Morgunblaðið - 08.03.1988, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 08.03.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988 9 Ræðumennska og mannleg samskipti. Kynningarfundur Kynningarfundur verður haidinn annað kvöld kl. 20:30 að Sogavegi 69, gengið inn að norðan- verðu. ★ Námskeiöiö getur hjálpaö þér aö: ★ Öðlast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann- færingarkrafti í samræöum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU. ★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu komin undir því, hvernig þér tekst aö um- gangast aðra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustaö. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíöa. Fjárfesting í menntun gefur þér arð ævilangt. Innritunogupplýsingarísíma: 8241 1 0 STJQRIVUI\IARSKÓUI\II\I c/o Konráö Adolphsson. Einkaumboö fyrlr Dale Carnegie námskeiöin" AÐEINS FYRIR SÖLUMENIM Viltu njóta starfsins betur? Ljúka sölunni á auðveldari hátt? Svara mótbárum afmeira öryggi? Dale Carnegie söiunámskeiðið ® er einu sinni í viku í 12 vikurfrá kl. 9.00-12.30 og er eingöngu ætlað starfandi sölumönnum. Námskeiðið er metið til háskólanáms í Bandaríkjunum. Námskeiðið getur hjálpað þér að: • Gera söluna auðveldari. • Njóta starfsins betur. • Byggja upp eldmóð. • Ná sölutakmarki þínu. • Svara mótbárum af öryggi. • Öðlast meira öryggi. • Skipuleggja sjálfan þig og söluna. • Vekja áhuga viðskiptavinarins. FJÁRFESTiNG ÍMENNTUN SKiLAR ÞÉR ARÐIÆVILANGT INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMA 82411 0 STJÓRIMUIMARSKÓLIIMIM 9ó Konráö Adolphsson. Einkaumboö fyrir Dale Carnegie námskeiöin* Framganga Thatcher í frásögnum blaða af leið- togafundi Atl- antshafs- bandalagsins í Brussel í síðustu viku kemur glöggt fram, að Margaret Thatcher, for- sætisráðherra Bretlands, hefur verið þar mjög í sviðsljósinu. Raun- ar er því haldið fram, að hún hafi í senn verið helsti hvatamaður að því, að fund- urinn var haldinn, og sá leiðtoganna, sem réð mestu um niðurstöðu hans. Hefur hún og setið lengst í háu embætti af þeim, sem fundinn sóttu. Eftir heimkom- una til Bretlands varð rimma milli Thatc- her og Neils Kinnocks í breska þinginu vegna framgöngu hennar á NATO-fund- inum. Er staldrað við þetta í Staksteinum Hvor sigraði? Oft þegar lesnar eru frá- sagnir blaða af fundum og þeim atriðum, sem blaðamenn leggja áherslu á í fréttaflutn- ingi sinum, kann lesand- anum að detta i hug, að verið sé að segja frá tveimur ólíkum fundum í tveimur ólíkum blöðum. Er þó aðeins um það að ræða, að ekki lita allir sömu hluti sömu augiun. Þannig mátti annars veg- ar sjá það í breskum blöð- um eftir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel, að Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Breta, hefði náð öllu þvi fram, sem hún kaus á fundinum. Hefði Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, orðið að láta í minni pokann þegar komist var að nið- urstöðu um framtið þeirra kjaraorkuvopna, sem senda má með flug- skeytum eða með fall- byssum skemmri vega- lengd en 500 km og eru í Vestur-Þýskalandi. í þýska blaðinu Die Welt var þvi hins vegar haldið fram, að Helmut Kohl hefði fengið allt sitt fram á N ATO-fundinum og hann og þýska sendi- nefndin hefðu haldið þannig á málum, að frú Thatcher hefði orðið að láta undan, sem sé, eins og allir vita, henni þvert um geð. Deilan snerist um orðalag í lokaályktun fundarins og það, hvort nota ætti ensku sögnina modemize þ.e. end- uraýja herafla banda- lagsþjóðanna hvort held- ur hefðbundinn eða kjaraorkuvopn. Þegar ekki var vilji til að gera það, þá lögðu Bretar til að notuð yrðu ensku orð- in up to date til að lýsa gæðum heraflans, sem þýtt er á íslensku: af nýjustu gerð. Þetta orða- lag er notað i enska text- anum og síðan var að ósk Þjóðveija bætt við orðun- um where necessary, þ.e. þar sem það er nauðsyn- legt. Og á islensku er sctningin þannig: Sú áætlun [þ.e. vamarstefna