Morgunblaðið - 08.03.1988, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
NÁMAMENN greiddu nýlega at-
kvæði um, hvort aflétta skyldi
yfirvinnubanni, sem hófst fyrir
fimm mánuðum. Samþykkt var
með 58% greiddra atkvæða að
aflétta banninu, en 42% voru á
móti. Þessi niðurstaða gengur
þvert á ráðleggingar Arthurs
Scargills, forseta Sambands
námamanna.
Um 86.000 námamenn tóku þátt
í atkvæðagreiðslunni, en niðurstöð-
ur úr henni voru birtar síðastliðinn
sunnudag. Tæplega 35.000 voru
hlynntir því að aflétta yfirvinnu-
banninu, 25.000 á móti. Breska
kolafyrirtækið sagði þetta vera
vísbendingu um, að námamenn
vildu ekki lenda í átökum, sem sköð-
uðu þá sjálfa og fyrirtækið. Nú
væri hægt að heQa viðræður við
samband námamanna um ýmis
vandamál, sem blöstu við kolaiðnað-
inum.
Arthur Scargill sagði, að þessi
úrslit kæmu ekki á óvart. Flest þau
félög, sem stutt hefðu yfirvinnu-
bannið fyrir fimm mánuðum, hefðu
viljað aflétta því nú. Hann lagði
áherslu á, að þessi niðurstaða þýddi
ekki, að námamenn hefðu fallist á
agareglur kolafyrirtækisins, og nú
yrði fyrirtækið að semja um hækk-
un launa án nokkurra skilyrða.
4,2% hækkun, sem koma átti á
laun námamanna í nóvembermán-
uði síðastliðnum, getur komið til
framkvæmda nú, en Breska kola-
fyrirtækið setti sem skilyrði, að
yfirvinnubanninu lyki. Það sagði
hins vegar, að hækkunin yrði ekki
afturvirk, nema um það yrði samið
sérstak(ega.
Aðalástæðan til þess að náma-
menn vildu aflétta banninu er talin
vera sú, að það hafi haft lítil áhrif
á framleiðslu fyrirtækisins, en
námamenn orðið af umtalsverðum
launum. Næsta ágreiningsefni
námamanna og kolafyrirtækisins
verður sex daga vinnuvika við nýjar
stómámur. Kolafyrirtækið telur þá
vinnutilhögun nauðsynlega til að
rekstur námanna verði hagkvæmur.
Scargill hefur barist af hörku gegn
sex daga vinnuviku.
Persaflóastríðið:
Handalögmál á þingi Suður-Kóreu
Reuter
Lyðræðislegi réttlætisflokkurinn, flokkur Rohs Tae-
woos, forseta Suður-Kóreu, fékk í gær samþykkt
frumvarp sem gerir ráð fyrir breytingum á kosninga-
löggjöf landsins. Vakti þetta takmarkaða hrifingu
meðal stjómarandstæðinga. Kom til handalögmála
á þingi er Kim Jung-kil, einn þingmaður stjórnarand-
stæðinga, hugðist stíga í pontu og mótmæla fram-
ferði stjómarliða við afgreiðslu málsins. Myndin
sýnir hvar þingmenn stjórnarflokksins reyna að
halda aftur af Kim.
Flugskeytum og fallbyssu-
kúlum rignir yfir bæði ríkin
Fjölmenn mótmæli í Teheran vegna vopnasölu Sovétmanna.
Námamenn sam-
þykkja að aflétta
yfirvinnubanni
Bretland:
Kúba:
Pólitísk-
ir fangar
í hungur-
verkfalli
Havana, Reuter.
SEXTÍU og átta pólitískir fangar
hófu hungurverkfall á fimmtu-
dag í siðustu viku til að mót-
mæla yfirlýsingu stjórnvalda þar
sem þau segja að mannréttindi
séu virt i fangelsum á Kúbu.
