Morgunblaðið - 17.03.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
9
9345-4,^
Slimþllfíalil uintl
hf., Reykjavík
f KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar • sími 68 69 88
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 17. MARS
EININGABRÉF 1 2.718,-
EININGABRÉF 2 1.582,-
EININGABRÉF 3 1.712,-
LÍFEYFISBRÉF 1.366,-
VÍSUM TILVEGAR
Á VERÐBRÉFA-
MARKAÐINUM
Kaup, sala og endurfjárfesting.
Kaupþing.
Miðstöð verðbréfaviðskiptanna.
Áfengi,
heilsa
08
gestrisni
4 HEILBRIGÐISMÁL 4/1987
Notkun og misnotkun
áfengis
Jónas Hallgrímsson, prófessor, ritar
grein í nýlegt hefti Heilbrigðismála:
„Áfengi, heilsa og gestrisni.“ Staksteinar
sjá ástæðu til að staldra um stund við
hugleiðingar prófessorsins um notkun
og misnotkun áfengis.
Afengisneyzla
íslendinga
Jónas Hallgrímsson,
prófessor, segir í grein í
Heilbrigðismálum:
„Áfengisneyzla íslend-
inga er enn einu sinni til
umræðu og núna vegna
frumvarps á Alþingi um
leyfi til sölu áfengs öls,
á sama hátt og nú eru
seld létt og sterk vin.
Heildaráfengisneyzla
íslendinga er sú lægsta i
Evrópu. Samt sem áður
mun misnotkun íslend-
inga á áfengi vera jafna-
lgeng og hjá mörgum
öðrum þjóðiun sem hafa
miklu hærri heildar-
neyzlu á hvem íbúa.
Þetta misræmi má skýra
með drykkjuvenjum ís-
lendinga, sem drekka
mikið í senn, en með
hvíldum, og dagdrykkja
í hófi er lítið stunduð hér.
Sala áfengs öls á al-
mennum markaði kemur
að allra dómi til með að
auka litratölu hreins
vinanda á hvem íbúa.
Stóra spumingin er sú,
hvort heilsufarsleg og
félagsleg áhrif breyttra
drykkjusiða, sem munu
fylgja bjómum, verði til
skaða eða ekki.
Enda þótt ekki hafi
verið sannað að hófleg
neyzla áfengis valdi
líkamlegu eða andlegu
heilsutjóni er ekki nokkr-
um blöðum um það að
fletta að félagsleg áhrif
áfengis em mikil, jafnvel
í minnstu skömmtum.
Tilgangur þeirra sem
áfengis neyta er fyrst og
fremst að ná fram skap-
breytingum, og jafn-
framt að sefa þreytu og
líkamleg ónot sem fyrir
kunna að vera. Áfengi-
sneyzla á föstudags- og
laugardagskvöldum
tengist þessu beint og er
til þess gerð að sefa eða
fresta afleiðingum er-
fiðrar vinnuviku. Sam-
kvæmi, sem fólk sækir,
em til þess að skemmta
sér og þvi sldptir máli
að öllum liði vel og þeir
nái saman. Áfengið er
notað til þess að bijóta
múra milli fólks, en verð-
ur oft til þess, þegar
lengra en gengið, að ekki
aðeins brotna múrar
heldur líka borgir lagðar
i rúst.“
Áfengisáhrif
„Litíð magn áfengis
daglega gætí verið skað-
legra heilsu en talið er.
Vægustu áfengisáhrif
draga úr skapandi hugs-
un og nákvæmni hreyf-
inga, þótt þess verði
sjaldan vart nema með
mælingum. Þetta finna
þó flestir, sem áfengis
neyta, hjá sjálfum sér ef
vel er að hugað, þótt
ekld sjáist ytri merki.
Áfengi kann að vera gott
til þess að draga tíma-
bundið úr streitu, en þess
ber að gæta að áfengi
sem slíkt er streituvald-
ur, og sitja flestir verr
eftír en áður þegar af
þeim rennur. Viman gef-
ur falskan kraft þar sem
hún losar aðeins um
hömlur og eftir sem áður
er þörf hvíldar, sem er
því frestað þar til víman
er horfin. Þeir sem neyta
áfengis reglulega og
daglega, þótt. í litlu
magni sé, ná sjaldan sínu
bezta. Hjá þeim gætir á
víxl þreytu eftir fyrri
drykkju og áfengis-
áhrifa."
Gestrisni
„Fyrir nokkrum árum
var í þessu rití vakin át-
hygii á auglýsingu frá
heilbrigðisstjóminni á
Nýja Sjálandi, þar sem
fólki var bent á að hafa
í huga, þegar veizlur eru
skipulagðar, að sumir
neyta ekki áfengis og að
ókurteisi er að ota áfengi
að fólki. Þetta ættu Is-
lendingar að hafa hug-
fast. Hér ríkir almenn
velmegun og henni teng-
ist mikill kaupmáttur
flestra og kemur hann
meðal annars fram í
auknum áfengiskaupum.
Sífellt er meira um það
að boðið sé upp á áfenga
drykki í heimahúsum,
hvort sem um er að ræða
formleg matarboð eða
óvæntar tækifærisheim-
sóknir. Hið gamla og
góða kaffi er á undan-
haldi og munu sumir telja
tímabært, þar sem Is-
lendingar eru á meðal
mestu kaffiþambara
heimsins. En skiptí á
kaffi og áfengi eru slæm
skiptí.
Síðdegisdrykkjur af
ýmsu tilefni, vegna af-
mæla fólks eða stofnana
eða kynningar á nýjum
vörum eða fyrirtækjum,
eru dagiegt brauð. Þar
er gestum mætt með
bakka með úrvali drykkj-
arfanga. Þeir sem ekki
vilja neyta áfengis í það
skiptí, og þeir eru oft
margir, þurfa að leita vel
á bakkanum að einhveiju
fyrir sig. Oft er þar að-
eins eitt glas eða jafnvel
ekkert án áfengis. Þarf
gestur þá að biðja sér-
staklega um óáfengan
drykk og fylgja því snún-
ingar fyrir þjón og leið-
indi fyrir gest.
Gestrisni á að vera
sýnd á þann hátt, að veit-
ingar séu þær sem við
eiga og bezt henta hveij-
um gestí;“
Hnýtingar
Fluguhnýtingarnám-
skeiðin vinsæiu eru nú í
fullum gangi. Nú erhver
að verða síðastur til að
komast að fyrir vorið.
Tímapantanir í
síma 687090.
Áskriftarsímmn er 83033
Hocky
SKAUTAR
ÚTILlF
Glæsibæ, sími 82922.