Morgunblaðið - 11.08.1988, Síða 20

Morgunblaðið - 11.08.1988, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 E **■ ■ 25 pundari úr Vesturá í Vopnafirði Ágætlega hefur aflast síðustu vikumar f Vesturá í Vesturdal í Vopnafírði og óstaðfest tala sem Morgunblaðið hefur undir hönd- um er upp á hálft annað hundrað laxa. Rétt fyrir verslunarmanna- helgina veiddi Ásgeir Heimir Guð- mundsson 25 punda lax í ánni, þann stærsta þar í sumar og þann stærsta enn sem komið er úr Vopnafjarðaránum öllum og §órða stærsta laxinn sem Morg- unblaðið hefur haft spumir af í sumar. Hoilið hjá Ásgeiri hreppti afleitt veður með kolmórauðri á tvo fyrstu daganna, en svo veiddi hópurinn 16 laxa á síðasta degi. Mesta veiði eins hóps fram að því var 36 laxar, en það er fullur kvóti. Gljúfurá lífleg Fyrir skömmu var greint frá hinni ágætustu veiði í Gljúfurá í Borgarfírði og þykir mörgum vera. kominn tími til að hún rétti úr kútnum eftir nokkur mögur sum- ur. Nýlegri tölur úr ánni em upp á um það bil 140 laxa veidda og það fylgir sögunni að menn sjái talsvert af laxi víða f ánni, t.d. í Móhyljunum, Kálgarðinum og við Kerlinguna, svo og í Fossgilinu og í Ósnum. Eitthvað er enn hægt að fá af veiðileyfum í Gljúfurá hjá SVFR og eru það ekki dýr leyfi miðað við það sem gengur og gerist nú til dags. Ágætt í Víðidalsá og stórir laxar Veiði hefur verið all góð í Víði- dalsá í sumar og komnir rúmlega 1.400 laxar á land. Heldur áin ævinlega sessi sínum sem ein mesta stórlaxaá landsins, þannig var hópur Bandaríkjamanna að veiðum fyrir skömmu og náðust á þriðja hundrað laxar á viku- tfma. Tveir þeirra vógu 24 pund og sfðan voru þó nokkrir 20 til 23 punda fískar. Síðasta sumar veiddust 1.540 laxar í Víðidalsá og Fitjá og stefnir í mun meiri veiði, því mikill lax er talinn verá í ánni og enn drjúgt til loka veiði- tímans. Miðfjarðará nokkuð góð Komnir munu rúmiega 1200 laxar á land úr MiðQarðará og er það meiri veiði en allt síðasta sumar, er alls veiddust milli 1.100 og 1.200 fiskar. Þó byijaði veiðin illa f sumar, en hefur ræst úr. Lax er um allt hið víðfeðma svæði og enn eru að ganga nýrunnir laxar. Laxinn er að meðaltali ívið smærri en gengur og gerist í Miðíjarðará, en slíkt hið sama á við um geysi- margar ár í sumar. Þó hafa veiðst allt að 20 punda laxar í sumar. 8* Lokahönd lögð á frágang við áhorfendapalla við mótssvæðið á Varmárbökkum, þar sem íslandsmótið i hestaíþróttum fer fram um helgina. Mosfellsbær: Fjölmennasta Islands- mótið í hestaíþróttum FJÖLMENNASTA íslandsmót i hestaíþróttum, sem haldið hefur verið til þessa, hefst á morgun, föstudag, á nýjum keppnisvelli við Mosfellsbæ. Flestir bestu hestar og knapar landsins munu taka þátt f mótinu og verða keppendur um 110 talsins. Keppt verður f þremur flokkum; um 70 keppend- ur verða f flokki fullorðinna en í flokkum bama og unglinga um 20 talsins. Á föstudag og laugar- dag verður forkeppni, auk þess sem keppt verður f 250 metra skeiði, gæðingaskeiði, fjórgangi og hlýðnikeppni. Mótinu lýkur svo á sunnudaginn með úrslitakeppni. Hestamannafélagið Hörður í Kjós- arsýslu ákvað í vetur að ráðast í að byggja keppnisvöll og halda íslands- mótið í hestaíþróttum í Mosfellsbæ. Að sögn Valdimars