Morgunblaðið - 11.08.1988, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 11.08.1988, Qupperneq 51
51 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTJR FTMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 19S8 KNATTSPYRNA / 2. DEILD Bielatowicz hættur - hjá Breiðabliki. Vignir Baldursson og Sigurður Þorsteinsson taka við stjórninni. Einnig breytingar hjá Þrótti þarsem Þorsteinn Friðþjófs- son hefurverið ráðinn liðsstjóri, Magnúsi Bergs til aðstoðar SAMKOMULAG hefur orðið á milli stjórnar knattspyrnu- deildar Breiðabliks og pólska þjálfarans Gregorz Biel- atowicz, að hann hœtti þjálf- un hjá félaginu. Ihans stað hafa Vignir Bald- ursson, fyrrum leikmaður Breiðabliks, og Sigurður Þor- steinsson, þjálfari, og fram- kvæmdastjóri UMFÍ, verið ráðnir sem þjálfarar. Breiðabliki hefur ekki gengið sem best í annarrar deildar slagn- 'um í sumar, og nú að afloknum 11 umferðum er liðið einungis með 10 stig og á í mikilli fallbar- áttu. Næsti leikur liðsins er gegn Selfossi fyrir austan fjail og mæta þeir þar gömium þjálfara sínum, sem nú stýrir Selfyssingum, og verða Breiðabliksmenn að taka sig rækilega á eigi 3. deildin ekki að blasa við þeim. Þorsteinn Friðþjófsson rðð- inn tii Þróttar Þá eiga Þróttarar ekki síður í miklum erfiðleikum í annarri deildinni; eru í neðsta sæti með 7 stig og í gær var gengið frá því Þorsteinn Friðþjófsson mun stjóma liðinu á æfingum og í leikj- um það sem eftir er sumars og mun Magnús Bergs, þjálfari og leikmaður með liðinu, einbeita sér að því að spila með. Þorsteinn þjálfaði Þróttarliðið um tveggja ára skeið fyrir nokkrum árum, er það var í 1. deild. Hann er nú þjálfari hjá Leikni í 3. deild, og réði sig til Þróttar í góðu sam- ræmi við Leiknismenn. HANDKNATTLEIKUR / VINATTULANDSLEIKUR Allter gott sem endar vel „VIÐ GERUM okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta/ og aðeins betur ef það er það sem þarf..." syngja íslensku landsliðmenn- irnirn á rétt óútkominni plötu sinni. Þeir voru minnugir lags- ins í gœr, tóku sig mikið á frá fyrri vináttulandsleiknum við Frakka, og sigruðu gestgjafana sannfœrandi með þriggja marka mun. Sigurinn í leiknum var síst of stór. 36% nýting Ljóst var að ekkert annað en sig- ur kom til greina í gærkvöldi, en erfíðir leikir undanfama dagá sátu greinilega í sumum. Tuttugu og ein sókn misheppnaðist í fyrri hálfleik, og segir það sitt um einbeitinguna og þreytuna. Sóknimar voru stutt- ar, skotið var úr lokuðum færum og þá létu strákamir einnig verja hjá sér þar sem flestir hefðu undir venjulegum kringumstæðum skor- að. Fljótlega var ljóst hvert stefndi, þó jafnt væri á flestum tölum í 35 míútur. Baráttan var mikil í íslenska liðinu; vömin þétt til að byija með og Guð- mundur öraggur í markinu. Hins vegar var stundum sem leikmenn ætluðu að skora tvö mörk í hverri sókn. Æs- ingurinn var full mikill, og í stað þess að ljúka dæminu, og ná afger- andi forystu, náðu Frakkar hraða- upphlaupum hvað eftir annað, og héldu í við okkar menn. Steinþór Guðbjartsson skrifarfrá Frakklandi „Þetta hefur verið mikið álag á okkur og þreytan kom berlega í ljós hjá mér,“ sagði Alfreð Gíslason, sem átti sex skot að marki - fímm framhjá og eitt varið. Hraðaupphalup Hraðaupphlaup íslenska liðsins gengu ekki vel í fyrri hálfleik og homamennimir fundu sig ekki. „Látum hendur standa fram úr ermum - og ekkert þras,“ segir í söngtextanum, og eftir