Morgunblaðið - 14.08.1988, Blaðsíða 60
NÝTT FRÁ KODAK
ÞETTA
HRESSANDI.
FRÍSKA BRAGÐ
SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Hvammstangi:
Bændur
Jeigja
sláturhús
BÆNDUR í Vestur-Húnavatns-
sýslu stofnuðu hlutafélag um
rekstur sláturhúss þrotabús
Verslunar Sigurðar Pálmasonar
á Hvammstanga sl. fimmtudags-
kvöld. 15 bændur höfðu skráð
sig sem hluthafa i þessu nýja
fyrirtæki sl. föstudag og er gert
ráð fyrir að stofnfé verði um 800
þúsund krónur.
Bændumir gerðu leigusamning
við þrotabússtjóra Verslunar Sig-
Ijrðar Pálmasonar til eins árs. Að
' ' sögn Friðrik Böðvarssonar bónda
að Syðsta—Ósi heldur þrotabúið
sláturleyfinu og ætla bændur að
slátra undir merki þess.
Hyggjast þeir síðan sækja um
undanþágu til landbúnaðarráðu-
neytisins um sláturleyfi fyrir hið
nýja félag. Fái þeir undanþágu og
takist vel til með reksturinn ætla
bændumir að gera nauðsynlegar
breytingar á sláturhúsinu svo það
fái löggildingu.
___ Að sögn Friðriks réðust bændur
í þetta til að missa ekki þann mark-
að fyrir ófryst kjöt sem sláturhús
Verslunar Sigurðar Pálmasonar á
sínum tíma kom á. Auk þess sem
stór sláturhús séu óhagkvæm til
minni slátrunar þar sem mikill til-
kostnaður sé við að koma slátrun
í gang og hætta henni. Bændur
hafa náð betra verði fyrir dilkakjöt
sem slátrað er í óhefðbundinni slát-
urtíð og sagði Friðrik að áfram-
haldandi rekstur sláturhússins
kæmi bæði bændum og neytendum
til góða.
Lögreglumenn að störfum á slysstað. Morgunbiaðið/Svemr
Reykjanesbraut:
Tveir létust í umferðarslysi
TVEIR karlmenn, annar um þrítugt, hinn um fertugt, létust í I Leigubíll á leið til Reykjavíkur og Lada-bifreið á leið suður rákust
umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut á Strandarheiði um I saman og varð áreksturinn mjög harður. Einn maður var í hvorum bíl
klukkan 5.30 að morgni laugardagsins. | og létust báðir.
Morgunblaðið/Þorkell
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands dáðist mjög að fánaborg
barnanna sem heilsuðu henni á Siglufjarðarflugvelli.
Siglufjörður:
Fjölmenni tók á
móti forsetanum
Sigiufirði. Frá Þóninni Sveinbjamardóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
FJÖLMENNI var við móttökuat-
höfn á Siglufjarðarflugvelli i
gær þegar Vigdis Finnbogadótt-
ir, forseti íslands, kom til Siglu-
fjarðar í boði bæjarstjórnar.
Með komu forsetans hófust
hátíðarhöld vegna 70 ára kaupstað-
arafmælis og 170 ára verslunaraf-
mælis Siglufjarðar. Fulltrúar úr
bæjarstjóm tóku á móti forsetanum
á flugvellinum og bauð Bjöm Jón-
asson forseti bæjarstjómar hana
velkomna á afmælishátíðina. Sigl-
fírsk hnáta, Sigurlaug Ragna
Guðnadóttir, færði forsetanum
blómvönd.
Hátíðarhöld vegna afmælisins
standa í eina viku og mun margt
tii skemmtunar og fróðleiks. Bær-
inn skartaði sínu fegursta við upp-
haf hátíðarhaldanna í gær, enda
margt verið gert til að fegra bæinn
og umhverfí hans í tilefni afmælis-
ins.
