Morgunblaðið - 14.08.1988, Side 4

Morgunblaðið - 14.08.1988, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988 Jón Helgason landbúnaðarráðherra: Afnám vetrarbeitar er undirstaða uppgræðslu SdfoasL Landbúnaðarráðuneytið mun leg-gja mikla áherslu á friðun lands þar sem beitarálag er mik- ið og hætta á gróðureyðingu eða hún þegar hafin. Þetta kom með- al annars fram í máli Jóns Helga- sonar landbúnaðarráðherra í kynnisferð ráðuneytisins um Suður- og Suð-Austurland á fimmtudag. Jon sagði brýnasta verkefnið í uppgræðslumálum vera i Mývatnssveit þar sem Morgunblaðið/Sigurður Jðnsson Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri virðir fyrir sér öflugan vöxt melgresisins i Skógey. draga þyrfti verulega úr beit. Einnig væri brýnt að stöðva sauð- fjárbeit í Gullbringusýslu eins og sýslunefndin þar hefði beðið um. I kynnisferðinni var farið um landsvæði þar sem beitt hefur verið sérstöku átaki við uppgræðsluna á 4 þúsund hektara svæði í Skógey í A-Skaftafellssýslu. Þar hafa vam- argarðar verið settir upp til að hemja Homafjarðarfljót og Hof- fellsá. Einnig hefur þar verið sáð melgresi og öðrum tegundum með skjótum árangri. Farið var auk þess um svæði þar sem góður árangur hefur náðst á undanfömum árum með búhátta- breytingum, einkum afnámi vetrar- beitar, svo sem í Meðallandi, Mýr- dal, á Skeiðarársandi, Mýrdals- sandi, Stjómársandi og á Skógar- sandi. Landbúnaðarráðherra og for- svarsmenn þeirra stofnana sem vinna að gróðurvemd, landgræðslu og skógrækt lögðu mikla áherslu á að afnám vetrar- og vorbeitar væri undirstaða árangurs í uppgreiðslu. Forsenda árangurs uppgræðsl- unnar á söndunum er stokkun ánna með vamargörðum og greinilegt að gróður tekur fljótt við sér þegar ámar hætta að „flækjast" um sand- ana. Sumstaðar er gróðurinn aðeins hárahendingur eins og Jón land- búnaðarráðherra orðaði það að hætti Skaftfellinga en sagði árang- urinn greinilegan. Sturla Friðriksson hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins lét þess getið í ferðinni að með upp- græðslu sandanna mætti ná því að gróið land yrði jafn mikið að flatar- máli og talið er að hafi verið á land- námsöld. Egill Jónsson alþingis- maður fullyrti að um næstu alda- mót yrði Austur-Skaftafellssýsla algróin, þar myndi ekki sjást steinn nema í árfarvegi. Auk uppgræðslusvæða voru skógræktarsvæði skoðuð og starf- semin kynnt í skógræktarstöðinni á Tumastöðum í Fljótshlíð þar sem nokkur hundmð þúsunda plantna eru í uppeldi. Sig. Jóns. Morgunblaðið/RAX Nicholas Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi og Nancy Ruwe sendiherrafrú. Myndin var tekin í fyrradag þegar Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra og fylgdarlið kom til Washington frá Norfolk. Bandaríkin þarfnast fríverslunarsamn- ings frekar en Island - segir Nicholas Ruwe sendiherra Bandaríkjanna Washington. Frá Óla Birni Kárasyni, fréttaritara Morgunbladsins „EF EINHVER þarfnast friversl- ríkjanna á íslandi í samtali við unarsamnings milli Banda- Morgunblaðið, nokkru áður en ríkjanna og íslands, þá eru það opinberri heimsókn Þorsteins Bandaríkin,“ sagði Nicholas Pálssonar, forsætisráðherra, til Ruwe, sendiherra Banda- Bandaríkjanna lauk. Skýrsla um öryggismál í flugi: Flugkennslu er mjög ábótavant REGLUR um flugkennslu og flugskóla eru ófullkomnar, ekki er farið eftir þeim, flugskólar eru vanbúnir tækjum og mannafla og eru f hömlulausri samkeppni sin i milli, námsefni er ófullkomið, losara- bragur er á starfsemi flugskóla, umgengni um flugvélar er oft ábóta- vant. Þetta eru glefsur úr skýrslu, sem unnin var á vegum samgöngu- ráðherra um öryggi í flugmálum á íslandi. Fimm manna nefnd, sem Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra skipaði til þessa verks í júlí í fyrra, skilaði niðurstöðum sínum í desember. Flugráð fjallar nú um skýrsluna og þær tillögur til úrbóta sem nefndin setur fram. Hér á eftir verður gerð grein fyrir helstu atriðum þess kafla skýrsl- unnar sem fjallar um fiugskólamál og menntun flugmanna. Samtals 11 flugrekendur stunda er af skomum skammti. Landssími kennsluflug að