Morgunblaðið - 14.05.1988, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988
39
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Við Menntaskólann við Hamrahlíð er laus
til umsóknar ein kennarastaða í: Heimspeki,
listfræði, sögu, trúfræði og þjóðfræði.
Við Menntaskólann við Sund vantar kenn-
ara í íslensku (1 /2 staða) og stærðfræði (heil
staða). Þá vantar stundakennara í eftirtöld-
um greinum: íslensku, dönsku, ensku, þýsku,
latínu, spænsku, sögu, heimspeki, félags-
fræði, stjórnmálafræði, jarðfræði, efnafræði,
stjörnufræði, stærðfræði, tölvufræði og
íþróttum (leikfimi pilta).
Við Flensborgarskólann í Hafnarfirði eru
lausar til umsóknar kennarastöður í íslensku,
þýsku, 1/2 staða í félagsfræði og á haustönn
vantar kennara í hálfa stöðu í dönsku. Þá
er framlengdur umsóknarfrestur á áður aug-
lýstum kennarastöðum í stærðfræði og eðlis-
fræði annars vegar og í viðskiptagreinum
(þ.e. bókfærslu og hagfræðigreinum) hins
vegar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 10.
júní nk.
Umsóknir um stundakennslu sendist skóla-
meisturum viðkomandi skóla.
Menntamálaráðuneytið.
Vélstjórar
Rafveita Siglufjarðar:
Vélstjóra vantar í Skeiðsfossvirkjun í 15
mánuði frá 1. júní nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SMS og
bæjarstjórnar Siglufjarðar.
Allar nánari upplýsingar gefa Sverrir Sveins-
son, veitustjóri í símum 96-71700 og
96-71414 og Heiðar Albertsson, stöðvar-
stjóri í símum 96-73222 og 96-73203.
Ífcll Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra
Hátúni 12 - Sfmi 29133 - Pósthólf 5147 - 105 Reykjavík - fsland
Sumarafleysingar
Vinnu- og dvalarheimilið í Hátúni 12 vantar
starfsfólk til sumarafleysinga við aðhlynn-
ingu. Hringið og fáið nánari upplýsingar hjá
hjúkrunarforstjóra í síma 29133.
- nemar
Bakaranema og aðstoðafólkvantartil starfa.
Sími 71667.
£peinn*ilafeari
BAKARI — KONDITORI — KAFFI
.................
"i"ii,s,,*,,:,,sl,r
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Fóstrur - starfsfólk
Við hjá Landakoti erum að opna nýtt barna-
heimili sem fékk nafnið Öldukot. Barnaheim-
ilið er staðsett í gömlu og huggulegu húsi
við Öldugötu og er áætlað að opna það um
mánaðamótin júní/júlí. Á barnaheimilinu
verða tvær deildir með börn á aldrinum 2ja-
4ra og 4ra-7 ára. Nú er tækifæri fyrir þá sem
hafa áhuga á að byggja upp gott og skemmti-
legt barnaheimili með okkur.
Nánari upplýsingar gefur Sigurrós í síma
19600-250.
Reykjavík 13. maí 1988.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Við Menntaskólann við Hamrahlíð vantar
stundakennara í eftirtöldum greinum:
Dönsku, eðlisfræði, efnafræði, ensku, félags-
fræði, frönsku, hagfræði, hússtjórn, íslensku,
jarðfræði, kínversku, leiklist, lögfræði,
líffræði, myndlist, rússnesku, sálarfræði,
sögu, spænsku, stærðfræði, tölvufræði og
þýsku.
Umsóknir sendist rektor Menntaskólans við
Hamrahlíð, 105 Reykjavík, fyrir 5. júní nk.
Menntamálaráðuneytið.
