Morgunblaðið - 14.05.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
Fundi utanríkisráðherra risaveldanna lokið í Genf:
31
Samkpmulag mn túlkun
Washington-sáttmálans
Genf, Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR risaveldanna þeír Eduard Shevardnadze og
George Shultz tílkynntu á fimxntudag að ágreiningur varðandi eftírlit
með ákvæðum afvopnunarsáttmálans, sem undirritaður var i Wash-
ington á síðasta ári, væri úr sögunni. Bandariskir embættísmenn kváðu
sovésku fulltrúanna hafa viðurkennt túlkun Bandarikjamanna á eftir-
litsákvæðunum og sögðust te\ja að samningurinn hlytí nú formlega
staðfestingu Bandaríkjaþings. Tveggja daga fundi utanrfldsráðher-
ranna lauk i Genf á fimmtudag en viðræður þeirra voru liður i undir-
búningi fyrir fund þeirra Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta og
Mikhails Gorbatsjovs Sovétleiðtoga i Moskvu í lok þessa mánaðar.
Ónefndir bandarískir embættis-
menn sögðu að Sovétmenn hefðu
fallist á að heimila bandariskum eft-
irlitsmönnum að skoða einstaka eld-
flaugahluta og smærri eldflaugahylki
við hlið samsetningarverksmiðju
Sovétmanna I Votinsk, við rætur
Úral-flalla, og munu þeir þannig
geta gengið úr skugga um að þar
séu ekki framleiddar meðaldrægar
eldflaugar af gerðinni SS-20. Þá féll-
ust Bandaríkjamenn á þá kröfu Sov-
étmanna að eyðileggja bæri með öllu
skammdrægar eldflaugar af gerðinni
Pershing 1-A í Vestur-Þýskalandi.
Eldflaugar þessar heyra undir Vest-
ur-Þjóðveija en kjarnaoddamir sem
þær bera eru í eigu Bandaríkja-
manna. Sérfræðingar beggja risa-
veldanna önnuðust samningaviðræð-
umar í Genf en þeir Shultz og She-
vardnadze ræddu deilu risaveldanna
stuttlega á lokuðum fundi.
Æði rennur
á stuðnings-
menn Ajax
Amsterdam, Reuter.
TVÖ hundruð æstir og örvita
áhangendur hollenzka knatt-
spyrnuliðsins Ajax, gengu ber-
serksgang í miðborg Amsterdam,
eftír að lið þeirra beið ósigur fyr-
ir belgiska liðinu Mechelen í úrslit-
um um Evrópubikarinn.
Lögreglan segir að Ajax-stuðn-
ingsmenn hafl farið með ópum og
óhljóðum um miðborg Amsterdam,
brotið rúður og grýtt lögreglu, þegar
hún var send á vettvang að reyna
að lægja reiðiöldur Ajaxmanna.
Fjórtán a.m.k. voru handteknir og
vitað er að tveir slösuðust nokkuð.
Vegfarendur, sem uggðu ekki að
sér og voru á ferli, þegar Ajaxmenn
tóku að láta að sér kveða, forðuðu
sér inn á bari og kaffíhús og létu
fyrirberast þar í góðu yfírlæti, unz
löirreirla hafði komið reirlu á.
Öllum spurningum svarað
Ágreiningur um framkvæmd eftir-
lits var gerður opinber fyrr í þessari
viku er öldungadeild Bandaríkja-
þings hugðist taka samninginn til
umræðu. Var ákveðið að fresta henni
þar til ágreiningurinn hefði verið
jafnaður. Shultz sagði á blaðamanna-
fundi á fímmtudag að „öllum spum-
ingum" hefði nú verið svarað og því
gætu þingmenn öldungadeildarinnar
tekið til starfa. Shevardnadze sagði
að ágreiningurinn hefði komið upp
fyrir misskilning og væri þar um að
kenna „vantrausti" í samskiptum
risaveldanna. George Shultz hélt í
gær til Brussel til að skýra fulltrúum
aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins
frá viðræðunum í Genf en Shevardn-
adze hélt til Austur-Berlínar til fund-
ar við ráðamenn ríkja Varsjárbanda-
lagsins.
