Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 46

Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 © 1984 Universal Press Syndicate |?&ir híalclca. m&r htr i rvmn - sókruxrekym ■" Eina sem endurskoðand- inn gerir athugasemd við eru mikil útgjöld vegna stéttarfélags páfa. HÖGNI HREKKVÍSI FURÐULEG HJORÐ Það er jafnan háttur rökþrota manna að ausa lygum og svívirðing- um yfir andstæðinga sína og þeir sem reyna að vetja alvondan mál- stað eru vitanlega ætíð undir þessa sök seldir. Undirritaður hefur gert töluvert af því að rita pistla, sem meðal annars hafa birst hér á Vel- vakandasíðunni. í þessum pistlum mínum hef ég einkum fjallað um þá grimmd, er ísraelsmenn beita Palestínumenn og hafa lengi gert. Reyndar frá fyrstu tíð, eða allt frá því að gyðingar tóku að nema land í Palestínu, eins og landið hét þá. Að sjálfsögðu þurfa orð mín ekki að koma til. Það vita allir, sem á annað borð fylgjast eitthvað með fréttum fjölmiðla, hvemig farið er með fólkið þessa dagana, til dæmis á Gaza og Vesturbakka Jórdanár. Þó að ég sé bara lítill karl hér á hjara veraldar og breyti engu um gang mála, þá læt ég í mér heyra. Samviska mín krefst þess, og ef til vill velq'a þessir pistlar mínir ein- hveija til frekari umhugsunar um þessi mál, þrátt fyrir allt. Og víst er, að það sem hefur gerst í Pal- estínu er tengt okkur Islendingum meira og minna, bæði beint og óbeint. Því valda hin nánu tengsl okkar við Bandaríkin, en þau eru, eins og allir vita trúlega, helsti stuðningsaðili ísraels. Án stuðnings Bandarílqanna væri grundvöllur ísraelsríkis brostinn. Vegna stuðnings mín við Pa- lestínufólkið og stöðugrar gagnrýni á ísrael, og þá um leið Bandaríkja- menn, þá hef ég orðið fyrir skítkasti úr ýmsum áttum. Hingað til hafa þessar árásir birst í dagblöðunum, en nú nægir það ekki lengur. Farið er að senda mér bréf með alveg ótrúlegu innihaldi. Nýlega fékk ég eitt, sem var „prýtt" stjömu Davíðs. Ekki hafði sá, eða þeir, sem að þessu bréfi standa manndóm í sér Velvakandi góður. í tilefni af grein Kristínar Ing- ólfsdóttur ljfyafræðings um skað- semi náttúruefna, og sér í lagi um hóffífil, má benda á eftirfarandi: Það eru löngu kunn sannindi, að sumar plöntur eru varasamar eða beinlínis hættulegar. Þess vegna er mönnum ráðlagt að kynna sér mál- ið vel og lesa sér til um ógagn eða gagnsemi plantna. Um hóffifil er það að segja, að í mörgum bókum er varað við notkun hans, meðal annars í íslenskri flóru með lit- til að skrifa undir. Þá hefði ég strax beðið Morgunblaðið að birta þennan pistil, svo fólk gæti séð með eigin augum hvers konar manngerðir eru hér á ferðinni. í augum þessarar furðulegu hjarðar eru þeir sem voga sér að gagnrýna Bandaríkjastjóm og kóna hennar haldnir sjúklegu hatri á Bandaríkjamönnum. Þetta er eins og hjá ráðamönnum í einræðisríkj- um kommúnismans. Þar er glæpur að dirfast að gagnrýna valdamenn og kerfið, og við því liggja þungar refsingar. myndum eftir Ágúst H. Bjamason. Þar stendur, að ekki skuli drekka meir en tvo bolla á dag, og þurfi það að vera vel sætt. Enn fremur segir þar, að því hafi verið haldið fram, að í plöntunni sé efni, sem valdið geti krabbameini. Rétt er að árétta, að notkun plantna geta fylgt aukaverkanir, alveg eins og notkun tilbúinna lyfja. Þetta finnst mér, að lyfjafræðingar eigi að vita. Með þökk fyrir birtinguna, Náttúruunnandi. Haldi þessir