Morgunblaðið - 08.03.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
VEÐUR
Hitaveita Suðurnesja:
Hverflar í stromp-
virkjun frá Israel
Grindavík.
STJÓRN Hitaveitu Suðurnesja
staðfesti fyrir sl. helgi kaupsamn-
ing við Ormat Turbines Ltd. í ísra-
el um kaup á þrem Ormat-hverfl-
um og búnaði sem þarf til að virkja
strompgufuna frá orkuverinu í
Svartsengi og framleiða 3,6
megawött af rafmagni. Kaupverð
vélanna er 123,5 milljónir króna
en áætlaður heildarkostnaður við
strompgufuvirkjunina, með til-
heyrandi húsi og gufulögnum, er
um 200 milljónir króna.
Að sögn Júlíusar Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra fjármálasviðs Hita-
veitu Suðumesja, fór hann til ísraels
ásamt Finnboga Bjömssyni stjómar-
formanni, Bimi Stefánssyni inn-
kaupastjóra og Albert Albertssyni
framkvæmdastjóra tæknisviðs til að
sjá um kaupin.
„Hverflamir þrír, sem keyptir
voru, munu nota lágþrýsta gufu frá
strompunum í Svartsengi, alls 15,6
kíló á sekúndu til að framleiða raf-
magn, alls 3.720 kílówött brúttó,“
sagði Júlíus. „Auk hverflanna var
keyptur stjóm- og rafmagnsbúnaður,
auk þess sem seljandi gefur hitavei-
tunni kost á kaupum á fleiri OEC-
vélum, a.m.k. tveim og allt að sex,
með svipuðum tæknilegum skilyrðum
og þær vélar sem nú hafa verið keypt-
ar. Verð á þeim er í kringum 33,5
milljónir króna hver vél. Heildar-
kostnaður vegna þessarar virkjunar
er áætlaður um 200 milljónir króna
með tilheyrandi húsi og gufulögnum
fyrir allt að sjö vélar.
Ef miðað er við 20 ára afskrift-
artíma, 6% vexti, helmingi hærri
rekstrarkostnað á ári en gefínn er
upp af framleiðanda og 6.200 stunda
nýtingartíma, kemur í Ijós að orku-
verð frá virkjuninni er 0,95 krónur á
kílówattstund en kostar nú frá Lands-
virkjun 1,67 krónur á kílówattstund.
Einnig má taka tillit til minna ork-
utaps vegna styttri flutningsleiða,
aukins rekstraröryggis og minni tær-
ingar í og við orkuver. Ef keyptir
verða síðar þrír hverflar til viðbótar
væri orkuverð frá þeim, miðað við
sömu forsendur, um 0,63 krónur á
kílówattstund," sagði Júlíus.
Kr. Ben.
Morgunblaðið/Sigrún
Séð yfir flóðið í Dynskógum, tæki bæjarins við vinnu til bjargar
öðrum húsum. Á innfelldu myndinni heldur eigandi hússins í Dyn-
skógum 12, Sigrún Sigurjónsdóttir, hendinni í þeirri hæð á hurðinni
sem vatnshæðin var í kjallaranum á mánudagsmorgun.
Hveragerði:
Skemmdir af völd-
um leysingavatns
Hveragerði.
MIKIL úrkoma var hér í nótt og
í morgun flæddi vatn um götur
bæjarins. Verst var ástandið við
Dynskóga en þar höfðu göturæs-
in engan veginn undan og mynd-
aðist þar uppistöðulón. I húsi nr.
12 við Dynskóga hálf fylltist
kjallarinn af vatni, en hann er
mikið niðurgrafinn. Urðu þar
töluverðar skemmdir, m.a.
flæddi vatn inn í bifreið sem stóð
í bílskúr í kjallaranum. Starfs-
menn . Hveragerðisbæjar gerðu
stiflugarð við húsið og dældu
síðan vatninu upp með öflugum
dælum.
Varmá streymir fram kolmórauð
og gerir nýja ræsið sem byggt var
á síðasta ári ekki betur en að rúma
flauminn. Reynir nú í fyrsta sinn á
það hvort það er nógu stórt en
margir spáðu illa fyrir því meðan
það var í byggingu. Var mörgum
það þyrnir í augum að ekki var
byggð brú yfír Varmá í stað hinnar
gömlu, en í hennar stað sett steypt
ræSÍ' Sigrún
Lést eftir
bruna á
Kleppsvegi
Maðurinn, sem lést eftir bruna
að Kleppsvegi 90 á föstudag, hét
Ragnar B. Guðmundsson.
