Morgunblaðið - 21.02.1988, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1988
SKERJAFJ.
Einarsnes
SELTJNES
Látraströnd
Hrólfsskálavör
MIÐBÆR
Tjarnargata 3-40
Lindargata 39-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Laugavegur1-33o.fl
ÚTHVERFI
Sæviðarsund hærritölur
GARÐABÆR
Mýrar
KOPAVOGUR
Kársnesbraut 77-139
Afmæli: .
Matthías Ingibergs
son, lyfsali
Hann er fæddur 21. febrúar 1918
að Kirlcjuvogi í Höftium. Foreldrar
hans voru Ingibergur Þorkelsson,
byggingameistari og Sigurdí." Jóns-
dóttir. Eiginkona hans er Katla
Magnúsdóttir, dóttir Magnúsar
Bjömssonar, kennara og Vilborgar
Þorkelsdóttur. Hann á fiögur böm
og sjö bamaböm.
Elsku faðir, tengdafaðir og afl.
Við vitum, að þú og elskuleg eig-
inkona þín eruð stödd einhvers stað-
ar, þar sem þið getið notið hvíldar
og friðsældar og vonum við, að
þessi kveðja nái til þín þar.
Við óskum þér hjartanlega til
hamingju með þennan stóra dag,
er þú fyllir sjöunda áratuginn á
merkri og árangursríkri lífsleið
þinni.
Viljum við böm þín, tengdaböm
og bamaböm, nota þetta tækifæri
og færa þér okkar innilegustu þakk-
ir fyrir alla þá ástúð og vináttu, sem
þú hefur sýnt okkur og þann stuðn-
ing og aðstoð, sem þú hefur veitt
okkur í hvívetna.
Við emm stór blandaður hópur,
sem teygir rætur einnig til annarra
landa, allt frá Danmörku gegnum
Bandaríkin til Afríku. Þessu fram-
andi kryddi í ættina hefur þú tekið
með stökustu hugarró og tekið við
tengdabömum þínum sem þín eigin
væm.
Að leita út fyrir landsteinana og
kynnast nýju fólki, nýjum aðstæð-
um, nýrri menningu og menntun
er þér eðlilegt, enda heimsmaður
mikill. Sjálfur sóttir þú ungur út,
fórst til náms í Bandaríkjunum á
tímum stríðsáranna, er ferðir héðan
til Evrópu vom óráðlegar vegna
þeirrar hættu, sem öllum flutning-
um fylgdu þá. Ekki var síður hætta
búin þeim skipum, sem héðan sigldu
í samfloti til Bandaríkjanna á þess-
um ámm, en þú lést hana ekki á
þig fá, ekkert skyldi te§a þína
menntun. Einmitt þessi ákveðni og
þor em ein af þínum einkennum
og mörg em vandasöm verkefnin,
sem þú hefur getað leyst með mik-
illi sæmd vegna þessara eiginleika
þinna. Já, hvers konar maður ert
þú eiginlega? Við spurðum okkur
þeirrar spumingar og svömðum um
hæl „margslunginn og skemmtileg-
ur „karakter".
Stjómmálum og félagsmálum
hefur þú alltaf haft áhuga á. Þegar
á menntaskólaárunum varst þú
formaður nemendafélags Mennta-
skólans í Reykjavík og að loknu
námi í Bandaríkjunum, vannst þú
ötullega að félagsmálum lyfjafræð-
inga, jafnframt því sem þú stundað-
ir þitt fag í Laugavegs Apóteki.
Árið 1952 fluttir þú með fjölskyldu
þína að Selfossi, til að taka við fo-
stöðu Selfoss Apóteks. Ekki hafðir
þú dvalið þar lengi fyrr en þú hafð-
ir reist þar stórt og veglegt hús
fyrir fjölskyldu þína. Hús þetta, sem
stendur við Þóristún 1 á Selfossi,
var eftir að þið fluttuð þaðan 1969,
gert að hóteli og þótti okkur bömum
mikið til koma, að húsið, sem þú
hafðir byggt fyrir okkur, skyldi
vera orðið að hóteii.
Á Selfossi barst þú hag bænda
mjög fyrir bijósti og barðist fyrir
málum þeirra m.a. með virkari þátt-
töku í stjómmálum framsóknar-
flokksins og svo fór, að þú tókst
sæti sem varafulltrúi þeirra á þingi
um tíma. Margan vininn átt þú um
allar sveitir sunnanlands og minn-
ast eldri böm þín með gleði hinna
mörgu sunnudagsferða forðum um
sveitimar, er stansað var á mörgum
bæjum til að ræða mikilvæg mál á
dagskrá. Mikið vandamál bænda,
sem var gerlamengun mjólkur,
tókst þér að leysa, er þú hófst fram-
leiðslu á Dróma. Málgagn þurftu
bændur einnig og nýttir þú þar
hæfni þína og áhuga á blaða-
mennsku, er þú hófst útgáfii blaðs-
ins „Þjóðólfur" á Selfossi af miklum
krafti. Auk blaðamennsku og hags-
munastarfsemi fyrir bændur, sinnt-
ir þú hinum ýmsu menningar — og
bæjarmálum á staðnum með slíkri
kostgæfni, að bærinn nýtur þeirra
starfa enn. Apótekinu sinntir þú af
mikilli samviskusemi. Alltaf var
jafnsjálfsagt að sinna þörfum bæj-
arbúa með þjónustu frá apótekinu,
hvort heldur erindið var vöntun á
barnatúttu, pela eða mikilvirku lyfi.
