Morgunblaðið - 17.03.1988, Side 9

Morgunblaðið - 17.03.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 9 9345-4,^ Slimþllfíalil uintl hf., Reykjavík f KAUPÞING HF Húsi verslunarinnar • sími 68 69 88 SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 17. MARS EININGABRÉF 1 2.718,- EININGABRÉF 2 1.582,- EININGABRÉF 3 1.712,- LÍFEYFISBRÉF 1.366,- VÍSUM TILVEGAR Á VERÐBRÉFA- MARKAÐINUM Kaup, sala og endurfjárfesting. Kaupþing. Miðstöð verðbréfaviðskiptanna. Áfengi, heilsa 08 gestrisni 4 HEILBRIGÐISMÁL 4/1987 Notkun og misnotkun áfengis Jónas Hallgrímsson, prófessor, ritar grein í nýlegt hefti Heilbrigðismála: „Áfengi, heilsa og gestrisni.“ Staksteinar sjá ástæðu til að staldra um stund við hugleiðingar prófessorsins um notkun og misnotkun áfengis. Afengisneyzla íslendinga Jónas Hallgrímsson, prófessor, segir í grein í Heilbrigðismálum: „Áfengisneyzla íslend- inga er enn einu sinni til umræðu og núna vegna frumvarps á Alþingi um leyfi til sölu áfengs öls, á sama hátt og nú eru seld létt og sterk vin. Heildaráfengisneyzla íslendinga er sú lægsta i Evrópu. Samt sem áður mun misnotkun íslend- inga á áfengi vera jafna- lgeng og hjá mörgum öðrum þjóðiun sem hafa miklu hærri heildar- neyzlu á hvem íbúa. Þetta misræmi má skýra með drykkjuvenjum ís- lendinga, sem drekka mikið í senn, en með hvíldum, og dagdrykkja í hófi er lítið stunduð hér. Sala áfengs öls á al- mennum markaði kemur að allra dómi til með að auka litratölu hreins vinanda á hvem íbúa. Stóra spumingin er sú, hvort heilsufarsleg og félagsleg áhrif breyttra drykkjusiða, sem munu fylgja bjómum, verði til skaða eða ekki. Enda þótt ekki hafi verið sannað að hófleg neyzla áfengis valdi líkamlegu eða andlegu heilsutjóni er ekki nokkr- um blöðum um það að fletta að félagsleg áhrif áfengis em mikil, jafnvel í minnstu skömmtum. Tilgangur þeirra sem áfengis neyta er fyrst og fremst að ná fram skap- breytingum, og jafn- framt að sefa þreytu og líkamleg ónot sem fyrir kunna að vera. Áfengi- sneyzla á föstudags- og laugardagskvöldum tengist þessu beint og er til þess gerð að sefa eða fresta afleiðingum er- fiðrar vinnuviku. Sam- kvæmi, sem fólk sækir, em til þess að skemmta sér og þvi sldptir máli að öllum liði vel og þeir nái saman. Áfengið er notað til þess að bijóta múra milli fólks, en verð- ur oft til þess, þegar lengra en gengið, að ekki aðeins brotna múrar heldur líka borgir lagðar i rúst.“ Áfengisáhrif „Litíð magn áfengis daglega gætí verið skað- legra heilsu en talið er. Vægustu áfengisáhrif draga úr skapandi hugs- un og nákvæmni hreyf- inga, þótt þess verði sjaldan vart nema með mælingum. Þetta finna þó flestir, sem áfengis neyta, hjá sjálfum sér ef vel er að hugað, þótt ekld sjáist ytri merki. Áfengi kann að vera gott til þess að draga tíma- bundið úr streitu, en þess ber að gæta að áfengi sem slíkt er streituvald- ur, og sitja flestir verr eftír en áður þegar af þeim rennur. Viman gef- ur falskan kraft þar sem hún losar aðeins um hömlur og eftir sem áður er þörf hvíldar, sem er því frestað þar til víman er horfin. Þeir sem neyta áfengis reglulega og daglega, þótt. í litlu magni sé, ná sjaldan sínu bezta. Hjá þeim gætir á víxl þreytu eftir fyrri drykkju og áfengis- áhrifa." Gestrisni „Fyrir nokkrum árum var í þessu rití vakin át- hygii á auglýsingu frá heilbrigðisstjóminni á Nýja Sjálandi, þar sem fólki var bent á að hafa í huga, þegar veizlur eru skipulagðar, að sumir neyta ekki áfengis og að ókurteisi er að ota áfengi að fólki. Þetta ættu Is- lendingar að hafa hug- fast. Hér ríkir almenn velmegun og henni teng- ist mikill kaupmáttur flestra og kemur hann meðal annars fram í auknum áfengiskaupum. Sífellt er meira um það að boðið sé upp á áfenga drykki í heimahúsum, hvort sem um er að ræða formleg matarboð eða óvæntar tækifærisheim- sóknir. Hið gamla og góða kaffi er á undan- haldi og munu sumir telja tímabært, þar sem Is- lendingar eru á meðal mestu kaffiþambara heimsins. En skiptí á kaffi og áfengi eru slæm skiptí. Síðdegisdrykkjur af ýmsu tilefni, vegna af- mæla fólks eða stofnana eða kynningar á nýjum vörum eða fyrirtækjum, eru dagiegt brauð. Þar er gestum mætt með bakka með úrvali drykkj- arfanga. Þeir sem ekki vilja neyta áfengis í það skiptí, og þeir eru oft margir, þurfa að leita vel á bakkanum að einhveiju fyrir sig. Oft er þar að- eins eitt glas eða jafnvel ekkert án áfengis. Þarf gestur þá að biðja sér- staklega um óáfengan drykk og fylgja því snún- ingar fyrir þjón og leið- indi fyrir gest. Gestrisni á að vera sýnd á þann hátt, að veit- ingar séu þær sem við eiga og bezt henta hveij- um gestí;“ Hnýtingar Fluguhnýtingarnám- skeiðin vinsæiu eru nú í fullum gangi. Nú erhver að verða síðastur til að komast að fyrir vorið. Tímapantanir í síma 687090. Áskriftarsímmn er 83033 Hocky SKAUTAR ÚTILlF Glæsibæ, sími 82922.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.