Símvirki - rafvirki
óskast til starfa hjá rótgrónu fyrirtæki í
Reykjavík. Starfssvið m.a. sölumennska á
símkerfum og öðrum rafeindabúnaði, svo og
vinna við uppsetningu og umsjón á tilheyr-
andi. Starfsreynsla æskileg. Þarf að geta
hafið störf sem fyrst. Laun samkvæmt sam-
komulagi.
Umsóknum skal skilað til auglýsingadeildar
Morgunblaðsins merktum: „X - 3735“ fyrir
18. maí nk.
Hótelstarf
Starfsfólk óskast til áfyllingar og eftirlits á
smábörum á milli kl. 10.00 og 14.00 sex
daga vikunnar.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir mið-
vikudaginn 18. maí merkt: „H - 12603“.
Bæjarstjóri
- Hveragerði
Hveragerðisbær óskar að ráða bæjarstjóra
til starfa sem fyrst. Hveragerðisbær er 1500
manna bæjarfélag í örum vexti og áhuga-
verðri uppbyggingu.
Umsóknir skulu sendar til forseta bæjar-
stjórnar, Hafsteins Kristinssonar, Þelamörk
40, 810 Hveragerði og veitir hann nánari
upplýsingar í símum 99-4167 og 99-4133
(heima).
Umsóknarfrestur er til 24. maí 1988.
Duglegur sölumaður
óskast strax til starfa hjá gamalgróinni fast-
eignasölu í miðborginni. Til greina kemur
byrjandi með lögfræði- eða viðskiptafræði-
þekkingu.
Skilyrði: Góð kunnátta í íslensku og vélritun.
Nokkur kunnátta á tölvu æskileg.
Eiginhandarumsókn, með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir kl. 17.00, þriðjudaginn
10. maí nk. merkt: „Sölumaður - bestu kjör
- 4971 “.
Sjólfsbjörg - londssambomi fatloðra
Hitúni 12 - Sími 29133 - Pónhílf 5H7 - 105 Reykjavlk - tlUnd
Sjúkraliðar
- aðstoðarfólk
Sjálfsbjörg, vinnu- og dvalarheilmilið í Hátúni
12, óskar að ráða sjúkraliða og aðstoðarfólk
sem fyrst. Sveigjanlegur vinnutími.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 29133.
Meinatæknar
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs óskar eftir
að ráða meinatækni til starfa frá júlí nk.
Umsóknir sendist undirrituðum sem jafn-
framt veitir allar nánari upplýsingar í síma
92-14000.
Framkvæmdastjóri.
Keflavík
Vantar unglinga í humarvinnslu.
Upplýsingar í síma 92-11196 og 92-12516
(verkstjóri).
Keflavíkhf.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
ýmislegt
Hestasveinn
Börn og unglingar athugið 13 daga dvöl að
Glæsibæ, Skagafirði í sumar.
Farið verður á hestbak einu sinni á dag.
Sund, skoðunarferðir og fleira til gamans
gert.
Upplýsingar gefur Ragnheiður Björnsdóttir í
síma 95-5530. .............
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJANESSVÆÐI
Sumartilboð - fötluð börn
Svæðisstjórn Reykjanessvæðis hvetur for-
eldra fatlaðra barna og ungmenna á Reykja-
nesi til að koma í Digranesskóla kl. 13.30
laugardaginn 14. maí og kynna sér sumartil-
boð barna sinna. Jafnframt hvetur svæðis-
Btjórn fólk til að taka þátt í vorblóti Öryrkja-
bandalags íslands og Landssamtakanna
Þroskahjálpar eð kynningu lokinni_
[
landbúnaður
Jörð til leigu
í fallegri sveit á Norðurlandi 300 km frá
Reykjavík. Enginn fullvirðisréttur. Gott íbúð-
arhús og peningshús. Tilvalin til hrossa- eða
svínabúskapar o.fl., einnig fyrir félagasamtök
og fjölskyldur að nota íbúðarhúsið sem sum-
arbústað. Möguleiki á veiði. Upplýsingar í
símum 95-4312 og 95-4499.