Morgunblaðið - 08.03.1988, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
Varð neðstur fyrir 10 árum:
Fannst vera kominn tími
til að snúa blaðinu við
segir Jón L. Árnason, signrvegarinn á Reykjavíkurskákmótinu
„Þegar ég keppti fyrst á
Reykjavíkurskákmóti fyrir 10
árum varð ég neðstur svo mér
fannst vera kominn tími til að
snúa blaðinu við,“ sagði Jón L.
Árnason, sigurvegarinn á XIII
Reylqavíkurskákmótinu, sem
lauk á sunnudag.
Jón endaði með 8V2 vinning,
hálfum vinningi fyrir ofan Grikkj-
ann Vasilis Kotronias sem var einn
í 2. sæti. í 3-6. sæti urðu Margeir
Pétursson sem vann tvær síðustu
skákir sínar, Sergei Dolmatov,
Míkhaíl Gurevítsj og Göran Dizdar
með 7V2 vinning og í 7-10. sæti
voru Helgi Olafsson, Walter
Browne, Zsuzsa Polgar og Andras
Adorjan með 7 vinninga. í 11-17.
sæti urðu Karl Þorsteins, Þröstur
Þórhallsson, Halldór G. Einarsson,
Lev Pólúgajevskíj, Judit Polgar,
Zsofía Polgar og Einar Gausel með
6V2 vinning, og í 18-23. sæti urðu
Hannes Hlífar Stefánsson, sem fékk
sinn antjan áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli, Sævar Bjamason,
Carsten Hoi, Ralf Ákeson, Wolfram
Schön og Berge Östenstad með 6
vinninga.
Sigur Jóns L. Ámasonar virtist
vera frekar fyrirhafnarlítill, en hann
vann 6 skákir í röð í 3.-8. umferð.
Hann sagði þp við Morgunblaðið
að þetta hefði ekki verið svo i raun,
því alltaf væri erfítt að leiða mót.
„Ég hef stundum líkt þessu við
Morgunblaðið/Olafur K. Magnússon
Tveir efstu menn á Reykjavíkurskákmótinu, Jón L. Arnason og
Vasilis Kotronias með lopapeysur sem Handprjónasamband Islands
færði þeim að gjöf. Með þeim á myndinni er Þráinn Guðmundsson
forseti Skáksambands íslands.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon.
Polgarsysturnar frá Ungverjalandi vöktu mikla athygli á Reykjavík-
urskákmótinu. Zsuzsa Polgar, sem er lengst til hægri á myndinni,
varð í verðlaunasæti, 7-10. sæti ásamt þremur stórmeisturum. Yngri
systur hennar, Judit og Zsofia sem eru 11 og 13 ára gamlar, voru
aðeins hálfum vinningi neðar.
hljólreiðakeppni. Þar er verst að
vera fremstur því þar er loftmót-
staðan mest," sagði Jón.
Það fór einnig svo að Jón tapaði
óvænt í 9. umferð fyrir Kortonias,
lítt þekktum ungum Grikkja sem
náði sínum fyrsta stórmeistara-
Skáksamband íslands:
Eínnar nulljón krónu
gjöf til unglinga-
og útbreiðslustarfs
SKÁKSAMBANDI íslands hef-
ur borist vegleg gjöf, einnar
milljón króna framlag til ungl-
inga- og útbreiðslustarfs Skák-
sambandsins. Gefandi er einn
af velunnurum sambandsins,
sem vill ekki láta nafn síns
getið, en gjöfinni fylgir sú von
að framtak hans verði Skák-
sambandsmönnum hvatning og
öðrum velunnurum skákhreyf-
ingarinnar gott fordæmi.
I frétt frá Skáksambandinu
segir að mikið starf sé nú fyrir
höndum í kjölfar afreks Jóhanns
Hjartarsonar. Meðal annars þurfí
að leiðbeina þeim mörgu ung-
mennum sem nú eru að heija
skákiðkanir. Pramangreint fram-
lag sé því uppbyggingarstarfí
Skáksambandsins afar mikils
virði um leið og sá hugur, sem
að baki býr, sé_ forráðamönnum
Skáksambands íslands hvatning
til dáða.
