Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 49

Morgunblaðið - 11.08.1988, Page 49
49 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1988 HANDKNATTLEIKUR Birgir áfram íFram Birgir Sigurðsson, línumaður í Fram og einn besti leikmað- ur liðsins, hefur ákveðið að vera áfram hjá félaginu. Áður hafði hann ákveðið að ganga til liðs við Víkinga og leika með þeim næsta vetur, en ekkert verður af því. Eru það vonbrigði fyrir Víkinga en að sama skapi ánægjuleg tíðindi fyrir Framara. Birglr Sigurðsson. ÍÞRÚnm FOLK ■ CARL Lewis og Ben Johnson verða báðir meðal keppenda á fijálsíþróttamóti sem hefst á Ítalíu í dag. Mótið fer fram í mikilli hæð í ítölsku Ölpunum og er loftið þar því mjög þunnt. Þeir Lewis og Johnson, sem munu etja kappi saman á Ólympíuleikunum í Seo- ul, keppa ekki í sömu greinum á Ítalíu. Þeir hafa forðast hvorn ann- an á hlaupabrautunum í sumar, áhorfendum til mikilla vonbrigða. A Ítalíu mun Johnson keppa í 100 m. hlaupi, en Lewis í 200 m. hlaupi. Lewis vísar alfarið á bug þeirri spá Johnsons að hann (Johnson) muni vinna auðveldan sigur f Seoul. „Johnson óttast mig alveg jafn- mikið og ég hann. Milli keppenda eins og okkar gætir mikillar virð- ingar. Aðeins í beinni keppni líkt og í Seoul mun koma í ljós hvor okkar er bestur," sagði Lewis. ■ KÓREUMENN hafa þegar keypt meira en helming þeirra að- göngumiðk, sem til sölu verða þar í landi á hinar ýmsu keppnisgreinar Ólympíuleikanna, en fjöldi mið- anna er rúmlega þijár milljónir. Fjöldi þeirra miða, sem eru til sölu er erlendis er 1,6 milljónir og hefur þriðjungur þeirra selst nú þegar. Kóreumenn virðast hafa mestan áhuga á frjálsum íþróttum, knatt- spyrnu, dýfingum og júdó, ef marka. má sölu aðgöngumiða á þessar greinar. Að sama skapi virð- ast greinar eins og skotfimi og hnit njóta minnstra vinsælda. Að- göngumiðar að opnunarhátíðinni, svo og lokahátið leikanna, seldust upp í síðasta mánuði. MLYFJANOTKUN bandarískra frjálsíþróttamanna var nokkur á úrtökumótinu, sem fór fram í síðasta mánuði, svo og á banda- ríska meistaramótinu, sem fram fór í júní. Yfirmenn bandaríska frjálsíþróttasambandsins vildu hins vegar ekki gefa upp hveijir þeir einstaklingar væru, sem fallið hefðu á lyfjaprófínu, en hins vegar kom það fram að Florence Griffith Joyner, Jackie Joyner-Kersee og Steve Lewis, væru ekki í hópi þeirra, sem sakaðir væru um lyfja- misnotkun. ■ HITACHI ópen golfmótið fer fram á Svarfhólsvelli laugardag- inn 13. ágúst. Mótið er höggieikur með og án forgjafar. Verðlaun í mótinu verða litsjónvarp og mynd- bandstæki fyrir holu í höggi á par 3 brautum. Þeir sem verða næst holu á þessum brautum fá útvarp og segulbandstæki. Hægt er að panta rástíma í golfskálanum á Svarfhólsvelli á fímmtudags- og föstudagskvöld í síma 98-22417. Þetta er í 7. sinn sem mótið er haldið og hefur þátttaka alltaf ver- ið mikil. Guðmundur sigraði án forgjafará Hvaieyrinni Guðmundur Sveinbjömsson, GK, sigraði á móti golfmóti sem Golfklúb- burinn Keilir og Ólafur Laufdal H/F héldu á Hvaleyrarholtsvelli á dögunum. Keppendur voru alls 124 á mótinu og sigraði Guðmundur án forgjafar. Þrfr kylfíngar