í yfirlýsingu sem send var til
fréttastofa við upphaf hungurverk-
fallsins segir að fangamir í Comb-
inado del Este fangelsinu austur
af Havana hafi ákveðið að fara í
hungurverkfall til að mótmæla yfir-
lýsinum sem gefnar voru í Genf í
Sviss í síðasta mánuði af alþjóða-
samtökum sem betjast gegn pynt-
ingum. Talsmenn samtakanna sem
gáfu yfírlýsinguna, Paolo Parra og
Amanda Castello, sögðust hafa
heimsótt fangelsið og talað við
fanga og hafí af því ályktað að
mannréttindi væri í heiðri höfð.
Fangamir 68 neita að klæðast
fangabúningum og gegna störfum
sem .fangar fá greitt fyrir. Þeir
krefjast þess að segulbandsupptök-
ur, kvikmyndir og önnur gögn sem
Parra og Castello lögðu fram sem
sönnunargögn verði gerð opinber.
Yfírlýsingunni um að mannréttindi
væru virt í fangelsum á Kúbu var
beint til Armandos Valladares
formanns bandarísku sendinefndar-
innar hjá mannréttindanefnd Sam-
einuðu þjóðunum í Genf. Valladeres
eyddi yfír 20 árum í fangelsi á
Kúbu og lýsti nýverið fyrir blaða-
mönnum þeim hörmungum sem
hann upplifði þar.
Nikósíu, Moskvu, Reuter.
ÍRAKAR skutu tveimur flug-
skeytum að Teheran, höfuðborg
Irans, í gær í hefndarskyni við
árasir írana á borgir í írak. Eft-
ir því^ sem næst verður komist
hafa írakar skotið um 40 eld-
flaugum að skotmörkum í íran
þar af hafa þrjár hæft hina helgu
borg Qom. Ima, hin opinbera
fréttastofa írans, skýrði frá því
í gær að 61 óbreyttur borgari
hefði fallið í árásum íraka á 16
bæi og borgir í íran á sunnudag.
Ekki færri en 230 manns hafa
fallið í íran undanfarna viku og
um 800 særst. Á sunnudag kom
til mótmæla við sovéska sendi-
ráðið í Teheran en Sovétmenn
eru sagðir selja báðum ríkjunum
eldflaugar af gerðinni „Scud“,
sem geta borið allt að eitt tonn
af sprengiefni.
Þúsundir manna söfnuðust sam-
an við sovéska sendiráðið í Teheran
á sunnudag til að mótmæla meintri
vopnasölu Sovétmanna til íraks.
Að sögn sovésku fréttastofunnar
Tass grýtti fólkið bygginguna og
ógnaði starfsfólki sendiráðsins.
Ekki var frá því greint hvort slys
hefðu orðið á mönnum en þess var
getið að mótmælum hefði verið
komið á framfæri við stjómvöld í
Iran og fullyrt að unnt hefði verið
að koma í veg fyrir árásina á sendi-
ráðið. Sagði einnig í fréttinni að
mótmælin hefðu blossað upp vegna
ásakana íranskra fjölmiðla þess efn-
is að Sovétmenn seldu írökum eld-
flaugar. Voru fyrri yfírlýsingar Sov-
étstjómarinnar þar sem þessu er
vísað á bug ítrekaðar.
Fréttastofan Irna skýrði frá mót-
mælum við skrifstofu sovéska ræð-
ismannsins í Esfahan um 360 kíló-
metra suður af Teheran. Sagði í
fréttinni að lögreglumenn hefðu
þurft að beita táragasi til að dreifa
mannflöldanum.
írakar kveðast beita eigin flug-
skeytum í árásunum en sérfræðing-
ar, sem fylgst hafa með átökunum
undanfama viku, segja að bæði
ríkin notist við sovéskar eldflaugar
af gerðinni „Scud“, sem em sér-
hannaðar til árása á hemaðarskot-
mörk svo sem flugvelli langt að
baki víglínunnar.