bandalagsins] felst i þvi í dag. að byggja fælingu á við- eigandi hlutföllum nægi- legs og skilvirks kjaraa- vædds og hefðbundins herafla sem áfram verði af nýjustu gerð þar sem það er nauðsynlegt. Þegar lesnar eru frá- sagnir af ágreiningnum um þetta og Iokaniður- staðan sjálf, hljóta flest rök að hniga að þvi að sjónarmið Thatcher hafi náð fram að ganga. Sú spurning vaknar, hvort jafn hart hafi verið deilt um þetta atriði eins og fjölmiðlar bera með sér. Og einnig er hitt íhugun- aratriði, hvort ekki eigi að líta á orðaskiptin nú sem undirbúning undir fund varnarmálaráð- herra bandalagsins í vor, þar sem rætt verður um kjaraorkuherafla banda- lagsins og framtíð hans. 1983 ákváðu varnar- málaráðherrarnir á fundi í MontebeUo í Kanada að enduraýja skammdrægustu kjara- orkuvopnin i Vestur- Þýskalandi og það eru þeir, sem hljóta að ákveða breytingu á eigin samþykktum, að minnsta kosti var það ekki gert á leiðtogafundinum i Brussel. Deilan við Kinnock í umræðum í breska þinginu á föstudag var rætt um NATO-fundinn í Brussel. Þá sagði NeU Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins og for- ingi stjórnarandstöðunn- ar, að Thatcher hefði farið á fundinn tíl að fá þar staðfestan stuðning við enduraýjun vopna og ekki tekist það. Hann sagði einnig, að hún hefði farið á fundinn til að hindra að skref væru stigin í þá átt, að skamm- drægustu kjarnorku- vopnunum yrði fækkað. Þetta hefði henni einnig mistekist. TU þess að draga athygiina frá þesSu öUu hefði hún svo látið falla orð um MikhaU Gorbatsjov og Sovétrík- in, þar sem hvað rækist á annars hora. Breska blaðið Obser- ver segir að svör Margar- etar Thatcher við spura- ingum og athugasemdum Kinnocks vegna NATO- fundarins hafi verið kröftng, jafnvel á hennar mælikvarða. Með slíku orðalagi er þeim gefið tíl kynna, sem þekkja bar- áttugleði og orðhvassan málflutning Thatcher, að hún hafi sannarlega ekki látið Kinnock eiga neitt inni hjá sér. Hún sagði meðal annars, að á þeim . tveimur dögum, sem hún hefði setið og hlustað á ræður manna i Brussel, þar með ýmsa sósíalista, hefði hún ekki heyrt ann- að eins kjaftæði og Kinnock hefði í frammi. Og hún bætti við: „Staðreyndin er sú, að í Evrópu allri er þessi sósíalistaflokkur hér á landi með allt aðrar skoð- anir en hinir evópsku flokkarnir — og það er kannski engin furða, því að flokkurinn er í raun CND-sósialistaflokkur.“ CND er samtök einhliða afvopnunarsinna í Bret- landi, helst sambærileg við Samtök herstöðva- andstæðinga, og þykja þau hafa fengið háðu- lega útreið í breskum stjómmálaumræðum og beijast fyrir fráleitri stefnu. Eftir þessa dembu sagði Kinnock, að frú Thatcher hefði svarað með svívirðingum og nöldri spurningum sínum um leiðtogafundinn. Frá- sögnin af þessum um- ræðrnn ber það með sér, að Thatcher hafi viljað láta það koma fram með sem skýrustum hætti, hveiju hún fékk áorkað á fundinum. Kinnock leggi sig á hinn bóginn fram um að gera hlut hennar sem minnstan. En í raun hafi hvorugt getað haldið umræðun- um innan marka fundar- ins heldur hafi þau látið stjórnast af pólitískum metingi á heimavelli. helgina sýndu, að Ihalds- flokkurinn hefur 11% forskot fram yfir Verka- mannaflokkinn. Fylgja 46% Ihaldsflokknum, 36% Verkamannaflokkn- um og 12% hinum nýja Frjálslynda jafnaðar- mannaflokki. SKAMMTÍMABRÉF BÐNAÐARBANKANS Örugg ávöxtun án langs binditíma. □ Skammtímabréf Iðnaðarbankans bera 9,8% ávöxtun yfir verðbólgu. Þau greiðast upp með einni greiðslu á gjalddaga. □ Skammtímabréf Iðnaðarbankans eru fyrir þá sem vilja njóta öruggrar ávöxtunar en vilja ekki binda fé sitt lengi. □ Velja má um gjalddaga frá 1. júní nk. og síðan á tveggja mánaða fresti til 1. febrúar 1990. □ VIB sér um sölu á skammtímabréfum Iðnaðarbankans. Komið við að Ármúla 7 eða hringið í síma 91-68 15 30 og fáið nánari upplýsingar. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavik. Sími 68 1530
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.