Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 1
72 SIÐUR B/C
180. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovéskt dagblað:
Skæruliðar
munu kljúfa
Afganistan
Moskvu. Reuter.
MÁLGAGN sovéskra kommúnista,
PRA VDA, skýrði i gær frá því að
afganskir skæruliðar hefðu fellt
hermenn fyrir Sovétmönnum sem
nú flytja lið sitt á brott frá Afgan-
istan. Einnig sagði blaðið að
skæruliðar hygðust setja á lagg-
irnar „bráðabirgðastjórn" í
Kandahar i suðurhluta Afganist-
ans og kljúfa þannig rikið.
í ítarlegri frétt á forsíðu blaðsins
sagði að þrir sovéskir hermenn hefðu
fallið og sex særst í árásum skæru-
liða um síðustu helgi er sovéska liðið
hélt á brott frá Kandahar-héraði (
suðurhluta Afganistans. Þar væru
u.þ.b. 200 skæruliðahópar sem sam-
anlagt teldu um 11.000 virka
stríðsmenn.
„Erfíðir tímar eru framundan en
við munum ekki gefast upp,“ hafði
blaðið eftir ofursta í Kabúl-hemum
er viðurkenndi að sumir liðsmanna
hans hefðu gengið í lið með skærulið-
um.
TASS skýrði frá því að skæruliðar
hefðu í gær skotið 13 flugskeytum
á Kabúl. Einn óbreyttur borgari hefði
fallið og þrír særst.
Burma:
Enn götu-
bardagar
í Rangoon
Andófsmenn
ræna vopnabúr
Bangkok ( Thailandi. Reuter.
MIKLIR götubardagar urðu í
Rangoon, höfuðborg Burma, (gær
milli öryggissveita og andófs-
manna sem höfðu uppi mótmæli
gegn ríkisstjórninni, þriðja daginn
í röð. Rangoon-útvarpið sagði að
óeirðalögreglumenn hefðu skotið
fimmtán sinnum á andófshópa í
borginni. Að sögn útvarpsins féllu
33 menn i óeirðunum i gær og 59
særðust.
Útvarpið bætti því við að að þrír
af liðsmönnum lögreglunnar hefðu
verið hálshöggnir af mótmælendum
í verkamannahverfínu Okkalapa þar
sem harðir götubardagar geisuðu.
Tveir lögreglumenn að auki hefðu
týnt þar lifí. Æstur múgur ryddist
nú um götur Rangoon, ryfi upp járn-
brautarteina, brenndi lögreglustöðv-
ar, bensínstöðvar og farartæki og
gerði annan óskunda af sér.
Erlendir stjómarerindrekar segja
að andófsmennimir, sem mótmæla
26 ára langri harðstjóm í landinu
og fæðuskorti undanfama mánuði,
hafí lagt undir sig nokkrar lögreglu-
stöðvar og ráði nú yfir vopnum.
Rangoon-útvarpið skýrði frá óeirð-
um í mörgum öðrum borgum þ. á
m. Mandalay, næst-stærstu borg
landsins og Moulmein. Laun ýmissa
hópa opinberra starfsmanna, m.a.
hermanna, voru hækkuð á þriðjudag
og lofað að sveltandi fólki yrði séð
fyrir neyðarhjálp. Staða Sein Lwins,
hins nýja leiðtoga landsins, er nú
talin ótrygg.
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra íslands, og Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, ganga út úr Hvíta húsinu að loknum fundi þeirra.
Heimsókn Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra til Washington:
Reagan segir fríverslun
milli ríkjanna mögulega
Forsætisráðherra segir að ekki sé verið að ræða um fríverslunarsamning
Washington. Frá óla Birni Kárasyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
„SAMSKIPTIN við ísland eru mjög góð núna og þetta [fríverslunar-
samningur] mundi líklega gera þau enn betri,“ sagði Ronald Reag-
an, Bandaríkjaforseti, þegar fréttaritari Morgunblaðsins spurði hann,
stuttu fyrir fund hans með Þorsteini Pálssyni, forsætisráðherra,
hvort til greina kæmi að gerður yrði fríverslunarsamningur milli
Bandarikjanna og íslands, líkur þeim sem Bandaríkin hafa gert við
Kanada. Og Bandaríkjaforseti svaraði þegar hann var spurður að
því hvort hann væri sjálfur fylgjandi slíkum samningi: „Já, hug-
myndafræði mín gerir ráð fyrir frjálsri og sanngjarnri verslun um
allan heim.“
Þorsteinn Páísson, forsætisráð-
herra átti fund með Ronald Reagan
og snæddi síðar hádegisverð í Hvíta
húsinu í gær. Þorsteinn sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að drjúgur
tími hefði farið í að ræða alþjóða-
mál og hefði Bandaríkjaforseti gert
grein fyrir þeim viðræðum sem
fram hafa farið milli stórveldanna.
Þá ræddu þeir einnig um menning-
ar- og viðskiptamál ríkjanna. „Við
væntum þess að það verði hægt að
skoða nánar einstök atriði varðandi
tollamál og viðskipti landanna,"
sagði Þorsteinn. Hann tók hins veg-
ar fram að ekki væri verið að ræða
um fríverslunarsamning eins og
þann sem Bandaríkin og Kanada
hafa gert. Hann afhenti John C.
Whitehead, sem gegnir starfí ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna í
fjarveru George Shultz, minnisblað
um viðskipti landanna og ósk um
að frekari viðræður færu fram.
Málið er nú til meðferðar hjá
Bandaríkjastjórn.
Á blaðamannafundi eftir að fundi
Þorsteins og Reagans lauk sagði
Rozanne Ridgway, aðstoðar ut-
anríkisráðherra og yfirmaður Evr-
ópuskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins, að ekki yæru uppi hugmyndir
um að gera fríverslunarsamninga
við aðrar þjóðir og að stefna Banda-
ríkjanna væri fremur að stuðla að
frjálsum utanríkisviðskiptum á
vettvangi GATT-viðræðnanna.
„Báðir aðilar gera sér grein fýrir
gagnkvæmum hagsmunum í við-
skiptum milli Bandaríkjanna og ís-
lands. Við viljum fylgja heimsókn
og viðræðum forsætisráðherra eftir
með ítarlegri viðræðum sérfræð-
inga landanna," sagði Ridgway.
Ronald Reagan sagði að Banda-
ríkin hefðu ágætt samkomulag við
Islendinga um hvalveiðar, sem
Bandaríkjastjórn kynni mjög vel að
meta, en hann var spurður að því
hvort Bandaríkjastjóm ætlaði að
koma í veg fyrir hvalveiðar íslend-
inga.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, átti einnig fund með utanrík-
ismálanefnd Öldungadeildar
Bandaríkjaþings. í samtali við
fréttamenn eftir fundinn lýsti Clai-
bome Pell, formaður nefndarinnar,
yfír sérstakri ánægju með að hafa
fengið tækifæri til að hitta ráð-
herra.
Sjá ennfremur fréttir á
miðopnu.