Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 18

Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 GLERGALDUR Hönnun Stefán Snæbjörnsson Árabilið 1950—70 var með viss- um hætti blómaskeið fyrir skand- inavíska nytjalist. Skandinavíska notagildisviðhorfið, sem skar sig nokkuð frá hinum „stranga" fúnksj- ónalisma Bauhaus-skólans (1919— 1925), vakti athygli á þess um tíma og átti sinn þátt í að skapa þá ímynd að Skandínavar legðu í framleiðslu sinni, hvaða nafni sem nefnist, allt kapp á gæði hráefnis og vöruvönd- un. Viðhorf til efnis og forms, sem fram koma hjá norrænum hönnuð- um, svo sem Carl Halmsten, Kaare Klint og Alvar Aalot, fyrir 1930 höfðu legið í dróma kringumstæðn- anna um sinn. Heimsstytjöldin hafði skorið á viðskiptatengingar og samgang milli landa og framleiðsla liggur niðri. Það er því ekki að undra að þeg- ar möguleikar opnast að nýju og hjól framleiðslunnar fara að snúast með bjartsýni á betri tíma, þá sé eins og stífla bresti og flóð steypist fram. Það aðdáunarverða er hvemig tekst að beina þessari orku og sköp- unarþörf í afmarkaðan farveg góðr- ar skólunar. Þama var ekki komið að „tómum kofunum", enda taka iðnaðarvörur Norðurlandanna á mörgum sviðum fram flestu því sem aðrir em að bauka á þessum tíma. Þetta hefði ekki verið hægt nema af því að löngu áður var lagður hugmyndafræðilegur grunnur. Svíar og Danir höfðu löngu unnið sér sess fyrir iðnað sinn og handiðn- að. Handverkshefðir voru í heiðri hafðar og iðnaðurinn leitaðist við að mæta viðteknu gæðamati. Á framangreindu tímabili fara Norðmenn og Finnar að láta meira til sín taka en áður. Það em einkum Finnar sem með eftirtektarverðum hætti bijótast útúr einangmn og oftar en ekki stela senunni ef svo má að orði komast. Á þessum tíma ögra þeir ekki hinu háþróaða handverki Dana, eða iðnhönnun Svía, heldur fylgir þeim ferskleiki, eitthvað óvenjulegt, áður óþekkt. Hér á eftir verður farið örfáum orðum um fínnska glerhönnun. Það hefur oft heyrst að afarkostir, sem Finnum vom settir við lok átakanna við Rússa 1944, hafí knúið þá til að leita allra mögulegra úrræða til að efla framleiðslu sína og útflutn- ing. Framleiðsla þungaiðnaðarins fór að heita má á færibandi beint austur yfír rússnesku landamærin án endurgjalds. Það var því annars- konar iðnaðarframleiðsla sem beint var að markaðssvæðunum í vestri. Það má með réttu halda því fram að sú athygli sem fínnsk byggingar- Iist hafði vakið á fyrri hluta aldar- innar (Eliel Saarinen-Alvar Aalto) hafí gert þeim auðveldara fyrir að vinna listiðnaði sínum markað. Það er þó fyrst og fremst nýsköpun í formi sem eftir 1950 beinir athygli að fínnskum listiðnaði og fínnskri iðnhönnun. Á þessum ámm taka fínnskir hönnuðir við hverri viðurkenning- unni af annarri á alþjóðlegum sýn- ingum og iðnaðarstefnum. Finnskur * 'M 'Jfíi Oiva Toikka (1931) er i dag einn athyglisverðasti glerhönnuður í Finnlandi. Hann vinnur jöfnum hönd- um að gerð nytjaglers og frjálsara tjáningarformi. Að ofan, „Kerlaug Helenu“ (frá Tróju), stærð 50x31x31 cm. fínnskur listiðnaður er vakinn til lífs sem áhrifavaldur í formsköpun fyrir