Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988
5
NU á söluskrifstofa Flugleiða í Kringlunni eins árs afmæli.
Á þeim tíma höfum við átt viðskipti við fjöldann alfan
af fólki sem lýst hefur sérstakri ánægju sinni
með staðsetninguna. Það er markmið okkar að veita
ykkur áfram okkar bestu þjónustu.
Komið og ræðið við sérfræðingana okkar, þeir finna
hagkvæmustu lausnirnar fyrir ykkur.
VERIÐ VELKOMIN í KRINGLUNA.
FLUGLEIDIR
fyrir þíg
FLUGLEIÐIR
Meitillinn:
Reynt verð-
ur að halda
rekstrin-
um áfram
Selfossi.
ÁKVÖRÐUN um það hvort upp-
sagnir starfsfólks Meitilsins hf.
i Þorlákshöfn frá 1. ágúst verða
að veruleika eða ekki verður
tekin i lok þessarar viku eða
þeirrar næstu.
Ólafur Jónsson stjórnarformað-
ur Meitilsins hf. sagði að uppsagn-
irnar þýddu ekki endilega að til
rekstrarstöðvunar kæmi. Stjórn
fyrirtækisins myndi leita leiða til
að tryggja reksturinn. Þessi mál
og fleiri sagði Ólafur að yrðu rædd
á næstu stjómarfundum fyrirtæk-
isins.
— Sig. Jóns.
íslenska loftvarnakerfið:
Póstur og sími
fékk útboðsgögn
EITT þeirra 96 fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu sem feng-
ið hafa send útboðsgögnin um IADS-verkefnið eða Islenska loft-
vamakerfið er Póstur og sími. IADS er tölvukerfi sem Mann-
virkjasjóður Atlantshafsbandalagsins mun byggja hér á landi og
á að taka við upplýsingum um flugumferð frá ratsjárstöðvumun
sem verið er að byggja hér. Áætlaður kostnaður við verkið er 13
milljarðar króna.
Ólafur Tómasson póst og síma-
málastjóri segir að hann hafi gert
kröfu um að stofnunin fengi þessi
plögg en ljóst er að Póstur og sími
getur ekki tekið þátt í útboðinu
nema í samráði við önnur fyrir-
tæki.
„Mál þetta er í athugun og
vinnslu innan stofnunarinnar og
ég get að svo stöddu ekki tjáð
mig frekar um það,“ segir Ólafur.
Meðal þekktra fyrirtækja vest-
an hafs og austan sem fengið
hafa útboðsgögnin í hendur má
nefna General Dynamics, Hughes
Aircraft Company, ITT, Lockheed,
Boeing, Ericson, Norsk Data,
Kongsberg, Krupp og Messersch-
mitt-Boelkow-Blohm.
'...
* m V fi;-
'*K'. v
■wm
A il *
MS' ’ .
-
Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson
Listasafnið
í Selárdal
ÞAÐ eru líklega ekki margir sem
vita af verkum „lístamannsins
með barnshjartað", Samúels
Jónssonar, sem standa í mynni
Selárdals við Arnarfjörð. Samú-
el, sem lést árið 1969, 85 ára
gamall, var stórhuga og reisti
hús, kirkju og gosbrunn ásamt
ýmsum listaverkum öðrum, en
byggingarefnið hefur ekki verið
sem best því öll þessi verk eru
Ula farin. Hér má sjá unga stúlku,
Tinnu Sigurðardóttur, fara á bak
einu ljóninu í gosbrunninum, sem
aldrei gegndi hlutverki sínu.
í fangelsi
fyrir að
draga sér
olíustyrk
GENGIÐ hefur í Hæstarétti
dómur, þar sem maður er
dæmdur í 6 mánaða fangelsi
fyrir að hafa sem sveitarstjóri
á Stokkseyri, frá 1975 til 1978,
dregið sér hluta af olíustyrk
ríkisins til hreppsbúa.
Maðurinn falsaði, í skiptum við
viðskiptáráðuneytið, tölu þeirra
íbúa sem áttu rétt á styrkveitingu
lögum samkvæmt og hagnýtti
styrkinn, sem ofgreiddur var af
þeim sökum, tæpar 3 milljónir
gamalla króna, til eigin þarfa.
Einnig var manninum dæmd refs-
ing vegna meðferðar á veðskulda-
bréfi sem honum var falið til um-
boðssölu í ágúst 1985.
Maður þessi var í febrúarmán-
uði síðastliðnum dæmdur í Saka-
dómi Reykjavíkur til tveggja ára
fangelsisvistar og til greiðslu sam-
tals 6,6 milljóna skaðabóta til 13
aðila vegna svika í fasteignavið-
skiptum. Þeim dómi var ekki áfrýj-
að.