Kristinssonar, mótsstjóra, eru Varmárbakkar, eins og völlurinn kallast, eitt glæsilegasta mótssvæði landsins og eitt það besta fyrir hestaíþróttir. Reistir hafa verið Samgönguráðherra vígir f lug- stöðvarbyggingu á Vopnafirði Seyðisfirði. NÝ flugstöðvarbygging við flug- völlinn á Vopnafirði hefur verið tekin f notkun. Matthías Á. Math- iesen samgönguráðherra vfgði bygginguna laugardaginn 6. ágúst sl. Flugstöðin er 204 fermetrar og hófust framkvæmdir við hana haustið 1986. Húsið var gert fok- helt 1987 og lokið við það á þessu ári ásamt byggingu nýs flughlaðs. Ifyrsti farþeginn sem fór í gegnum nýju flugstöðvarbygginguna var Guðrún Sveinsdóttir frá Vopnafirði og flaug hún til Reykjavíkur með millilendingu á Akureyri í boði Flug- félags Norðurlands og Flugleiða. Viðstaddir vígsluathöfnina voru Bragi Dýrfjörð flugvaliarvörður á Vopnafirði, Guðmundur Matthíasson varaflugmálastjóri, Ingólfur Amar- son umdæmisstjóri Flugmálastjómar á Austurlandi, Jóhann H. Jónsson framkvæmdastjóri flugvalladeildar Flugmálasijómar, Rúnar Pálsson umdæmisstjóri Flugleiða á Austurl- andi, þingmenn Austurlands, sveitar- stjómarmenn á Vopnafirði, flugráðs- menn og þeir sem unnu við bygging- una auk annarra gesta. Ingólfur Amarson umdæmisstjóri Flugmálastjómar bauð f upphafi gesti velkomna og séra Sigfús Áma- son sóknarprestur á Vopnafirði flutti hugvekju. Jóhann H. Jónsson fram- kvæmdastjóri flugvalladeildar Flug- málastjómar rakti byggingarsögu flugstöðvarinnar og sagði að þetta væri samskonar hús og Flugmála- stjóm hefði látið reisa á Patreks- firði, Þingeyri og í Stykkishólmi. Benjamfn Magnússon arkitekt teikn- aði allar þessar byggingar og hefðu þær sem þegar væm komnar í notk- un reynst mjög vel, þetta væri heppi- leg stærð fyrir þann farþegafjölda sem um þessa flugvelli færi. Það voru starfsmenn Flugmála- stjómar sem steyptu undirstöður hússins, húsið sjálft var smfðað á trésmíðaverkstæði Flugmálastjómar og sáu starfsmenn þess um að reisa Morgunblaðið/Garðar Rúnar Bragi Dýrfjörð flugvallarvörður flugvallarins á Vopnafirði. það og skila því fullfrágengnu að utan. Verktaki að allri vinnu innan- húss var Kaupfélag Vopnaijarðar en við það var samið að undangengnu útboði. Kostnaður við byggingu flug- stöðvarinnar var 14,5 milljónir með öllum innréttingum. Jóhann sagði að verkið væri í alla staði vel unnið og heimamenn hefðu lagt sig sérstak- lega fram við að gera þetta vel úr garði. Framkvæmdastjóm önnuðust þeir Ásgeir Magnússon, yfírmaður byggingarverkstæðis kaupfélagsins, og Ámi Magnússon yfirmaður raf- magnsverkstæðis kaupfélagsins. Matthfas Á. Mathiesen vígði svo flugstöðina og sagði f upphafi máls síns að með vígslu þessarar flug- stöðvar væri fyrstu framkvæmd lok- ið sem unnin væri samkvæmt fjög- urra ára flugmálaáætlun sem sam- þykkt var á síðasta þingi, samkvæmt lögum frá árinu 1987. Byijað hefði verið á þessari framkvæmd árið 1986 Matthías Á. Mathiesen sam- gönguráðherra vfgði hina nýju flugstöð Vopnfirðinga. en hún sfðar fjármögnuð með þeirri flugmálaáætlun sem nú væri í gildi. Enginn vafi væri á því að þar var um þýðingarmikið skref að ræða í flugmálum. Með þessari flugmálaá- ætlun væri hafið það átak í flugmál- um sem gerði ráð