Morgunblaðið - 08.03.1988, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
39
12 skip búinn
með kvótann
LOÐNUSKIPIN halda áfram að
fylla sig jafnóðum og þau koma
á miðin og landa oft daglega,
en það fer þó eftir því hve langt
þau þurfa að sigla til löndunar.
12 skip eru búin með kvóta sinn
og um 100.000 tonn eftir af
leyfilegum afla. Loðnan veiðist
nú á svæðinu frá Stokksnesi að
Vestmannaeyjum.
Auk þeirra skipa, sem áður er
getið, tilkynntu eftirtalin um afla
á fimmtudag: Víkurberg GK 500
til Hjaltlandseyja, Þórshamar GK
300 og Harpa RE 260 til
Grindavíkur, Beitir NK 1.150 til
Neskaupstaðar-, Guðmundur Olaf-
ur ÓF 600 til Ólafsfjarðar og Súlan
EA 750 í Krossanes.
Innan við
100.000
tonn eftir
óveidd
ganga
100.000
LOÐNUVEIÐARNAR
jafnt og þétt. Innan við
tonn eru eftir óveidd og liklega
lýkur vertíðinni í kringum 10.
apríl. Þegar eftirfarandi tafla
var gerð annan marz höfðu 10
skip lokið kvóta sínum og fjöl-
mörg áttu þá eftir örfáa túra.
Aðeins helmingur flotans verður
því eftir er líða fer á næstu viku.
Flesta túra eftir eiga Galti og
Dagfari, Helga III, Huginn og
Guðmundur. Með kvótakaupum
munu tvö skip ná meira en 30.000
tonna afla. það eru Börkur, sem
er með 31.401 tonn, og Sigurður,
32.706 tonn. Hér fer á eftir listi
yfir stöðu mála:
Á föstudag tilkynntu eftirtalin
14 skip um afla, samtals 9.100
tonn: Eskfirðingur SU 400 og Júpí-
ter RE 1.340 til Eskifjarðar, Dag-
fari ÞH 530 til Sandgerðis, Þórður
Jónasson 680 í Krossanes, Húna-
röst ÁR 620 til Hjaltlandseyja,
Huginn VE 580 og Gígja VE 750
til Vestmannaeyja, Helga III RE
430 og Galti ÞH 420 til Horna-
fjarðar, Keflvíkingur KE 300 og
Gísli Ámi RE 260 til Grindavíkur,
Eldborg HF 1.250 til Danmerkur,
Rauðsey AK 620 til Þórshafnar
og Höfrungur AK 920 til Reyðar-
fjarðar.
Á laugardag tilkynntu skipin um
samltals 9.370 lesta afla: Guð-
mundur VE 880, Pétur Jónsson
RE 1.020, Sigurður VE 1.400 og
Gullberg VE 620 til Seyðisfjarðar,
Eskfirðingur SU 620 til Þórshafn-
ar, Galti ÞH 530 og Börkur NK
1.200 til Neskaupstaðar, Huginn
VE 450, Sighvatur Bjamason VE
670 og Hilmir SU 650 til Vest-
mannaeyja, Harpa RE 200 og
Þórshamar GK 200 til Grindavík-
ur, Helga III RE 400 til Eskifjarð-
ar og Dagfari ÞH 530 til Sandgerð-
is.
Á sunnudag voru 4 skip með
2.810 tonn: Hilmir SU 800 til
Akraness, Sighvatur Bjarnason
VE 680 til Bolungarvíkur, Huginn
VE 580 og Gígja VE 750 til Seyðis-
fjarðar.
Síðdegis á mánudag höfðu 9
skip tilkynnt um 7.410 tonna afla:
Beitir NK 1.150 til Neskaupstað-
ar, Galti ÞH 550 og Pétur Jónsson
.RE 1.050 óákveðnir, Sjávarborg
GK 800 til Sandgerðis, Þórður
Jónasson EA 680 og Hákon ÞH
980 í Krossanes, Guðmundur VE
880 til Vestmannaeyja, ísleifur VE
700 til Færeyja og Rauðsey AK
620 til Þórshafnar.
Landað úr Beiti NK.
N eskaupstaður:
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Mikill afli berst á land
- Beitir NK búinn að afla um 17
þúsund tonnum frá áramótum
MIKILL afli hefur borist á land
hér að undanförnu. Togararnir
þrír, sem gerðir eru út héðan,
hafa aflað vel og afli smábáta
hefur verið ágætur en nokkuð
misjafn.
Loðnuskipið Beitir NK, sem ekki
hóf veiðar fyrr en eftir áramót, hef-
ur aflað mjög vel og er komið með
á milli 16 og 17 lestir af um 21
þúsund tonna kvóta sínum.