furðufuglar, að hót- anir og svívirðingar, í formi bréfa eins ég hef fengið nýlega, hafi áhrif á mig og_ ég hætti að fordæma framferði ísraelsmanna, og Banda- ríkin fyrir stuðning við þá fanta, þá skjátlast þeim hrapallega. Guðjón V. Guðmundsson. Eiðuraðbaugi Til Velvakanda. Við eiðtöku forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, sem fram fór í alþingishúsinu 31. júlí síðast- liðinn og á að gilda næstu fjögur ár, heyrði ég forseta hæstaréttar, Magús Thoroddsen, bera fram óskir um heill til handa forseta íslands, landi voru og - ríki. Hvað er nú, má ekki einu sinni nefna íslenzku þjóðina á nafn við þriðju eiðtöku þess forseta, sem ef til vill hefur bezt allra brýnt þjóðina að halda vöku sinni og varðveita sjálfa sig? Fyrir utan það hve sviplaus og endaslepp setningin verður með þessari breytingu er auðvelt að sýna fram á, að ekki er heil hugsun í því að óska ríkinu, en ekki þjóð- inni, heilla. Eða hvaða nauðsyn bar til að fara að breyta eiðstafnum? Þorsteinn Guðjónsson. Plöntur: Sumar eru varasamar Víkverji skrifar Víkveiji verður að játa að hafa farið með rangt mál í dálki þessum fyrir nokkru, þegar hann skrifaði um leigubílaakstur og af- leysingar leigubflstjóra. í pistlinnm hafði Víkveiji eftir leigubflstjóra nokkrum að bílstjórum væri ekki heimilt að fá aðra bflstjóra til að leysa sig af í fríum, hvorki helgar- fríum né sumarfríum. Einhver mis- skilningur hefur hins vegar orðið í samræðum Víkveija og leigubfl- stjórans og ákvað Víkveiji að leita til Frama, stéttarfélags leigubif- reiðastjóra, til að fá fram hið rétta í málinu. Hjá félaginu fékk Víkveiji þær upplýsingar, að leigubílstjórar ættu að sjálfsögðu rétt á fímm vikna sumarleyfi, líkt og aðrir laun- þegar, og í þessu sumarleyfí fengju þeir menn til að leysa sig af á bílun- um, sem og ef þeir væru fjarver- andi vegna veikinda. Þá hefði bílstjórum verið gefínn kostur á því síðastliðinn vetur, frá nóvember til mars, að fá afleysingamann í sinn stað eina helgi, eða tvo laugardaga, I hveijum mánuði. Leigubflstjórar 67 ára og eldri máttu hins vegar láta Ieysa sig af allar helgar. Loks var Víkverja tjáð, að nú væri starf- andi nefnd á vegum samgönguráðu- neytisins, sem ætlað er að endur- skoða reglur um afleysingar. Að sögn forsvarsmanns Frama eru all- ar Iíkur á að settar verði reglur, sem miði að því að leigubílar verði í akstri á álagstímum, hvort sem leigubflstjóramir sjá sér fært að aka sjálfir, eða fá afleysingamenn í sinn stað. Víkveiji leiðréttir hér með missagnir í fyrri pistli um leigubíla- akstur, um leið og hann fagnar því að settar verði reglur sem miði að bættri þjónustu við viðskiptavini leigubílastöðvanna. Orðið'„kostun“, sem Stöð 2 hef- ur notað í auglýsingum sem þýðingu á því sem Bandaríkjamenn kalla „sponsoring“, var til umfjöll- unar í dálki Víkveija fyrir skömmu. Víkveiji var eitthvað að skammast út í orð þetta, fannst það kauðalegt og finnst enn. Ekki gat þó Víkveiji nefnt annað skárra orð yfir stuðn- ing við þáttagerð. Hins vegar hafði Högni Torfason samband við Víkveija og stakk upp á orðinu „mögnun" í stað „kostun". Hann kveðst nota sögnina að magna yfir „sponsoring" og sá sem magnar, eða styður gerð þáttar, kallast þá magni. Víkveija finnst þessi orð þjálli í munni en kostunin og hér með er tillögum Högna komið á framfæri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.