iðnaðarframleiðsluna em fyr- irmyndir ekki síst sóttar í þá menn- ingararfleifð sem varðveist hafði í alþýðulist hinna afskekktu héraða í Austur-Karelíu. Þessi hluti lands- ins var síðar innlimaður í Rússland í kjölfar vetrarstríðsins. Þar mætt- ust mennmgarstraumar, úr austri og vestri. í samanburði við gleriðn- að annarra Evrópuþjóða er saga fínnsks gleriðnaðar ekki löng. Fyrsta gleriðjan, sem sett var á stofn í Finnlandi á seinni hluta 17. aldar, eyddist í eldi 1685, eftir að hafa starfað í aðeins fjögur ár. Eig- andi þessarar gleriðju var sonur Melchiors Jung, en hann var fyrstur manna til að fá leyfí til starfrækslu gleriðju í Svíþjóð 1641. Feðgar þessir urðu að láta undan síga í Sviþjóð vegna harðnandi samkeppni og sú var ástæðan fyrir því að son- urinn setti upp framangreinda gler- iðju í Finnlandi. Það er fyrst sextíu ámm eftir bmna fyrirtækis Jungs að gleriðja er aftur sett á stofn í Finnlandi. Þessi dráttur var fyrst og fremst afleiðing sænsk-rússn- esku stríðanna. Á þessum tíma er Finnland undir sænsku krúnunni (1155—1809). Á sama tíma er hins- vegar mikill vöxtur í glergerð í Sviþjóð. Svo mikill að hann leiddi til offramleiðslu og banns á opnun nýrra fyrirtækja í greininni. Þegar banni þessu er loks aflétt 1747 með þeim afleiðingum að sænsku skóg- unum þótti hætta búin af umsvifum glergerðarmanna og hinni gífurlegu eldiviðamotkun við kyndingu ofti- anna, er bmgðið á það ráð að stað- setja gleriðjur í Finnlandi og þannig hafa nytjar af hinu mikla finnska skóglendi. Meðan Finnland var und- ir sænskri stjóm var gleriðnaður eina iðngreinin sem gat keppt við sambærilega framleiðslu í öðmm löndum. Sé tíminn hafður í huga má telja að Finnland standi þá þeg- ar framarlega sem glergerðarland. Iðnaðurinn fullnægir helmingsþörf innlendrar glemotkunar og gler til heimilisnota og rúðugler er flutt út, til Rússlands, Svíþjóðar og fleiri landa. Uppúr 1810 fara viðskipti Finna að blómgast vemlega, en á ámnum þar á undan, 1808—1809, höfðu Svíar og Rússar enn átt í útistöð- um, sem enda með því að Svíar láta Finnland af hendi við Rússa og keisarinn Alexander I gerir Finn- iðnaður fjárfestir beinlínis í hönnun. Hönnuðum er fengin lykilstaða til áhrifa á útlit og gerð framleiðslunn- ar. Þeir em virkjaðir við markaðs- færsluna, em alltaf inní myndinni ef svo má að orði komast. Þessi aðferð bar óneitanlega árangur. Margt hefur breyst, en eftirtektar- vert er hve ímynd hönnunarinnar, hins skapandi afls að baki vömnni, er haldið á loft í allri kynningu á fínnskum iðnaðarvömm enn í dag. í fínnskri hönnun og þá ekki síst glerhönnun er eins og búi einskonar ögmn við hið hefðbundna, það ríkjandi, þekkta og viðurkennda. Vilji til að takast á við óþekktar aðferðir, óþekkt form. Ögmn við möguleika efnisins sem oft er þanið að ystu mörkum. Forsaga Til að meta og gera samanburð er hollt að huga að því baksviði sem fínnsk glergerð byggir á. Þá ber fyrst að hafa í huga að þegar Jorma Vennola (1943). Vasar úr glæru gleri með sandblásnu munstri, stærðir 8, 12, 16 cm. Framleiðslu- ár 1987.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.