fyrir því að varan- legt slitlag verði komið á alla flug- velli á íslandi innan 10 ára. Ráð- herra þakkaði sérstaklega öllum þeim sem unnið hefðu við þessa framkvæmd og þingmönnum kjör- dæmisins fyrir gott samstarf. Guðmundur Matthíasson vara- flugmálasfjóri þakkaði Braga Dýr- íjörð flugvallarverði fyrir vel unnin störf undanfarin ár. Hann sagði það mikilvægt fyrir Flugmálastjóm að hafa góða starfsmenn við flugvallar- mannvirkin víðs vegar um landið og sagðist vonast til að eiga eftir að njóta starfskrafta Braga mörg ár í viðbót. Alþingismennimir Jón Kristjáns- Sveinn Guðmundsson stjóri á Vopnafirði. sveitar- son, Hjörleifur Guttormsson og Egill Jónsson tóku einnig til máls og ósk- uðu Vopnfírðingum og Flugmála- stjóm til hamingju með að þessum áfanga væri náð. Sveinn Guðmunds- son sveitarstjóri á Vopnafírði sagði að ástand í flugmálum á Vopnafirði væri gott og þeim sem að þeim hefðu staðið hefði famast vel í starfí. Flug- ið væri Vopnfírðingum mikilvægt vegna þeirra aðstæðna sem ríktu í samgöngum á landi. Ingólfur Amarson umdæmisstjóri sagði f samtali við Morgunblaðið að umferð um Vopnafjarðarflugvöll hefði aukist jafnt og þétt undanfarin ár. „Farþegafjöldi árið 1985 var 3.500 manns en árið 1987 4.200 manns, lendingafjöldi árið 1985 var 581 en 670 árið 1987 og flutningur á frakt og pósti var árið 1985 68 tonn en árið 1987 117 tonn,“ sagði Ingólfur. - Garðar Rúnar áhorfendapallar við völlinn, sem rúma 600 manns í sæti, auk þess sem náttúrulegar aðstæður umhverf- is völlin eru ákjósanlegar fyrir áhorf- endur. Öll keppnishross verða höfð í húsi og byijuðu keppendur að koma á mótssvæðið um síðustu helgi með hesta sína. Hesthús og mótssvæði verður vaktað að nóttunni og allri óþarfa umferð beint frá svæðinu. Af nafnkunnum þátttakendum á mótinu má nefna Sigurbjöm Bárðar- son, sem vann alla Islandsmeistarat- itla í hestaíþróttum á síðastliðnu ári að undanskyldu gæðingaskeiði, Reyni Aðalsteinsson og Ragnair Hin- riksson. Dagskrá íslandsmótsins verður sem hér segir: Föstudagur. 08.00 Fimmgangur - fullorðnir 12.00 Fimmgangur - unglingar 12.30 Matarhlé 13.00 Fjórgangur - fullorðnir 17.00 Fjórgangur - unglingar 18.30 Fjórgangur - böm 19.30 Skeið 250 m - fyrri sprettir 20.30 Dagskrárlok Laugardagur. 08.00 Tölt - fullorðnir 12.00 Matarhlé 12.30 Tölt - unglingar 13.30 Tölt - böm 14.30 Fjórgangur B-úrslit - full- orðnir 15.00 Fjórgangur A-úrslit - full- orðnir 15.30 Fjórgangur úrsiit - böm 16.00 Fjórgangur úrslit - ungling- ar 16.30 Gæðingaskeið 18.00 Hlýðni A 19.00 Hlýðni B 20.30 Dagskrárlok 22.00 Dansleikur í Reiðhöllinni Sunnudagur. 10.00 Hindrunarstökk forkeppni - úrslit 11.00 Fimmgangur B-úrslit - full- orðnir 11.30 Tölt B-úrslit - fullorðnir 12.00 Matarhlé 13.00 Skeið 250 m - seinni sprettir 14.00 Ávörp 14.30 Fimmgangur úrslit - ungl- ingar 15.00 Fimmgangur A-úrslit - full- orðnir 15.30 Tölt úrslit - böm 16.00 Tölt úrslit - unglingar 16.30 Tölt A-úrslit - fullorðnir 17.00 Verðlaunaafhending 17.30 Mótslok Eins og fram kemur í dagskránni verður haldinn dansleikur í Reiðhöll- inni á laugardagskvöldið. Þar mun Sniglabandið leika fyrir dansi og Grettir Bjömsson þenja nikkuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.