Morgunblaðið - 08.03.1988, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
Hryðjuverkamenn
felldir á Gíbraltar
London, Reuter.
Tékkar krefjast trúfrelsis
Um eitt þúsund Tékkar söfnuðust í gær saman fyrir utan liöllu kaþólska kardinálans í Prag og kröfð-
ust trúfrelsis í landinu. Atburður þessi átti sér stað eftir að um 10.000 manns höfðu verið við messu,
sem kardínálinn, Frantisek Tomasek, söng í dómkirkju Prag til þess að knýja á um um aukið trúfrelsi
þar. Samskipti ríkis og kirkju eru með versta móti í Tékkóslóvakíu. Fólkið hrópaði ýmis slagorð svo
sem: „Við viljum trúfrelsi!“, „Við viljum biskupa!", „Við viljum páfann!" og „Lengi lifi kardínálinn!"
Kardínálinn kom fram á svalir hallarinnar og flutti stutta tölu. Minnti hann lýðinn á að Kristur væri
styrkur þeirra, vissa og jafnframt sigurvon. Aður en messan var sungin handtóku yfirvöld um tuttugu
menn, sem standa framarlega í baráttu fyrir auknum mannréttindum í Tékkóslóvakíu.
Ályktunum leiðtoga
NATO vísað á bug
Moskvu, Reuter.
SOVÉSKUR hershöfðingi, Nikolaj Tsjervov að nafni, sagði i viðtali
við sovésku fréttastofuna Tass á sunnudag að lokaályktun leiðtoga-
fundar aðiidarrikja Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn var i síðustu
viku, hefði valdið ráðamönnum í Sovétrikjunum vonbrigðum. Þá vísaði
hershöfðinginn á bug þeirri fullyrðingu leiðtoganna að Sovétmenn
nytu yfirburða á sviði hins hefðbundna herafla.
BRESKIR _ hermenn skutu þijá
liðsmenn írska lýðveldishersins
(IRA) til bana á Gíbraltar á
sunnudag. Talsmenn bresku
ríkisstjórnarinnar skýrðu í
fyrstu frá því að sprengja hefði
fundist í bifreið, sem fólkið hefði
áformað að sprengja í loft upp
Reuter
Tveir irsku hryðjuverkamann-
anna féllu fyrir byssukúlum bre-
skra hermanna við bensínstöð
þessa á Gíbraltar á sunnudag er
þeir voru á leið til spænsku
landamæranna.
Bangladesh:
Sljórnin
ritskoðar
erlend
dagblöð
Strikað yfir fréttir af
kosningaúrslitum
Dhaka, Reuter.
STJÓRNVÖLD í Bangladesh
þurrkuðu út úr erlendu dagblaði
upplýsingar um úrslit þingkosn-
inganna í síðustu viku. Blaða-
menn fóru i verkfall á föstudag
til að mótmæla fréttabanni af
mótmælum fyrir kosningarnar.
Háttsettur opinber starfsmaður
sagði að samkvæmt beiðni inn-
anríkisráðuneytisins hefði verið
strikað út úr þriggja dálka frétt um
kosningamar sem birtist í Intem-
ational Herald Tribune. Á blaðsíðu
tvö í öllu upplagi laugardagsblaðs-
ins, sem kom á götumar degi of
seint í Bangladesh, vom stórar
svartar prentsvertu-skellur.
Þingkosningar fóm fram í
Bangladesh síðastliðinn fimmtu-
dag, að sögn yfirvalda vann flokkur
forsetans stórsigur. Miklar óeirðir
vom dagana fyrir kosningamar og
virtu stjómarandstæðingar þær að
vettugi og segja að úrslitin séu föls-
uð.
Eftir að kjörstöðum var lokað
sagði innanríkisráðherrann, Abdul
Matin á blaðamannafundi, að inn-
lendum blaðamönnum væri fijálst
að skýra frá því sem þeir sæju svo
lengi sem .þeir væm hlutlausir.
Blaðamenn, sem halda því fram að
þeim hafi verið hótað með því að
dagblöð verði bönnuð, fóm í verk-
fa.ll á föstudag til að mótmæla því
að þeim var meinað að skýra frá
mótmælum fyrir kosningar.