Ráðgjafanefnd ríkisstjórnarinnar um efnahagsaðgerðir:
Hliðarráðstafanir
aðalatriði aðgerða
segir Einar Oddur Kristjánsson formaður nefndarinnar
EINAR ODDUR Kristjánsson,
formaður ráðgjafanefndar ríkis-
stjórnarinnar, segir að nefndin
sé að vinna að tillögum um hlið-
arráðstafanir með efnahagsað-
gerðum, þar sem slíkar ráðstaf-
anir væru í raun aðalatriðið ef
þær efnahagsaðgerðir, sem
framundan eru, ættu að vera
varanlegar, og þær ættu við um
hvaða meginleið sem stjórnvöld
veldu þar. Einar sagði, að það
væri ítrekaður vilji nefndar-
manna til þess að skila sameigin-
legri niðurstöðu.
Einar Oddur Kristjánsson vildi
ekki staðfesta við Morgunblaðið
hvaða leiðir væru nú helst til athug-
unar í nefndinni, en svokölluð niður-
færsluleið hefur komið inn í umræð-
una síðustu daga og verið mjög til
skoðunar í ráðgjafanefndinni. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins leggur Alþýðuflokkurinn mikla
áherslu á þessa leið í stað þess að
fella gengið og hinir stjórnarflokk-
arnir hafa tekið jákvætt í að leiðin
verði skoðuð.
í mjög einfaldri mynd felst niður-
færsla í því að laun yrðu lækkuð
með lögum, svo og öll opinber þjón-
usta og gjaldskrár fyrirtækja.
Nafnvextir munu væntanlega fara
lækkandi á næstunni vegna minnk-
andi verðbólgu, og myndu við þetta
lækka enn meira svo og raunvext-
ir. Þetta hefði þau áhrif að rekstrar-
kostnaður fyrirtækja minnkaði og
verðlag lækkaði þar sem verslunin
hefði tök á og yrði að lækka verð
á vörum í samræmi við minnkaða
kaupgetu almennings.
Sem dæmi er nefnt að 10% kaup-
lækkun er talin myndi leiða til 6%
lækkunar verðlags. Verðbólgan
myndi lækka í 7% innan tveggja
mánaða og vextir í um 13% á svip-
uðum tíma. Þessi lækkun verðlags
myndi leiða til lækkana vísitalna
og lánskjaravísitala yrði væntan-
lega neikvæð þannig að verðtryggð
lán lækkuðu. Heildarkaupmáttar-
skerðing yrði í kringum 1%. Til að
þessir útreikningar standist þyrfti
þó ýmislegt að ganga eftir sem
m.a. er háð ytri skilyrðum.
Einar Oddur sagði að væntanlega
yrði gengið frá tillögum í nefndinni
nú eftir helgina um ráðstafanir til
að bæta rekstrarskilyrði samkeppn-
isgreinanna. Nefndinni er einnig
ætlað að gera tillögur um ráðstaf-
anir til að treysta eiginfjárstöðu
fyrirtækja og sagði Einar að nefnd-
in myndi snúa sér að því í næstu
viku en stefnt er að því að hún ljúki
störfum um næstu helgi.
• •
Olvaður ók
á ellefu bfla
ÖLVAÐUR ökumaður á þrítugs
aldri skemmdi 11 bOa við B0a-\
sölu Vesturlands í Borgarnesi
aðfararnótt laugardagsins.
Maðurinn ók Lada-bifreið sinni
úr Reykjavík í Borgames aðfara-
nótt laugardagsins. í Hvalfirði ók
hann niður vegstikur og skemmdi
umferðarmerki. í Borgamesi ók
hann rakleiðis að Bílasölu Vestur-
lands og ók á að minnsta kosti 11
bíla og skemmdi nokkra þeirra tals-
vert mikið. Sást til hans og stöðv-
aði lögregla hann á norðurleið
skammt fyrir utan bæinn.