hlé varð breyting til hins betra. Sóknarleik- urinn varð markvissari, kerfin gengu upp og yfirburðimir sáu dagsins ljós í rökkrinu í höllinni, en lýsing var mjög slæm eins og í leiknum í fyrrakvöld. U6a Allt annað var að sjá til íslenska liðsins, heldur en í fyrri leiknum. Það vanmat mótheijana í fyrra- kvöld og lék baráttulaust með hang- andi haus, en nú var ekkert slíkt til staðar. Engu að síður náðu strák- amir sér misjafnlega á strik. Guð- mundur varði mjög vel, og Kristján stóðst álagið með sóma, en mest hefur rejmt á hann og Alfreð í ferð- inni. Þorgils Óttar var sprækur og Júlíus sýndi hvers hann er megnug- ur eftir mikla hvíld að undanfömu. Holm Landsliðið kemur heim í dag og fær sitt fyrsta helgarfrí síðan æf- ingar hófust í bytjun júní. Reyndar fara þeir í þrekpróf á mórgun, en eftir helgi hefst síðasti kaflinn í lokaundirbúningum fyrir Ólympíu- leikana, og prófraunin verður á Flugleiðamótinu í lok ágúst. Kristján Arason. Frakkl.-ísland 23 : 26 Vináttulandsleikur í handknatUeik f Sedan í Frakkiandi miðvikudaginn 10. ágúst 1988 Gangur leiksins:0:l, 1:1, 2:2, 3:3, 4:4, 5:5, 7:5, 7:6, 8:6, 8:7, 9:7, 9:9, 10:10, 11:11, 12:12, 13:13, 14:14, 15:15, 15:19, 17:19, 17:21, 18:22, 20:22, 20:23, 21:24, 22:26, 23:26. Mörk fslands: Júlfus Jónasson 6, Kristján Arason 6/2, Þorgils Óttar Matthiessen 5, Bjarki Sigurdsson 4, Sigurður Gunnarsson 2, Jakob Sigurðs- son 2, Guðmundur Guðmundsson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 16/1 Ut&n vallar: 6 mín. og ein útilokun. Mörk Frakklands: Volle 6, Monthurel 5, Portes 2, Perreux 2, Mahe 2, Latho- ud 2, Derot 2, Debureau 1, Auxenfans 1. Varin skot: Medard 12, Thiebaut 6 Utan vallar: 6 mín. Áhorfendun 800 Dómarar: Rauchfuss og Buchda frá A-Þýskalandi dæmdu ágstlega. ÍÞRftmR FOLK ■ STEVE Archibald kaus að taka tilboði skoska félagsins Hi- bemians frekar en Liverpool þar sem Skotarnir buðu honum lengri samning, þijú ár í stað tvéggja. ■ TREVOR Hebbard hefur ver- ið seldur frá Oxford - til Derby fyrir 400.000 pund. Art- hur Cox, stjóri Derby, hefur því fjárfest mikið í sumar. Áður hafði hann nælt í Paul Goddard frá Newcastle fyrir 450.000 pund og Nick Pickering frá Coventry fyrir 250.000. Þá kom útheijinn John Chiedozie frá Tottenham án þess að Derby þyrfti að greiða fyrir hann. ■ LYFJAPRÓF verða tekin upp í skosku knattspymunni í vetur. Tveir leikmenn úr hvora liði verða prófaðir eftir einhveija 10 leiki í úrvalsdeildinni í vetur, einnig eftir úrslitaleik skosku bikarkeppnnnar svo og úrslitaleik deildarbikar^ keppninnar. ■ GRAEME Souness stjóri Glasgow Rangers er þekktur fyrir að eyða miklu fé í kaup á leikmönn- um, en svo virðist sem hann hafi alveg efni á því. Rangers er eitt ríkasta félag á Bretlandseyjum og ekkert lát virðist vera á peninga- streyminu í kassa þes's. Nú begar hafa verið seldir 21.000 ársmiðar á heimaleiki vetrarins, sem gefíð hef- ur 4 milljónir punda í aðra hönd. Það eru um 320 milljónir ísl. króna. ^ Forráðamenn félagsins vildu ekki selja fleiri ársmiða, en ásóknin í þá var svo mikil að félagið varð að endursenda 100.000 pund til þeirra sem skrifað höfðu og falast eftir miðum. Nær öraggt er að uppselt verði á hvem einasta heimaleik liðs- ins í vetur, en áhorfendastæðin rúma 44.000 manns. Þá hefur fé- lagið í sumar gert auglýsingasamn- inga sem gefa því 3 milljónir punda í vasann! ■ STEVE Hodge fer frá Tott- enham til Nottingham