í dag, þriðjudag. Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Bret-
lands, sagði hins vegar í gær að
engin sprengja hefði enn fundist
þrátt fyrir mikla leit.
Bifreið, sem fólkið ók, hafði ver-
ið lagt um 500 metra frá bústað
Sir Peters Terry, ríkisstjóra Gíbralt-
ar, en þar verður skipt um varð-
menn úr röðum breska hersins í dag
við hátíðlega athöfn. Talsmaður
bresku stjórnarinnar sagði á sunnu-
dag að 227 kílóum af sprengiefni
hefði verið komið fyrir í bifreiðinni.
Geoffrey Howe bar. fréttir þessar
til baka í gær og sagði ekkert
sprengiefni enn hafa fundist þrátt
fyrir mikla leit, sem haldið yrði
áfram.
Að sögn sjónarvotta á Gíbraltar
vom hryðjuverkamennimir skotnir
án viðvörunar er þeir vom á leið'
til spönsku landamæranna. Tveir
þeirra vom felldir á bensínstöð og
hinn þriðji var skotinn til bana er
hann hugðist flýja. Talsmenn Irska
lýðveldishersins fullyrtu í gær að
fólkið hefði verið óvopnað en Sir
Geoffrey Howe, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði að breskum her-
mönnum hefði verið ógnað.
Útvarpsstöð á Norður-írlandi,
sem skýrði frá atburðinum, vitnaði
til tilkynningar frá írska lýðveldis-
hemum þar sem sagði að fólkið,
tveir karlar og ein kona, hefðu ver-
ið liðsmenn hans. Þetta er í fyrsta
skipti sem hryðjuverkamenn láta til
sín taka á Gíbraltar en að sögn
breska dagblaðsins The Guardian
halda Bretar þaðan uppi eftirliti
með vopnaflutningum á Miðjarðar-
hafi. Var getum að því leitt í frétt
blaðsins að írski lýðveldisherinn
hefði ákveðið að láta til skarar
skríða á Gíbraltar af þessum sökum.
Talsmaður spænska innanríkis-
ráðuneytisins skýrði frá því í gær
að breskar og spænskar lögreglu-
sveitir hefðu vikum saman fylgst
með ferðum hryðjuverkamannanna
þriggja frá því fyrst sást til þeirra
á Costa del Sol á Spáni.
Tsjervov, sem oftlega kemur fram
sem talsmaður sovéska hersins, sagði
í viðtalinu að ríkin austan jámtjalds-
ins hefðu einnig áhyggjur af ójöfn-
uði á sviði hins hefðbundna herafla
í Evrópu. Sagði Tsjervov leiðtogana
ekki hafa minnst á þá staðreynd að
ríki NATO réðu yfir mun fleiri árás-
arflugvélum í Evrópu. Þá hefðu
NATO ríkin tvöfalt fleiri þyrlur í
þjónustu sinni en ríki Varsjárbanda-
lagsins. Bætti hann því við að
NATO-ríkin hefðu einnig fleiri her-
deildir tiltækar, sem unnt væri að
beita gegn rílqum Varsjárbandalags-
ins.
Tsjervov kvað Sovétstjómina
fylgjandi þvl að ríki austurs og vest-
urs gerðu með sér griðasáttmála
samhliða því sem komið yrði upp 300
kflómetra kjamorkuvopnalausu belti
í Evrópu. Bætti hann þvl við að ráða-
menn í Moskvu hefðu mestar áhyggj-
ur af þeim hluta lokaályktunar leið-
togafundarins þar sem lýst væri yflr
að ekki kæmi til greina að falla frá
kenningunni um fælingarmátt kjam-
orkuheraflans.
Hershöfðinginn sagði hins vegar
gleðilegt að leiðtogarnir hefðu lýst
yfir ánægju sinni með samning risa-
veldanna um upprætingu meðal- og
skammdrægra kjamorkueldflauga á
landi, sem þeir Ronald Reagan
Bandaríkjaforseti og Míkhafl S. Gor-
batsjov Sovétleiðtogi undirrituðu í
Washington á síðasta ári.
