Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988
7
Endurgreiðsla söluskatts til ferðamanna:
Fríhöfnin sjái um
framkvæmdina
Hefst væntanlega 1. október
FYRIRHIJGAÐ er að Fríhöfnin á Keflavikurflugvelli sjái um að
endurgreiða ferðamönnum söluskatt og síðar virðisaukaskatt af
vörum, er þeir festa kaup á í landinu og hafa heim með sér. Við-
ræður milli fjármálaráðuneytis og Fríhafnarinnar um þessa til-
högun eru komnar á skrið og er stefnt að þvi að hefja endur-
greiðsluna 1. október næstkomandi. Þessi þjónusta verður væntan-
lega veitt á Keflavikurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli, í
Reykjavíkurhöfn og á Seyðisfirði.
Að sögn Guðmundar Karls
Jónssonar, forstjóra Fríhafnarinn-
ar, verður fyrirkomulag endur-
greiðslunnar, að minnsta kosti á
Keflavíkurflugvelli, væntanlega
með þeim hætti að ferðamenn
framvísi staðgreiðslunótu fyrir
vörum þeim er þeir hafa keypt og
fái söluskattinn greiddan út í stað-
inn. Fríhöfnin mun þó taka um
fjórðung upphæðarinnar í kostnað.
„Við teljum okkur hafa ákveðinn
hag af þessu, við munum greiða
söluskattinn út í íslenskum pen-
ingum, sem fólk verður að skipta
fyrir brottför og því eru líkur á
að það eyði þeim í Fríhöfninni,“
sagði Guðmundur Karl. Hann
sagði að hugsanlega yrði að haga
málum þannig á hinum afgreiðslu-
stöðunum að ferðamönnum yrði
send ávísun fyrir upphæðinni eft-
irá.
Guðmundur Karl sagði að ekki
væri ljóst um hvað stóra upphæð
gæti orðið að ræða í endurgreiðsl-
ur. „Það er talað um að hver ferða-
maður eyði að meðaltaii 2.000 til
2.500 krónum í svona hluti, en það
eru ágiskunartölur," sagði hann.
Reglugerðardrög varðandi end-
urgreiðslu söluskattsins hafa legið
fyrir frá því í maí. Fleiri aðilar en
Fríhöfnin hafa sótt um að fá að
annast endurgreiðsluna, til dæmis
Flugleiðir og Verslunarráð. Laga-
breytingu þyrfti hins vegar til að
framselja einkaaðilum þetta um-
boð. „Fríhöfnin er ríkisfyrirtæki
og þarf í raun lítið að semja, við
stöndum skil á öllu okkar til fjár-
málaráðuneytisins," sagði Guð-
mundur Karl.
„Þetta er mál, sem lengi hefur
verið á dagskrá af hálfu okkar
sjálfstæðismanna. Ég held að
þetta hafí mikla þýðingu fyrir
ferðamenn og verði til þess að
auka á ferðamannastraum þegar
það fréttist að við munum taka
upp þetta endurgreiðslukerfi,"
sagði Matthías Á. Mathiesen, ráð-
herra ferðamála. Friðrik Sophus-
son, iðnaðarráðherra tók í sama
streng. „Ég fagna þessu að sjálf-
sögðu, þetta er gamalt baráttu-
mál, sem ég hef margoft tekið upp
Drengnr á
reiðhjóli
slasaðist
ÞRETTÁN ára drengur á reið-
hjóli slasaðist þegar farþegi í
bíl í stæði við söluturninn Barón
á Laugavegi opnaði dyr bílsins
í veg fyrir hann, rétt eftir há-
degi á þriðjudag.
Drengurinn var fluttur á slysa-
deild Borgarspítalans, talinn við-
beinsbrotinn.
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
í ríkisstjóm og milli ráðuneyta,"
sagði Friðrik. „Þótt sumarvertíðin
sé nánast búin er þetta afar mikil-
vægt fyrir þann íslenska iðnað sem
framleiðir vörur sem ferðamenn
kaupa gjama og eru einkennandi
fyrir landið, einkum ullariðnað og
listiðnað."
KRINGWN
KKIMeNM
ÍÁRS
f tilefni ársafmælis okkar
fylgir Morgunblaðinu í dag
sérstakt Kringlublað.
KRINGWN
KKIMeNM