Forest eft- ir ailt saman. Eins og greint var frá í gær höfðu félögin komið sér sam- an um verð fyrir hann, 575.000 pund, en Hodge gat ekki sætt sig_ við þau launakjör sem Forest bauif^ Í gærmogun skipti hann svo um skoðun og ákvað að fara til síns gamla félags. FráBob Hennessy í Englandi GOLF / NORÐURLANDAMÓTIÐ „Teljum Útfar eiga möguleika á sigrí“ - sagði Jóhann R. Benediktsson landsliðseinvaldur er hann tilkynnti skipan íslenska liðsins í gær „VIÐ teljum að Úlfar Jónsson eigi raunhæfa möguleika á sigri og að íslandsmelstarinn Sigurður Sigurðsson sem verð- ur á heimavelli gæti líka bland- að sér í baráttuna," sagði Jó- hann R. Benediktsson landslið- seinvaldur f golfi f gær þegar hann tilkynnti fslenska liðið sem leikuró Norðurlandamót- inu sem fram fer helgina 20. og 21. ágúst á Hólmsvelli ■ÆT Islenska liðið verður skipað 14 kylfíngum, 9 í karlaflokki og 5 stúlkum. Öll Norðurlöndin senda keppendur á mótið og verða þeir 54, 33 í karlaflokki Bjöm og 21 í kvenna- Blöndal flokki. skrifar Jóhann R. Bene- diktsson valdi karla- liðið og Kristín Pálsdóttir landslið- seinvaldur í kvennaflokki valdi kvennaliðið. Karlaliðið verður skip- að eftirtöldum kylfíngum: Úlfari Jónssyni GK, Sigurði Sigurðssyni GS, Sveini Sigurbergssyni GK, Hannesi Eyvindssyni GR, Hilmari Björgvinssyni GS og Tryggva Traustasyni GK, sem skipa íslensku sveitina. Auk þess keppa þeir Gunn- ar S. Sigurðsson, Siguijón Amars- son og Bjöm Knútsson GK í keppni einstaklinga, en það land sem held- ur keppnina fær að senda 4 auka- menn í keppnina, 3 í karlaflokki og 1 í kvennaflokki. Kvennasvaltin Kvennasveitin verður skipuð þeim Steinunni Sæmundsdóttur GR, Karen Sævarsdóttur GS, Ragn- hildi Sigurðardóttur GR og Ásgerði Sverrisdóttur GR. Auk þess tekur Alda Sigurðardóttir GK þátt í ein- staklingskeppninni. Kristín Páls- dóttir landsliðseinvaldur sagði að stúlkumar hefðu æft vel að undan- fömu og hún hefði ekki séð þær æfa jafn markvisst fyrr. Þetta hefðu þær lært hjá John Gamer landsliðs- þjálfara. Kristín sagði að forgjöf kvennaliðsins vera þá lægstu sem liðið hefði haft, en ekki taldi hún að liðið ætti raunhæfa möguleika á verðlaunasætum. SJálfstraust Úlfar Jónsson var á Hólmsvellin- Morgunblaöiö/Bjöm Blöndal Islenska landsliðið í golfí á Hólmsvelli í Leiru í gær, ásamt landsliðsein- völdunum Jóhanni R. Benediktssyni, sem er aftast til hægri og Kristinu Páls- dóttur, fremst til hægri. um í Leira í gær eftir vel heppnaða keppnisferð til Sviss. Úlfar sagðist ætla að hvfla sig í tvo þijá daga áður en hann tæki upp þráðinn að nýju. Mótið í Sviss hefði gefið sér aukið sjálfstraust eftir fremur slaka daga á íslandsmótinu og hann væri staðráðinn í að gera sitt besta. Því er við að bæta að Úlfari hefur geng- ið vel f keppni í Leirunni, þar vann hann sinn fyrsta íslandsmeistaratit- ill og hann á vallarmetið á 72 holum sem er 284 högg er hann setti í fyrra. Ttlbúlnn Sigurður Sigurðsson nýbakaður íslandsmeistari verður á heimavelli#H á Norðurlandamótinu. Sigurður sagði að mótið legðist vel í sig og hann væri tilbúinn í slaginn. Jafnframt mótinu fer fram Norð- urlandaþing í golfi og þar er vitað um að Danir ætla að leggja fram tillögu þess efnis að áhugamanna- lögin verði rýmkuð. Þar verður meðal annars lagt til að áhugamenn " megi þiggja ferðir og hótelgistingu sem verðlaun fyrir sigur á mótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.