Morgunblaðið - 08.03.1988, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 08.03.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988 23 Karlina Hólm „Hvernig- væri að fara að huga að gerð grunns og hætta að byggja of- aná í það óendanlega, ofaná spilaborgina er riðar til falls?“ ekki í betri launum, né fjölgun, nema til hæstlaunuðu stéttanna. Stéttabilið breikkar inni á stofnun- um. Og nú er talað um að til þurfi að koma enn ein stétt í heilbrigðis- geirann — að erlendri fyrirmynd — aðstoðarhjúkrunarfræðingar, með styttra nám en hjúkrunarfræðing- ar, og þá væntanlega lægri laun. Húrra... En á bilið að breikka milli „hjúkrarans" og hins sjúka. Hjúkrunarfræðingurinn hyrfi þá væntanlega bak við skrifinnsku- staflana fyrir fullt og allt. Það virðist enginn endir ætla að verða á „villigötuleiknum". Ráðamenn setja upp „umburðar- lyndisbrosið" og halda áfram að reisa sér minnisvarða er eiga að tryggja langlífi þeirra en nú er mál að linni. Peningarnir flæða en á vitlausum stöðum. Svo köllum við okkur menningarsinnað fólk. Hringdansinn um mammon virðist ekki í rénum. Karlinn sá er nú í essinu sínu. Hefur það bara gott og heldur upp á það. Allt hámennt- aða fólkið með tölvuútreikningana sína, forritin og „statistikina" er eðlilega upptekið við sitt. Það virð- ist lítillar hjálpar að vænta úr þeirri átt. Jú, raddir eins og „við þurfum að kosta meiru til fyrir- byggjandi þátta“ hafa verið hávær- ar, en á meðan hækkar 'meðalaldur íslendinga og hinn aldni einstæð- ingur hefur ekki raddstyrk til að hrópa á athygli. Er búinn að leggja árar í bát. Þeir sem hæst hrópa og þrýsta hvað fastast fá oftast sitt í gegn. Við, sem eigum að kallast heilbrigð, göngum á lagið og heyrum bara það sem við viljum heyra. Samstaða okkar er með ólíkindum. Þessi fámenna þjóð hefur sýnt margoft að hún getur þjappað sér saman er erfiðleikar steðja að, sú sama þjóð hleypur til er ka.ll berst erlendis frá um fjárstuðning. En er kallið kemur innanlands frá, þá er heimsmaðurinn í okkur stein- sofandi. Sefur vært. Öll skilningar- vit lokuð. Það er nefnilega svo skelfing þægilegt að hjakka bara í sama farinu, og snúast í hringi. Eða ýta vandanum á undan sér. En grátbroslegt er að við förum afturábak í þessum málum, okkur ber hratt af leið. A meðan blómstrar, í mörgum tilfellum, ófaglegt einkaframtakið, fær byr undir báða vængi, í formi rekstraleyfa, í sumum tilfellum, gegnum „klíku“ úr hinu háttvirta ráðuneyti. Þár eru menn að vonum fegnir yfir því að einhveijir skuli sýna dug og þor í framfaraátt... Þá skipta gæðin ekki máli lengur. Slíkir staðir hljóta alltaf að verða fyrst og fremst geymslustað- ir þar sem eingöngu er hægt að sinna frumþörfum einstaklingsins. Það er tímaskekkjan. Við verðum aldrei menningar- þjóð meðan við geymum í felum aldraða og lasburða, sem einskis mega sín. Við pössum okkar á að þegja yfir þessu við útlendinga. Látum nægja að sýna þeim hallirn- ar okkar. Þær verða víst að rísa svo við getum státað af stórborgar- brag. Við viljum ekki sjá „illgre- sið“. Það dafnar líka alltaf best í skugganum. Og svo er bara hægt að rífa það upp með rótum og henda því í ruslatunnuna. Við vilj- um ekki vita