einhveiju marki á landinu og hafa þeir allir hlotið flug- rekstrarleyfi og flugkennsluleyfi hjá samgönguráðuneyti og Flug- mála8tjóm. í skýrslunni segir, að engin reglugerð eða reglur séu til um það hveijir megi standa fyrir bóklegri kennslu einkaflugmanna, né hvaða kröfur þurfi að uppfylla til þess. Kennsla f bóklegum fræð- um fer enn fram eins og hún hefur alla tíð gert, eða á um það bil þriggja mánaða kvöldnámskeiðum sem stærri flugskólamir halda. Flugmálastjóm samþykkir þó f hveiju tilviki námskeiðin, námsefn- ið og kennarana. Kennarar á nám- skeiðunum eru venjulega starfandi fagmenn svo sem veðurfræðingar, flugliðar eða flugvéltæknar, en oft kenna flugkennarar einnig bókleg fræði. Þvf hafa kennarar mismikla reynslu og kennsluaðferðir þeirra era mismunandi og misgóðar, enda oftast heimatilbúnar, segir í skýrsl- unni. Þá segir þar að engar reglur séu til sem skilgreina hvaða skil- yrði kennarar slfkra bóklegra greina verða að uppfylla. Væntan- legir kennarar verði að taka hæfni- próf þjá loftferðaeftirlitinu áður en námskeiðið hlýtur samþykki Flug- málastjómar og hafa þau próf stundum farið á ýmsan veg. önnur helstu aðfinnsluefni f skýrslunni em m.a. að engin ein kennslubók er til á fslensku í bók- legum fræðum einkaflugmanna. Það er mjög bagalegt, þar sem enskukunnátta margra fiugnema íslands gefur út leyfisbréf til m.a. flugmanna samkvæmt reglugerð um rekstur radfóstöðva. Útgáfa þessi er framkvæmd án þess að gengið sé úr skugga um þekkingu eða fæmi væntanlegs handhafa lejrfisbréfeins. Flugskólastarfið er sagt vera oft nokkuð laust í reipun- um og að stundum virðist skorta innra eftirlit í flugskólunum þannig að þeir fari ekki eftir eigin reglum. Mannaskipti við skólana em tíð og brenna vill við að gögn og hand- bækur fari á flæking eða glatist. Þá segir að losarabragur sé á því, hversu mikla verklega þjálfun einkaflugmaður fær fyrir atvinnu- flugpróf og mun vera nokkur mun- ur á milli flugskólanna hvað það varðar. Um blindflugsnám segir, að ekki séu gerðar neinar sérstakar eða tilteknar kröfur um raunvera- lega blindflugsreynslu kennaranna. Um hæfniþjálfun og síþjálfun segir að mikill misbrestur sé á að framkvæmd sé í samræmi við regl- ur Flugmálastjómar. Þessi þjálfun er skilyrði fyrir endumýjun flugskírteina. Starfeemi flugskólanna fær enn frekari gagnrýni. Um rekstur flug- skóla og útibúa stærri flugskólanna sem starfa utan Reykjavíkur og Akureyrar er sagt að reynslan af þeim sé misjöfn. Nemendur hafi fengið stopula kennslu og vanist aðha)dsley8i við vafasöm skilyrði. Borið hafi á því að nemendur sem læra til einkaflugréttinda f flugskól- um úti á landi séu illa búnir undir flugvallaumferð og stjómað flug. Taumlaus samkeppni skólanna veldur þeim stöðugum flárhagserf- iðleikum sem getur komið niður á viðhaldi flugvéla. í skýrslunni er sagt, að flugvirkjar skrifi flugvélar iðulega út úr skoðun, þótt þær upp- fylli ekki kröfur til þess flugs sem þær vom samþykktar og skráðar til. Umgengni um flugvélamar er oft ábótavant og stuðlar það að kæmlpysi væntanlegra einkaflug- manna, segir skýrslan. Bókleg námskeið fyrir væntan- lega flugkennara hafa ekki verið haldin, heldur hefur sjálfenám verið látið duga. í ráði er þó að bæta úr þessu samkvæmt reglugerðar- ákvæði um útgáfu flugskírteina: „Flugmálastjóm getur ákveðið, að bóklegt flugkennaranám sé stundað á sérstöku námskeiði sem hún við- urkennir.“ Talsverð ásókn er meðal ungra atvinnuflugmanna í að afla sér flug- kennararéttinda og fá sfðan vinnu við flugskólana til þess að safna flugtímum. Flestir starfandi flug- kennarar em ungir menn sem bíða eftir að fá starf hjá flugfélögunum. Flugskólamir nota sér samkeppn- ina, segir skýrslan, og laun kennara em lág. Mörg dæmi em um að flug- nemi hafi haft marga kennara hvem eftir annan, sem kenndu að því er virðist án samráðs sín í milli, segir í skýrslunni. Oft hafi verið farið yfir námsefnið og einstakar æfingar án samhengis, þótt spjald- skrám sé ætlað að koma f veg fyr- ir það. Úrbætur Nefndin setur síðan fram tillögur um úrbætur, eftir að hafa gert grein fyrir ástandi