Flugskeytaárásimar hófust 29.
febrúar en tveimur dögum áður
höfðu íranir mótmælt loftárásum
íraka á borgir í íran, sem legið
höfðu niðri í tæpt ár. íranir hafa
heitið því að halda árásunum áfram
allt þar til írakar viðurkenna að
þeir hafí átt upptökin að Persa-
flóastríðinu, sem nú hefur staðið í
tæp átta ár. írakar hafa hins vegar
fallist á ályktun Örýggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna þar sem ríkin eru
Tíbet:
hvött til að semja um vopnahlé.
Á sunnudag mögnuðust átökin
enn er eldflaugum, sprengjum og
sprengjukúlum rigndi yfir borgir
og bæi í báðum ríkjunum. írakar
skutu fjórum eldflaugum að Teher-
an auk þess sem flugher þeirra
gerði loftárásir á 12 skotmörk í
Iran. Stóðu árásir þessar linnulítið
í Qórar klukkustundir. Að sögn
Irna, hinnar opinberu fréttastofu
írans, féll 61 óbreyttur borgari í
árásum þessum og 427 særðust.
íranir svöruðu með því að skjóta
flugskeyti að Baghdad, höfuðborg
Iraks. Þá réðust íranskar orustuþot-
ur á tvær borgir í norðurhluta íraks
auk þess sem áfram var haldið
uppi stórskotaliðsarásum á hafnar-
borgina Basra. írakar hafa ekki
birt tölur um mannfall en talsmaður
herstjómarinnar sagði fjölda manns
hafa fallið í gagnárásum írana á
sunnudag.
Þúsundir manna mót-
mæla yfirráðum Kínverja
Peking, Reuter.
ÓEIRÐIR hafa brotist út að nýju
í Tíbet og herma fréttir að níu
manns hafi beðið bana í þeim.
Að sögn vestrænna sendimanna
sem komu frá Lhasa, höfuðborg
Tíbet á sunnudag, söfnuðust þús-
undir manna þar saman um helg-
ina til að krefjast sjálfstæðis og
kom til átaka við sveitir lögreglu-
manna.
Að sögn vestrænna stjómarer-
indreka fóm þúsundir Tíbetbúa
hamfömm á götum Lhasa á laugar-
dag. Kveikti fólkið í bifreiðum og
grýtti opinberar byggingar. Lög-
regla beitti táragasi til að dreifa
manníjöldanum og skothvellir
heyrðust í höfuðborginni eftir að
myrkur var skollið á. Fréttastofan
Nýja Kína skýrði frá því að einn
lögreglumaður hefði fallið í átökun-
um og ekki færri en 28 manns hefðu
slasast. Dagblað Alþýðunnar skýrði
frá því á sunnudag að kyrrð væri
komin á að nýju en ekki reyndist
unnt að staðfesta þá frétt.
Vestrænir stjórnarerindrekar
telja líklegt að eftirlit allt verði
hert til muna í Lhasa eftir óeirðir
þessar. Sex manns féllu í miklum
óeirðum í Lhasa í október á síðasta
ári. L kjölfar þeirra hefur kínverskt
ry
Kínverskir slökkviliðsmenn að störfum í Lhasa á laugardag. Þúsund-
ir manna söfnuðust þá saman í borginni til að mótmæla yfirráðum
Kinveija. Kveikt var í bifreiðum auk þess sem fólkið grýtti opin-
berar byggingar.
herlið verið í viðbragðsstöðu í ná-
grenni borgarinnar. Lögreglusveitir
halda uppi eftirliti í klaustmm og
munkar sem þátt tóku í mótmælun-
um á síðasta ári hafa verið skyldað-
ir til að sitja námskeið í „pólitískri
endurhæfingu".
Wu Xueqian, utanríkisráðherra
Kína, er nú staddur í opinberri
heimsókn í Bandaríkjunum og er
talið að óeirðimar í Tíbet muni setja
mark sitt á viðræður hans við
bandaríska ráðamenn. Á síðasta ári
gagnrýndu bandarískir þingmenn
harðlega meint mannréttindabrot
kínverskra stjómvalda í Tíbet og
fór sambúð ríkjanna nokkuð kóln-
andi af þeim sökum.