voru reyndar jafnir á mótinu, á 69 höggum — Sveinn Sigurbergsson og Úlfar Jónsson, auk Guðmundar, en hann sigraði í bráðabana. í keppni með forgjöf sigraði Magnús Halldórsson, GK, á 62 höggum nettó, Ásbjöm Björgvinsson, GK, varð annar á 63 höggum nettó og þriðji Guðjón Guðmundsson, GR, einnig á 63 höggum nettó. Aukaverðlaun fyrir að vera næstir holu hlutu Magnús Hjörleifsson GK, á 6. braut, FYiðþjófur Helgason NK, á 14. braut og Már Gunnarsson GK, á 17. braut. Á myndinni era, frá vinstri: Guðjón Guðmundsson. Sveinn Sigur- bergsson, Guðmundur Sveinbjömsson, Már Gunnarsson, Úlfar Jónsson, Ásbjöm Björgvinsson, Magnús Halldórsson, Ágúst Húbertsson og Guð- laugur Gíslason. KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KVENNA Tvö mörk Ástu komu ÍA í úrslitaleikinn ÍA lagði Stjörnuna að velli, 2:1, í Garðabæ. SKAGASTÚLKUR unnu fremur óvæntan sigur á Stjörnunni í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu í gær- kvöldi. Þrátt fyrir aö vera á úti- velli, voru þær betri aðilinn í leiknum og sigruöu sanngjarnt 2:1. Þar meö er Ijóst að enn einu sinni munu Valur og ÍA mætast í úrslitum bikarkeppni kvenna. Skagastúlkumar vora mjög sprækar í fyrri hálfleik og áttu góðar sóknir. Ásta Benediktsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins með skalla á 23. mínútu eftir vel útfært spil ÍA. Fleiri urðu mörkin ekki í hálfleiknum en ÍA var meira með boltann. Skagastúlkumar hófu seinni hálfleikinn á svipaðan hátt og þær léku í fyrri hálfleik. Á 53. mínútu var Ásta Benediktsdóttir aftur á ferðinni og skoraði með skoti utan úr teig. Eftir þetta annað mark ÍA komu Stjömustúlkumar meira inn í leikinn en þeim tókst ekki að skora fyrr en skömmu fyrir leikslok. Þá skaut Guðrún Vala Ásgeirsdóttir skoti utan teigs, boltinn fór í vam- armann, breytti um stefnu og fór inn í markið. Fleiri urðu mörkin ekki og 2:1 sigur ÍAþannig í höfn. Þess má geta að LA varð íslands- meistari kvenna f knattspymu í fyrra en Valur bikarmeistari. Nú er allt útlit fyrir að Valur verði ís- landsmeistari í ár þannig að Skaga- stúlkumar eru staðráðnar í að vinna þær í bikarúrslitaleiknum. Morgunblaötö/Bjami Halldóra Gylfadóttir, fyrirliði ÍA, sem hér sést í leik við KR, leiddi lið sitt til sigurs gegn Stjömunni í undanúrslitum bikarkeppni kvenna. ÍA og Valur munu eigast við í úrslitum bikarsins. í TILEFNI AF 10 ÁRA AFMÆLI BORGARLJÓSA VEITUM VID 10% AFSLÁTT AF ÖLLUM LÖMPUM í VERSLUN 0KKAR TIL L0KA ÁGÚSTMÁNAÐAR Aðalbúöin hl. Siglufiröi. Arvirkinn hl. Scltossi. Einar Guötinnsson hl. Bolungarvik. HúsiB StykkishBlmi. iönas Þót PatrekstirBi. Kaupfélag ftangæinga Hvolsvelli. Kaupfélag SkagfiiBinga SauBarkróki. Kjarni sf. Vestmannaeyjum. KASK - Höfn, Ijós og raftæki Hatnarliröi. Úsbær Blönduósi ðttar Sveinbjörnsson rafverktakr Hellissandi. Radiovinnustofan Akureyii. Ralsjí hf. Sauöáikróki. Grímur og Arni Húsavík. Raftækjavinnustofan sf. Olafsfiröi, R.Oiafbúö Keflavik. Sigurdör ióhannsson rafverktaki Akranesi. Straumur hf. Isafiröi. Sveinn Guömundsson rafverktaki Egilsstöðum. Sveinn ð. Elíasson NeskaupstaB G.H Garöabæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.