flugkennslumála hér á landi og borið saman við tilhögun kennslunnar í nokkram nágranna- löndum. Tillögumar um flugskól- ana em í níu liðum og er hér á eftir greint frá helstu efnisatriðum þeirra. Lagt er til að reglugerð um flug- skóla verði endurskoðuð og að umsækjandi um leyfi til að mega stunda flugkennslu verði að sýna fram á fjárhagslega getu sína til að vera fær um að uppfylla strang- ar kröfur um flugskóia, enda verði kröfunum fylgt fast eftir. Lagt er til að séð verði til þess að óhófleg samkeppni skapist ekki milli flug- skólanna og sagt æskilegt að flug- kennslan verði aðallega á Reykjavíkursvæðinu eða á Akur- eyri. Þá er lagt til að a.m.k. yfir- kennari flugskóla verði fastur starfemaður, að flugvirki hafi dag- legt eftirlit með kennsluflugvélum, að kennslan verði að vera á per- sónulegum gmndvelli og að skól- amir verði að hafa góðan aga á nemendum og kennuram. Nefndin leggur til að gefið verði út námsefni á íslensku og að keypt verði tvö flugþjálfunartæki, annað fyrir eins hreyfils flugþjálfun og hitt fyrir tveggja hreyfla flugþjálf- un. Lagt er til að settar verði regl- ur um hveijir megi standa fyrir bóklegri kennslu til einkaflugs, hvaða skilyrði þeir verði að uppfylla til að fá slík leyfi og halda þeim og um hæfniskröfur til kennara. Nefndin leggur mikla áherslu á að komið verði skipulagi á nám og þjálfun flugkennara. Lagt er til að heimildir til að nemendur noti eigin flugvélar í flugnámi verði þrengdar. Þá er loks lagt til að komið verði á fót einum skóla til atvinnuflugkennslu og sú kennsla fari fram á háskólastigi innan vébanda verkfræðideildar Háskóla íslands. Þessa neftid skipuðu Jóhannes R. Snorrason, Karl Eiríksson for- maður, Leifur Á. Ámason, Pétur Einarsson og Skúli J. Sigurðarson ritari. Flugráð hefur þessa skýrslu nú til meðferðar og mun skila áliti um hana á næstu dögum. Ruwe sagði margir bandarískir kaupsýslumenn kæmu til sín í sendiráðið og að þeir væm sam- mála um að þeir gætu sjaldnast keppt á íslenskum markaði vegna tolla. „Það sem kemur fyrst í hug- ann em aðvitað bflar. Eg held að ísiendingar hafí ekið japönskum bflum nógu lengi til að komast að því að bandarískir bflar era miklu betri,“ sagði sendiherrann. „’Eg er ekki að gera að gamni mínu þegar ég segi, að ef einhver þarf á viðskiptaviðræðum að halda þá eru það Bandaríkjamenn." Ruwe sagði að samkeppnisstaða banda- rískra fyrirtælga á íslandi væri erf- ið. Ruwe sagði að samskipti Banda- ríkjanna og íslands væru mikilvæg fyrir báða aðila: „Heimsókn Þor- steins sýnir Bandaríkjamönnum, íslendingum og kannski ekki síður öðram þjóðum hversu góð sam- skipti ríkjanna era. Heimsóknin sýnir að Bandaríkjastjóm lítur á samskipti ríkjanna sem mikilvæg og að henni er ekki sama um hvem- ig þau eru,“ sagði Ruwe þegar hann var spurður um það hvað heimsókn Þorsteins Pálssonar þýddi fyrir samskipti íslands og Banda- ríkjanna. „Samskipti okkar era mjög mikilvæg og þvf er ekki sama hvemig þau em.“ Ruwe sagðist vona að heimsóknin færði þjóðimar hvora nær annarri: „Vinátta íslands og Bandaríkjanna stendur traustum fótum og ég vona að heimsókn for- sætisráðherra styrki undirstöður vináttu landanna enn meira,“ sagði Ruwe. „Við tókum eftir því að forsætis- ráðherra íslands hafði aldrei verið boðið í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna," sagði Ruwe þegar hann var spurður að því hvers vegna Þorsteini Pálssyni, forsætisráð- herra, var boðið í opinbera heim- sókn til Bandaríkjanna. „Eitt af því besta sem forseti Bandaríkjanna getur gert er að bjóða þjóðhöfðinga eða forsætsráðherra annars lands I opinbera heimsókn." Ruwe sagði að ísland væri góð vinaþjóð Banda- ríkjanna, enda löndin bæði íNATO.„Það sem við höfum orðið vitni að undanfama daga, er að stærsta og öflugasta land NATO, bauð forsætisráðherra smæsta að- ildarrfldsins, í opinbera heimsókn. Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti tók á móti Þorsteini Pálssyni, for- sætisráðherra ykkar sem félaga og samheija, en þó fyrst og fremst sem jafninga," sagði Ruwe.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.