að taka þátt í að móta starf- semina á deildinni. 2. Staða deildaþroskaþjálfa, full staða. Verk- svið: Umsjón, þjálfun og verkstjórn 10 ein- staklinga á aldrinum 26-50 ára, Viðkomandi þarf, auk sjálfstæðra og skipu- legra vinnubragða, að hafa innsýn í meðferð einstaklinga með geðræn vandamál. Báðar þessar stöður veitast frá 15. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi. 3. Staða deildaþroskaþjálfa, full staða. Verk- svið: Umsjón, þjálfun og umönnun 4ra fjöl- fatlaðra einstaklinga á aldrinum 29-33 ára. Viðkomandi þarf auk sjálfstæðra og skipulegra vinnubragða að hafa innsýn í sjúkraþjálfun og aðra meðferð mikið fatl- aðra einstaklinga. Staðan veitist frá 15. maí eða eftir nánara samkomulagi. Við bjóðum ykkur: 1. faglegann stuðning. 2. aðstoð vegna kostnaðar við barnagæslu. 3. góða vinnuaðstöðu og góðan anda á vinnustað. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Styrktarfélags vangefinna, Háteigsvegi 6, oci á stofnunum félagsins. Nánari upplýsingar veitir forstöðukona í síma 39944. Lögmannsstofa í miðbænum vill ráða mann- eskju til ritarastarfa sem fyrst. Við leitum að manneskju með verslunar- skólapróf. Góð íslenskukunnátta og frískleg framkoma skilyrði. Æskilegur aldur 20-30 ára. í boði eru góð laun hjá traustu fyrirtæki í hjarta borgarinnar. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu okkar. StartsMiöíunin Afleysinga- og ráðningaþjónusta Ármúla 19 • 108 Reykjavík • 0 689877 HELGAFELL út^a. Þrjú störf Vaka-Helgafell er alhliða útgáfufyrirtæki, sem starfrækir fjölbreytta bókaútgáfu, for- lagsverslun, póstverslun og tvo klúbba: Blómaklúbbinn og Nýtt af nálinni með sam- tals um 20.000 félagsmenn. Vaka-Helgafell er til húsa í Síðumúla 29 í nýju og vistlegu 700 fm húsnæði. Fastir starfs- menn eru 16. Velta árið 1987 var 110 millj. Vegna aukinna umsvifa og skipulagsbreyt- inga leitar fyrirtækið að starfsmönnum í þrjú ný störf. Sölustjóri (120) Starfssvið: Skipulagning og framkvæmd söluáætlana og markaðsaðgerða, stjórnun söludeildar, póstverslunar og forlagsverslun- ar. Samskipti við bókaverslanir, sölumenn og aðra viðskiptaaðila. Við leitum að hugmyndaríkum og framtaks- sömum starfsmanni, sem hefur reynslu af sölumálum. Hann þarf að geta starfað sjálf- stætt og skipulega. Innheimtustjóri (121) Starfssvið: Umsjón með útskrift reikninga, viðskiptamannabókhaldi skipulagi og fram- kvæmd innheimtu. Við leitum að starfsmanni, sem er ákveðinn, nákvæmur og getur starfað sjálfstætt og skipulega. Reynsla af innheimtustörfum æskileg. Símavarsla (122) Starfssvið: Símavarsla, almenn skrifstofu- störf og afgreiðsla í forlagsverslun. Við leitum að starfsmanni, sem er lipur, reglusamur og getur veitt viðskiptavinum fyrirtækisins góða þjónustu. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar: Númeri viðkomandi starfs fyrir 27. nk. Hagvangurhf Grensósvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir Bókhaldsþjónusta Offsetprentari Óskum eftir að ráða offsetprentara. Upplýsingar veitir Óðinn Rögnvaldsson í síma 38383. Kassagerð Reykjavíkur hf. KL.EPPSVEGI 33 - 105 REYKJAVlK - S. 38383 Piastprenf hf. Fólk eldra en 25 ára framtíðarvinna Óskum að ráða duglegt og samviskusamt fólk til starfa í pokunardeild okkar. í boði er áhugavert starf við vélar sem eru einfaldar í notkun og krefjast ekki aflrauna. Þá býður starfið upp á allmikla fjölbreytni. Hafir þú unnið á saumastofu, í frystihúsi eða einhverskonar pökkunar- eða vélavinnu, þá höfum við uppá að bjóða sambærilegt starf hjá traustu og ábyggilegu fyrirtæki. Við bjóðum upp á breytilegar vaktir eða fastar kvöld- eða næturvaktir, sömuleiðis getum við boðið upp á hlutastörf í sérstökum tilfellum. í boði eru góð laun fyrir góða starfsmenn þar sem öflugt kaupaukakerfi gerir góðum starfsmönnum fært að bæta sín kjör veru- lega. Þeir sem hafa áhuga á að vinna hjá öflugu og vaxandi fyrirtæki vinsamlega hafið sam- band við Björn Ástvaldsson milli kl. 13.00 og 16.00 næstu daga. Plastprent hf. Fosshálsi 17-25 sími 685600. Dagvistarheimili Kópavogs - Lausar stöður Leikskólinn Fagrabrekka. Staða fóstru eða starfsmanns til uppeldisstarfa er laus til umsóknar. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 42560. Dagvistarheimilið Kópasel. Staða fóstru eða starfsmanns með aðra uppeldismenntun er laus til umsóknar. Opnunartími er frá kl. 7.30-15.00. Einnig óskast afleysingafólk til starfa. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 84285. Dagvistarheimilið Grænatún. Staða fóstru eða starfsmanns með aðra uppeldismenntun er laus til umsóknar. Einnig óskast afleysingafólk til starfa. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 46580. Dagvistarheimilið Kópasteinn. Staða fóstru eða starfsmanns með aðra uppeldismenntun er laus til umsóknar. Einnig óskast afleysingafólk til starfa. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 41565. Skóladagheimilið Dalbrekka. Staða fóstru eða starfsmanns með aðra uppeldismenntun er laus til umsóknar. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 41750. Einnig veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar um störfin í síma 45700. Umsóknum skal skilað á þartil gerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi á Félagsmála- stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12. Félagsmálastofnun Kópavogs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.