Morgunblaðið - 08.03.1988, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1988
6l?
SÍRKÍ Björns ætlar að spila á Fópetanuni í vikunni.
Togarablús
Sigurður Björnsson, eða Siggi Björns, kemur vestan af fjiirðum. Hann er togarasjómaður á
Gylli Í.S. frá Flateyri. Siggi treður upp við ýmis tækifæri, með hljómsveit eða aleinn. Hann
spilar á veitingahúsinu Fógetanum í vikunni, en þar er lifandi tónlist í heiðri höfð. Siggi hyggst
spila léttar ballöður, blús og allt þar á milli auk frumsamins efnis.
Höfundur
„Farðu ekki“
viðstaddur
sýningu
Margarethe Johansen, höfund-
ur „Farðu ekki“, sem Ás-
leikhúsið sýnir um þessar mundir,
var viðstödd sýningu á verkinu
síðasta sunnudag. Að lokinni sýn-
ingu voru umræður sem áhorfend-
um var boðið að taka þátt í ásamt
Margarethe, Kristínu Waage, deild-
arstjóra fjölskyldudeildar SÁÁ og
aðstandendum sýningarinnar. Um
höfundinn hefur m.a. verið sagt að
engu sé líkara en hún hafi verið
fluga á vegg hjóna, þar sem ofbeldi
er ríkjandi þáttur í samskiptunum.
Margarethe lagði aftur á móti
áherslu á í umræðunni að leiritið
fjallaði ekki aðallega um ofbeldi,
heldur ástina.
COSPER
10716 £11* COSPER
— Ég veit um róglegan stað þar sem við getum legið naktar í
sólbaði.
OPNUM NYJAN LIFANDI
STAÐ NÆSTA FIMMTUDAG
Bíókjallarinn (áður Café Rosenberg, í
Kvosinni) hefur nú breyst í líflegt
veitingahús með LIFANDI TÓNLIST, léttum
mat og Ijúfu andrúmslofti.
Hljómsveitirnar SALIN HANS JÓNS MÍNS
og BÍÓ TRÍÓIÐ sjá um tónlistarflutning í
marsmánuði. JónÓlafsson, Stefán Hilmarsson, Rafn
Jónsson, Björn Vilhjálmsson, Haraldur Þorsteinsson og
Guðmundur Jónsson
Enginaðgangseyrir.
Opiöá hverju kvöldi frákl. 18-01. 20 ára aldurstakmark.
1 O . M ARS
Þrjérþælgókr
PEE WEE'SBIG
ADVENTURE
Pee Wee Herman er nú einhver
vinsælasti grínleikari Banda-
ríkjanna og tími til kominn að
íslendingar kynnist sérstæðum
töktum hans og óvenjulegum
uppátækjum. Ævintýri Pee Wee
Herman eru ótrúleg en umfram
allt sprenghlægileg. Sjón er
sögu ríkari.
GUNSMOKE
-RETURN
TODODGE
Ótrúlegt en satt, Matt Dillon
lögreglustjóri snýr aftirtil
Dodge City. James Arness og
Amanda Black (sú með fegurð-
arblettinn) eru i aðalhlutverkum
i þessari sérlega vel heppnuðu,
splunkunýju „GUNSMOKE"-
myndar. Óþarfi er að kynna þau
fyrirfyrrverandi aödáendum
„kanasjónvarpsins" og hinir
ættu ekki að láta tækifærið
fram hjá sér fara, nú þegar
þeim býðst tækifæri til að sjá
„GUNSMOKE".
CASSANDRA
Hér er á ferðinni ástralskur
spennutryllir í hæsta gæða-
flokki. Cassöndru dreymir
morð og smátt og smátt verða
martraðirnar að veruleika sem
fjölskylda hennar upplifir á
hryllillegan hátt. Enginn veit
hver morðinginn er nema Cas-
sandra, sem hefur séð hann í
draumum sínum. Þetta veit
morðinginn líka... Cassandra
verður þvíað deyja, nema ....
THE FLY
Búðu þig undir aö verða vitni að ótrú-
legustu flutningum allra tima. Tilraun sem
heföi getaö tekist, ef ekki heföi komiö til litil
fluga. Aðrar eins tæknibrellur hafa aldrei sést
í einni og sömu myndinni. Þú veröur aö trúa
herpingnum i vöðvunum og kalda svitánum
sem slær út, þegar þú sórö „THE FLY“.
ONECRAZY
SUMMER
John Cusack (The Sure Thing, Better Off
Dead), Bobcat Goldwaith (Police Academy
1,2,3 og 4 og Burglar) og Demi More
(About Last Night) tryggja aö „ONE CRAZY
SUMMER" er ekki bara brjálæðislega fynd-
in heldur líka ein besta mynd sinnar tegund-
ar. „ONE CRAZY SUMMER" er pottþétt
skemmtun fyrir alla aldurshópa.
DEFENCE PLAY
Scott Benton dregst inn i hildarleik sem
hann hélt aö væri aðeins til í skóldsögum.
Allt er lagt undir í átökum stórveldanna i
yfirráöum um geiminn. Honum verður
skyndilega Ijóst að lif hans er ekki mikils
metiö í þessum leik þar sem engar reglur
gilda. „DEFENCE PLAY“ er mjög góö og
-'oennandi mynd i anda „WAR GAMES“.
TWO SOLITUDES
Dramatisk lifsreynslusaga sem endurspegl-
ar átök hins nýja og gamla tíma í upphafi
aldarinnar. Stacy Keach (Mike Hammer) og
Jean Pierre Aumont (Blackout) fara með aöal-
hlutverkin i þessari magnþrungnu mynd, sem
gerö er eftir kanadiskri metsölubók.
á úrvals myndbandaleigum