(Úr fréttatilkynningu.)
Norðurland vestra:
Mótmæla skerð-
ingu á Jöfnunarsjóði
SAMTÖK þéttbýlisstaða á Norð-
urlandi vestra hafa sent frá sér
ályktun þar sem ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að skerða lög-
bundin framlög í Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga er harðlega mót-
mælt. Þess er krafist að þing-
menn landsbyggðarinnar komi í
veg fyrir skerðingu á sjóðnum.
Orðrétt segir í ályktuninni:
„Jafnframt er því mótmælt að ríkis-
valdið ráðstafi verulegum hluta
tekna sjóðsins umfram það sem
upphaflega var gert ráð fyrir í lög-
um m.a. til Innheimtustofnunar
sveitarfélaga og fleiri þátta sem
Jöfnunarsjóðnum eru óviðkomandi.
Sérstaklega er því mótmælt að
ríkisstjómin skuli nú hrifsa til sín
hundruð milljóna króna úr Jöfnun-
áfanga á mótinu. Kotronias tefldi
á 1. borði fyrir Grikki á síðasta
Ólympíuskákmóti en Jón sagði þó
að Kotronias hefði tefld mun betur
en hann bjóst við. „Það kom aldrei
í minn hug að bjóða honum jafn-
tefli því mér fannst að fyrst ég
væri búinn að vinna 6 skákir gæti
ég eins unnið þá sjöundu,“ sagði
Jón.
Tapið setti aftur spennu í mótið,
því Kotronias var þá aðeins hálfum
vinningi á eftir Jóni sem þurfti að
tefia við tvo sovéska stórmeistara
í tveimur síðustu umferðunum, þá
Dolmatov og Gúrevitsj. Báðum
þeim skákum lauk með jafntefli og
%
Morgunblaðið/Olafur K. Magnússon
Það þættu daufleg alþjóðleg skákmót á íslandi ef þessir menn kæmu
ekki og spáðu í stöðuna. Þeir Ottó Jónsson, Sæmundur Pálsson og
Helgi Sæmundsson voru að sjálfsögðu mættir á siðustu umferð
Reykjavíkurskákmótinu.
sagðist Jón reyndar hafa verið
heppinn með að hafa hvítt í báðum
skákunum. Jón sagðist hafa reiknað
með að jafnteflin dygðu til sigurs,
sérstaklega fyrir síðustu umferðina
því Kotronias nægði þá jafntefli til
að tryggja sér stórmeistaraáfang-
ann. Það fór líka svo að Kotronias
og Dizdar gerðu stutt jafntefli og
Jón gat því einbeitt sér að jafntefli
gegn Gúrevitsj sem hann náði án
fyrirhafnar.
Skákmótið í Linares:
Erfiður róður hjá Jóhanni
Linares, frá Leifi Jósteinssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
JÓHANN Hjartarson tapaði fyrir næsta ári og hefur Jóhann fengið
arsjóðnum í tengslum við sérstakar
efnahagsráðstafanir umfram þá
skerðingu sem gert var ráð fyrir í
nýsamþykktum fjárlögum.“
Þá segir að fjöldi sveitarstjóma
standi frammi fyrir því að rekstrar-
tekjur þeirra nægi ekki fyrir út-
gjöldum, en það sé afleiðing þess
að innheimtuprósenta útsvara hafí
verið einhliða ákveðin af ríkisstjóm-
inni, auk skerðingarinnar á Jöfnun-
arsjóði nú. í lok ályktunarinnar seg-
ir. „Að undanfömu hefur ekkert
tillit verið tekið til sjónarmiða sveit-
arfélaganna af hálfu ríkisvaldsins.