af þessu olnboga- bami. Það samræmist ekki fallegu líkamsdýrkuninni í dag. Eitthvað er það óþægilegt og ljótt. Heldur ekki nógu spennandi og skemmti- legt umræðuefni manna á meðal. Svona hugsum við, en segjum fallegu orðin. Höldum að þau fleyti okkur áfram. Svo eru bara reist fleiri skjól og skýli en mannúðinni er bara ekki hleypt inn. Hún kem- ur að læstum dyrum. Harðlæstum. Þar sem margir aðstandendur eru til staðar er oft hægt að taka höndum saman og vinna átak. En hvað um hina er eiga sér engan málsvara? Viljum við breyta þessum hugs- unarhætti, viljum við bæta kjör þeirra lægst launuðu í heilbrigðis- stétt? Og hvenær? Er von að spurt sé. Ætlum við að bíða þar til þessi blettur á þjóðinni hefur stækkað enn frekar og rotnunardauninn leggur um byggð ból? Það er til fullt af góðu fólki á Islandi sem og annars staðar, sem vill nýta krafta sína. Við þurfum ekki að flytja það inn. Hvernig væri að fara að huga að gerð grunns og hætta að byggja ofaná í það óendanlega, ofaná spilaborgina er riðar til falls? Ætl- um við bara að hlusta á hrikta í undirstöðum með hendur í skauti og láta þar við sitja? Þetta átti ekki að verða grein full af tölum. Þeir staflar eru þeg- ar nægilega háir og liggja nú óhreyfðir og rotna oní fínum ma- hónískúffum á fyrirmyndarstöð- um. Það fer vel um þá, þó að steindauðir séu, en við erum að tala um fólkið er enn dregur lífsandann. Það hlýtur að eiga annað og betra skilið en afskipta- leysi yfirvalda og undanbrögð. Bíðum ekki eftir því að finna rotn- unarþefinn leggja að vitum. Það er hægt að breyta þessu en allt vantar ef viljann og samstöðuna vantar. Hlúum að okkar fólki í heilbrið- isstétt, þá mun okkur vél farnast sem smáþjóð við ysta haf. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og starfar að öldrunarmálum. Verslunin SKOVAL hefur fíutt starfsemisína af Óðinstorgiyfírá Skóla- vörðustíg22 SKÓVAL þakkar viðskiptavinum sínum áralöng samskiptiá gamla staðnum og býðurþá velkomna ínýju verslunina á Skó/avörðustíg 22. Sfcóval SKÓLA VÖRÐUSTÍG 22, SÍMI 14955. ORBYLGJUOFNAR Glugginn auglýsir Rýmingarsala á peysum og blússum. Mikill afsláttur. Glugginn, Laugavegi 40, Kúnsthúsinu. VILTU LETTAST UM 2-3KG Á EINNI VIKU? Reyndu þá 5 daga megrunarkúrinn, sem inni- heldur 15 bragðgóðar kexkökurúr 100% trefjaefni. Hver kaka kemur í stað heillar máltíðar og þú borðar aðeins 550 hitaeiningar í stað 2—3000. íslenskur leiöarvisir fylgir. §------------------------------------------ Vinsamlegast sendið mér í póstkröfu: __ pk. á kr. 995.- Iivern pakka____ Nafn:-------------------—— ----------— Heimili:------------------------------- Sveitarfélag:-------------------------- ö ^ Sendist til Póstval, Pósthólf 91 33, o 1 29 Reykjavík. Vinningstölurnar 5. mars 1988. Heildarvinningsupphæð: 4.794.282,- 1. vinningur var kr. 2.401.762,- Aðeins einn þátttakandi var með fimm réttar tölur. 2. vinningur var kr. 718.848,- og skiptist hann á milli 256 vinningshafa, kr. 2.808,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.673.672,- og skiptist á milli 6.776 vinn- ingshafa, sem fá 247 krónur hver. Upplýsingasími: 686111 $SMÉ532
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.