Forkosningar í 20 ríkjum í dag:
Skoðanakannanir benda
til yfirburðasignrs Bush
í DAG fara fram forkosningar í
20 ríkjum til útnefningar forseta-
frambjóðenda bandarískra
stjórnmálaflokka. George Bush,
varaforseti Bandaríkjanna, er
talinn sigurstranglegastur
þeirra, sem sækjast eftir útnefn-
ingu Repúblikanaflokksins, en
mjórra er á mununum í herbúð-
um demókrata. Þar keppa þeir
þeir Michael Dukakis og Jesse
Jackson um atkvæðin, en fast á
hæla þeirra koma þeir Richard
Gephardt og Albert Gore.
Vinni Bush umtalsverðan sigur,
eins og allt virðist benda til, má
líklegt heita að hann hafl tryggt sér
útnefningu flokks síns. Fréttaskýr-
endur vestra segja reyndar að for-
kosningar repúblikana standi ekki
einungis um það hver verði fram-
bjóðandi þeirra, heldur um það hver
verði næsti forseti Bandaríkjanna.
Vísa þeir til þess að frambjóðendur
demókrata séu í málefnahallæri og
að bandarískir kjósendur hafí
hneigst til hægri í valdatíð Ronalds
Reagans.
Samkvæmt síðustu skoðanakönn-
unum virðist flcst benda til þess að
negrinn Jesse Jackson og ríkisstjór-
inn Michael Dukakis skipti með sér
bróðurparti fulltrúa þeirra 20 ríkja,
George Bush.
þar sem forkosningar demókrata
fara fram, en of mjótt var á munun-
um til þess að marktækur munur
væri á fylgi þeirra. Þeir Albert Gore
og Richard Gephardt keppa um
þriðja sæti og er talið að sá sem
lýtur í lægra haldi muni væntanlega
draga sig í hlé.
Flestar skoðanakannanir leiddu í
ljós að Bush hefur yflrleitt um 20%
meira fylgi en helsti keppinautur
hans, Robert Dole, í þeim 17 ríkjum
þar sem repúblikanar ieiða saman
hesta sína i dag. Sumar kannanir
Robert Dole.
bentu jafnvel til enn meiri fylgis-
munar — sums staðar allt að helm-
ingi meiri.
Kosningarnar í
Suður Karólínu
Þessar kannanir voru þó gerðar
áður en Bush malaði andstæðinga
sína í Suður Karólínu á laugardag.
Almennt var litið á forkosningarnar
þar sem undanrás kosninganna í dag
og þykja lyktimar auka sigurlíkur
Bush enn frekar. í Suður Karólínu
fékk Bush 48% atkvæða, Dole 21%
og síra Pat Robertson 19%.
Úrslitin í Suður Karólínu voru
sérstakt áfall fyrir prestinn, því hann
hafði heitið því að vinna sigur þar.
Sagðist hann treysta á „hulduher"
sinn til þeirra stórræða, en í þeim
hópi eru aðallega heittrúaðir íhalds-
menn. Af þessu tilefni sagði Robert-
son að til greina kæmi að hann og
Dole gerðu með sér bandalag um
að bregða fæti fyrir Bush.
Kosið um þriðjung
landsfundarfulltrúa
Aldrei fyrr í sögu Bandaríkjanna
hefur verið kosið um jafnmarga
landsfundarfulltrúa á einum og
sama deginum. Repúblikanar kjósa
735 fulltrúa í dag, en það er þriðj-
ungur allra landsfundarfulltrúa, sem
alls eru 2.277. Landsfundur repú-
blikana verður haldinn í borginni
New Orleans í Louisíana-ríki og
hefst hinn 15. ágúst. Til þess að
hljóta meirihluta atkvæða þar þarf
1.139 fulltrúa og ræðir því um 66%
tilskilins meirihluta. Það eykur vægi
kosninganna í dag enn meir en ella,
að í meirihluta ríkjanna fær sá repú-
blikani, sem flest atkvæði hlýtur
alla landsfundarfulltrúa þess. Hjí
demókrötum er hins vegar hlutfalls-
kosning.