Bandarískir embættismenn sögð-
ust líta svo á að samningurinn yrði
formlega staðfestur fyrir Moskvu-
fund þeirra Reagans og Gorbatsjovs
og gætu leiðtogamir við það tæki-
færi skipst á skjölum þar að lút-
andi. Þannig yrði samningurinn um
útrýmingu meðal- og skammdrægra
kjamorkueidflauga á landi í brenni-
depli S Moskvu líkt og gerðist á leið-
togafundinum S Washington í des-
ember á siðasta ári.
Langdræg kjarnorkuvopn
Vonir höfðu verið bundnar við
unnt yrði að undirrita samkomulag
um helmingsfækkun langdrægra
kjamorkuvopna á fundinum f
Moskvu. Leiðtogamir urðu sammála
um að stefna að þessu marki á fundi
sínum í Reykjavík árið 1986 og á
Washington-fundinum var afráðið að
feia samningamönnum risaveldanna
í Genf að ganga frá drögum að slfku
samkomulagi, einkum og sér f lagi
ákvæðum um eftirlit. Ágreiningurinn
um túlkun eftirlitsákvæða Washing-
ton-sáttmálans þykir sýna ljóslega
hve tæknilegar hliðar afvopnunarvið-
ræðna em margar og flóknar. At-
hugasemdir öldungadeildarinnar
þykja ekki gefa tilefni til bjartsýni
um að samkomulag um fækkun lang-
drægra kjamorkuvopna hlyti auð-
veldlega staðfestingu þingdeildarinn-
ar. Þá hefur og verið bent á að for-
setakosningar fara fram í Banda-
ríkjunum í nóvember og er sýnt að
slíkur sáttmáli hlyti ekki staðfestingu
í valdatíð Ronalds Reagans. Ýmsir
virtir afvopnunarsérfræðingar hafa
gefíð til kynna að hugsanlegt sé að
samningur um fækkun langdrægra
kjamorkuvopna verði tilbúinn til
undirritunar í haust. George Shultz
sagði f Genf á fimmtudag að samn-
ingur í þessa veru yrði gerður „fyrr
eða sfðar" og kvaðst ekki vilja úti-
loka að Reagan og Gorbatsjov kæmu
einu sinni enn saman til fundar áður
en Reagan lætur af störfum. Hins
vegar var á Shultz að skilja að hann
teldi þetta fjarlægan möguleika.
Hugsanlegt er að gefín verði út sam-
eiginleg yfirlýsing í lok Moskvu-
fundarins þar sem tíundaður verði
sá árangur sem náðst hefur í viðræð-
um um fækkun langdrægra kjam-
orkuvopna á undanfömum tveimur
ámm og hann þar með skjalfestur.
Eduard Shevardnadze,
utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna (t.h), heilsar
Erich Honecker, leiðtoga
austur-þýska kommúni-
staflokksins, á fundi ráða-
manna ríkja Varsjár-
bandaiagsins í Austur-
Berlin í gær.
Reuter
GEGNUM GLE RIÐ
SÍMI— 688081 — S K I P H O L I I ~ 50B
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10-17
SUNNDAG FRÁ KL. 13-17
Rýmingarsala
Við þurfum að rýma til á lagernum hjá okkur og seljum þess vegna með
miklum afslætti ósóttar pantanir og lítillega útlitsgallaðar hurðir.
Innihurðir, útihurðir,
svalahurðir, parket o.fl.9 o.fl.
Komið í Skeifuna 19
og lítið á úrvalið.
Opnum kl. 9.00 í dag, laugardag. Sk6lfunni 19.
Völundarsmíð hf.