Afleiðingin sem nú blasir við eftir
síðustu aðför að Jöfnunarsjóðnum
er algjör trúnaðarbrestur milli þess-
arra aðila, ríkisvaldsins og sveitar-
félaganna, vegna yfírgangs og for-
ræðishyggju ríkisstjómarinnar."
Ljubojevic í 9. umferð skákmóts-
ins í Linares en gerði jafntefli
við efsta mann mótsins, Jaan
Timman, í 10. umferðinni. Fyrir
síðustu umferðina, sem var í
gær, var Jóhann í 10. sæti með
4. vinninga en Timman var efstur
með 7*/2 vinning.
Jóhann tefldi mjög illa gegn
Ljubojevic. Hann hafði hvítt og
missti bytjunina út úr höndunum á
sér og var kominn með tapaða stöðu
eftir 10 leiki. Þegar Jóhann gafst
upp í 25. leik var mát yfirvofandi.
Skákin við Timman var mun betur
tefld. Þar kom upp lokað afbrigði
af drottningarbragði og Jóhann
hélt sinu og vel það með svörtu.
Jafnteflið var samið eftir 36 leiki.
Biðskákir voru tefldar á sunnu-
dag og þá vann Maja Tsjiburdanid-
ze Lajos Portsch, Beljavskíj vann
Nunn og gerði jafntefli við Illescas,
Ljubojevic vann Chandler en tapaði
fyrir Georgiev, Chandler og Port-
isch gerðu jafntefli 0g einnig Jú-
supov og Nunn. Þá gerði Illescas
jafntefli við Tsjiburdanizde og Nic-
olic. Í síðastnefndu skákinni hafði
Ulescas mun betri stöðu, var tveim-
ur peðum yfír, en taugamar bmgð-
ust og hann bauð jafntefli. Það kom
síðan í ljós að hann taldi sig með
því hafa náð stórmeistaraáfanga
en það var ekki rétt og hann varð
að ná jafntefli gegn Júsupov í
síðustu skákinni til að fá áfangann.
Spánveijar erti þegar byijaðir á
að hyggja að skákmóti í Linares á
munnlegt boð um að tefla þá. Auk
hans verður Karpov, Kasparov,
Kortsjnoj, Larsen, Short, Seirawan
og Júsupov boðið á mótið, svo ein-
hveijir séu nefndir, og Timman
hefur þegar þekkst boð um að tefla
þar.
Hraðskákmaður
hugsar meira en
heilt fótboltalið
- segir Walter Browne formaður
Alþj óðahraðskáksambandsins
ÞÓTT sumum þyki hraðskák
eigi lítið skilt við venjulega skák
er bandaríski stórmeistarinn
Walter Browne ekki á sama máli.
Hann stofnaði samtökin World
Blitz Association eða Alþjóða-
hraðskáksambandið fyrir nokkr-
um vikum, og í lokahófi
Reykjavíkurskákmótsins sagði
Browne að fleiri hugsanir fædd-
ust í heila skákmánns í einni 5
mínútna skák en fótboltaliðs á
heilu keppnistímabili. Browne
hefur sennilega átt við amerisk-
an fótbolta.
Browne var að kynna hraðskák-
mót sem hann stóð fyrir í Garða-
skóla í gærkvöldi en hann hefur
/
skipulagt hraðsákmót víða um heim
undanfarið, þar á meðal heims-
meistaramótið í hraðskák sem hald-
ið var í St. John í Kanada.
Browne minnstist einnig á fleiri
keppnisform í skák sem möguleika
til þess að gera íþróttina áhugaverð-
ari fyrir almenning. Þar á meðal
væri „stigvaxandi skák“ sem færi
þannig fram að hvítur léki einum
leik, svartur svaraði með tveimur
leikjum og hvítur léki næst þijá
leiki, og þannig stig af stigi. Brow-
ne sagðist hafa teflt slíkar skákir
við Yasser Seirawan. Þá nefndi
Browne Las Vegas afbrigðið en þá
er varpað teningum fyrir leiki og
þeir ákveða hvaða manni skákmað-
urinn má leika!