Frá áramótum hafa borist hingað
40 þúsund lestir af loðnu en á sama
tíma í fyrra hafði verið landað hér
um 30 þúsund lestum. Mikil vinna
er því við vinnslu alls þessa sjávar-
afla og ekkert uppgjafarhljóð í
mönnum hér þrátt fyrir sífelldan
söng í fjölmiðlum um að allt sé að
fara í kalda kol í útflutningsfram-
leiðslugreinunum.
- Ágúst
Umsj ónarmaður „Manns vik-
unnar“ vísar ásökunum á bug
VEGNA kæru Gylfa Thorlacius
f.h. Lögreglufélags Reykjavíkur
vegna „Manns vikunnar" þann 27.
febrúar hefur Baldur Hermanns-
son, umsjónarmaður þáttarins,
sent frá sér greinargerð um þátt-
inn og tildrög hans og vísar hann
ásökunum Gylfa á bug.
Helstu forsendur þáttarins segir
Baldur í fyrsta lagi hafa verið að
nú hafi sá höggvið sem síst skyldi;
lögreglan og limlesting hennar á
Sveini Jónssyni hafí skapað alvarleg-
Skip Kvóti Fyrirfr. Frams.+ Frams.+ Kvóti 2/3 Eftir Túrar eftir 2/3
Albert GK 31 18.016 0 18.016 17.018 998 2
Beitir NK 123 24.302 2.556 831 20.915 16.436 4.479 4
BergurVE44 17.189 590 16.599 14.003 2.596 5
Bjami Ólafson AK 70 22.234 383 21.851 21.933 82 0
BörkurNK 122 22.482 581 9.500 31.401 26.308 5.093 5
Dagfari ÞH 70 17.354 0 17.354 8.407 8.947 18
EldborgHF 13 26.370 3.618 22.752 22.562 190 1
Erling KE 45 16.527 1.055 15.472 12.830 2.642 4
Eskfirðingur SU 9 17.933 363 17.570 14.708 2.862 5
Fífíll GK 64 18.182 1.269 16.913 15.213 1.700 3
Galti ÞH 320 17.685 0 17.685 8.153 9.532 18
GígjaVE340 19.174 650 - 18.524 17.239 1.285 2
GtsliÁmiRE375 18.182 360 17.827 14.339 3.483 2
Grindvíkingur GK 606 22.234 1.738 500 20.996 19.097 1.899 2
Guðmundur VE 29 20.663 0 8.592 400 28.855 19.104 9.751 11
Guðmundur Ólafur ÓF 91 17.851 478 17.373 15.129 2.244 4
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 19.174 741 700 19.133 19.384 251 0
Gullberg VE 292 18.016 0 806 18.822 15.265 3.559 6
Harpa RE 342 18.347 995 17.352 14.933 2.413 5
Hákon ÞH 250 19.670 1.305 18.365 11.923 6.442 7
Heimaey VE 1 17.354 0 17.184 170 170
Helgall RE 373 17.520 669 4.276 12.575 8.943 3.632 7
Helga IIIRE 67 16.610 7.500 9.110 2.132 6.978 16
Hilmir SU171 24.219 1.077 831 23.973 21.707 2.266 3
Hilmirll SU 177 17.768 834 16.934 17.405 471 0
Hafn GK 12 18.512 12 1.776 20.276 21.729 453 0
Huginn VE 55 18.016 1.421 3.806 12.789 6.179 6.610 12
HúnaröstÁR 150 18.264 1.433 16.831 15.894 937 2
Höfrungur AK91 20.580 1.281 19.299 16.855 3.695 5
ísleifur VE 63 19.174 1.315 17.859 15.119 2.740 4
Jón Finnsson RE 506 18.016 79 1.500 19.437 20.095 658 0
Jón Kjartansson SU 111 22.152 0 1.500 700 22.952 23.302 350 - 0
JúpíterRE 161 23.971 2.549 21.422 13.082 8.340 7
KapII VE4 18.678 240 18.438 15.564 2.878 5
Keflvíkingur KE 100 17.272 1.274 15.998 14.626 1.372 3
Magnús NK 72 17.354 1.368 15.986 16.345 359 0
Pétur Jónsson RE 69 19.753 1.956 17.797 11.557 6.240 7
Rauðsey AK 14 17.768 430 17.338 16.576 762 2
Sighvatur Bjamason VE 81 18.678 249 18.429 14.810 3.619 6
Sigurður RE 4 24.798 684 8.592 32.706 24.446 8.260 7
Sjávarborg GK 60 19.670 0 19.670 19.288 382 1
Skarðsvík SH 205 18.016 85 17.931 18.371 440 0
Súlan EA 300 19.670 847 18.823 17.822 1.001 2
SvanurRE45 18.678 98 18.580 13.267 5.313 8
Víkingur AK 100 24.219 2.063 22.156 23.175 1.019 0
VíkurbergGK 1 17.437 676 16.761 15.661 1.100 3
Þórður Jónasson EA 350 17.106 1.044 16.062 14.369 1.693 3
ÞórshamarGK75 17.933 1.360 16.573 14.221 2.352 4
Öm KE 13 17.851 2.013 400 16.238 16.802 564 0
an trúnaðarbrest, sér í lagi vegná
þess að frásögnum lögregluyfirvalda
og ráðherra beri ekki samán.