Ragnar var 52 ára gamall, fædd-
ur 15. júlí 1936. Hann var ókvænt-
ur og barnlaus.
Aðalfundur Starf smannaf élags
Reykjavíkurborgar:
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 8.3.88
YFIRLIT f gær: Búist er við stormi á SV-djúpi. Á suðvestanverðu
Graenlandshafi er hægfara 975 mb lægð, og dálítil lægð sem er
að myndast fyrir norðan land mun hreyfast norðaustur.
SPÁ: Suð- og suðvestanátt um land allt, víðast kaldi. Él verða um
vestanvert landið, en þurrt og léttskýjað um landið austanvert.
Hiti nálægt frostmarki.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Vestan- og suðvestanátt og vægt frost
um mestallt land. Él á vestanverðu landinu og á annesjum norðan-
lands, annars léttskýjað.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suð- og suðvestanátt og frostlaust.
Súld eða rigning á Suður- og Vesturlandi, en úrkomulitið á Norð-
ur- og Austurlandi.
xm VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 8 alskýjað Reykjavfk 7 súld
Bergen 3 léttskýjað
Helsinki +1 snjókoma
Jan Mayen +2 alskýjað
Kaupmannah. 3 skýjað
Narssarssuaq +5 snjókoma
Nuuk +9 snjókoma
Osló 1 léttskýjað
Stokkhófmur 1 snjóél
Þórshöfn 4 súld
Algarve 17 heiðskírt
Amsterdam 7 lóttskýjað
Aþena vantar
Barcelona vantar
Berlín 3 hálfskýjað
Chicago +1 heiðskirt
Feneyjar 6 alskýjað
Frankfurt 4 skúr
Glasgow 7 alskýjað
Hamborg 4 skýjað
Las Palmas 17 alskýjað
London 8 skýjað
Los Angeles 13 mistur
Lúxemborg 3 skýjað
Madrld 12 léttskýjað
Malaga 19 heiðskírt
Mallorca vantar
Montreal 2 skýjað
New York 3 heiðskírt
París 8 hélfskýjað
Róm 12 skýjað
Vin 4 rigning
Washington 2 heiðskfrt
Winnipeg +2 alskýjað
Vatencla 19 hálfskýjað
Lagabreytingu um
eignaskipti hafnað
Á AÐALFUNDI Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar, sem
haldinn var á laugardaginn, var
tillögu um breytingu á lögum
félagsins hafnað af miklum
meirihluta fundarmanna. Hefði
tillagan verið samþykkt hefðu
félagsmenn, sem ætla að stofna
ný félög í samræmi við ákvæði
nýrra samningsréttarlaga opin-
berra starfsmanna, átt rétt til
hluta eigna félagsins í samræmi
við þeirra sem ganga úr félaginu.
Fundurinn var ijölmennur og
greiddu 420 manns atkvæði. 117
samþykktu breytingu á lögum fé-
lagsins eða 27,9%, en 299 höfnuðu
breytingunni eða 71,2%. Fjórir
seðlar voru auðir og ógildir. Þtjá
fjórðu hluta atkvæða á fundinum
eða 315 atkvæði hefði þurft til þess
að fá lagabreytinguna samþykkta.
„Ég er afskaplega ánægður og
það sem er kannski ánægjulegast
við þetta er að fá svona mikinn
mannfjölda á þennan aðalfund og
taka afdráttarlausa afstöðu í þessu
máli. Hitt er svo annað mál að við
eigum eftir að jafna þann ágrein-
ing, sem þama var og sem sannir
félagsmenn hljótum við að vinna
að því,“ sagði Haraldur Hannesson,
formaður félagsins í samtali við
Morgunblaðið.
Hann sagðist hafa borið fram
tillögu í lok fundarins þess efnis
að stjóm yrði heimilað að ganga
til viðræðna við nýstofnuð stéttarfé-
lög um sameiginleg afnot af fas-
teignum félagsins um lengri eða
skemmri tíma vegna þess fólks sem
kæmi úr Starfsmannafélagi
Rey kj avíku rborgar.
Létust í
eldsvoða í
Búðardal
Mennimir tveir, sem létust í
eldsvoða í Búðardal á föstudags-
kvöld, hétu Guðmundur Ingvars-
son og Leifur Gísli Ragnarsson.
Guðmundur bjó að Ægisgötu 5
í Búðardal. Hann var 66 ára gam-
all, fæddur 1922. Leifur Gísli bjó í
Fremri-Hundadal í Miðdalahreppi.
Hann var 53 ára gamall. Mennimir
vora báðir ókvæntir og barnlausir.