íbúum Hveragerðis vildir þú
einnig gera hægara um vik og
komst þar upp útibúsþjónustu frá
apótekinu. Settir þú aldrei fyrir þig
að fara á milli þessara staða einu
sinni á dag til afgreiðslu lyfseðla í
Hveragerði og lést þér ei heldur
bregða, er hver hafði brotist upp
um gólf lyfsölunnar í Hveragerði
nótt eina, svo húsið var fullt af
gufu, er að var komið að morgni
og allar vörur ónýtar. Varð þá bara
að byrgja hverinn og byija upp á
nýtt!
Árið 1968 var þér svo veitt.lyf-
söluleyfl Kópavogs Apóteks og
hófst þú rekstur þess 1. janúar
1969. Hefur þú einnig rekið það
apótek af miklum dugnaði, eins og
þín er ætíð von og vísa. Hefur þú
tvívegis bætt húsnæðislega aðstöðu
þess til muna, nú síðast með mik-
illi og hentugri nýbyggingu.
Ekki er hér ætlunin, að telja upp
öll þau mörgu verkefni, sem þú af
eigin hvötum hefur tekið að þér til
aðstoðar eða gagns fyrir aðra, né
öll þau trúnaðarstörf, sem þér hefur
verið falið að vinna fyrir hvort held-
ur er félagasambönd eða opinbera
aðila. Næga þau í upptalningu til
að fylla svo til heila blaðsfðu í
„Lyfjafræðingatali" og er þar
kannski ekki allt talið.
Kímni þín og hlátur, skemmtileg-
ar sögur og gamansemi, eru þér
ætíð ofarlega í huga og hafa oft
létt lund, ef á móti blé’s, því aldrei
skyldi gugnað, aldrei ástseða til að
dijupa höfði. „Alltaf er leið áfram,
hana þarf bara að flnna" er þitt
eigið „mottó", sem einnig hefur
verið okkur hinum til hughreysting-
ar. Ekkert fannst okkur bömum
þínum betra, er við vorum krakkar
heima, og lundin þung, en að fá
pabba til að lesa fyrir okkur „Andr-
és Önd“, sem þá var jú aðeins til á
dönsku og þurfti því þýðingar við.
Það gerði ekkert til þótt við þyrftum
að bíða eftir texta eða skildum ekki
allt sem lesið var vegna þess, að
þú hlóst svo dátt og skemmtir þér
yflr þessum vinalega „karakter",
að við jgátum ekki annað en hlegið
með. A sama hátt tekst þér ætíð
að vekja hlátur og skemmtilegt
andrúmslegt á öllum mannamótum
og er óhætt að segja, að þú sért
hrókur alls fagnaðar, hvar sem þú
dvelur, á stórum samkomum eða
smáum. Ræðuskörungur ert þú
einnig, hvort sem er á íslenska
tungu eða erlendum málum, lætur
þér ekki einu sinni verða skota-
skuld úr því að flytja flnnskum
kollegum og vinum faglegt erindi á
því framandi máli sem finnskan er,
meira segja svo þeir skilja!
Eins og við áður sögðum hefur
það aldrei verið þér í hug að gefast
upp fyrir vandamálum eða hörfa
þótt óárennilegt virtist framundan.
Mörgu eru þau skiptin, er þú bauðst
veðurguðum eða erflðri ökufærð
birginn, ef þú taldir þig eiga brýnt
erindi suður eða austur fyrir fyall.
Tvö elstu böm þín minnast t.d.
þess, er þú ásamt þeim tveimur
skyldir sækja móður þeirra á fæð-
ingardeildina á jóladag árið 1952,
! raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
Lítið einbýlishús óskast Húsnæði óskast Óska eftir litlu einbýlishúsi til leigu sem fyrst Við leitum að húsnæði til leigu fyrir starfsemi á Reykjavíkursvæðinu. Má vera gamalt. okkar. Öruggar og góðar mánaðargreiðslur. Húsnæðið þarf að vera: Upplýsingar í síma 99-6859. 1. Miðsvæðis á Stór-Reykjavíkursvæðinu. 2. 600-800 fm að stærð, þar af fyrir skrif-
| húsnæði óskast |
Húsnæði við höfnina í Reykjavík óskast. Stærð 1-200 fm. fyrir verslun og þjónustu við sjávarútveg. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. mars merkt: „H - 6179“.
stofu u.þ.b. 280 fm og að lofthæð lagers í, . . sé 6-7 metrar. Ibuö oskast 3. Með góðri aðkomu og stórum afgreiðslu- Óskum eftir að taka á leigu hæð eða íbúð, dyrum. helst í Hlíðahverfi. Leigutími a.m.k. 2 ár. 4. Með möguleikum fyrir gámastæði utan- Góðar og tryggar greiðslur. . dyra. Upplýsingar í síma 17156. Vinsamlegast hafið samband við Jóhann Ólafsson í síma 612800.
Skrifstofuhúsnæði 100-150 fm óskast til leigu á góðum stað. Helst í austurbæ. Fullbúið til afhendingar 1. júlí ’88 eða tilbúið undir tréverk til afhending- ar fljótlega. Tilboðum skal skila til auglýsingadeildar Mbl. merkt: „Skrifstofuhúsnæði - 6099".
2jaherb.íbúðóskast ["1®-_ .r fyrir starfsmann okkar frá 1. mars nk. Vinsamlega hafið samband í síma 82039 á umboðs- OG heildverslun miHi kl. 9.00-17.00. ^ \ ,nfló“eLr~;^ykiavik Bilanaust hf.