Þá hafí lögreglan fengið tækifæri
til að tjá sig í sjónvarpi en drengur-
inn ekki.
Nöfn þeirra starfsmanna lögregl-
unnar sem hlut eigi að máli séu
ekki kunn og það sé markviss að-
ferð til kæfa umræðuna á frum-
stigi. Þannig hafí verið búið um
hnúta að engin meiðyrði hafi heyrst
í þættinum. Baldur segir að sér hafí
verið kunnugt um að Sveinn bæri
ekki þungan hug til lögreglunnar
heldur eingöngu þeirra er hefðu lim-
lest hann. Þetta hefði komið skýrt
fram í þættinum.
Frásögnin hafi hafist á hinni
óleyfilegu handtöku, þar sem það
sem á undan hafi gengið hafi ekki
skipt máli. Áhugi þjóðarinnar á þess-
um atburði hafí beinlínis krafist þess
að Sveinn yrði valinn í þáttinn.
Málflutning Gylfa Thorlacius í
bréfí til Utvarpsráðs segir Baldur
fráleitan: Gylfí segi t.d. að kynning
þáttarins sé ærumeiðandi fyrir lög-
reglumenn. Því vísar Baldur á bug
og segir að undir inn gangsmyndum
hafi verið lesinn texti um vaxandi
harðneskju í þjóðlífinu. Lögregla eða
lögreglumenn hafí ekki verið nefndir
einu orði í þeim texta. Þá setji Gylfi
innan gæsalappa orð sem aldrei hafi
verið sögð. '
Ekki sé gefíð til kynna að lögregl-
an í Reykjavík hafi handleggsbrotið
manninn eins og Gylfi fullyrði í bréfi
sínu, það sé staðreynd sem hvorki
lögreglan né aðrir geti hrakið.
Baldur segir þá fullyrðingu Gylfa
rökleysu, að „þátturinn sé fullur af„-
rangfærslum og dylgjum sem ekki
fái staðist, t.d. sé hvergi minnst á
ástæðu handtöku mannsins". Það
séu ekki rangfærslur að tíunda ekki
frekar en gert hafi verið í fjölmiðlum
aðdraganda hinnar óleyfílegu hand-
töku.
Gagnrýni Gylfa á orðalag Baldurs
um fjárhagstjón af völdum limlest-
ingarinnar svarar Baldur því að það
megi vera hverjum manni ljóst að
Sveinn hafi nú þegar orðið fyrir til-
finnanlegu fjárhagstjóni. Það sé allt
annað mál hvort honum verði síðar
bætt það að fullu.
Um aðfinnslur í sinn gai-ð fyrir
að borga ferð Guðrúnar Sveinsdótt-
ur, móður Sveins, til Reykjavíkur,
segir Baldur að ella hefði þurft aö
greiða fyrir ferð þriggja manna aust-
ur á Eskifjörð. Sjónvarpið hafi ein-
göngu greitt fyrir flugfarið fram og
aftur, allan annan kostnað hafi hún
greitt.
Telur Baldur skrif Gylfa einkum
til þess fallin að hræða starfsmenn
Sjónvarpsins frá frekari meðferð
þessa máls og jafnframt að drepa
því á dreif með því að telja mönnum
trú um að sjónvarpsþátturinn
skemmi æru lögreglumanna meir en
verknaðurinn sjálfur og missagnir
ráðamanna um framvindu málsins.
FFSI:
Fisksala erlend-
is verði aukin
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Farmanna- og fiskimannasam-
bandi íslands vegna ákvörðunar
yfirnefndar Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins um að fiskverð hækki
ekki. í fréttatilkynningunni er
hvatt til aukinnar sölu fersks fisks
á erlendum mörkuðum.
„Fundur framkvæmdastjórnar
FFSI haldinn 7. marz mótmælir
harðlega ákvörðun Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hinn 5. marz síðast-
liðinn og þeim vinnubrögðumn, sem
viðhöfð voru.
Þetta er enn eitt dæmið um hvern-
ig ómarkvissar fjárfestingar í fisk-
iðnaði á fslandi eru fjármagnaðar.
Sjómenn verða alltaf að borga,
því verða þeir að sameinast til vam-
ar rétti sínum til að tryggja sér sömu
afkomu og aðrar stéttir búa við í
þessu landi.
Farmanna- og fískimannasam-
band Islands bendir sjómönnum á
■ mikilvægi fijáls fiskverðs er eykur
aðhald að útgerð og fiskvinnslu og
mun tryggja bezt kjör þeirra í framt-
íðinni.
Svar sjómanna við þessari fisk-
verðs ákvörðun hlýtur að vera krafa
um aukna sölu á ferskum físki á
erlendum mörkuðum til að tryggja
kjör sín.“